Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Blaðsíða 24
Eggbústaður á
toppnum
E
ftir tveggja ára vinnu og sex milljóna evra kostnað er nýi fjallaskálinn við Mont Blanc, Re-
fuge du Gouter, tilbúinn. Skálinn er mikil bylting, ekki aðeins er hann glæsilegur heldur er
hann nánast sjálfbær. Hann býr til sína eigin orku með sólar- og vindrafhlöðu og endur-
nýtir vatnið svo fátt eitt sé nefnt.
Gamli skálinn var úr sér genginn. Sá var byggður í kringum 1960 og var bæði óþægilegur og
allt annað en góður fyrir umhverfið. Hreinlætisaðstaðan var vond, einangrunin virkaði illa og því
var hitastigið inni í bústaðnum oft það sama og úti. Tvö útiklósett voru í þeim gamla þar sem
þarfir fjallafólks slettust á klettavegginn. Þannig var það í 50 ár. Allt þetta er nú á bak og burt
því gamli skálinn verður rifinn.
Nýi skálinn er ekkert smáhýsi. Hann er á fjórum hæðum, 16 metra hár og smápartur
rennur aðeins fram af klettabeltinu en þar er 1.500 metra fall niður. Gistiaðstaða er fyr-
ir 120 fjallgöngumenn í senn. Bústaðurinn er egglaga, er allur úr tré en klæddur
ryðfríu stáli og passar mjög vel inn í umhverfið. Svissneski arkitektinn Hervé
Dessimoz var fimm ár að hanna skálann. Það átti að opna Refuge du Gouter í
fyrra en það tókst ekki. Sólarrafhlaðan var eitthvað að stríða mönnum.
Að smíða svona skála er ekkert grín. Smiðirnir voru sérvaldir því aðeins
var hægt að smíða frá vori og fram á haust. Samt truflaði veðrið og vindur
fór oft yfir 70 metra á sekúndu. Á hverju ári reyna 17 þúsund manns við
toppinn á Mont Blanc og þeir geta nú hlaðið batteríin í fallegum fjallaskála með
útsýni sem er upp á 10. Enda stendur hann nánast á toppnum – allavega í Evrópu.Sólarrafhlöðurnar hafa verið til vandræða.
Skálinn er glæsilegur að innan.
Byrjað var að vinna í
skálanum 2010. Hann er
nú tilbúinn til notkunar.
Síðasta stoppið fyrir
toppinn á Mont Blanc.
AFP
FJALLASKÁLINN VIÐ MONT BLANC
FJALLASKÁLINN REFUGE DU GOUTER ER Á HÆSTA FJALLI EVRÓPU,
MONT BLANC, Í 3.835 METRA HÆÐ. 120 RÚM ERU Í SKÁLANUM EN Í
HONUM SAFNA MENN ORKU FYRIR SÍÐASTA SPÖLINN UPP Á TOPP. TVÖ
ÁR TÓK AÐ SMÍÐA HANN OG VAR KOSTNAÐURINN SEX MILLJÓNIR EVRA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
*Heimili og hönnunHöfðingsheimili í Flatey heimsótt þar sem tíminn stendur í stað og draugar koma aldrei við sögu »26
Teikningar af skálanum.