Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 Verslunareigendur! Ítalskir pappírspokar í úrvali Eingöngu sala til fyrirtækja Opið 08.00 - 16.00 www.flora.is | info@flora.is | Réttarhálsi 2 | 110 Rvk | Sími: 535 8500 Sæll Haraldur L. Haraldsson. Þú skrifar grein sem birtist í Morg- unblaðinu 9. apríl sl. og vitnar þar í grein sem ég skrifaði og birtist í Morg- unblaðinu 27. mars sl. (að vísu segir þú að Ingvi Jónasson hafi skrifað greinina, en þú hefur leiðrétt það við okkur Ingva). Grein mín var, eins og þú þekkir, innlegg í grein þína sem birtist í Fréttablaðinu 16. mars sl. Til að byrja með vil ég biðja þig afsökunar á því að hafa rangtúlkað grein þína frá 16. mars sl. á þá lund að þú teljir sveitarfélög sem voru aðilar að Eignarhaldsfélaginu Fast- eign hf. (EFF) hafa verið áhættu- samari þegar kom að fjárfestingum. Eins og þú segir réttilega í grein þinni var um að ræða mína túlkun á innihaldi greinar þinnar en ekki þín orð þar að lútandi. Þessi misskiln- ingur er tilkominn vegna þess að í greininni nefnir þú EFF og að því er ég taldi auknar skuldir sveitarfé- laga sem einhvers konar afleiðingu af EFF. Það voru mín mistök. Þú segir að ekki skuli afvegaleiða um- ræðuna, það var ekki minn ásetn- ingur enda vil ég að vel sé farið með opinbert fé, hvort sem það er í ríkissjóði eða lífeyrissjóðunum. Eins og við vitum er það því miður ekki raunin. Þú segir skrif mín villandi. Þótt kannski einkennilegt megi virðast, þá er ég sammála þér að þau geta verið villandi fyrir lesanda sem hef- ur ekki allar upplýsingar og for- sendur fyrir framan sig. Eins og allar eða flestar greinar þar sem tölfræði kemur við sögu getur les- andinn fengið allt aðra sýn á veru- leikann en hann er í raun við lestur þeirra. Það vantar oft svo marga þætti (breytur) inn til að lesandinn sé með fullnægjandi upplýsingar. Tilgangur greinar minnar var m.a. að sýna fram á að súlurit (tölfræði) má rangtúlka og það var það sem ég óttaðist að lesendur gerðu eftir að hafa lesið grein þína frá 16. mars sl. þar sem þú birtir súlurit. Þess vegna taldi ég bæði rétt og nauðsynlegt að koma með aðra sýn á hlutina. Ég taldi að það gæti af- vegaleitt lesendur að binda saman skuldir sveitarfélaga og EFF eins og ég mistúlkaði grein þína. Mis- munandi aðstæður eru hjá sveit- arfélögum, hvort sem þau voru eða eru innan EFF eða ekki. Við sjáum t.d. hversu mjög skuldir hafa aukist sem hlutfall af tekjum hjá Reykja- víkurborg milli 2002 og 2011. Hvers vegna er það? Til að skoða hvort hlutfall milli skulda og tekna eða breyting þar á eigi sér eðlilegar ástæður innan mis- munandi sveitarfélaga eða ekki þarf að hyggja að mörgu. Sem dæmi má nefna fólks- fjölgun, fólksfækkun, atvinnuleysi innan sveitarfélags, tekjur, hvort forsendur hafi breyst (eftir efnahags- hrunið 2008) sem enginn hafi séð fyrir eins og Hæstiréttur nefnir í dómi nr. 542/2010 og margt fleira EFF stóð fyrir framkvæmdum fyrir á þriðja tug milljarða króna. Þar sem verð var fest áður en framkvæmdir hófust var einungis einn möguleiki í stöðunni og það var að standast áætlanir, sem félag- ið og gerði. Þetta var meðal annars tilgangur fyrir stofnun félagsins, að koma í veg fyrir að áætlanir stæð- ust ekki eins og svo oft vill verða þegar um opinberar framkvæmdir er að ræða. Þess vegna má halda því fram að ef sveitarfélög hefðu ekki verið aðilar að EFF væru skuldir þeirra hærri. Þetta hefðir þú mátt nefna, að skoða mætti svip- aða aðferðafræði þegar kemur að byggingu nýs spítala. Það sem ég var meðal annars að benda á, og þú virðist einnig benda á í grein þinni, er að varast ber töl- fræðina ef segja á allan sannleik- ann. Sem dæmi um tölfræði er hægt að sýna súlurit sem sýnir hagvöxt annars vegar í Rússlandi 1937 og hins vegar í Bandaríkj- unum og Evrópu (fyrir utan Rúss- land) á sama tíma. Hagvöxtur í Rússlandi var töluvert meiri, kreppan sem ríkti í Evrópu og Bandaríkjunum náði ekki til Rúss- lands. Þýðir það að kerfið í Rúss- landi hafi verið betra? Einhverjir snillingar héldu því fram og halda því jafnvel enn fram að svo sé og nota m.a. tölfræðina til þess. Oft er betra að nota heilbrigða skynsemi en tölfræði eins og þetta dæmi sýn- ir. Einnig er gaman að rifja upp söguna af manninum sem var með annan fótinn í núll gráðu heitu vatni og hinn í áttatíu gráðu heitu vatni. Samkvæmt tölfræðinni leið honum bara nokkuð vel, meðalhit- inn á fótum hans var um fjörutíu gráður. Allan sannleikann eða tölfræði Eftir Berg Hauksson Bergur Hauksson » Oft er betra að nota heilbrigða skynsemi en tölfræði eins og þetta dæmi sýnir. Höfundur er fv. framkv.stj. EFF. Framsóknarflokk- urinn vill að stökk- breytt verðtryggð húsnæðislán verði leiðrétt. Líkast til eiga þeir framsókn- armenn við að lánin verði lækkuð, sýnist mér. Þetta hefur slegið í gegn. Margir sem skulda verð- tryggð lán ætla að láta þetta loforð ráða atkvæði sínu. Ég ætti líklega að vera Framsóknarflokknum þakklátur; ég tók nokkuð hátt verðtryggt húsnæðislán árið 2003. Í krónum talið er lánið hærra en þegar ég tók það þrátt fyrir afborganir í 10 ár. En ég verð samt að vera van- þakklátur og afþakka gott boð Framsóknarflokksins. Ég hef get- að staðið undir greiðslubyrðinni fram að þessu. Þar að auki þarf maður að vera ansi grænn, finnst mér, til að vilja ekki skilja að greiðslu- byrðin hefur haldist nokkuð svipuð, sem hlutfall af tekjum, og hún var í upphafi. Svo er það rétt- lætið. Það er ekki sanngjarnt að fella niður lán til mín. Ríkið á að aðstoða þá sem á þurfa að halda. Þar á meðal ungt fólk sem reisti sér hurð- arás um öxl með lán- tökum rétt áður en kreppan skall á. Það er í meira lagi tilvilj- anakennd fjárhagsaðstoð sem felst í því að fólk sé styrkt án til- lits til efna og ástæðna bara fyrir það eitt að hafa tekið verðtryggt lán. Var eitthvað í kaffinu sem hún Jónína Ben. bar fyrir fram- sóknarmenn þegar þeir tóku sig til og lofuðu þessu? Mér finnst brýnt að aðstoða þá sem eru að eignast húsnæði og vinna að því hörðum höndum. Og er ekki best að nota skattkerfið til þess? Er réttlátt að allt sem eftir stendur sé hirt í tekjuskatt sem hefði getað verið nýtt í greiðslu afborgana? Væri ekki einmitt sanngjarnara að lofa ungu fólki að nýta afrakstur náms og erfiðis til að borga niður skuld- irnar? Framsóknarmenn og annað vel meinandi fólk þarf að skoða málið aftur. Almenn lækkun verð- tryggðra lána gengur bara alls ekki. Við leysum ekki greiðslu- vanda húseigenda á herðum líf- eyrisþega sem eiga peningana sem notaðir voru til að lána þeim. – Það væri ekki siðferðilega verj- andi. Framsóknarflokkurinn og lækkun verðtryggðra lána Eftir Einar S. Hálfdánarson » Var eitthvað í kaffinu sem Jónína Ben. bar fyrir framsóknarmenn? Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.