Morgunblaðið - 13.04.2013, Page 4

Morgunblaðið - 13.04.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Skúli Hansen Hjörtur J. Guðmundsson Heimir Snær Guðmundsson Erfitt er að meta líkurnar á því hvort Bjarni Benediktsson haldi áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins að sögn Grétars Þórs Eyþórsson, stjórnmálafræðiprófessor við Há- skólann á Akureyri. Grétar bendir á að Bjarni sé hinsvegar búinn að opna á þann möguleika að hætta, með yf- irlýsingum sínum. Þá segir Grétar að yfirlýsingar Bjarna bendi til þess að verulegur þrýstingur sé á honum. Þá bendir Grétar einnig á að ekki þurfi svo mikla sveiflu sjálfstæðis- manna sem snúi heim frá Framsókn- arflokknum til að jafna metin. Þá segir hann að Bjarni muni þurfa á mjög skýrum meldingum úr flokkn- um að halda til að geta haldið áfram sem formaður. Stuðningur frá flokksmönnum „Já, hinsvegar verðum við kannski líka að horfa á vangaveltur for- mannsins í ljósi þess að samkvæmt skoðanakönnunum frá því í janúar þá stefnir í annan sögulegan ósigur Sjálfstæðisflokksins í röð í kosning- um. Því síðast var sögulegur ósigur 2009. Öðru eins 2013 held ég að eng- an hafi órað fyrir, fyrir nokkrum mánuðum. Það er von að menn í Sjálfstæðisflokknum leiti logandi ljósi til að snúa taflinu við,“ segir Grétar aðspurður hvort þessar vangaveltur Bjarna væru ekki tíð- indi í sjálfu sér. Bjarna barst stuðningur frá fjölda flokksmanna í gær í kjölfar ummæla sinna í fyrrnefndu viðtali í Ríkissjón- varpinu í fyrrakvöld þess efnis að hann útilokaði ekki að draga sig í hlé sem formaður flokksins. „Það hefur ekki hvarflað að mér að stíga til hlið- ar þó að það hafi blásið á móti, en ég verð að viðurkenna að núna, svona nálægt kosningum, og í ljósi þeirrar umræðu sem er að grafa um sig í þjóðfélaginu, að hluti vandans sé að einhverju leyti tengdur formannin- um, að þá get ég bara ekki leyft mér annað en að velta því fyrir mér. Ég verð að gera það,“ sagði Bjarni í um- ræddu viðtali. Enn liggur ekkert fyr- ir um hvaða ákvörðun hann muni taka í málinu og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Bjarna í gær. Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi höfðu rúmlega 1.200 manns mælt með fésbókarsíðunni „Við styðjum Bjarna Benediktsson“. Í stuttri lýsingu á síðunni segir að Bjarni hafi sýnt ótrúlegan kjark í viðtalinu á RÚV í fyrrakvöld, þá hafi hann þar sýnt að hann sé einlægur og heiðarlegur maður sem þori að segja sannleikann. Þá lýstu ýmis fé- lög innan Sjálfstæðisflokksins yfir eindregnum stuðningi við Bjarna í gær, þar á meðal Samband ungra sjálfstæðismanna, Sjálfstæðisfélagið í Vestmannaeyjum, Eyverjar – félag ungra sjálfstæðismanna í Vest- mannaeyjum og stjórn Samtaka eldri sjálfstæðismanna. Baráttan heldur áfram „Já, kosningabarátta flokksins hefur haldið áfram eins og hún var áformuð þannig að það er allt á fullu hér í Valhöll eins og hefur verið síð- ustu daga. Við finnum fyrir því að okkur er farið að ganga betur í sam- tölum okkar við kjósendur og erum með miklar væntingar um það að við munum ná árangri,“ segir Jónmund- ur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, spurður um stöðuna í Valhöll og hvort forystu- menn flokksins hefðu verið í ein- hverjum skipulögðum fundahöldum um stöðuna í gær. Spurður að því hvort Bjarni hafi fundað með framámönnum í flokkn- um í Valhöll í gær um stöðu málsins segir Jónmundur að Bjarni hafi ver- ið í miklu sambandi við oddvita flokksins í öllum kjördæmum og auk þess verið á ferð og flugi á fundum. „Ekki síst í sínu eigin kjördæmi, bara eins og dagskrá dagsins bauð uppá.“ Morgunblaðið/Ómar Formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson mun flytja ræðu á kosningafundi í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ klukkan ellefu í dag. Óvissa um framtíð Bjarna  Rúmlega 1200 manns hafa lýst yfir stuðningi við Bjarna á fésbókarsíðu  Stjórnmálafræðiprófessor segir Bjarna þurfa skýrar meldingar úr flokknum Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segist styðja for- mann flokksins hvort sem hann taki ákvörðun um að segja af sér eða ekki. Hann vill þó ekki segja til um hvort þjóni hagsmunum Sjálfstæðisflokksins betur, að Bjarni Benediktsson stígi til hliðar sem for- maður eða haldi áfram og leiði flokkinn í komandi alþingiskosn- ingum. Viðtalið mun styrkja flokkinn „Ég held að óvissan hafi nú ekki aukist eða minnkað. Þetta var mjög gott, heiðarlegt og einlægt viðtal við hann í gær. Mér fannst hann vaxa af því, ég held að þetta viðtal muni styrkja flokkinn og hann sjálfan. Nú þarf hann að taka ákvörðun og það er vissulega fólgin ákveðin óvissa í því,“ segir Pétur, spurður hvort hann sé þeirrar skoðunar að þessi óvissa um framtíð Bjarna sem for- manns skaði flokkinn í kosningabar- áttunni. Þá segir Pétur að könnun Við- skiptablaðsins sem sýndi að flokk- urinn fengi meira fylgi með Hönnu Birnu sem formann sé ekki ný tíð- indi. „Það er eitthvað sem við höfum skynjað í kosningabaráttunni mjög víða. Við skynjuðum að sumir voru ekki sáttir með Bjarna sem for- mann, þess vegna finnst mér hann hafa tekið af skarið,“ segir Pétur. Segist styðja Bjarna óháð þeirri ákvörð- un sem hann tekur Pétur H. Blöndal Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæð- isflokksins, segist að sjálfsögðu styðja Bjarna Benediktsson, formann Sjálf- stæðisflokksins, og þá ákvörðun sem hann tekur. Einlægt viðtal „Þetta var gott og einlægt viðtal og ég hef ekki orðið var við annað en að menn muni styðja hann í þeirri ákvörðun sem hann tekur,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins og bætir við að flokksmenn vinni allir saman í þessari kosningabaráttu og að hann viti ekki til þess að sú samstaða hafi brugðist gagnvart forystu flokksins. Flokksmenn vinni allir saman í kosn- ingabaráttunni Guðlaugur Þór Þórðarson „Ég mun styðja þá niðurstöðu sem formaður Sjálf- stæðisflokksins kemst að. Hann hefur óskað eftir tíma til að skoða stöðu sína og við eigum að virða það,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, í samtali í gær. Þá benti Hanna Birna jafnframt á að hún hefði ítrekað lýst því yfir að hún liti svo á að landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefði valið sér þann formann sem ætti að leiða flokkinn í gegnum komandi kosningar. „Það er ástæðan fyrir því að ég fór ekki aftur í framboð á síðasta landsfundi. Sú skoðun mín hefur ekki breyst, enda ekki nema nokkrar vikur síðan Bjarni fékk umboð til að leiða flokkinn áfram.“ Mun styðja niðurstöðu Bjarna SEGIR LANDSFUND HAFA VALIÐ SÉR FORMANN Hanna Birna Kristjánsdóttir Ellefu framboð munu bjóða fram lista í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum þann 27. apríl næstkomandi en frestur til að skila inn formlegri tilkynningu um fram- boð rann út á hádegi í gær. Í framboði á landsvísu verða því listar frá: Sjálfstæðisflokknum, Sam- fylkingunni, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, Framsóknarflokkn- um, Bjartri framtíð, Dögun, Hægri grænum, Regnboganum, Lýðræðis- vaktinni og Pírötum. Í Norðvestur- kjördæmi verða framboðslistarnir hinsvegar tólf en þar bætist við fram- boðslisti Landsbyggðarflokksins. Þá munu Húmanistaflokkurinn og Al- þýðufylkingin bjóða fram lista í báð- um Reykjavíkurkjördæmunum. Jafnframt mun flokkurinn Sturla Jónsson bjóða fram lista í Reykjavík- urkjördæmi suður. Yfirkjörstjórnir eiga eftir að fara yfir framboðslistana en landskjör- stjórn mun auglýsa framboðslista eigi síðar en 17. apríl, eða tíu dögum fyrir kjördag. skulih@mbl.is Ellefu flokkar með framboð á landsvísu  Framboðsfresturinn rann út í gær Kosningar 11 framboð á landsvísu. BERIÐ SAMAN VERÐ OG GÆÐI Grill sem endastSmiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Opið laugardaga til kl.16 www.grillbudin.is 59.900 49.900 109.900 YFIR 40 GERÐIR GASGRILLA YFIR 20 GERÐIR KOLAGRILLA 10,5 kw/h 13,2 kw/h Bjarni Benediktsson útilokar ekki að stíga til hliðar sem formaður Sjálfstæðisflokksins Jónmundur Guðmarsson Grétar Þór Eyþórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.