Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 21
byggist stefna VG um að skattar
hækki ekki á því auðlindarenta
skili sér í auknum mæli til ríkisins
í samræmi við tillögur auðlinda-
stefnunefndar. Dögun telur að
svigrúm verði til þess að lækka
skatta af sömu ástæðu og Lýðræð-
isvaktin telur að hægt sé að afla
fjár í meira mæli með arði af auð-
lindunum. Báðir flokkar aðhyllast
einnig svonefnda hvalrekaskatta á
skyndilegan gróða af sérstökum
ástæðum eins og gengisbreyt-
ingum.
Þá leggur Dögun til að tekinn
verði upp svonefndur Tobin-
skattur á fjármagnsflutninga á
milli landa til þess að draga úr
áhættu lítils gjaldmiðils eins og
krónunnar gagnvart gengisfellingu
spákaupmanna og til að tryggja
ríkissjóði tekjur. Slíkur skattur
hefur verið mjög til umræðu á al-
þjóðavettvangi í kjölfar heims-
kreppunnar og hefur það meðal
annars komið til tals að Evrópu-
sambandi taki upp slíkan skatt
Lesa má um helstu punkta
skattastefnu flokkanna hér að of-
an.
Stefna stjórnmálaflokka sem bjóða
fram á landsvísu í skattamálum
Dögun
Hækka persónuafslátt og endurskoða
frítekjumark ellilífeyrisþega
Halda í þriggja þrepa skattkerfi en
breyta því í þágu hinna tekjulægri
Taka upp Tobin-skatt á fjármagns-
flutninga á milli landa
Fjármagnseigendur greiði útsvar til
sveitarfélaga
Framsóknarflokkurinn
Telja of langt gengið í að hækka skatta
Vilja einfalda skattkerfið og draga úr
neikvæðum jaðaráhrifum þess
Persónuafsláttur verði hækkaður til
fyrra horfs að raungildi
Telja að lág tekjuskattsprósenta
rekstraraðila sé líklegri til að bæta
samkeppnishæfni, draga að erlenda
fjárfesta, auka innlendar fjárfestingar
og auka skatttekjur
Píratar
Við alla álagningu skatta skal áhersla
lögð á að skatturinn sé sýnilegur og
skiljanlegur greiðanda
Sjálfstæðisflokkurinn
Vilja afnema þriggja þrepa skattkerfið
Lækka tekjuskatt
Lækka eldsneytisgjöld, tolla og vöru-
gjöld til að lækka verð á neysluvörum
Segja nauðsynlegt að vinda ofan af
fjölda skattabreytinga á kjörtímabil-
inu sem er að ljúka
Hægri grænir
Vilja taka upp flatan tekjuskatt sem
verði 20% í lok kjörtímabilsins
Skattleysismörk verði samfara því
hækkuð í 200.000 krónur
Auðlegarskattur verði afnuminn
Tryggingagjald fyrirtækja lækki í 3%
og verði 0% fyrir fyrirtæki með færri
en 10 starfsmenn
Lýðræðisvaktin
Vilja afla fjár í auknummæli með
auðlindagjöldum og hvalrekasköttum
Telja að gera þurfi markvissa áætlun
um ráðstöfun auðlindagjalda
Hækka þurfi skattleysismörk til að
bæta hag láglaunafólks
Halda aftur af almennri skattheimtu
Björt framtíð
Skattkerfið verði réttlátara, einfaldara
og auðskiljanlegra
Skiljanleg og réttlát heildarhugsun ríki
Laga þurfi vörugjaldafrumskóg og
óskiljanleg bréf frá skattinum
Samfylkingin
Engir nýir skattar verði lagðir á
heimili eða fyrirtæki og verja þurfi
jöfnunarhlutverk skattkerfisins
þar sem fólk með lágar tekjur og
millitekjur borgi lægri skatta.
Lækka tryggingagjald til að hvetja til
fjölgunar starfa
Skattalegir hvatar til að hvetja til
fjárfestinga í minni fyrirtækjum
Endurskoða skattkerfið með
einföldun og gagnsæi að markmiði
Vinstri Græn
Óbreytt skattkerfi og engar frekari
skattahækkanir
Lítil fyrirtæki fái undanþágu frá
tryggingagjaldi þar til launakostnað-
ur hefur náð ákveðnu marki
Skattaívilnanir til að hvetja
sjávarútvegsfyrirtæki til að reyna
endurnýjanlega orkugjafa
Lækka virðisaukaskatt á umhverf-
isvottuðum vörum til að hvetja til
umhverfisvænni neysluhátta
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
við elskum skó
VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND
MIKIÐ ÚRVAL AF BARNA, HERRA OG DÖMUSKÓM
Vertu vinur á
17.990,-
fjórir litir
16.990,-
fjórir litir
16.690,-
tveir litir
13.890,-
18.990,-
tveir litir
22.890,-
tveir litir
Byggjumupp
heilbrigðiskerfið
- snúumvörn í sókn.
Opinn fundur í kosningamiðstöð Sjálfstæðisflokksins, Skeifunni 7,
mánudaginn 15. apríl kl. 20. Umræða um hvernig við getum byggt upp betra
heilbrigðiskerfi á næsta kjörtímabili.
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður, Kristín Heimisdóttir tannlæknir,
Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, Steinn Jónsson,
formaður Læknafélags Reykjavíkur.
Fundarstjóri: Elsa Valsdóttir, læknir.
Sjálfstæðisflokkurinn NÁNAR Á 2013.XD.IS
Allir velkomnir. Heitt á könnunni.
Málfundafélagið Óðinn, Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík og félög sjálfstæðismanna í Laugarnesi
og Túnahverfi, Hlíða- og Holtahverfi, Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi, Háaleiti og Langholti.
XD Skeifunni 7 (bak við ELKO) Opið: mán - fös kl. 15 til 21 & laugardaga kl.11 til 18 & sunnudaga kl. 13 til 18
Nokkur framboð bjóða ekki fram í öllum kjördæmum. Af þeim vill
Flokkur heimilanna lækka skatta á einstaklinga og fyrirtæki. Skatt-
kerfið verði einfaldað og skattarnir lækkaðir í þrepum á kjör-
tímabilinu fyrir utan lægra virðisaukaskattsþrepið sem haldist
óbreytt. Flokkurinn vill afnema stimpilgjöld strax og stuðla að því að
lækka tolla með fríverslunarsamningum.
Alþýðufylkingin beitir sér fyrir því að skattlagning þróist í þá átt
að léttast af tekjum almennings og færast í auknum mæli yfir á
hagnað fyrirtækja en þau hagnist af því að losna undan oki fjármála-
fyrirtækja.
Húmanistaflokkurinn vill að almenningur taki þátt í fjárlagagerð
og ákvörðunum um ráðstöfun skattfjár á landsvísu og í sveit-
arstjórnum.
Létti byrðum af almenningi
STEFNA MINNI FRAMBOÐANNA UM SKATTAMÁL
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga