Morgunblaðið - 13.04.2013, Page 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
É
g hef verið að leika mér að því að
undanförnu að líkja Darkthrone,
hinni ógurlegu norsku þunga-,
öfga- og svartþungarokkssveit
við The Fall, hina óútreiknanlegu
síðpönkssveit hins sérlundaða snillings Mark
E. Smith. Ekki bara vegna langlífisins og
virkninnar heldur fyrst og fremst vegna þess
að aðdáendur vita aldrei hverju þeir geta átt
von á – nema alveg ábyggilega hinu óvænta.
„Always different – always the same,“ sagði
John Peel heitinn um sína elskuðu Fall og hinu
sama má snúa upp á Darkthrone. Og þó að þar
fari ekki um kolbrjálað ólíkindatól eins og í til-
felli The Fall er hún skipuð tveimur sterkum en
um leið gjörólíkum persónuleikum, þeim Noct-
urno Culto og Fenriz, sem eru nokkurs konar
yin og yang sveitarinnar. Trymbillinn Fenriz er
grallarinn og um leið „sálin“; hann er talsmað-
urinn en um leið vegur tónlistarlegt framlag
hans þungt, þyngra en margur heldur (og hef-
ur það aukist ef eitthvað er hin síðustu ár).
Culto er hins vegar kletturinn þögli, gítarleik-
arinn og söngvarinn og hinn óskoraði leiðtogi
framan af (eins og segir, meira jafnræði er nú).
Framlag þeirra beggja myndar svo þessa ein-
stöku áru sem leikur um sveitina, þetta er í
raun réttu Lennon/McCartney-ískt samstarf.
Hugdirfska
Hljómsveitin var stofnuð í smábænum Kol-
botn (viðeigandi nafn!) og fyrsta hljóðversp-
latan var dauðarokksplata, hljómurinn þar alls
ólíkur þeim sem sveitin átti eftir að verða þekkt
fyrir. Platan, Soulside Journey (1991) er hins
vegar skotheld sem slík og það er spennandi að
hugsa til þess hvernig Darkthrone hefði getað
þróast sem dauðarokkssveit. Á næstu plötu, A
Blaze in the Northern Sky (1992), varð algjör
kúvending. Tónlistin hrá, hörð og andstyggileg
og margir – ekki síst útgáfa sveitarinnar – urðu
fyrir áfalli. En Culto og Fenriz sýndu þarna
mikla dirfsku og platan er réttilega talin tíma-
mótaverk. Heill undirgeiri í öfgarokki var að
spretta upp um þessar mundir og þessi plata
gerði mikið í því að fóstra hann. Næstu plötur,
Under A Funeral Moon, Transilvanian Hunger
og Panzerfaust eru allar sem ein – hver á sinn
hátt – stórkostlegar. Hin miskunnarlausa
Transilvanian Hunger er oft nefnd sem meist-
araverkið og Panzerfaust er … tja … „geðveik-
isleg“, býr yfir furðulegum vinklum og fyrsta
merki þess, eða í raun annað merki þess, að
Niður til heljar … hér um bil
Ljósmynd/Ashley Maile
Musteri Guðdómlegt greni Fenriz og Nocturno Culto í norsku plötubúðinni og öfgarokksmusterinu Neseblod Records í Ósló.
Darkthrone-liðar höfðu engan áhuga á að vera í
sérmerktum kassa. Darkthrone leiddist síðan
út í meira rokk, næstu plötur (Ravishing Grim-
ness, Plaguewielder t.d.) eru eintóna og mini-
malískar og minna dálítið á Godflesh hvað
áherslur varðar.
Leikur með klisjur
Enn ein u-beygjan kom svo með The Cult Is
Alive (2006) þar sem „crust“-pönk-áhrif (Disch-
arge o.fl.) og gamalt for-svartþungarokk (Ve-
nom, Celtic Frost) kraumaði undir. Og heil-
mikið af húmor líka. Síðustu plötur hafa verið í
þessum gír en nýja platan ber þó með sér enn
eina sveigjuna.
Þessi leikur með þungarokksklisjur hefur
aldrei verið jafn áberandi og á nýju plötunni,
The Underground Resistance. Segja mætti að
platan sé ein löng, á tímum gallsúr þunga-
rokkshylling, þar sem þeir félagar henda alls
konar stefnum og straumum í hrærivélina.
Þetta er þungarokk sem fjallar um þungarokk.
Víkingarokk, hetjurokk, þrass, Iron Maiden,
Manowar jafnvel, allt er þetta á flækingi þarna
en undir Darkthrone-hattinum góða. Margir
rýnar hafa hampað plötunni sem „sönnu“
þungarokki en það er næstum eins og sumir
skynji ekki húmorinn sem leiðir þetta allt sam-
an áfram. „Leave No Cross Unturned“ er
t.a.m. þrettán mínútur, býr yfir sígildum þrass-
gangi og yfir ýlfrar Fenriz eins og litli bróðir
King Diamond. Þetta er sprenghlægilegt – og
um leið snilldarlegt – og um leið vel rokkandi.
Enginn hefði komist upp með svona nokkuð
nema þeir bræður. Ég bíð því spenntur eftir
næstu plötu, er orðinn háður því að láta koma
mér í opna skjöldu með rútínubundnum hætti
svo ég styðjist við lýsingu Johns Peel framar í
textanum.
» Framlag þeirra beggjamyndar svo þessa einstöku
áru sem leikur um sveitina,
þetta er í raun réttu Lennon/
McCartney-ískt samstarf.
Norska öfgarokkssveitin Darkthrone gefur út sína fimmtándu breiðskífu, The Underground
Resistance Mikil „költsveit“ sem á sér harðsnúinn hóp aðdáenda um allan heim
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Fuglar – listin að vera fleygur nefnist sýning
sem opnuð verður í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi í dag kl. 14. Á sýningunni eru
fuglar í öllum mögulegum birtingarmyndum,
en leitað var til tæplega fjörutíu listamanna
og eigenda verka sem tengjast fuglum um
þátttöku í sýningunni. Meðal listamanna sem
eiga verk á sýningunni eru Aðalheiður Ey-
steinsdóttir, Benedikt Gröndal, Birgir Andr-
ésson, Bragi Ásgeirsson, Brynhildur Þor-
geirsdóttir, Finnbogi Pétursson, Frosti
Friðriksson, Guðmundur frá Miðdal, Guð-
mundur Páll Ólafsson, Helgi Þorgils Frið-
jónsson, Helgi Þórsson, Hulda Hákon, Ilmur
Stefánsdóttir, Jón Óskar, Kristín Þóra Guð-
bjartsdóttir, Páll Steingrímsson, Sara Riel,
Signý Kolbeinsdóttir, Steingrímur Eyfjörð,
Svava Björnsdóttir, Tumi Magnússon, Vera
Sölvadóttir, Þórarinn Eldjárn og Þórdís Alda
Sigurðardóttir. Sýningarstjóri er Þórunn El-
ísabet Sveinsdóttir.
„Á sýningunni verður sérstaklega hugað að
börnum og þar verða settir fram munir
tengdir fuglum svo sem vængir, lappir o.þ.h.
sem upplifa má með snertingu. Boðið verður
upp á leiðsögn um sýninguna og smiðju í gerð
fuglahúsa fyrir börn og fjölskyldur þeirra á
Barnamenningarhátíð í Reykjavík sunnudag-
inn 28. apríl. Á sýningartímabilinu verða auk
þess ýmsir viðburðir sem tengjast efninu. Má
þar nefna leiðsagnir og kvikmyndasýningar,“
segir m.a. í tilkynningu. Sýningin stendur til
21. júní og er opin alla virka daga kl. 10-17 en
kl. 13-16 um helgar. Aðgangur er ókeypis.
Ólíkar birtingarmyndir fugla
Morgunblaðið/Ómar
Fuglar Þuríður Helga Jónasdóttir og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sýningarstjóri hengja upp málverkið Alþjóðlegir fuglar eftir Helga Þórsson.