Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2013
Græjur og tækni
háhraða LPDDR3. Netkortið er líka nýtt, 802.11ac, sem styður líka
802.11a/b/g/n og hraðamunurinn er greinilegur, mun fljótari að tengj-
ast og skilar gögnum líka hraðar.
Nýjar gerðir af MacBook Air 11" og 13" voru kynntar hér á landi í
vikunni og að vonum mikill áhugi fyrir þeim. Mér skilst að mest eft-
irspurn sé eftir 13" útgáfunni, hugsanlega vegna þess að rafhlöðuend-
ing á henni er heldur meiri, enda rafhlaðan stærri. Samkvæmt upplýs-
ingum frá framleiðanda, sem
fjölmargir hafa staðfest, er raf-
hlöðuendingin á 13" vélinni tólf
tímar (!), en níu tímar á 11", sem
er talsverð aukning frá síðustu
útgáfu hennar – úr fimm tímum í
níu. Hugsanlega finnst fólki líka
11" útgáfan of lítil sem kemur
mér á óvart. Lykillinn að góðri
fartölvu felst nefnilega í orðhlut-
anum „far“ og þá á ég við að
fyrst og fremst skiptir máli
hversu meðfærileg vélin er, létt
og lipur. Þegar við bætist hin
ótrúlega rafhlöðuending er ekki
annað hægt að segja en að 11" MacBook Air er fullkomin fartölva.
Þegar allir eru að fá sér spjaldtölvur kemur kannski á óvart að fyr-
irtæki séu enn að setja á markað nýjar gerðir af fartölvum, nema þeg-
ar þær eru eins vel heppnaðar og ný MacBook Air frá Apple.
MacBook Air var af mörgum ekki talin alvöru fartölva á sínum tíma,
sumir höfðu orð á því að pláss í henni væri ekki nógu mikið og hún
ekki nógu öflug til að hægt væri að nota hana
í alvöru vinnu. Öll sú gagnrýni, sem átti
reyndar ekki rétt á sér, hefur
hljóðnað eftir því sem vélin
hefur orðið öflugri, enda má
segja að hægt sé að gera á
henni nánast allt það sem
menn gera á fartölvum yf-
irleitt, en tölvuþarfir manna
hafa breyst og tölvunotkun
eftir því sem líf okkar hefur
færst á vefinn.
Fljótt á litið er ný gerð 11" MacBook Air, 6.1, ná-
kvæmlega eins og eldri gerðir, en kramið er mikið til
nýtt, 1,3 GHz tveggja kjarna Intel Core i5 með
allt að 2,6 GHz Turbo Boost, en hægt að fá 1,7
GHz Intel i7 með 3,3 GHz Turbo ef vill. Innra
minni í henni er 4 GB en líka hægt að fá uppfærslu í 8 GB. Minnið er
FULLKOMIN FARTÖLVA
MACBOOK AIR SETTI NÝ VIÐMIÐ Í HÖNNUN OG NOTAGILDI Á SÍNUM TÍMA – ÖRÞUNN ÖFLUG FARTÖLVA MEÐ
GRÍÐARLEGA RAFHLÖÐUENDINGU. NÝJAR GERÐIR, 11" OG 13", GANGA ENN LENGRA Í ÞÁ ÁTT.
Græja
vikunnar
* Skjárinn er ekki Retina engóður samt, 11,6" LED-baklýstur
háglansbreiðtjaldsskjár, upplausnin
1.366 x 768 dílar, 135 dílar á
tommu (á 13" vélinni er ppi 128).
Skjástýringin er Intel HD 5000.
* Í vélinni er 128 GB flash„harður diskur“, PCIe SSD-diskur,
og að sögn Apple-bænda er gerð-
in sem notuð er í nýju Air-
tölvulínunni hraðvirkari en fyrri
SSD-diskar. Ekki tókst mér að
sannreyna það, en það er óneit-
anlega lykill að vélum sem þessari
hvað hún er fljót að hrökkva í
gang þegar maður opnar hana og
þá skiptir SSD-hraðinn miklu.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Hönnun á MacBook Air ersígild og ekki ástæða til að breyta
bara til að breyta. Á vinstri hlið-
inni á 6.1-gerðinni eru tveir hljóð-
nemar, en allt annað er eins, jafn-
stór (30 x 19,2 sm) og jafnþung
og 3.1-, 4.1- og 5.1-gerðirnar (40
g þyngri reyndar en 3.1). Hún er
líka jafnnæfurþunn, frá 3 mm í 17
mm þar sem hún er þykkust.
tölvur sem í framtíðinni mun
leysa af hólmi eldri gerðir hefð-
bundinna handtölva sem nýttar
eru til pantana og skráninga í
dag.
Tengja saman gömul
kerfi og ný
Nýja lausnin byggist á því að
tengja viðeigandi kerfi fyr-
irtækja og einstaklinga við
spjaldtölvur og snjallsíma í
gegnum svokallað gagnaský.
Spjaldtölvurnar og snjallsímarnir
hafa svo samskipti við gagnaský-
ið, sækja þær breytingar sem
verða í kerfum fyrirtækja og
senda til baka í rauntíma í
gegnum sama gagnaský og þær
pantanir sem gerðar eru í
Þ
að var í raun og veru
algjört slys hvernig
þetta gerðist hjá okkur.
Einn af okkar eldri
kúnnum spurði hvort við gæt-
um hannað sölukerfi fyrir
spjaldtölvur. Við tókum því vel
og út frá okkar vinnu bjuggum
við til Eldey mobile,“ segir
Jón Helgason, framkvæmda-
stjóri Eldeyjar hugbúnaðaðar
ehf. en fyrirtækið er fjöl-
skyldufyrirtæki rekið af þrem-
ur bræðurm og föður þeirra,
stofnað árið 2011. Davíð og
Karl Helgasynir eru í forritun,
þróun og tæknilegri hlið fyr-
irtækisins, Jón Helgason er
framkvæmdastjóri og sinnir
markaðsmálum og faðir þeirra
Helgi Guðmundsson sér um
fjármálin.
„Við erum búnir að vera í
þessum bransa í mörg ár.
Pabbi er búinn að vera í þessu
í tugi ára og við bræðurnir
fylgdum honum svo út í þetta.
Þú getur rétt ímyndað þér
hvernig jólaboðin eru hjá okk-
ur,“ segir Jón kíminn.
„Við höfum aldrei stimplað
okkur út. Við erum alltaf í
vinnunni og það þýðir ekkert
að stinga af. Það er mikill
neisti í okkur og það er mjög
gaman fyrir okkur að geta
unnið við það sem við höfum
brennandi áhuga á,“ segir Jón.
Fyrirtækið hefur undanfarin
tvö ár unnið að gerð hugbún-
aðar sem keyrir á flestum
gerðum spjaldtölva og snjall-
síma. Um er að ræða pantana-
og skráningarkerfi fyrir spjald-
snjalltækinu hverju sinni. „Fyr-
irtæki og einstaklingar geta sent
alls kyns gögn í gagnaskýið og
skipulagt þau eins og þau vilja.
Við höfum bæði verið að tengja
þetta við eldgömul upplýs-
ingakerfi fyrirtækja sem byggj-
ast á úreltri tækni ásamt því að
tengja þetta við fyrirtæki sem
byggjast á nýjustu tækni. Þetta
er búið að umbylta starfseminni
hjá mörgum fyrirtækjum og
auðveldar t.d. sölumönnum að
fylgjast með öllu því sem skiptir
þá máli í þeirra starfi. Við erum
búnir að setja þetta upp bæði
hjá mjög stórum fyrirtækjum og
litlum fyrirtækjum. Við erum
alls fimm í fyrirtækinu og ég
myndi segja að við séum búnir
að skapa okkur ágætis orðspor,“
segir Jón.
Aðgengi helsti kosturinn
Í dag er lausnin (hugbúnaðurinn
frá Eldey) nær eingöngu bundin
við pantanakerfi fyrirtækja en
tækifæri eru til hönnunar á sér-
lausnum og samkeyrslu í raun-
tíma úr öðrum kerfum. Í boði
verður að samstarfsaðilar Eldey
hugbúnaðar geti búið til sínar
eigin lausnir inn í kerfið og
þjónustað sína viðskiptavini í
gegnum Eldey þróunargátt. Nú
þegar eru nokkur fyrirtæki að
nota Eldey mobile í beta próf-
unum og hefur lausnin vakið
mikla ánægju meðal notenda.
Að sögn Jóns er aðgengileiki
helsti kostur kerfisins þ.e. að
geta verið með aðgengi að öllum
nauðsynlegum rauntímaupplýs-
ingum, hvar sem er og hvenær
sem er. Lögð er áhersla á að
kerfið sé létt í keyrslu og að
gagnasamskipti á milli skýs og
snjalltækis sé í algjöru lágmarki
og einungis nýjar upplýsingar/
breytingar keyrðar inn hverju
sinni. Eldey mobile getur svo
unnið algjörlega án nettengingar
en engin tenging við gagnaskýið
er ekki vandamál. Pantanir vist-
ast nefnilega í snjalltækið og
keyrast í gegnum gagnaskýið
um leið og nettenging kemst á.
Fyrirtæki hætt að r
eka tölvukerfi
Jón segir fyrirtæki í auknum
mæli notast við spjaldtölvur og
því hafi þeim þótt liggja beinast
við að þróa sölukerfi fyrir slík
tæki fremur en borðtölvur eða
fartölvur. „Áður fyrr voru fyr-
irtækin ekkert að spá í spjald-
tölvur og menn litu á þetta sem
eitthvert tæki fyrir heimilin.
Fyrir tveimur og hálfu ári byrj-
uðu fyrirtæki svo að spá í
spjaldtölvur. Þá vorum við beðn-
ir um að skoða þetta. Það sem
er að gerast núna er að spjald-
tölvur seljast í meira mæli en
fartölvur. Menn voru farnir að
átta sig á því að það er mjög
dýrt að reka tölvukerfi. Fyrir-
tækin eru smám saman að
hætta að reka tölvukerfi. Fram-
tíðin er klárlega í spjaldtölvum
þar sem fólk er farið að vera
með þjónustu sína á netinu,“
segir Jón.
Hönnuðu einfaldari lausn
Morgunblaðið/Rósa Braga
ELDEY HUGBÚNAÐUR EHF. HEFUR HANNAÐ PANTANA- OG SKRÁNINGARKERFI FYRIR SPJALDTÖLVUR SEM Í FRAMTÍÐINNI MUN LEYSA AF HÓLMI ELDRI
GERÐIR HEFÐBUNDINNA HANDTÖLVA. SPJALDTÖLVUR SELJAST Í MEIRA MÆLI EN FARTÖLVUR OG BRÆÐRUNUM SEM STANDA AÐ ELDEY ÞÓTTI AUG-
LJÓST AÐ MIÐA SÍNA HUGBÚNAÐARFRAMLEIÐSLU VIÐ SPJALDTÖLVUR.
Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is
Davíð Helga-
son, Jón
Helgason og
Karl Helgason
í blíðviðri
fyrir utan
höfuðstöðvar
fyrirtækisins.
TENGJA SPJALDTÖLVUR OG SNJALLSÍMA Í GEGNUM GAGNASKÝ