Morgunblaðið - 13.04.2013, Page 36

Morgunblaðið - 13.04.2013, Page 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Jöfur atvinnuhúsnæði // Ármúla 7, 2. hæð // 108 Reykjavík // www.jofur.is 534 1020 Skrifstofuhúsnæði Möguleiki á að leigja allt að 2.000 fm Leigist í einu lagi eða hlutum Uppl. um verð í síma: 534 1023 / 824 6703 Borgartún 27 TIL LEIGU Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Glæsilegt skrifstofuhúsnæði sem skiptist í opin rými, lokaðar skrifstofur og fundarherbergi. Móttaka er á hæð. Möguleiki á að fá afnot af móttöku í anddyri, matsal á efstu hæð og kennslurými. Parket á gólfi, kerfisloft og lagnastokkar með veggjum. Loftræstikerfi er í húsinu. Bílastæðakjallari. Laust 1. júlí 2013. Hvað veldur því að tveir stjórnmálaflokkar á Alþingi skirrast ekki við að fótum troða lýð- ræði og mannréttindi, til að hindra að stjórnar- skrárfrumvarpið fengi eðlilega og lýðræð- islega meðferð? Fram- sóknarflokkurinn geng- ur ekki eins hart fram og Sjálfstæðisflokk- urinn. Þeir virðist treysta á að hinn síðarnefndi taki slaginn og reyna að halda árunni hreinni. Sitja hjá og fægja geislabauginn. Enda virðist Sjálfstæðisflokkurinn alveg einfær um að sjá um óhæfuna; kannski ennþá meira í húfi hjá þeim og þeirra skjólstæðingum. Því ganga þeir svona hart fram? Flokkar sem þó kenna sig við lýðræði. Hvað veldur því að þeir hunsa vilja þjóðfundar og gera á allan hátt lítið úr starfi og skoðunum þeirra sem þangað voru kallaðir? Hvers vegna beitti Sjálf- stæðisflokkurinn sér af öllu afli gegn kosningum til stjórnlagaþings og hvatti sitt fólk til að sitja heima, sem því miður virðist hafa hlýtt kallinu og nýtti ekki lýðræðislegan rétt sinn, og hampaði síðan hlægilegum úrskurði Hæstaréttar. Af sjálfu leiðir að þeir voru alfarið á móti Stjórnlagaráði og linntu ekki látum að gera lítið úr því og starfi þess. Stjórnlagaráð hafði þó í veganesti niðurstöður þjóðfundar og var skylt að taka mið af þeim, auk þess að hafa langa og ítarlega skýrslu stjórnlaganefndar, sem líka tók mið af niðurstöðum þjóðfundar, til hlið- sjónar í störfum sínum. Þjóðinni var opnuð leið til að fylgjast með störfum Stjórnlagaráðs og leggja orð í belg – leið sem margir nýttu sér. Flokkarnir tveir höfðu að engu þjóðaratkvæða- greiðsluna um frumvarp stjórnlag- aráðs í október síðastliðnum og að lokum bíta þeir höfuðið af skömminni og hindruðu með öllum tiltækum ráð- um framgang málsins á Alþingi. Hót- uðu ofbeldi og þving- unum og höfðu sitt fram. Barst að vísu óvænt liðsinni á loka- sprettinum – en það er önnur saga og sorgleg. Hagsmunir í húfi Við hvað eru þessir flokkar hræddir? Svarið blasir við og er einfalt. Það eru miklir hags- munir í húfi – hags- munir sem vega þyngra en lýðræði, mannrétt- indi og vilji þjóðarinnar. Hagsmunir þeirra sem „eiga landið og miðin“ og eiga sér flestir skjól í þessum tveimur flokkum. Hagsmunir þeirra sem fengu óveiddan fiskinn í sjónum á silfurfati, fengu bankana til eignar og fengu að leggja samfélagið í rúst. Engin valdastétt hefur látið for- réttindi sín af höndum af fúsum og frjálsum vilja, alltaf barist fyrir yf- irráðum með oddi og egg. Það gerir valdastéttin, sem á sér skjól og híbýli í þessu tveimur flokkum, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki, líka. Það sýna verkin undanfarin ár. Auðlindir þjóðarinnar og arður af þeim Stjórnarskrárfrumvarpið kveður á um að allar auðlindir verði eign þjóð- arinnar. Allir flokkar, Sjálfstæð- isflokkur og Framsóknar meðtaldir, eru samþykkir því. En hér liggur fiskur undir steini. Höfum í huga að sams konar ákvæði er að finna í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða; „Nytja- stofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar“. (Sofnuðu lög- fræðingar á verðinum? Þeir sem hafa haft hæst um að „þjóðin“ sé ekki not- hæft hugtak?) Þetta samþykktu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur án þess að hiksta eða ropa. Hættan sem þeir sjá og hræðast liggur ekki í eignarhaldinu, heldur hinu að fullt gjald eigi að koma fyrir afnot af auð- lindunum. Um það snýst málið. Að koma í veg fyrir að þjóðin njóti af- raksturs af eigin eignum – að þeir sem „eiga“ kvótann greiði þjóðinni gjald fyrir afnot og misstu þar með spón úr aski sínum – og það stóran. Þessir „þeir“, valda- og eignastéttin á Íslandi, eru „þeir“ sem Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn eru til- búnir að verja fram í rauðan dauðann. Jafnvel þó það kosti að engu lýðræð- ið, mannréttindi, vilja þjóðarinnar og hagsmuni heildarinnar. Það er fórnarkostnaður sem þessir flokkar eru tilbúnir að greiða. „Þeir“ hljóta því að vega þungt í flokkunum tveim- ur – svo þungt að þeir treysta sér ekki til að ganga gegn þeim. Kjósa fremur að ganga gegn þjóðinni. Jafnt vægi atkvæða ræður ein- hverju um hræðslu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks við nýja stjórn- arskrá, sérstaklega þess síðarnefnda, sem munu við það missa nokkra spóna – þingmenn – úr aski sínum, en auðurinn, og valdið í krafti hans, ræð- ur mestu. Og því miður virðist stór hluti þjóðarinnar ætla að sætta sig við þetta ástand. Bjartur í Sumarhúsum átti um tvo kosti að velja. Að leggja fé sitt inn í Firðinum eða Víkinni. Báðir kostir voru vondir og mátti vart á milli sjá. Svo vondir að Bjartur varð aldrei sjálfstæður maður. Vill þjóðin virkilega vera í sporum Bjarts um aldur og ævi? Hver á Ísland? Tölum tæpitungulaust. Ef ný stjórnarskrá verður ekki samþykkt á næsta þingi verða auðlindirnar og arðurinn af þeim áfram í eigu skjól- stæðinga Sjálfstæðis- og Framsókn- arflokks. Þjóðin verður því að velja um hvort hún vill áfram versla í Vík- inni eða Firðinum – eða krefjast eigna sinna og arðs af þeim refja- laust. Orrustan um Ísland er í al- gleymingi og niðurstaðan „hver á Ís- land?“ ræðst í næstu kosningum. Við hvað eru þeir hræddir? Eftir Þórhildur Þorleifsdóttir » Vill þjóðin virkilega vera í sporum Bjarts um aldur og ævi? Þórhildur Þorleifsdóttir Höfundur skipar 1. sæti í Reykjavík- suður f. Lýðræðisvaktina. Morgunblaðið birti grein eftir Bjarna Bene- diktsson, formann Sjálf- stæðisflokksins, 9. apríl sl. undir yfirskriftinni „Réttlætismál aldr- aðra“. Þar er á jákvæð- an hátt fjallað um ýmis hagsmunamál eldri borgara og væntanlegar áherslur Sjálfstæð- isflokksins í þeim mála- flokki. Það er því ástæða til að ætla, að flokkurinn styðji af alefli frumvarp til laga, sem velferðarráðherra lagði fram á síðustu dögum Alþingis um líf- eyrisréttindi almannatrygginga og fé- lagslegan stuðning, sem einkum snýst um bættan hlut eldri borgara. Í þessu frumvarpi er tekið á nánast öllum þeim atriðum, sem formaðurinn gerir að umræðuefni. Frumvarpið er afrakstur vinnu starfshóps, sem vel- ferðarráðherra, Guðbjartur Hann- esson, skipaði í apríl árið 2011 og skil- aði tillögum í lok síðasta árs. Í frumvarpinu felast tillögur um ein- hverjar mestu breytingar og end- urbætur á almannatryggingakerfinu, sem fram hafa komið. Þær fjalla eink- um um lagfæringar og endurbætur á kerfi ellilífeyris, en starfshópnum hef- ur einnig verið fyrirlagt að endur- skoða tilhögun örorkulífeyris. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir, að þrír bótaflokkar verði sameinaðir í einn, þ.e. ellilífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót. Þetta einfaldar kerfið og gerir það gagnsærra. Þá verði á næstu árum dregið úr skerðingum framfærslu- uppbótar vegna tekna og þær með öllu felldar niður á fjórum árum. Þar með verður rutt úr vegi þeim skerð- ingum á lífeyrisgreiðslum og öðrum tekjum lífeyrisþega, sem mjög hafa verið gagnrýndar á síðustu árum og gengið undir nafninu „krónu fyrir krónu skerðing“. Þessi breyting skipt- ir ekki einvörðungu máli fyrir lífeyr- isþega, heldur einnig þróun íslenskra lífeyrissjóða, enda lítill tilgangur í ið- gjaldagreiðslum í lífeyrissjóði, þegar lífeyrisgreiðslur skerðast mikið eða til fulls. Þá verða frí- tekjumörk engin og með því næst gríðarleg einföldun frá núverandi kerfi. Frumvarpið krefst umtalsverðra nýrra fjárveitinga til al- mannatrygginga, en horfir til þess, að lífeyr- issjóðir létti greiðslu- byrði ríkissjóðs veru- lega á næstu árum og áratugum, enda ekki vanþörf á þegar litið er til mikillar fjölgunar í elstu aldurs- hópum þjóðarinnar. Jafnframt er gert ráð fyrir, að greiðslugeta ríkissjóðs fari batnandi þegar hrunárin eru að baki. Fjölmargar aðrar mikilvægar og jákvæðar breytingar felast í þessu frumvarpi. Að vinnu starfshópsins komu fulltrúar stjórnmálaflokkanna, atvinnulífsins og hagsmunasamtaka og náðist gott samkomulag um tillög- urnar, sem eru grundvöllur frum- varpsins. Tvær bókanir komu fram við loka- afgreiðslu. Samstaða og vilji til árang- urs einkenndi vinnu þessa hóps, sem einnig naut mikilvægrar aðstoðar starfsmanna velferðarráðuneytis og Tryggingastofnunar. Frumvarpið hefur óverulega athygli vakið, enda ríkti friður um frágang þess. Þar eð frumvarpið svarar hug- myndum og tillögum formanns Sjálf- stæðisflokksins, og bætir um betur, þá vænti ég þess fastlega, að flokkur hans styðji framgang þess í upphafi næsta þings. Jafnframt er það von mín, að eldri borgarar og öryrkjar fái bættar þær skerðingar, sem þeir hafa mátt þola með öðrum, í hruni og kreppu síðustu ára. Hvatning til formanns Sjálf- stæðisflokksins Eftir Árna Gunnarsson »… frumvarpið svarar hugmyndum og tillögum formanns Sjálfstæðisflokksins, og bætir um betur … Árni Gunnarsson Höfundur er formaður starfshóps um endurskoðun almannatryggingalaga. Vegna aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda alþingiskosning- anna verður formi kosningagreina, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir lesendur og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar. Greinar sem tengj- ast kosningum mega vera allt að 3000 slög með bilum. Alþingiskosningar Nú er illa komið fyrir mínum gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum, sam- kvæmt skoðanakönnunum. Sjálf- stæðisflokkurinn er með skýra stefnu til umbóta í mörgum málum en vandamálið er að kjósendur treysta ekki þeim málflutningi, sem von er vegna þáttar flokksins í hruninu. En það er von, ef Sjálfstæðisflokk- urinn kemur með og staðfestir í aug- lýsingum, eins og sjálfstæðismenn hafa gert undanfarið, markvissa og ákveðna stefnu til úrbóta í málefnum eldri borgara og öryrkja. Því miður hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki sinnt þessum málaflokki í allri stjórn- artíð Davíðs Oddssonar, svo ekki sé meira sagt. Ég er viss um að um það bil 100 þúsund kjörgengir eldri borgarar og öryrkjar mundu fylkja sér að Sjálf- stæðisflokknum ef hann legði fram skýlausa stefnu sem felur í sér m.a. eftirfarandi aðgerðir og breytingar: Hækkun mánaðargjalda ellilífeyr- is í 300 þúsund krónur sem er við- miðunartala Hagstofunnar um hver ellilífeyrir ætti að vera hefði skerðingum ekki verið breytt. Afnema tekjutengingu. Afnema hámarkstekjur sem elli- lífeyrisþegar mega vinna sér inn á vinnumarkaðnum. Sjálfstæðismaðurinn fyrrverandi, séra Halldór Gunnarsson, ritar at- hyglisverða grein í Morgunblaðið 6. apríl þar sem hann útlistar stefnu flokks síns, Flokks heimilanna, um málefni eldri borgara og öryrkja. Þætti mér miður að þurfa að greiða þeim flokki atkvæði mitt til þess að ná fram leiðréttingum í þess- um málaflokki. JÚLÍUS PETERSEN GUÐJÓNSSON, ellilífeyrisþegi. Ákall til Sjálfstæðis- flokksins Frá Júlíusi Petersen Guðjónssyni Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.