Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Page 20
*Heilsa og hreyfingHjólreiðar eru bæði samgöngumáti og keppnisíþrótt en flókinn útbúnaður er óþarfi »22 E ftirvæntingin er oft mikil þegar lagt er af stað í útilegu með fullan bíl af sólstólum, borðum, tjaldi og mat. Þegar á áfangastað er komið og tjaldið komið upp er tilvalið að hreyfa sig. Sígildir leikir eins og fótbolti, ein króna, feluleikur, brennó og eltinga- leikur ganga vel á flestum tjaldstæðum þar sem oftast er hægt að finna grasbala. Kubbur er skemmtilegur möguleiki og hentar vel fyrir alla aldurshópa en hann gengur út á að fella kubba andstæðingsins. Auðvelt er að ferðast með spilið þar sem það tekur ekki mikið pláss í bílnum. Annað sem sniðugt er að hafa með eru flugdrekar, svifdiskar, badmin- tonspaðar og svo að sjálfsögðu er fótbolti með í för. Ekki vanmeta upphitun Fótbolti er alltaf vinsæll í útilegum en getur verið varasamur fyrir óvana því auðvelt er að snúa á sér ökkla, rífa á sér kálfvöðva eða slíta hásin. Einnig geta óvanir fengið beinhimnu- bólgu, harðsperrur eða tognun. Edda Blöndal, sjúkarþjálfari, mælir með 7-8 mínútna upp- hitun. „Það er kannski leiðinlegt, en það má ekki vanmeta það að hita upp. Það þarf að gera vöðvana tilbúna. Það getur kannski ekki komið í veg fyrir slys, en minnkar líkur á þeim,“ segir hún og bendir á að teygjur að lokinni hreyfingu ásamt slökun í heitum potti geti hjálp- að að koma í veg fyrir harðsperrur. Valhoppa í kringum tjaldið Sumir kjósa einnig að skokka í útilegunni og ber þá helst að huga að skóbúnaði. „Ekki skokka á fáránlegum skóm, sérstaklega ekki á malbiki, velja þá frekar grasið,“ segir Edda. Upphitunaræfingar fyrir leiki sem krefjast mikilla hreyfinga geta verið ýmiss konar. Edda bendir á að hopp á staðnum, jafnfætis eða sundur saman, sé góð upphitun. „Svo má gera upphitunina aðeins skemmtilegri og valhoppa tíu hringi í kringum tjaldið,“ segir Edda. Aðal- atriðið er að hita aðeins kroppinn en fyrir fólk sem á erfitt með hopp er gott að fara í „plankann“ og spretta þannig á staðnum, labba á höndum og fótum eða gera nokkrar maga- æfingar og standa upp inn á milli. Í upphitun er mikilvægt að sprengja sig ekki, en Edda segir að fólk eigi að geta haldið uppi samræðum meðan á upphitun stendur. „Það er kannski erfitt að fá fólk til að hemja sig, en um að gera að vera skynsamur,“ segir Edda. Hægt er að hita upp rólega með því að stíga á pumpu og fylla sólstólana af lofti í leiðinni. Morgunblaðið/Jóra Mikilvægt er að teygja vel og hita upp áður en farið er í hlaup og fótbolta. Morgunblaðið/RAX Oft má finna leikvelli og grasbletti þar sem er hægt að spila fótbolta og fara í leiki. Ljósmynd/Gísli Sigurðsson Sumir kjósa frekar að slaka á í útilegustólum og njóta kyrrðarinnar í sveitinni. Morgunblaðið/Kristinn Gamlir og góðir útileikir eins og ein króna og hollinn skollinn eru frábærir á tjaldstæðum. Morgunblaðið/Ásdís Kubbur er skemmtilegt spil sem tekur ekki mikið pláss í skottinu og allir geta verið með. Morgunblaðið/Ásdís Fótbolti er alltaf vinsæll og geta allir verið með, en gott er að huga að upphitun, sérstaklega fyrir fólk sem er óvant mikilli hreyfingu. Morgunblaðið/RAX STAÐIÐ UPP ÚR SÓLSTÓLNUM Tjaldstæðaleikir og hreyfing LANDSMENN FLYKKJAST NÚ Í STRÍÐUM STRAUMUM Í ÚTILEGUR ENDA HÁSUMAR. SUMIR KJÓSA AÐ SITJA RÓLEGIR Í ÚTILEGUSTÓL MEÐ EINN KALDAN Á KANTINUM, EN AÐRIR VILJA HREYFA SIG. GAMAN ER FYRIR FULLORÐNA FÓLKIÐ AÐ TAKA ÞÁTT Í LEIKJUM BARNANNA, EN ÞÓ BER AÐ FARA VARLEGA. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.