Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Síða 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Síða 33
Morgunblaðið/Eva Björk Frá vinstri og hringinn: Baldur, Þórhallur, Gunnþórunn, Arnar, Eydís, Ámundi, Berglind og Rakel. 7.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Bolli er ekki bara bolli og rétta útlitið getur breytt öllu. Smekkur manna er mismunandi og bollarnir frá Kahla eru misstórir, mislitir og fjölbreyttir í laginu svo flestir geta fundið þann rétta fyrir sig. Spáðu í bollana hjá Kokku, í verslun okkar eða á kokka.is JÓ N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Bollaleggingar Nauta rib-eye í tagliata-marineringu með chimichurri- sósu, peru-gúrku salsa og fersku salati með franskri vinaigrette. TAGLIATA STYLE MARINERING: (uppskrift fyrir um það bil 2 kg af kjöti) 1 bolli gott balsamik-edik hálfur bolli ferskar rósmarínnálar 6-8 hvítlauksgeirar hálfur bolli ólífuolía 2-3 greinar garðablóðberg (thyme) 1 tsk. þurrkað oregano skvetta af ferskum sítrónusafa salt og pipar eftir smekk Aðferðafræðin í þessari mar- ineringu er mjög einföld, allt er sett í matvinnsluvél og maukað. Einfaldast er að skipta kjötinu upp í tvo rennda plastpoka og deila marineringunni. Lofttæma pokana og leyfa þeim að standa í lágmark 2-3 tíma, jafnvel yfir nótt í ísskap. Kjötinu er svo skellt á grillið á blússheitu grilli, 300-400 gráð- ur, í um það bil 2 og hálfa a hlið (fyrir medium rare) og svo er kjötinu leyft að hvíla í 6-10 mín. áður en það er framreitt. CHIMICHURRI-SÓSA: 2 bollar ítölsk steinselja 2 bollar kóríander 4-6 hvítlauksgeirar hálfur bolli góð ólífuolía 1 msk. ferskur limesafi ¼ bolli ferskt origano (ef þurrkað þá tvær msk.) 1-2 ferskur chilli, kjarnhreinsaður 1 skalotlaukur 2 msk. rauðvínsedik salt og pipar eftir smekk Aðferð: Enn og aftur er aðferðin einföld, öllum hrá- efnum dembt í matvinnsluvél og maukað vel saman. Sósunni er svo leyft að standa í lágmark 30 mín. áð- ur en hún er smökkuð til. Salat: Vel valin salatblanda, ferskir íslenskir plómutóm- atar, þunnt skorinn rauðlaukur og leynitrixið sem poppar upp salöt er kasjúkurl frá Yndisauka. VINAIGRETTE: Blandið saman í skál 2 msk. dijon sinnepi, góðum slurk af ólífuolíu, síðan er bætt við 2 fínt söxuðum hvít- lauksrifjum ásamt 1 skalot- lauk, einnig fínt söxuðum. Bragðbrætt með 1tsk. af hvítvínsediki og skvettu af ferskum sítrónusafa. Öllu er svo hrært vel saman og smakkað til með salti og nógu af svörtum pipar. PERU- OG MYNTUSALSA: 3 perur 2 gúrkur 3 msk. jalapenósulta 10 myntulauf ½ ferskur chilli og fræhreins- aður ½ rauðlaukur Kreistur safi úr hálfu lime eða eftir smekk Saltað eftir smekk Aðferð: Peran er afhýdd og kjarnhreinsuð og gúrkan líka og skorið í litla teninga. Laukurinn skorinn smátt og myntulaufin söxuð og blandað í. Restinni af hráefn- unum er hrært saman við. Gott að geyma í ísskáp hálftíma áður en borið fram. Nauta rib-eye og meðlæti

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.