Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Horfur um hagvöxt hafa versnað talsvert að undanförnu. Það er eink- um minnkandi eftirspurn og fjár- festing frá miðju ári 2012, ásamt lakari viðskiptakjörum á erlendum mörkuðum, sem skýrir minni hag- vöxt árin 2012 og 2013 en áður var reiknað með. Þetta kemur fram í nýjustu þjóðhagsspá Hagstofunnar sem var birt í gær. Hagvöxtur síðasta árs mældist 1,6% – í nóvember 2012 áætlaði Hagstofan að vöxturinn yrði 2,7% – og á þessu ári er gert ráð fyrir því að hagvöxturinn verði 1,9%. Það er talsvert minni hagvöxtur en áætlað var í síðustu þjóðhagsspá, sem taldi þá að vöxturinn myndi mælast 2,5%. Frá og með árinu 2014, samhliða væntingum um meiri kraft í stór- iðjufjárfestingu, er hins vegar spáð því að hagvöxtur verði um 2,8% á ári. Talsvert bakslag hefur orðið í fjárfestingu á síðustu misserum. Fjárfesting á síðasta ári jókst um aðeins 4,4% – og á þessu ári er spáð 2,3% samdrætti. Spá Hagstofunnar er jafnvel enn dekkri en spá Seðla- bankans frá því í febrúar sl. en í Peningamálum bankans var því spáð að fjárfesting myndi dragast saman um 1% á þessu ári. Að öðru óbreyttu er ljóst að enn er langt í land þangað til fjárfestingastigið hérlendis nálgist sögulegt meðaltal. Frá árinu 1980 hefur fjárfesting, sem hlutfall af landsframleiðslu, að meðaltali verið yfir 20%. Miðað við nýjustu þjóð- hagsspá eru nokkur ár þangað til fjárfesting mun ná fyrri styrk í hagkerfinu. Hægir á vexti einkaneyslu Þrátt fyrir að atvinnuvega- fjárfesting hafi aukist um 8,6% að raungildi á liðnu ári þá var sú fjár- festing fyrst og fremst drifin áfram af fjárfestingu í skipum og flugvél- um – fyrir samtals 30 milljarða króna – en ekki almennri atvinnu- vegafjárfestingu. Á þessu ári er reiknað með því að atvinnuvegafjár- festing dragist saman um 10,5%. Þann mikla samdrátt má einkum rekja til mikillar fjárfestingar í skip- um og flugvélum árið 2011. Sá liður er afar sveiflukenndur og ekki er reiknað með teljandi fjárfestingu í skipum og flugvélum á þessu ári. Margir hagfræðingar hafa bent á að ekki þurfi að koma á óvart að hagvöxtur sé minni en hagspár hafi gert ráð fyrir á síðasta ári. Sá hóf- legi hagvöxtur sem mælst hefur á umliðnum tveimur árum hefur eink- um verið drifinn áfram af aukinni einkaneyslu vegna annars vegar sértækra aðgerða stjórnvalda og hins vegar dóma Hæstaréttar í gengislánamálum sem hafa aukið ráðstöfunartekjur heimila tíma- bundið. Á síðasta ári var einkaneysla nokkuð undir væntingum. Vísbend- ingar um minni vöxt einkaneyslu komu einkum fram á síðasta fjórð- ungi ársins, en auk þess sýna hag- tölur á fyrstu mánuðum þessa árs að aukning í einkaneyslu verði minni en áður var reiknað með. Merki um bata á vinnumarkaði Fram kemur í þjóðhagsspánni að mögulega sé skuldavandi heimil- anna dragbítur á eftirspurn um þessar mundir. „Vanskil og fjöldi nauðungarsala bendir til að enn séu heimili í vanda og kunni að búa við lítið svigrúm til að auka neyslu.“ Ekki hafa þó allir þættir efna- hagslífsins þróast til hins verra á umliðnum mánuðum. Vísbendingar eru um að vinnumarkaðurinn sé að taka við sér á ný á fyrstu mánuðum ársins – eftir að nokkuð dró úr bat- anum á seinni hluta síðasta árs – og samkvæmt þjóðhagsspá mun hlut- fall atvinnulausra verða rétt undir 5% í árslok. Hins vegar er á það bent að skráð atvinnuleysi hafi minnkað hraðar síðustu ár en skýr- ist af umsvifum í hagkerfinu. „Þann- ig hefur Vinnumálastofnun án efa stuðlað að lækkun atvinnuleysis með átaksverkefnum en jafnframt hefur skráð atvinnuleysi minnkað vegna þeirra sem horfið hafa af skránni án þess að fá starf.“ Horfur um hagvöxt versna enn  Atvinnuvegafjárfesting dregst saman um 10,5% á þessu ári samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofunnar  1,9% hagvöxtur 2013, en í nóvember var spáð 2,7% vexti  Lakari viðskiptakjör og minni eftirspurn Hægfara bati » Hagvaxtarhorfur hafa versn- að frá síðustu þjóðhagsspá í nóvember. Spáð 1,9% hagvexti á þessu ári, en var 1,6% 2012. » Lakari viðskiptakjör á er- lendum mörkuðum vegna versnandi efnahagshorfa helstu viðskiptalanda Íslands. » Samdráttur upp á 2,3% í fjárfestingu á þessu ári. At- vinnuvegafjárfesting jókst ein- göngu vegna kaupa á flug- vélum og skipum á liðnu ári. » Einkaneysluvöxtur hægur að undanförnu. Ætti að draga smám saman úr verðbólgu og spáð að hún verði 3,4% 2014. Horfur um aukinn hagvöxt og fjárfestingu fara versnandi, en atvinnuleysi minnkar hraðar 2012 2013 2014 Hagvöxtur Spá í apríl 2013 Spá í nóvember 2012 1, 6% 2, 7% 1, 9% 2, 5% 2, 7% 2, 9% 2012 2013 2014 Fjárfesting 4, 4% 10 ,3 % -2 ,3 % 4, 3% 16 ,9 % 19 ,7 % 2012 2013 2014 Einkaneysla 2, 7% 3, 5% 2, 5% 2, 5% 3 ,0 % 3, 1% 2012 2013 2014 Atvinnuleysi 2012 2013 2014 Verðbólga 2012 2013 2014 Vöru- og þjónustujöfnuður (% af VLF) 5, 8% 5, 7% 4, 9% 5, 3% 4, 6% 4, 9% 5, 2% 5, 3% 4, 2% 4, 1% 3, 4% 3, 1% 6, 2% 6, 6% 6, 7% 7,0 % 5, 5% 5, 2% Heimild: Þjóðhagsspá Hagstofunnar, vorið 2013 og vetur 2012. JEPPAR Notaðir ÁTILBOÐI VO RUM AÐ BÆ TA VIÐ BÍLU M! JEPPAVEISLA Í BRIMBORGTIL SUMARDAGSINS FYRSTA KOMDU ÍBRIMBORGÍ DAG FORD EXPLORER JEPPAR Á FRÁBÆRU VERÐI. TAKMARKAÐ MAGNÁRGERÐIR 2005-2008, BENSÍN, SJÁLFSKIPTIR. Ford Kuga og Ford Escape jeppar einnig á frábæru tilboðsverði. Afslátturallt að750.000kr.Verð frá 1.69 0.000 kr. Kíktu á notadir.brimborg.is og finndu bílinn þinn Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6 og 8, sími 515 7000 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050. Virka daga er opið milli kl. 9-17 og milli kl. 12-16 á laugardögum í Brimborg, Bíldshöfða 6 og 8 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri. Komdu í dag *Útbúnaður og gerð bílanna getur verið frábrugðin myndinni í auglýsingunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.