Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Bandarískir sérfræðingar segja að
það geti tekið marga mánuði að þróa
bóluefni við nýjum stofni fuglaflens-
unnar, H7N9, en stjórnvöld í Kína
hafa staðfest að fjörutíu einstakling-
ar hafi verið greindir með afbrigðið.
Í grein sem birtist á vefsvæði New
England Journal of Medicine á
fimmtudag segja Timothy Uyeki og
Nancy Cox, starfsmenn bandarísku
sóttvarnastofnunarinnar, að tilraun-
ir til að þróa bóluefni séu hafnar en
ferlið gæti tekið nokkurn tíma.
Þau segja tilfellin í Kína áhyggju-
efni en annars vegar geti verið um að
ræða einstaka smit milli skepnu og
manns eða hins vegar upphaf flensu-
faraldurs. Þá hvetja þau kínversk
stjórnvöld til að herða eftirlit.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, sagði á mánudag að engar vís-
bendingar væru uppi um að H7N9-
vírusin hefði smitast manna á milli
en Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna, FAO, lýsti á
fimmtudag yfir áhyggjum af því að
hann gæti smitast til nágrannaríkja
Kína með sýktu fiðurfé.
„Ef einhver flytur sýkta alifugla
yfir landamæri, frá einu landi til ann-
ars, óviljandi eða viljandi er mögu-
legt að vírusinn breiði úr sér,“ sagði
Subhash Morzaria, framkvæmda-
stjóri neyðarmiðstöðvar FAO vegna
dýrasjúkdóma í Asíu.
Stjórnvöld í Japan gripu í gær til
lagasetningar til að auðvelda hinu
opinbera að bregðast við útbreiðslu
smitsjúkdóma í fólki. Samkvæmt
lögunum geta yfirvöld hert reglur
um sóttkví á flugvöllum, gert lækn-
um og opinberum starfsmönnum að
undirgangast bólusetningu, lokað
skólum og aflýst fjöldaviðburðum.
Í grein sinni lofuðu Uyeki og Cox
kínversk stjórnvöld fyrir að hafa
borið kennsl á nýja afbrigðið á
skömmum tíma og bentu á að þau
hefðu fljótlega í kjölfarið opinberað
erfðamengi þess. holmfridur@mbl.is
Mánuðir í bólu-
efni gegn H7N9
AFP
Fiðurfé Yfirvöld í Sjanghæ voru fyrst til að stöðva viðskipti með fiðurfé en
þar, og í öðrum borgum í austurhluta Kína, hefur fjölda alifugla verið slátrað.
Tilraunir til að þróa bóluefni hafnar
Uppboð á sjötíu viðhafn-
argrímum Hopi-indíána
fór fram í París í gær þrátt
fyrir mótmæli ættbálksins,
sem hafði reynt að koma í
veg fyrir sölu þeirra fyrir
frönskum dómstólum.
Hopi-indíánar, sem eru í
dag um 18.000 talsins,
segja gripina helga og
segja særandi að þeim sé
lýst sem „grímum“ eða „gripum“.
Þeir segja uppboðið jafn-
gilda helgispjöllum.
Sala á helgigripum ind-
íána hefur verið ólögleg í
Bandaríkjunum frá 1990 en
lögin ná ekki yfir sölu á
gripunum á erlendri
grundu. Fyrir uppboðið
voru grímurnar í eigu
fransks safnara sem bjó í
Bandaríkjunum um þrjátíu
ára skeið.
Helgigripir seldir þrátt fyrir mótmæli
FRAKKLAND
Viðhafnargríma
Efri deild franska þingsins samþykkti í gær frumvarp
sem m.a. mun gera samkynhneigðum pörum kleift að
ganga í hjónaband og ættleiða. Frumvarpið var sam-
þykkt með 179 atkvæðum gegn 157 en verður ekki að
lögum fyrr en eftir aðra yfirferð í neðri og efri deildum
þingsins.
Dómsmálaráðherra Frakka, Christiane Taubira,
fagnaði úrslitum atkvæðagreiðslunnar í gær og sagði
þau styrkja franskt þjóðfélag með því að viðurkenna
fullan ríkisborgararétt samkynhneigðra para.
„Við erum gagntekin af stolti yfir þessari atkvæða-
greiðslu um að þoka samfélagi okkar fram á við,“ sagði
Francois Rebsamen, þingflokksformaður sósíalista.
Frumvarpið hefur vakið miklar deilur í Frakklandi
og verið harðlega mótmælt af íhaldsmönnum og ýms-
um trúarhreyfingum. Það nýtur stuðnings yfirgnæf-
andi meirihluta sósíal-
ista, græningja og
kommúnista en hefur
mætt mikilli andstöðu
meðal hægri flokkanna.
Jean-Pierre Raffarin,
fyrrverandi forsætisráð-
herra, sagði í gær að
frumvarpið myndi kljúfa
þjóðfélagið.
Mannréttindasamtökin
SOS Homophobie sögðu í vikunni að tilkynningum um
árásir á samkynhneigða hefði fjölgað um 30% á síðasta
ári frá 2011 og þá hafa stuðningsmenn frumvarpsins á
þingi tilkynnt um ógnandi símtöl og tölvupósta síðan
umræður um það hófust.
Já við giftingum samkynhneigðra
+ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Dala-Brie er kominn i nýjar umbúðir
og er enn jafngóður a agðið. L júfur og mildur
hvítmygluostur sem hentar við öll tækifæri.
Flour úr
Dölunum
ALÞINGISKOSNINGAR
27. APRÍL 2013
KJÖRSTAÐIR Í REYKJAVÍK
Í Reykjavíkurkjördæmi suður: Í Reykjavíkurkjördæmi norður:
Hagaskóli Ráðhús
Hlíðaskóli Laugardalshöll
Breiðagerðisskóli Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi
Ölduselsskóli Vættaskóli Borgir (áður Borgaskóli)
Íþróttamiðstöðin Austurbergi Ingunnarskóli
Árbæjarskóli Klébergsskóli
Ingunnarskóli
Kjörfundur hefst laugardaginn 27. apríl kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður mun hafa aðsetur í Hagaskóla á kjördag
og þar hefst talning atkvæða að loknum kjörfundi kl. 22.00.
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður mun hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur
á kjördag og þar hefst talning atkvæða að loknum kjörfundi kl. 22.00.
Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður
Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna alþingiskosninga 27. apríl
nk. liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 10. apríl fram á kjördag.
Vakin er athygli á því að hægt er að fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á kjörskrá á
vefnum www.kosning.is.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá.
Athugasemdum vegna kjörskráa í Reykjavíkurkjördæmum skal beint til skrifstofu
borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700, netfang kosningar@reykjavik.is.
Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um athugasemdir
vegna skráningar í kjörskrá.
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður
Skrifstofa borgarstjórnar