Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Qupperneq 27
Á
sgarður var byggður árið 1907 af hjón-
unum Guðmundi Bergsteinssyni kaupmanni
og útgerðarmanni og konu hans Jónínu
Eyjólfsdóttur. Þar ólu þau upp barnahóp,
fjóra syni og fjórar dætur. Dóttursonur þeirra hjóna
er tónskáldið Atli Heimir Sveinsson, en hann er nú
einn af fimm eigendum hússins. Flatey hefur mikið
breyst frá því í byrjun síðustu aldar, en þá bjuggu
á eyjunni og eyjunum í kring um tvö hundruð
manns. „Það var hér blómlegt menningarlíf og hér
var myndarbú á meðan að útgerðin gekk,“ segir
Atli Heimir, sem hefur dvalið í Ásgarði frá barns-
aldri.
Hann segist ekkert hafa þurft að stunda sveita-
störf. „Þetta var bara lúxuslíf hjá okkur krökkunum,
úti að leika allan daginn í náttúrunni,“ segir hann,
en nú fer hann gjarnan í Flatey til að skrifa tón-
list.
Amma hans og afi undu hag sínum vel í húsinu
framan af öldinni, en Jónína lifði til 103 ára aldurs
og vandi komur sínar í húsið löngu eftir að hún
flutti til Reykjavíkur. „Þau kvörtuðu aldrei, það var
ekki til siðs. Þetta var höfðingsheimili,“ segir Atli
Heimir um þau hjón. Ásgarður hefur lítið breyst í
gegnum tíðina þó að afkomendur hafi þurft að dytta
að húsinu. Atli Heimir segir að þar hafi aldrei verið
draugagangur. „Það hafa aldrei verið draugar hér í
Flatey, jafnvel segir sagan af einni konu sem fylgdi
draugur. Hann hvarf þegar hún flutti í Flatey,“ seg-
ir Atli Heimir og hlær.
Stofan í Ásgarði
hefur lítið breyst í
hundrað ár.
Borðstofan í Ásgarði
er notaleg og gamlar
bækur á hillum.
Margir hafa snætt við eld-
húsborðið í gegnum tíðina.
ÞAR SEM TÍMINN STENDUR Í STAÐ
„Höfðingsheimili“
Í FLATEY IÐAR ALLT AF MANNLÍFI Á SUMRIN OG BÖRNIN BUSLA Í SJÓNUM. FUGLA-
SÖNGUR FYLLIR LOFTIÐ Á ÞESSARI KYRRLÁTU EYJU ÞAR SEM HÆGT ER AÐ FÁ HVÍLD FRÁ
AMSTRI BORGARINNAR. EITT STÆRSTA HÚSIÐ Í FLATEY Á BREIÐAFIRÐI HEITIR ÁSGARÐUR
OG HEFUR STAÐIÐ ÞAR Í YFIR HUNDRAÐ ÁR.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Á eldhúshillu standa
gamlir munir sem eitt
sinn höfðu notagildi.
7.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
| SUMARÚTSALA | SUMA
RÚTSALA
REYKJAVÍK | AKUREYRI | R
EYKJAVÍK | AKUREYRI
| REYKJAVÍK | AKUREYRI | R
EYKJAVÍK | AKU
BORÐSTOFUSTÓLAR | BORÐSTOFUBORÐ | SÓFABORÐ | LAMPAR | PÚÐAR | GLERVARA OG FALLEG SMÁVARA
G D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i O P I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
– fyrir lifandi heimili –