Morgunblaðið - 13.04.2013, Page 8

Morgunblaðið - 13.04.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Hampiðjan þjónustar sjávar-útveginn, ekki aðeins hér á landi heldur einnig erlendis. Þess vegna er fróðlegt að heyra álit for- stjóra fyrirtækisins, Jóns Guð- manns Péturssonar, á sjávarútveg- inum hér og umræðunni um hann.    Í samtali við við-skiptablað Morgunblaðsins sagðist hann hvergi heyra talað um sjávarútveginn eins og hér á landi. Kvótakerfi hefði rutt sér til rúms í mörgum löndum og skapað mikið hagræði í greininni og gert fyr- irtækjum kleift að snúa tapi í hagnað.    Þrátt fyrir þetta væri ekkikvartað undan hagnaði sjáv- arútvegsins erlendis og þar væri ekki uppi krafa um að gera hagn- aðinn upptækan í ríkissjóð.    Um ástandið hér sagði Jón Guð-mann: „Áður en kvótakerfið kom til sögunnar hér á landi gengu útgerðirnar illa og oft þrautin þyngri að fá reikningana greidda hjá þeim. Þær áttu margar í stökustu vandræðum. Það er ekki lengra síðan en 1988 að stofnaður var opinber sjóður með skattfé sem átti að bjarga þeim útgerðum sem hægt var að bjarga, að sögn þáverandi forsætisráðherra. Nú er vandinn sem sumir stjórn- málamenn sjá helstan í landinu að útgerðir hagnast. Ríkisstjórnin hefur með atlögum sínum að sjáv- arútveginum svipt hann framtíð- arsýninni. Þegar svo ber undir hætta fyrirtækin að skapa sér tækifæri til framtíðar, að þróa, fjárfesta og sækja fram.“    Hér er forstjóri Hampiðjunnarað lýsa því hvernig stjórn- völd hafa leikið sjávarútveginn. Hvernig gat þetta gerst? Jón Guðmann Pétursson Hvergi nema hér STAKSTEINAR Óháð ráðgjöf til fyrirtækja Firma Consulting gerir fyrirtækjum tilboð í eftirfarandi þjónustu: • Kaup, sala og sameining. • Verðmat fyrirtækja. • Samningaviðræður, samningagerð • Áætlanagerð. • Fjárhagsleg endurskipulagning. • Samningar við banka. • Rekstrarráðgjöf. Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík. Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766 info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is Veður víða um heim 12.4., kl. 18.00 Reykjavík -2 léttskýjað Bolungarvík -3 skýjað Akureyri -3 snjóél Kirkjubæjarkl. -1 skýjað Vestmannaeyjar 0 léttskýjað Nuuk 0 heiðskírt Þórshöfn 5 skúrir Ósló 3 skýjað Kaupmannahöfn 7 þoka Stokkhólmur 2 þoka Helsinki 5 skýjað Lúxemborg 8 skýjað Brussel 12 léttskýjað Dublin 11 léttskýjað Glasgow 6 skúrir London 11 léttskýjað París 15 léttskýjað Amsterdam 8 skýjað Hamborg 12 léttskýjað Berlín 12 léttskýjað Vín 14 alskýjað Moskva 6 heiðskírt Algarve 17 léttskýjað Madríd 16 heiðskírt Barcelona 18 heiðskírt Mallorca 18 léttskýjað Róm 18 léttskýjað Aþena 18 léttskýjað Winnipeg 0 alskýjað Montreal 0 slydda New York 5 skúrir Chicago 4 alskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:02 20:56 ÍSAFJÖRÐUR 5:58 21:09 SIGLUFJÖRÐUR 5:41 20:52 DJÚPIVOGUR 5:29 20:27 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Matvælastofnun kom 17 sinnum til okkar í heimsókn í fyrra. Stofnunin gerir okkur að líma merkimiða á vörur til að framfylgja reglugerð frá Evrópusambandinu. Stofnunin hef- ur tjáð okkur að tilefnið sé ítrekaðar kvartanir frá heildsölum og sam- keppnisaðilum um að við séum ekki að fylgja reglum. Það má því segja að það sé verið að siga hinu op- inbera á okkur,“ segir Jón Gerald Sullenberger, eigandi lágvöruverðs- verslunarinnar Kosts, um ítrekar heimsóknir stofnanarinnar til versl- unarinnar. Betri merkingar vestanhafs Að sögn Jóns Geralds er ástæðan sú að Kostur þarf að merkja vörur í samræmi við staðla sem ESB geri kröfu um í gegnum EES-samning- inn. Kostur flytur inn mikið af vörum frá Bandaríkjunum og segir Jón Gerald að þar séu vörumerk- ingar að jafnaði betri og eftirlit með matvælaframleiðslu strangara en í ríkjum Evrópusambandsins. Mat- vælastofnun vísi því án tilefnis til evrópskrar löggjafar, enda sé ekki hægt að bera því við að merkingarn- ar séu ófullnægj- andi. Eftirlitið sé því fram úr hófi og torveldi honum að flytja inn bandarískar vörur. Hann hafi undir höndum gögn frá heil- brigðiseftirlitinu sem sýni að eftir- litið sé runnið undan rifjum sam- keppnisaðila. Eftirlitið versluninni dýrkeypt Þetta sé neytendum dýrkeypt sem og kostnaður við að greiða tveim starfsmönnum laun fyrir að merkja vörur að kröfu ESB. Hér sé á ferð óþarfa kostnaður sem komi niður á neytendum. Þá sé matarverð mun lægra í Bandaríkjunum en víða í Evrópu, munur sem íslenskir neyt- endur njóti ekki af þessum sökum. Starfsmenn Matvælastofnunar hafi þegar komið sex sinnum í ár. „Við þurfum meira að segja að merkja kaffibaunir. Tilgangurinn með þessu er að vinna skipulega að því að koma í veg fyrir að Kostur reyni að flytja inn ódýrar neysluvör- ur frá ríkjum utan ESB.“ Morgunblaðið/Ómar Á Dalvegi Verslunin Kostur er í Kópavogi. Hún var opnuð árið 2009. Telur Kost vera lagðan í einelti  Kaupmaður kvartar undan eftirliti Jón Gerald Sullenberger „Kortaþjónustan áskilur sér rétt til að fara fram á skaðabætur vegna þessa máls, enda er ólíðandi að sitja undir endurteknum lögbrotum af hálfu keppinauta okkar á mark- aði.“ Þetta stendur í tilkynningu sem Kortaþjónustan sendi frá sér í gær eftir að Samkeppniseftirlitið lagði 500 milljóna króna sekt á Val- itor fyrir alvarleg brot á samkeppn- islögum. Í ákvörðun Samkeppniseftirlits- ins, sem birtist í gær, er komist að þeirri niðurstöðu að Valitor hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Einnig braut Valitor gegn skil- yrðum sem fyrirtækið hafði skuld- bundið sig til þess að virða. Valitor mun vísa ákvörðuninni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá fyrirtækinu. Enn- fremur er þar bent á að Valitor hafi í tvígang þurft að leita á náðir dóm- stóla í tengslum við þetta mál og í bæði skiptin hafi Hæstiréttur úr- skurðað Valitor í vil. Íhugar lögsókn og fer fram á skaðabætur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.