Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 17

Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 17
E N N E M M / S ÍA / N M 5 7 4 6 6 Vilborg pólfari átti sér þann stóra draum að ganga á suðurpólinn og hún gerði hann að veruleika með því að setja sér markmið. Íslandsbanki býður viðskiptavinum upp á frábæran fyrirlestur með Vilborgu þar sem hún segir frá því hvernig lítil markmið geta á endanum orðið að stórum sigri. Hér býðst unglingum og foreldrum kjörið tæki- færi til að hlusta saman á uppbyggilegan fróðleik. #svaltmarkmið Það er svalt að setja sér markmið Við bjóðum þér að hlusta á Vilborgu pólfara á eftirfarandi stöðum: 15. apríl Háskólabíó 16. apríl Akureyri 17. apríl Háskólabíó 22. apríl Háskólabíó 23. apríl Vestmannaeyjum 26. apríl Ísafjörður 29. apríl Háskólabíó 30. apríl Háskólabíó 2. maí Reykjanesbæ 3. maí Akranes Skráðu þig á islandsbanki.is/fyrirlestur og þú mátt taka einn vin með. FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Lárus Karl Ingason, ljósmyndari, missti föður sinn í Hrímfaxaslys- inu. Hann er sonur Inga Guð- mundar Lárussonar sem var sigl- ingafræðingur flugvélarinnar. Ingi var aðeins 23 ára þegar hann fórst. Hann var kvæntur og lét eftir sig þrjú börn, þar af eitt í móðurkviði. „Ég var þriggja og hálfs árs þegar pabbi dó og systir mín var fjögurra og hálfs. Bróðir minn var ekki fæddur, hann fæddist ekki fyrr en 23. maí. Það var erf- itt fyrir mömmu að vera ein með okkur þrjú svona lítil,“ sagði Lár- us Karl. Hann vinnur nú að því ásamt Bergsteini Sigurðssyni blaðamanni að gera bók um Hrím- faxaslysið. Einnig er gerð heim- ildarmyndar í undirbúningi. Stefnt er að því að bókin komi út síðar á þessu ári. „Icelandair hefur stutt við gerð bókarinnar. Okkur langar að fara á Nesøya þar sem flug- vélin lenti og afla efnis fyrir bók og heimildarmynd,“ sagði Lárus Karl. Hann sagði að þeir séu þegar búnir að hafa samband við marga aðstandendur þeirra sem fórust, en þurfa að ná í fleiri. Lárus Karl vildi hvetja alla sem telja sig hafa eitthvað fram að færa eða eru með ábendingar að hafa samband við sig í tölvupósti ljosmynd@lallikalli.is eða í síma 893 5664. „Ég er búinn að finna börn áhafnarmeðlima og hafa samband við þau,“ sagði Lárus Karl. Þá er búið að taka viðtöl við ýmsa sem muna vel eftir slysinu eða komu á slysstaðinn. „Á þessum tíma voru flugslys og sjóslys mun algengari en í dag,“ sagði Lárus Karl. „Það var ekki til siðs í þá daga að tala mikið um slys og mannskaða. Það var talið best fyrir börnin að hlífa þeim við þessu.“ Lárus Karl sagði að flugslysið og föðurmissirinn hefði haft mikil áhrif á líf sitt. „Maður veit ekki hvernig ævin hefði orðið hefði slysið ekki orð- ið,“ sagði Lárus Karl. „Ég áttaði mig á því smátt og smátt að ég átti ekki pabba. Maður þekkti það ekki fyrr en móðir mín giftist aftur þegar ég var orðinn tólf ára. Ég átti góðan afa og ömmu sem komu mér í föðurstað. Ég hafði alla tíð áhuga á flugi og var ábyggilega með sömu flugbakteríu og faðir minn var með. Ég fann ekki fyrir hvatningu til að fara þá leið í líf- inu. Fyrir vikið varð ég ljósmynd- ari, en ljósmyndun var einnig áhugamál pabba. Hann átti m.a. tæki til að framkalla skuggamynd- ir (slides) sem þótti mjög sérstakt á þeim tíma.“ Skrúfuþotur Flugfélags Íslands Vickers Viscount skrúfuþoturnar á Reykjavíkurflugvelli. Þær hétu Gullfaxi TF- ISN og Hrímfaxi TF-ISU. Þetta voru fyrstu íslensku flugvélarnar með jafnþrýstibúnaði. Missti föður sinn í flugslysinu  Bók og heimildarmynd um Hrímfaxaslysið í undirbúningi Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hrímfaxi TF-ISU, Vickers Viscount flugvél Flugfélags Íslands fórst í aðflugi að Fornebu- flugvelli í Ósló, Noregi, á páskadag þann 14. apríl 1963. Á morgun er því liðin hálf öld frá slysinu. Um borð voru tólf manns, sjö farþegar og fimm manna áhöfn. Þau fórust öll. Flugvélin var á leið frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur með viðkomu í Ósló og Bergen. Hún var í aðflugi að Fornebu og átti örstutt eftir þegar hún fórst klukkan 13.19 að norsk- um tíma. Minna en 20 sekúndur liðu frá því að starfsmenn flugturnsins höfðu síðast samband við flugvélina þar til þeir sáu eldblossa í að- flugslínu hennar, að því er sagði í Morgun- blaðinu þann 17. apríl 1963. Sjónarvotta greindi á í lýsingum sínum á því hvernig flugvélin steyptist til jarðar. „Sumir þeirra segja m.a. að hún hafi komið mjög bratt niður og lent í 45 gr. horni á hæð einni um 3 km frá flugvellinum, en rétt í sömu mund hafi sprenging orðið í henni og eldur gosið upp. Einn sjónarvottur telur að sprenging hafi orð- ið í vélinni áður en hún lenti á jörðinni og full- yrðir að urgað hafi í hreyflunum þegar flug- vélin steyptist til jarðar,“ segir í blaðinu. Flugvélin splundraðist þegar hún skall í jörðina nema stélið var nokkuð heillegt. Nærri 300 metra löng og 30 metra breið rák nálægt Asker aðaljárnbrautarstöðinni á Nesøya markaði staðinn þar sem flugvélin fórst, að sögn Skúla Skúlasonar, fréttaritara Morg- unblaðsins í Ósló. Hann sagði að fjórum mín- útum áður en flugvélin fórst hefði flugturninn á Fornebu haft samband við hana. Flugstjór- inn sagði að allt væri í lagi og aðflug eðlilegt. Skýjahæð yfir Nesøya var aðeins 150 metrar en flugvélin var á réttri aðflugsstefnu. Tólf fórust með Hrímfaxa  Á morgun eru 50 ár frá því að Hrímfaxi fórst við Fornebu-flugvöll í Óslófirði 14. apríl 1963  Flugvélin var í aðflugi að flugvellinum og átti stutt eftir þegar hún steyptist skyndilega til jarðar Hrímfaxi TF-ISU Myndin var tekin á Fornebu-flugvelli við Ósló. Útför í Dómkirkjunni Áhöfn Hrímfaxa og einn farþeganna voru jarðsett við sameig- inlega útför þann 24. apríl 1963. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Þau sem fórust með Hrímfaxa voru eftirtalin. Anna Borg Reumert, 59 ára leikkona. Hún lét eftir sig eigin- mann og tvo syni. Ilse Hochaphel, 24 ára, nuddkona frá Þýskalandi. Hjónin María og Karl West. María var 69 ára og fædd í Reykjavík. Karl West var 63 ára Dani. Þau áttu dótt- ur á Íslandi. Margrét Bárðardóttir, 19 ára, sem var í námi ytra. Þorbjörn Áskelsson, 58 ára, útgerð- armaður frá Grenivík. Hann lét eftir sig eiginkonu og sex börn. Baume, breskur kaupmaður. Jón Jónsson, 45 ára, flugstjóri. Hann lét eftir sig dóttur. Ólafur Þór Zoëga, 27 ára, flug- maður. Hann lét eftir sig eig- inkonu og tvö börn. Ingi Guðmundur Lárusson, 23 ára, loftsiglingafræðingur. Hann lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn. María Jónsdóttir, 30 ára, flug- freyja. Hún lét eftir sig dóttur. Helga Guðrún Henckell, 25 ára, flugfreyja. TÓLF VORU UM BORÐ Í FLUGVÉLINNI, ÞAR AF NÍU ÍSLENDINGAR Þau sem fórust í flugslysinu Morgunblaðið 17. apríl 1963.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.