Morgunblaðið - 13.04.2013, Side 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Allar kórsætaraðir fyrir aft-an og ofan hljómsveit-arpall Eldborgar voruskipaðar áheyrendum á
rauðu sinfóníutónleikum s.l.
fimmtudags; örugg vísbending um
fullsetinn sal. Með fullri virðingu
fyrir einleikara kvöldsins, er stóð
undir flenniaðsókninni og vel það,
má samt ímynda sér að verkavalið
hafi haft mest að segja að þessu
sinni. Einkum Vorblótið, er að lík-
indum nýtur einhverra mestu vin-
sælda allra módernískra hljómsveit-
arverka 20. aldar í dag, jafnt hér
sem annars staðar. Ekki sízt hjá
þeim hlustendum yngri aldurshópa
er annars hænast mest að poppi og
rokki, jafnvel þótt þeir virtust fljótt
á litið færri en við mátti búast. Svip-
að má segja um hlutfallslega minna
þekktan öndvegiskonsert Bartóks.
Loks má ætla að Íslands-
frumflutningur 2. Sinfóníu hins eist-
neska Arvos Pärt frá 1966 hafi ginnt
einhverja sem sækjast eftir „nýrri“
lifandi hlustreynslu, þrátt fyrir
nærri hálfrar aldar bið á okkar
fjörum. Þríþætt verkið var fyrst á
dagskrá og aðeins tæpar 12 mín. á
lengd, en náði samt að tjalda mörg-
um helztu framúrstefnueinkennum
tilurðartímans, er sumum þykir nú-
orðið frekar falla undir hljóðlist en
tónlist. Í sprækum flutningi SÍ bar
það engu að síður af sér furðumik-
inn þokka, þrátt fyrir kraumandi
skordýrakraðak I. þáttar og krass-
andi samstíga hljómklasa II. ásamt
ágengu slagverki.
Feikinógan, skyldi maður halda,
til að móta framhaldsferil á svip-
uðum nótum. En ekki fyrir Pärt!
Hann kaus síðan að taka sér langt
hlé frá tónsmíðum unz hann sneri
aftur undir tónölum formerkjum
naumhyggju; m.a. innblásinn af
samhryngum (ísórytmískum) Ars
Nova mótettum síðmiðalda. Vísinn
að þeirri viðhorfsbreytingu mátti
kenna á stuttri Tsjækovskíj-
tilvitnun III. þáttar, þar sem róm-
antískt lagferli hljómaði sem óvænt
heiðskír unaður úr þrúgandi lofti.
Þveröfugt við boðskapinn úr loka-
þætti 2. Strengjakvartetts Schön-
bergs, Entrückung (1908), um fram-
tíðarmúsíkina: „Ich fühle Luft von
anderem Planeten“ – og þar með
þróunarlega blindgötu tólftóna-
stefnunnar er síðar varð lýðum ljós.
2. Fiðlukonsert Bélu Bartók
(1938) var hér fluttur í þriðja skipti
eftir 1978 og 1992. Þótt ég hefði við-
miðun frá hvorugu þeirra, er óhætt
að fullyrða að moldavíski einleik-
arinn hafi slegið rækilega í gegn
með gríðarfjölbreyttri túlkun, allt
frá gneistandi aflraunum í skelli-
bjöllulegan álfkonusöng, og með-
leikur SÍ hélzt allur í fullkomlega
samstilltu samræmi.
Hvílíkt meistaraverk! Í þjóðlaga-
skotinni framsækni Bartóks urðu
jafnvel svæsnustu ómstríður fal-
legar, og auðvelt var að taka undir
með reynsluhokinni tónlistarkonu
meðal hlustenda um að hér færi
skáldskapur sem nyti sín fyrst til
fulls á okkar dögum með aukinni
leikfærni. Patricia Kopatchinskaja
fór etnískt innlifuðum höndum um
kveðskapinn og lék að lokum bráð-
skondið aukalag eftir György Kur-
tág með leiftrandi tilþrifum sem
vöktu jafnt aðdáun sem kátínu.
Tímamótaverk Ígors Stravins-
kíjs, „Le Sacre du Printemps“,
fagnar nú 100 ára frumflutnings-
afmæli. Það var síðast flutt héðra í
nóvember 2007 undir stjórn Ru-
mons Gamba að mér viðstöddum.
Hvað sem líður nýkviknuðum
„prímítívisma“ samningstímans og
þjóðlagalánum höfundar úr tónarfi
Austur-Evrópuþjóða (sbr. bók Rich-
ards Taruskin), liggur samt næst
við að líkja steinaldarorgíu Stra-
vinskíjs við frumleikasprengju
Eroicu Beethovens (1803), enda hef-
ur fítonskraftur mannfórnarball-
ettsins haldizt ófölskvaður allt til
okkar daga.
Þó ekki treysti ég mér til að gera
upp á milli flutninga þá og nú eftir
nærri sex ár, þá hljómaði margt
glæsilegt í meðförum Volkovs og SÍ.
Alltjent var ekki skafið af hraða-
kröfum ef marka má 36 mín. flutn-
ingstíma – hjá áætluðum 43 í
tónleikaskrá.
Innlifun „Patricia Kopatchinskaja fór etnískt innlifuðum höndum um kveðskapinn og lék að lokum bráðskondið
aukalag eftir György Kurtág með leiftrandi tilþrifum sem vöktu jafnt aðdáun sem kátínu.“
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbbm
Pärt: Sinfónía nr. 2 (ísl. frumfl.). Bartók:
Fiðlukonsert nr. 2. Stravinskíj: Vorblót.
Patricia Kopatchinskaja fiðla; Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Stjórnandi: Ilan Vol-
kov. Fimmtudaginn 11. apríl kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Dauðadans til árs og friðar
Hljómsveitirnar
Monotown, Staf-
rænn Hákon,
Boogie Trouble,
Loji og Tonik
koma fram á tón-
listarhátíðinni
Reykjavík Music
Mess sem fer
fram á Volta og
Kex Hostel, 24.
til 26. maí. Bæt-
ast þær við hóp þeirra sem áður
hafa verið kynntar til leiks, m.a.
Sykur, PVT, DZ Deathrays og
Bloodgroup. 15 hljómsveitir koma
fram á þeim þremur kvöldum sem
hátíðin stendur yfir.
15 sveitir á
Music Mess
Stafrænn Hákon/
Ólafur Josephsson
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Lau 13/4 kl. 19:00 aukas Fös 10/5 kl. 19:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas
Sun 14/4 kl. 19:00 11.k Lau 11/5 kl. 19:00 Fim 6/6 kl. 19:00
Fös 19/4 kl. 19:00 aukas Sun 12/5 kl. 13:00 Fös 7/6 kl. 19:00
Lau 20/4 kl. 19:00 aukas Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Lau 8/6 kl. 19:00
Sun 21/4 kl. 19:00 12.k Fim 16/5 kl. 19:00 Sun 9/6 kl. 13:00
Mið 24/4 kl. 19:00 Fös 17/5 kl. 19:00 Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 26/4 kl. 19:00 aukas Lau 18/5 kl. 19:00 Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 27/4 kl. 19:00 Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn.
Sun 28/4 kl. 13:00 Fim 23/5 kl. 19:00 Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn.
Þri 30/4 kl. 19:00 aukas Lau 25/5 kl. 19:00 aukas Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 2/5 kl. 19:00 aukas Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 3/5 kl. 19:00 Mið 29/5 kl. 19:00 aukas Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn.
Lau 4/5 kl. 19:00 Fim 30/5 kl. 19:00 aukas Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn.
Sun 5/5 kl. 13:00 Fös 31/5 kl. 19:00 Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn.
Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Lau 1/6 kl. 13:00 Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 9/5 kl. 14:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas
Einn vinsælasti söngleikur heims, nú loks á Íslandi. Allt að seljast upp!
Gullregn (Stóra sviðið)
Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00
Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas
Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 9/6 kl. 20:00 lokas
Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Ormstunga (Nýja sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 Sun 14/4 kl. 20:00 lokas
Íslendingasagan sem er ekki eins leiðinleg og þú heldur. Aðeins þessar sýningar.
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Mið 24/4 kl. 20:00 19.k Þri 30/4 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00
Fim 25/4 kl. 20:00 20.k Fös 3/5 kl. 20:00
Lau 27/4 kl. 20:00 Lau 4/5 kl. 20:00
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Snýr aftur í takmarkaðan tíma.
Núna! (Litla sviðið)
Þri 16/4 kl. 20:00 2.k Þri 23/4 kl. 20:00 4.k
Mið 17/4 kl. 20:00 3.k Sun 28/4 kl. 20:00 5.k
Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu
Tengdó (Litla sviðið)
Fim 18/4 kl. 20:00 aukas Fös 3/5 kl. 20:00 24.k Lau 18/5 kl. 20:00
Fös 19/4 kl. 20:00 aukas Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Fim 23/5 kl. 20:00
Lau 20/4 kl. 20:00 20.k Sun 5/5 kl. 20:00 Lau 25/5 kl. 20:00
Sun 21/4 kl. 20:00 21.k Fim 9/5 kl. 20:00 aukas Sun 26/5 kl. 20:00
Mið 24/4 kl. 20:00 22.k Fös 10/5 kl. 20:00 Fös 31/5 kl. 20:00
Fim 25/4 kl. 20:00 aukas Lau 11/5 kl. 20:00 Lau 1/6 kl. 20:00
Lau 27/4 kl. 20:00 23.k Fim 16/5 kl. 20:00 Sun 2/6 kl. 20:00 lokas
Fim 2/5 kl. 20:00 aukas. Fös 17/5 kl. 20:00
Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur!
Íslenski Dansflokkurinn: Walking Mad (Stóra sviðið)
Fim 18/4 kl. 20:00 2.k Sun 5/5 kl. 20:00 5.k Mán 20/5 kl. 20:00
Fim 25/4 kl. 20:00 3.k Fim 9/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00
Sun 28/4 kl. 20:00 4.k Sun 12/5 kl. 20:00
Tvö verk á einu kvöldi: Walking Mad og Ótta - húmor, galsi og geðveiki
Tengdó –HHHHH – JVJ. DV
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fim 18/4 kl. 19:30 Fors. Fös 3/5 kl. 19:30 4.sýn Lau 25/5 kl. 19:30 12.sýn
Fös 19/4 kl. 19:30 Fors. Lau 4/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 30/5 kl. 19:30 13.sýn
Lau 20/4 kl. 19:30 Frums. Mið 8/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 31/5 kl. 19:30
Mið 24/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 10/5 kl. 19:30 7.sýn Lau 1/6 kl. 19:30
Fös 26/4 kl. 19:30 2.sýn Fim 16/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 7/6 kl. 19:30
Lau 27/4 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 8/6 kl. 19:30
Sun 28/4 kl. 19:30 Aukas. Fim 23/5 kl. 19:30 10.sýn Fös 14/6 kl. 19:30
Fim 2/5 kl. 19:30 Aukas. Fös 24/5 kl. 19:30 11.sýn
Ein vinsælasta íslenska skáldsaga síðari ára í nýrri leikgerð
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 21/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 14:00
Sun 14/4 kl. 16:00 Sun 28/4 kl. 13:00
Eitt ástsælasta barnaleikrit á Íslandi
Kvennafræðarinn (Kassinn)
Mið 17/4 kl. 19:30 Fors. Mið 24/4 kl. 19:30 4.sýn Lau 4/5 kl. 19:30 8.sýn
Fim 18/4 kl. 19:30 Frums. Fös 26/4 kl. 19:30 5.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 9.sýn
Fös 19/4 kl. 19:30 2.sýn Lau 27/4 kl. 19:30 6.sýn
Lau 20/4 kl. 19:30 3.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 7.sýn
Hver er ekki upptekin af kvenlíkamanum?
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið )
Sun 14/4 kl. 19:30 Síð.s.
Ný aukasýning 14.apríl!
Fyrirheitna landið (Stóra sviðið)
Lau 13/4 kl. 19:30 Lokas.
Hilmir Snær sýnir stjörnuleik í heillandi mannlýsingu
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 13/4 kl. 13:30 Lau 20/4 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 13:30
Lau 13/4 kl. 15:00 Lau 27/4 kl. 13:30 Sun 28/4 kl. 15:00
Lau 20/4 kl. 13:30 Lau 27/4 kl. 15:00
Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka
Karma fyrir fugla (Kassinn)
Lau 8/6 kl. 19:30 aukas. Sun 9/6 kl. 19:30 aukas.
Síðasta sýning 7.apríl
Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 14/4 kl. 20:00 Fös 19/4 kl. 20:00 Síðasta
sýn.
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Gilitrutt (Brúðuloftið)
Lau 13/4 kl. 13:30 Frums. Lau 20/4 kl. 13:30 Lau 27/4 kl. 13:30
Lau 13/4 kl. 17:00 Lau 20/4 kl. 15:30 Lau 27/4 kl. 15:30
Skemmtileg brúðusýning fyrir börn
11.05.13 - Laugardagur 20:00 UPPSELT
12.05.13 - Sunnudagur 20:00 UPPSELT
17.05.13 - Föstudagur 20:00 NÝ SÝNING
24.05.13 - Föstudagur 20:00 UPPSELT
25.05.13 - Laugardagur 20:00 UPPSELT
31.05.13 - Föstudagur 20:00 NÝ SÝNING
01.06.13 - Laugardagur 20:00 NÝ SÝNING
12.04.13 Föstudagur 20:00 UPPSELT
13.04.13 Laugardagur 21:30 UPPSELT
20.04.13 Laugardagur 20:00 UPPSELT
03.05.13 Föstudagur 20:00 UPPSELT
04.05.13 Laugardagur 21:30 UPPSELT
08.05.13 Miðvikudagur 20:00 UPPSELT
10.05.13 Föstudagur 20:00 UPPSELT