Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 31

Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Sólskinsbros í norðangarra Þótt fremur kalt hafi verið í veðri síðustu daga á höfuðborgarsvæðinu hefur verið heiðskírt og bjart og glatt yfir mannlífinu í miðborg Reykjavíkur. Ómar Orkuveitan var byggð upp fyrir fé íbúa í Reykjavík og nágrenni og hefur raf- magnsöflun í þágu al- mennings hingað til verið óumdeilt grund- vallaratriði í rekstri fyrirtækisins. Meirihluti stjórnar Orkuveitunnar hefur nú falið forstjóra að ganga til samninga við meðeig- endur OR í Hrafnabjargavirkjun hf. með það að markmiði að þeir eignist 60% hlut OR í félaginu. Hrafnabjargavirkjun er verkefni á byrjunarstigi, möguleiki á vatns- aflsvirkjun í Skjálfandafljóti, sem OR hefur haft til skoðunar vegna orkuöflunar til framtíðar í þágu al- mennings. Umræddur virkj- anakostur er í svonefndum bið- flokki rammaáætlunar. Hér skal engin afstaða tekin til þess hvort þessi kostur sé hag- kvæmur eða viðunandi út frá umhverfissjón- armiðum enda á eftir að rannsaka hann og meta til hlítar. En við slíkar að- stæður er óráðlegt að meirihluti stjórnar Orkuveitunnar gefi frá sér möguleika á þátt- töku í slíku verkefni og fækki þar með orkuöfl- unarkostum fyrirtækisins til fram- tíðar á sama tíma og mikil óvissa ríkir um hvernig það mun full- nægja raforkuþörf fyrir almennan markað eftir árið 2016. Samspil jarðgufu- og vatnsaflsvirkjana ákjósanlegt Um helmingur af aflþörf OR fyr- ir almennan markað kemur nú frá Landsvirkjun, samkvæmt sér- stökum samningum, hinn þýðing- armesti er svokallaður tólf ára samningur, sem rennur út í árslok 2016. Verði sá samningur endurnýj- aður má búast við verulegri verð- hækkun á raforkunni samkvæmt yfirlýstri stefnu Landsvirkjunar. Við slíkar aðstæður er nauðsyn- legt að Orkuveitan leiti nýrra leiða til orkuöflunar í því skyni að tryggja almenningi á starfsvæði sínu hagstætt orkuverð til fram- tíðar. Í slíkri vinnu kemur sterk- lega til álita að Orkuveitan auki orkuvinnslu sína og dragi úr raf- magnskaupum frá Landsvirkjun. Orkuveitan byggir eigin raf- magnsvinnslu nánast alfarið á jarð- gufuvirkjunum. Nýting jarðgufu er hins vegar ekki áhættulaus eins og skýrt hefur komið í ljós að und- anförnu. Margvísleg rök hníga að því að vatnsaflsvirkjanir eða safn jarðgufuvirkjana og vatnsaflsvirkj- ana sé mun heppilegri kostur til að þjóna almennum markaði en jarð- gufuvirkjanir einar og sér. Komist menn að þeirri niðurstöðu að OR þurfi að auka orkuvinnslu sína eftir 2016, hlýtur að koma til álita, ekki síst út frá áhættusjónarmiðum, að slíkt verði gert með vatnsafli til að tryggja sveigjanleika í vinnslu. Raforka í þágu almennings Ljóst er að vinna þarf ötullega að því á næstunni að skilgreina til- tæka kosti og taka ákvörðun með það að leiðarljósi að tryggja al- menningi raforku á hagstæðu verði. Takist það ekki, skapast hætta á að Orkuveitan þurfi að sæta afarkost- um í raforkukaupum, sem gæti haft í för með sér verulega hækkun á raforkuverði til almennings. Í skýrslu forstjóra Orkuveit- unnar um málið kemur skýrt fram að hún þurfi að auka orkuvinnslu sína og/eða halda áfram að kaupa raforku af þriðja aðila til að full- nægja umræddri þörf. Sérstaka at- hygli vekur að í skýrslunni er einn- ig nefndur sá kostur að Orkuveitan dragi sig í hlé af almenna mark- aðnum, a.m.k. sem nemur orku- kaupum af Landsvirkjun og láti öðrum þessa þjónustu eftir. Sú spurning vaknar því óhjákvæmilega hvort meirihluti Samfylkingar og Besta flokksins sé að stíga fyrsta skrefið í þessa átt með því að fækka orkuöflunarkostum Reykvík- inga. Eftir Kjartan Magnússon » Sú spurning vaknar hvort Samfylkingin og Besti flokkurinn vilji að Orkuveitan dragi sig í hlé af raforkumarkaði fyrir almenning og láti hann öðrum eftir. Kjartan Magnússon Höfundur er borgarfulltrúi. Vilja Samfylkingin og Besti flokkurinn að OR hætti rafmagnssölu til almennings? Jóhanna Sigurðar- dóttir, forsætisráð- herra Íslands, verður í opinberri heimsókn til Kína í boði Li Ke- qiang, forsætisráð- herra Kína, dagana 13.-18. apríl og á þar viðræður við nýja kín- verska valdhafa um framtíðarþróun tví- hliða samskipta ríkjanna. Þessi heim- sókn er mikilvægur viðburður varð- andi samskipti ríkjanna og undir- strikar þá staðreynd að samskipti Íslands og Kína hafa þróast sem á hraðbraut. Undirritun kínversk- íslensks fríverslunarsamnings og annarra samstarfssamninga, sem hafa mikilvægt gildi um hagnýtt samstarf og þróun samstarfsverk- efna, fer fram í viðurvist leiðtoga ríkjanna meðan á heimsókninni stendur. Með sameiginlegu átaki beggja ríkja hafa samskipti Kína og Íslands tekið miklum framförum á síðustu árum. Jákvæð- ur árangur hefur náðst á ýmsum sviðum, svo sem auknu gagnkvæmu trausti á stjórn- málasviði, viðskiptum og menningar- samskiptum. Frá árinu 2006 hefur Kína verið mikilvægasta við- skiptaríki Íslands í Asíu. Síðustu þrjú ár hefur árleg aukning tvíhliða viðskipta numið meira en 20% að meðaltali. Þvert á almennan samdrátt í alþjóða- viðskiptum jukust viðskipti Kína og Íslands á síðasta ári um 21,1%. Það er einlæg trú okkar að með gild- istöku fríverslunarsamningsins muni verða gríðarleg framþróun á verslun milli landanna tveggja. Neytendur beggja ríkja muni eiga aðgang að ódýrum hágæðavarningi frá hvoru landi um sig og viðskipta- lífið mun hagnast á fríversl- unarviðskiptum. Sagan mun sanna að samningurinn er rétt ákvörðun af beggja ríkja hálfu. Jafnframt mun það hafa jákvæð áhrif að þetta er fyrsti fríverslunarsamningur milli Kína og Evrópuríkis. Landfræðilega eru Kína og Ísland langt fjarri hvort öðru og mismun- andi að landstærð, hagstærð, fólks- fjölda, félagslegri uppbyggingu, sögu og menningu. Hvers vegna skyldi þessi reginmunur ekki hafa hindrað öra þróun tvíhliða tengsla og náinnar samvinnu? Ég held að það megi fyrst og fremst skýra með vináttu þjóðanna. Slík vinátta þjóða leggur grundvöllinn að heilbrigðu samstarfi ríkja. Kínverska og ís- lenska þjóðin hafa gagnkvæman skilning hvor á annarri og jákvæð viðhorf hvor til annarrar sem er af- bragðs grundvöllur tvíhliða sam- skipta. Í öðru lagi má rekja það til jákvæðrar stefnu beggja ríkja. Kína og Ísland hafa borið gagnkvæma virðingu hvort fyrir öðru, starfað á jafnréttisgrundvelli og af einlægri vináttu með gagnkvæman ávinning í huga og þannig tryggt heilbrigða og stöðuga þróun tvíhliða samskipta. Í þriðja lagi má nefna að enginn ágreiningur er milli ríkjanna um helstu grundvallarmálefni. Með vin- áttu þjóðanna og jákvæðri stefnu beggja ríkja hefur mátt fyrirbyggja hugsanlegar hindranir í sam- skiptum. Þannig getum við þróað samskiptin fram á veg, hraðar og án tafa. Loks má nefna sameiginlegar óskir. Vinsamleg samskipti Kína og Íslands þjóna ekki aðeins þróun beggja ríkja og helstu hagsmunum þjóðanna heldur eru þau einnig tím- anna tákn. Fólk getur haft ólíkar skoðanir á mikilvægi og gildi samskipta Kína og Íslands. Í mínum augum eru þau helst að þau gagnast báðum þjóðum og heimshlutum. Þau eru jafnframt staðfesting þess að þrátt fyrir mis- munandi stærð, þjóðareinkenni og þjóðfélagsaðstæður geta ríki átt náið og gott samstarf með gagnkvæmum ávinningi og þróun svo lengi sem þau virða hvort annað, koma fram á jafnréttisgrundvelli og vinna í vin- áttu. Samskipti Kína og Íslands eru góð fyrirmynd. Hvers vegna skyld- um við því ekki efla og styrkja tví- hliða samskipti okkar? Við vonum af einlægni að sérlega vel takist til með heimsókn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til Kína og að sífellt nánara samstarf Kína og Íslands verði báðum þjóðum til gagns. Eftir Ma Jisheng » Vinsamleg samskipti Kína og Íslands þjóna ekki aðeins þróun beggja ríkja og helstu hagsmunum þjóðanna heldur eru þau einnig tímanna tákn. Jisheng Ma Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi. Vinátta Kína og Íslands er í þágu beggja þjóða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.