Morgunblaðið - 13.04.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Langar þig að búa hér?
TIL SÖLU – LJÓSAKUR 2-8, GARÐABÆ
Mannverk reisir 24 íbúðir á Ljósakri 2-8 í Garðabæ. Í hverju húsi eru sex
2-4 herbergja íbúðir, þrjár á hverri hæð og geymslur í kjallara.
Galdurinn á bak við þessi hús er einfaldleikinn. Sérinngangur er að hverri
íbúð sem tekur á móti þér björt og hlýleg, með hátt til lofts og stórum
gluggum. Veglegar svalir bjóða þér út að horfa suður yfir Garðabæ.
Fáðu nánari upplýsingar um draumaíbúðina á mannverk.is eða hjá söluaðilum.
Arkitektahönnun: Teiknistofa Ingimundar Sveinssonar.
K
ei
lir
B
es
sa
st
að
ir
Fyrr í vikunni var tilkynnt innköllun
á sjöhundruð Toyota bifreiðum
vegna hugsanlegs galla í loftpúða.
Nokkuð hefur verið um innkallanir á
bifreiðum frá Toyota umboðinu síð-
astliðin ár vegna hvers kyns galla og
bilana.
Á árunum 2008 til 2012 voru
14.693 bifreiðar innkallaðar. Engin
bifreið var kölluð inn árið 2008, 896
bifreiðar árið 2009, 4.916 árið 2010,
rúmlega þrjúhundruð árið 2011 og
8.536 bílar á síðasta ári. Páll Þor-
steinsson, upplýsingafulltrúi Toyota
umboðsins á Íslandi, telur mögulegt
að sumir viðskiptavinir hafi komið
oftar en einu sinni með sama bílinn
vegna þessara innkallana.
Páll segir bílaframleiðendur gera
meiri kröfur nú og gæðastaðlar séu
hærri en áður. „Öryggisbúnanaður í
bílum er einnig betri en hann var áð-
ur,“ segir Páll.
larahalla@mbl.is
Fjórtán þúsund bílar innkallaðir
Gera meiri kröfur
» Toyota umboðið innkallaði
14.693 bifreiðar á árunum
2008 til 2012. Framleiðendur
gera meiri kröfur en áður.
» Sumir viðskiptavinir hafa
komið oftar en einu sinni með
sömu bifreiðina.
Vilhjálmur Óli Valsson, starfsmaður Landhelgisgæsl-
unnar, var borinn til grafar í gær. Útförin var gerð frá
Digraneskirkju. Félagar hans úr Landhelgisgæslunni
stóðu heiðursvörð. Vilhjálmur Óli vakti mikla athygli í
tengslum við áheitasöfnunina Mottumars en hann stóð
uppi sem sigurvegari einstaklingskeppninnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Félagarnir stóðu heiðursvörð
Viðskiptavinur Vodafone uppgötv-
aði fyrir skömmu að reikningur
sem fyrirtækið hafði sent honum
hafði verið of hár um 2-3 mánaða
skeið. Upphæðinni skeikaði um 20-
30 þúsund krónur. Vodafone við-
urkenndi í kjölfarið mistök og fékk
viðskiptavinurinn endurgreitt í
samræmi við þau. Jafnframt fékk
viðskiptavinurinn þau svör frá
Vodafone að hann væri ekki sá eini
sem hefði lent í mistökum af þessu
tagi.
Erfitt að útiloka mistök
þegar umfangið er mikið
Hrannar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri hjá Vodafone, segist
ekki kannast við að nein kerfis-
bundinn skekkja sé í kerfinu af
neinu tagi. Tilvikið sem um ræðir
sé tilfallandi og gæti skýrst af mis-
tökum í skráningu, afskráningu eða
öðrum breytingum sem hafi orðið á
þjónustu viðkomandi. Hrannar tek-
ur fram að viðskiptavinir Vodafone
séu um 100 þúsund og svona mál
geti því komið upp. „Ef skráð er
vitlaust inn á reikning, eða ekki
skráð út þegar fólk hefur sagt upp
þjónustu, eða þjónustu ekki sagt
upp með réttum hætti þá getur
þjónusta setið eftir á reikningi,“
segir Hrannar. „Sannarlega á þetta
ekki að vera svona en þegar um-
fangið er mikið er erfitt að útiloka
að mistök komi upp.“ Nefnir
Hrannar að skil á myndlyklum geti
verið dæmi um misskilning sem
komi upp. Þá telji fólk sig hafa skil-
að myndlykli en uppgötvi síðan að
það sé áfram innheimt fyrir hann.
Hrannar segir að í slíkum dæmum
hafi myndlykillinn ekki skilað sér
með réttum hætti til Vodafone.
Hrannar vill koma þeim skila-
boðum á framfæri að viðskiptavinir
rýni í reikninga sína og skoði þá
vel. Eins skuli viðskiptavinir ekki
hika við að hafa samband ef þeir
hafi spurningar eða óski skýringa á
reikningum.
Ekki kerfis-
bundin skekkja
Vodafone endurgreiddi viðskiptavini
tugi þúsunda sem það rukkaði að ósekju
Morgunblaðið/Golli
Vodafone Veitir fjölþætta þjónustu.