Morgunblaðið - 13.04.2013, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 13.04.2013, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013 ✝ Hreinn HeiðarJóhannsson frá Valbjarnarvöllum fæddist í Forna- hvammi í Norður- árdal 4. júní 1933. Hann lést á Brák- arhlíð, hjúkrunar- og dvalarheimili í Borgarnesi, 3. apríl 2013. Foreldrar hans voru Guðmundur Jóhann Jónsson, f. 29. janúar 1887, d. 26. ágúst 1965, og Stef- anía Katrín Sigurjónsdóttir, f. 15. maí 1896, d. 30. apríl 1965. Systkini Heiðars: Sesselja Sig- ríður, f. 27. júlí 1929, d. 8. janúar 2012, og Sigurjón Gunnar, f. 6. ágúst 1937. Heiðar kvæntist 19. sept- ember 1959 Guðbjörgu Fann- eyju Hannesdóttur, f. 10. janúar 1941. Foreldrar hennar voru Hannes Þjóðbjörnsson, f. 20. jan- úar 1905, d. 2. október 1984, og Rannveig Jóhannesdóttir, f. 30. maí 1910, d. 30. janúar 2007. Systkini Fanneyjar eru: Sig- urjón, Þjóðbjörn, Guðríður og Guðbjartur. Börn Heiðars og Fanneyjar eru: 1) Hannes, f. 1. febrúar 1960, maki Guðmunda Guðfinna Jónsdóttir. Börn þeirra eru: a) sínum og Ingu Guðmundsdóttur konu hans. Þeir bjuggu saman á Valbjarnarvöllum með sínum fjölskyldum til ársins 1978. Hann fór á sjó og vann í fiski í Vestmannaeyjum í tvö ár, keyrði leigubíl hjá Steindóri, starfaði síðan lengi sem bílstjóri hjá Bif- reiðastöð KBB þar til hún var lögð niður. Þá keyrði hann hjá Samskipum þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Meðan Heiðari entist heilsa keyrði hann stundum rútu hjá Sæmundi Sig- mundssyni. Um tíma keyrði hann mjólkurbíl og kynntist hann þá Fanneyju þar sem hún vann á Bifröst. Heiðar og Fann- ey hófu sinn búskap á Valbjarn- arvöllum haustið 1959. Bjuggu í Reykjavík árin 1961-1963 og fóru þá aftur að Valbjarn- arvöllum þar sem þau voru til ársins 1978 er þau byggðu sér hús í Borgarnesi, þar sem Fann- ey býr í dag. Þau byggðu sér sumarbústað á Valbjarn- arvöllum og stóð til að eyða þar góðum tíma saman. Þau voru meðlimir í Húsbílafélagi og ferð- uðust mikið um Ísland og fóru einnig til Færeyja. Heiðar brast heilsa árið 2009 og hefur síðan dvalið á Brákarhlíð í Borg- arnesi. Hugðarefni Heiðars voru fjölskyldan, bílar, hestar og ferðalög. Útför Heiðars fer fram í dag, 13. apríl 2013, í Borgarneskirkju kl. 14. Jón Heiðar, maki Sólveig María. Börn þeirra eru Steindór Sólon og Ísold Svava. b) Adolf, unnusta hans er Birna. Dætur þeirra eru Agla Dís og Birta Mjöll. c) Helga Björg. d) Jó- hann Hlíðar. 2) Jón, f. 11. nóvember 1961, maki Sædís Björk Þórðardóttir. Synir þeirra eru: a) Ólafur Þór. b) Atli Snær, lést 1998. c) Snæþór Bjarki. 3) Guðrún, f. 18. júní 1968, maki Hafþór Helgi Einarsson. Dætur þeirra eru: a) Arndís Ýr, unnusti Flosi. b) Júlía Rós, unnusti Berg- þór. 4) Stefán, f. 24. júlí 1970, maki Soffía Jóhannsdóttir Hauth. Börn þeirra eru: a) Garð- ar Þór. b. Elvar Örn. c) Alex- andra Jóhanna. 5) Rannveig, f. 3. janúar 1979, maki Sveinn Ingi Hjálmarsson. Börn þeirra eru: a) Hjálmar Már. b) Stefanía Katrín. Skólaganga Heiðars var fremur stutt en hann sótti skóla á Dalsmynni í Norðurárdal og á Brennistöðum í Borgarhreppi. Á lífsleið sinni vann Heiðar ýmis störf. Auk þess sinnti hann bú- störfum með foreldrum sínum og síðar með Sigurjóni bróður Elsku pabbi, nú hefur þú kvatt þennan heim eftir þriggja og hálfs árs veikindi sem eru búin að vera erfiður tími. En margar góðar minningar á ég um þig pabbi minn. Þær voru nú ekki fáar ferðirnar sem ég fór með þér í stóra bílnum og mjólkurbílnum, alltaf fannst mér jafngaman að fara með og hjálpa þér, ég sótti í það í öllum mínum fríum í skólanum og á sumrin. Svo var það hestamennskan, ég byrjaði nú mjög ung að fara með þér á hestbak og fannst það mjög gaman. Ég var alltaf á honum Brúnka þínum, þú teymdir undir mér fyrst um sinn. Eitt sinn varst þú að koma heim úr Grímsstaðarétt á hon- um Jarpi þínum, þá beið ég þín uppi á Valbjarnarvöllum við hliðið til að fá að fara á hestbak með þér. Ég gleymi því ekki þegar þú tókst mig og settir mig fyrir framan þig á þeim jarpa, það var gaman. Ég var 12 ára gömul þegar ég fékk svo loksins að fara með þér ríðandi í Gríms- staðarétt en þá varð ekki aftur snúið, ég fór með þér og þínum fylgdarmönnum á hverju ári eft- ir það og það var alltaf jafn- gaman. Elsku pabbi, nú ertu kominn á betri stað og með hestinum okkar, honum Feng. Guð geymi þig. Þín dóttir, Rannveig. Elsku pabbi. Nú er komið að kveðjustund. Þú varst alltaf glaður, kátur og stríðinn og allt- af brosandi eða hlæjandi. Þú vildir allt fyrir alla gera. Ef ein- hver hringdi og vantaði aðstoð varst þú strax tilbúinn að hjálpa. Ég fór með þér nokkrar ferðir á flutningabílnum til Reykjavíkur og fékk að hjálpa þér að lesta bílinn. Ég man að ég var alltaf voða stolt að eiga pabba sem gæti keyrt svona stóra bíla, vagnarnir voru svo langir og veðrið stoppaði þig aldrei. Kon- urnar í eldhúsinu á Landflutn- ingum tóku alltaf jafn vel á móti þér og þú stríddir þeim. Þú varst góður bílstjóri enda mun- um við ekki eftir því að þú hafir nokkurn tíman lent í óhappi á þessum ferðum þínum. Þú hringdir stundum og vildir bjóða stelpunum okkar með þér heim í Borgarnes. Alltaf hafðir þú gaman af hestum og eru nokkrar ferðirn- ar sem við höfum farið með þér á hestbak, eins og í Grímsstaða- rétt og upp á múla. Mikið varst þú kátur þegar þú komst Haf- þóri á bak í árlegan páskareið- túr og hlóst mikið að honum. Þér þótti ekki leiðinlegt að hafa pela með, einn eða fleiri, og láta óspart ganga á milli. Þú varst alltaf að minnast á söguna þegar ég, þú og mamma fórum í Akraborgina og mér fannst voða gaman fyrstu mínútuna, þangað til ég varð sjóveik. Þú sagðir alltaf að Akraborgin hefði ennþá verði bundin við bryggju þegar ég var orðin sjóveik, og hlóst mikið að mér. Þú varst með alla veiðistaði, nöfn og sögur af vötnunum á hreinu og sitja þau föst í minn- ingunni. Þá var einn af bestu veiðitúrum þínum þegar þú og Hafþór fóruð upp á múla og löbbuðuð á milli allra vatnana og lítið gekk. Komuð þið þreyttir að Gufuárvatni og lögðust í brekkuna beint á koníakspela sem einhver hafði týnt og þá glottir þú og þreytan hvarf um leið. Þið mamma byggðuð ykkur lítinn fallegan bústað, það var sorglegt að þið gátuð ekki notið þess að vera mikið í honum. Bú- staðurinn var á þínum æskuslóð- um, Valbjarnarvöllum, sem voru þér mjög kærir, tíminn ykkar þar saman var alltof stuttur. En nú ert þú búinn að fá hvíldina og við munum hugsa vel um mömmu og halda minn- ingunni um þig á lofti. Við viljum fyrir hönd fjöl- skyldunnar færa frábæru starfs- fólki Brákarhlíðar kærar þakkir fyrir góða og hlýja umönnun. Saknaðarkveðjur, Guðrún og Hafþór. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku pabbi og tengdapabbi, við þökkum fyrir samfylgdina og biðjum Guð að blessa minningu þína. Jón og Sædís. Til afa. Nú sefur þú í kyrrð og værð og hjá englunum þú nú ert. Umönnun og hlýju þú færð og veit ég að ánægður þú sért. Ég kvaddi þig í hinsta sinn Ég kveð þig nú í hinsta sinn. Blessun drottins munt þú fá og fá að standa honum nær. Annan stað þú ferð nú á sem ávallt verður þér kær. Ég kvaddi þig í hinsta sinn. Ég kveð þig nú í hinsta sinn. Við munum hitta þig á ný áður en langt um líður. Sú stund verður ánægjuleg og hlý og eftir henni sérhvert okkar bíður. Við kveðjum þig í hinsta sinn Við kvöddum þig í hinsta sinn. Elsku afi, takk fyrir allt. Óli Þór og Snæþór Bjarki Jónssynir. Elsku Heiðar afi, þá ertu far- inn frá okkur og fær maður lítið um það að segja. En þakklátur er ég fyrir þann tíma sem ég fékk með þér þótt ég hafi ekki haft rænu á því að segja þér það þegar þú varst með mér. Oft minnist ég þeirra stunda sem ég var með þér á mínum yngri árum, þegar þú tókst mig með þér að gefa hestunum og moka út frá þeim. Þegar ég fór með þér í vinnuna, sem var allra mesta hamingjan að fá að sitja í öllum stóru bílunum sem afi keyrði og man ég eftir nokkrum ferðunum eins og þær hefðu gerst í gær. Alltaf var gaman og gott að koma í heimsókn til ykk- ar ömmu. Alltaf fékk ég eitthvað gott og óhollt og leyfðist manni margt sem ekki mátti annars staðar sem ég hafði mjög gaman af. Svo eftir að ég komst til vits og ára og fékk bílpróf sjálfur lenti ég í ófá skiptin í því að keyra þig og það þótti mér nú ekki leiðinlegt. Einnig fór ég að venja komur mínar til ykkar ömmu til að nota bílskúrinn hjá ykkur fyrir ýmislegt bílavesen og alltaf fylgdist þú spenntur með og varst alltaf tilbúinn að aðstoða mig. Þegar ég réð mig svo fyrst til sjós hafðir þú mik- inn áhuga á þeirri iðju og komst á mínum fyrstu dögum sem vél- stjóri að skoða allt vélarrúmið hjá mér og skipið allt og fannst þér þetta vera alltof mikill mun- aður sem við höfðum miðað við það sem þú hafðir upplifað. Er ég gerði þig að langafa var gaman að sjá hvað þú varst áhugasamur um þessi nýju lang- afabörn þín og allt fram á þinn síðasta dag voru þau þér mjög ofarlega í huga og það gladdi mig mjög. Ég vildi óska þess að þú hefðir fengið að kynnast þeim betur. Aðdáunarvert hefur verið að sjá hvað hún amma mín hefur staðið þétt að baki þér og hvað hún hefur staðið sig vel und- anfarið og veit ég að þú munt styðja hana núna og vera hjá henni hvar sem þú ert. Hafðu það gott afi minn, þinn nafni Jón Heiðar. Margar hlýjar minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa til þín. Allar dýrmætu hestaferðirnar sem ég fór með þér þegar ég var yngri, þeim mun ég ekki gleyma. Dagsferð- irnar voru skemmtilegastar og líka gaman að sjá hvað þér þótti vænt um hestana þína. Það var alltaf svo gott að koma við hjá ykkur ömmu, bæði þegar leið mín lá eitthvað lengra út á land eða bara þegar við fjölskyldan komum í heimsókn. Sumarið 2004 var dýrmætt, þegar ég bjó hjá ykkur ömmu. Það var alltaf svo notalegt að vera hjá ykkur og þér þótti ekki leiðinlegt að dekra við okkur barnabörnin. Þú áttir það til að vera líka dá- lítið stríðinn, ég mun ekki gleyma stríðnissvipnum þínum. Þær lifa sterkt í minningunni ferðirnar sem ég fór með þér milli Reykjavíkur og Borgarness á vörubílnum þegar þú varst að vinna, betri ferðamáta var ekki hægt að fá. Baráttan þín er búin að vera erfið síðastliðið ár og þú barðist hetjulega. Mér þykir vænt um þig, elsku afi, og það er sárt að kveðja en nú veit ég að þú ert á góðum stað og líður vel. Þitt barnabarn, Arndís Ýr. Elsku afi minn. Nú hefur þú kvatt þennan heim en minning þín lifir. Þú varst alltaf svo góð- ur við alla og vildir engum illt. Man alltaf eftir því þegar ég var lítil hvað þér fannst gaman að gefa manni súkkulaðirúsínur í laumi, foreldrunum ekki til jafn- mikillar gleði. Einnig fannst þér ekkert skemmtilegra en að reyna að fá mig á hestbak, það gekk þó ekki nógu vel en stoltið leyndi sér ekki þegar tókst að smella einni mynd af mér á baki. Já maður á æðislegar minningar um þig og minning þín mun alltaf lifa í hjarta mínu elsku afi. Takk fyrir allt, þín Júlía Rós. Heiðar Jóhannsson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, bróðir og mágur, JÓHANN VÍKINGSSON, lést á bráðadeild Landspítalans mánudaginn 8. apríl. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. apríl kl. 15.00. Guðný K. Óladóttir, Sigurborg Skúladóttir, Guðrún Lovísa Víkingsdóttir, Viðar Vésteinsson, Skúli Víkingsson, Ingibjörg Kaldal, Halldór Víkingsson, Ingvar Víkingsson. ✝ Okkar ástkæra RUT SIGURÐARDÓTTIR, síðast til heimilis í Brákarhlíð, hjúkrunar- og dvalarheimili, Borgarnesi, andaðist mánudaginn 18. mars. Jarðarförin hefur farið fram. Starfsfólki heimilisins eru færðar hjartans þakkir fyrir hlýju þeirra og umhyggju. Þeir sem vilja minnast hennar láti Brákarhlíð njóta þess. Fyrir hönd ástvina, Stefán Gautur Daníelsson. ✝ Okkar hjartkæra SIGRÍÐUR ÓSK GEIRSDÓTTIR, Hátúni 12, Reykjavík, andaðist á Landspítala við Hringbraut miðvikudaginn 10. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Signý Þ. Óskarsdóttir, Þorkell G. Geirsson, Egill Þorkelsson, Agnes Þorkelsdóttir, Jón Eiríksson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓRUNN MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Víðigrund 8, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks miðvikudaginn 10. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Svanhildur Sigfúsdóttir, Haukur Sigfússon, Steindór Sigfússon, Jóhanna Óskarsdóttir, Guðmunda Sigfúsdóttir, Halldór Ólafsson, Sindri Sigfússon, Erna Reynisdóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARNE GUÐBJÖRN ELLINGSEN MAGNÚSSON, Skaftahlíð 20, Reykjavík, varð bráðkvaddur laugardaginn 30. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ættingjarnir vilja koma sérstaklega miklu þakklæti til starfsfólks Heyrnleysingjafélagsins fyrir alla hjálpina, alúðina og vinskapinn á umliðnum árum, ómetanleg hjálp. Fyrir hönd aðstandenda, Magnús Gunnar og Guðrún Ágústa. ✝ Okkar ástkæra JÓNA KRISTÍN HALLGRÍMSDÓTTIR, Hamri, lést mánudaginn 8. apríl. Útför hennar fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 17. apríl kl. 15.00. Hafsteina Helga Magliolo, William Brady, Ingibjörg S. Jónsdóttir, Sigurbjörn Helgason, Jón Helgi Jónsson, Drífa Heiðarsdóttir, Helgi E. Jónsson, Sigrún Agnarsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.