Morgunblaðið - 13.04.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
www.jonar.is
Geimstöðvargámurinn hans
Það var öllu tjaldað til þegar Jónar fluttu tól og tæki fyrir kvikmyndina
Oblivion, sem kvikmynduð var á Íslandi í fyrra. Einni bíómynd fylgir mikil
vinna og margir sem koma að slíku verki.
Sérstakar ráðstafanir þurfti svo vegna geimstöðvarinnar enda passaði
hún ekki í neinn gám sem fyrir var.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
J
L
.I
S
•
S
ÍA
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
Í byrjun júní á þessu ári taka gildi
skipulagsbreytingar á starfsemi
legudeildar lyf- og húðsjúkdóma-
lækningadeildar Landspítala.
„Deildinni, sem áður hét húð- og
lyflækningadeild, hefur verið breytt
í bráðadeild sem sinnir nú einnig
öðrum sjúklingahópum,“ segir Vil-
helmína Haraldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri lyflækningasviðs. Að
sögn hennar er langflestum sjúkling-
um með húðsjúkdóma sinnt á göngu-
deildinni. „Það heyrir til undantekn-
inga ef sjúklingar þurfa að leggjast
inn,“ segir Vilhelmína, en hún segir
að yfirleitt liggi þrír til fimm sjúk-
lingar inni á deildinni og stundum
færri. „Þegar deildin er fyrst og
fremst orðin bráðalækningadeild þá
passar ekki að hafa húðsjúklinga á
deildinni,“ segir Vilhelmína.
Gísli Ingvarsson, húðsjúkdóma-
læknir, gagnrýnir þessa breytingu.
„Við höfum séð, að ef þessir sjúkling-
ar eru settir inn á aðrar deildir
kunna hjúkrunarfræðingar því mið-
ur ekki til verka,“ segir hann, en á
deildinni starfa nú hjúkrunarfræð-
ingar sem þekkja meðhöndlun sjúk-
dómanna vel og það geri samskipti
og meðferð þægilegri.
Óttast að þeir feli sig
„Ég óttast líka að sjúklingarnir
feli sig,“ segir Gísli. „Þessir sjúkling-
ar vilja heldur ekki fara inn á hvaða
deild sem er.“
Vandamál sjúklinganna eru oft
þess eðlis að þau veki ugg hjá öðrum
sjúklingum sem þekki ekki sjúkdóm-
ana og óttist jafnvel smit. „Þannig
getur þetta valdið félagslegum
óþægindum fyrir húðsjúklingana,“
segir Gísli, en einkenni þeirra eru
eðli samkvæmt sýnilegri en einkenni
annarra sjúkdóma.
Legudeild húðsjúkdóma breytt
Húðlæknir
gagnrýninn
Morgunblaðið/ÞÖK
Breytingar Flestum sjúklingum með húðsjúkdóma er sinnt á göngudeild.
Gísli Ingvarsson, húðlæknir,
segir að með þessum breyt-
ingum verði engin legudeild á
Íslandi sem sérhæfir sig í
meðhöndlun og umönnun húð-
sjúklinga.
Hann segist óttast að spít-
alinn missi ákveðið aðdrátt-
arafl vegna þessara skipu-
lagsbreytinga. Einstaklingar
sem hafi farið til útlanda í
sérnám snúi þá ef til vill síður
heim til Íslands að námi
loknu.
„Það að ekki sé húðdeild á
Íslandi hljómar steinald-
arlega,“ segir Gísli.
Missi að-
dráttarafl
MINNI SÉRHÆFING