Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Side 34
Nördaskapurinn er orðinn ansi hár
þegar maður er farin að spá í ljósa-
perur en það er nú samt þannig að
maður er að gera það. Hue-
perurnar frá Philips eru stillanlegar
með öllu og forritanlegar og hægt
að stjórna þeim í appi. Lausn allra
minna vandamála – eða þannig.
Google veit nú þegar allt um mig og mér finnst það í góðu lagi.
Með gleraugunum sínum, sem er þó bara prótótýpa og ekki tilbúin
á almennan markað, nýta þeir þessar upplýsingar allar til að auð-
velda mér lífið enn frekar ásamt því að þarna er alvöru handfrjáls
myndavél og tenging við símann.
Á hverju heimili í dag eru 3 til 4 fjarstýringar, allar þjóna þær
mikilvægum tilgangi en þó getur verið erfitt fyrir suma
heimilismeðlimi að læra á þær allar. Ein fjarstýring,
Harmony fjarstýring, gerir allt og hægt er að forrita
aðgerðir þannig að einn takki á henni leysir 4-5 að-
gerðir af nokkrum fjarstýringum af hólmi.
Go pro-vélarnar eru algjör snilld. Hægt er að festa þær á hjálm,
stafi, skíði, bíla, hjól o.s.frv. Í svörtu útgáfunni er wifi, fjarstýring og
hægt að fá sérstakt app fyrir snjallsíma til þess að vinna með efnið.
Hitamælir sem talar við snjallsím-
ann og spjaldtölvuna. Get skellt
kjötinu í ofninn og óþarfi að
beygja sig endalaust fyrir framan
grillið eða að opna grillið og
missa þannig hita heldur sér mað-
ur stöðuna alla á símanum á
meðan maður hrærir í bernaise.
Heyrnartól eru ekki bara heyrnartól,
það heyra menn sem prófa alvöru
heyrnartól sem fylgja ekki með sím-
anum þínum eða heita Bose. Senn-
heiser eru kóngarnir, á ein gömul
sem ég elska á við frumburðinn en
það fer að líða að nýjum tólum.
Úr, en ekki venjulegt tölvuúr. Pebble talar við snjallsímann þinn og sýn-
ir skilaboð (sms, tölvupóst, dagatal, veðrið o.fl.) og símtöl, stýrir tón-
listinni sem þú ert að hlusta á, virkar sem GPS-tæki þegar farið er út
að hlaupa eða hjólað. Virkar sem fjarlægðarmælir í golfi og svo er
hægt að forrita og fikta endalaust á móti tækinu.
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON
VERKEFNASTJÓRI HJÁ SÍMANUM ER
MEÐ PUTTANN Á PÚLSINUM ÞEG-
AR KEMUR AÐ GRÆJUM. ÞANNIG
HEFUR HANN ALLTAF VERIÐ. Á
MILLI ÞESS AÐ FÍNKEMBA INT-
ERNETIÐ Í GRÆJULEIT OG REKA
FJARSKIPTAFYRIRTÆKI SINNIR
HANN HEIMILI SÍNU AF MIKILLI
NATNI. HANN ER Í KROSSFERÐ AÐ
REYNA AÐ SJÁLFVIRKNIVÆÐA SEM
MEST OG DRAUMURINN ER AÐ
FLEST EF EKKI ÖLL RAFMAGNSTÆKI
HEIMILISINS GETI TALAÐ SAMAN.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Plötuspilari
Google Glass
Talandi úr
Go pro Hero 3
iGrill
Sennheiser
HD 650
Klæðanleg tækni
(wearable comput-
ing) eins og Google
Glass og t.d. Fitbit
Flex er næsta stóra
stökkið í tækninni finnst
mér. Fitbit flex er lítið armband sem flækist
ekkert fyrir en gerir allt. Telur skref, vega-
lengdir í hlaupum og á hjóli, mælir brennslu og
fylgist með svefni. Endalaus tölfræði sem hægt
er svo að vinna með í tölvu eða á snjallsíma
eða spjaldtölvu til að setja og fylgjast með
markmiðum og bera sig saman við vini.
Fitbit Flex
Það er eitthvað við analog sem ég er mjög hrifinn af, hef
safnað vinylplötum úr safni ættingja og keypt nýpressað
indípopp reglulega. Vantar bara spilarann, þangað til eru
plöturnar bara skraut og áminning um ólokið verk.
Philips Hue
Mig langar í...
Harmony Ultimate fjarstýring
*Græjur og tækniÞrír bræður standa að hugbúnaðarfyrirtækinu Eldey sem hannar sölukerfi fyrir spjaldtölvur »36