Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Síða 38
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl?
Fatastíllinn minn er breytilegur frá degi til dags. Ég fíla mig yfirleitt
best í fötum sem eru klassísk en finnst gaman að bæta einhverju áberandi
og sérstöku við eins og skemmtilegum fylgihlutum.
Hver eru bestu fatakaupin þín? Það eru þrír hlutir sem mér dettur í hug
þegar ég hugsa um bestu kaupin: Svartur biker-leðurjakki sem ég keypti í
H&M fyrr í mánuðinum, hálsmen úr Swatch sem var keypt fyrir hundrað
árum og passar við allt og að lokum pallíettubuxurnar mínar sem voru
keyptar í Pull and Bear í Dubai.
En þau verstu?
Ætli það séu ekki Buffalo-skórnir sem ég fékk lánaða hjá stóru systur
minni. Kannski ekki hægt að kalla það verstu fatakaupin mín þar sem hún
átti þá. Ég keypti mér reyndar hræðilega ljóta neonappelsínugula skó í
GS-skóm á sínum tíma, voða ánægð með þá á þeim tíma, ekki eins í dag.
Hverju er mest af í fataskápnum? Ætli það sé ekki mest af samfest-
ingum, maxi-kjólum og stuttbuxum í skápnum hjá mér í Dubai enda hlýtt
þar allt árið. En heima á Íslandi eru hlýrri föt eins og second hand pelsar,
jakkar og peysur.
Hvar kaupirðu helst föt?
H&M, Zöru, Topshop, Pull And Bear og COS. Svo finnst mér æðislegt
að komast á skemmtilega markaði bæði með second hand fötum og fylgi-
hlutum á mismunandi stöðum í heiminum.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Ég á mér engan uppáhaldsfatahönnuð en ég er
mjög hrifin af töskunum frá Alexander Wang og
Marc Jacobs.
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan
stíl?
Kate Bosworth og Olivia Palermo eru í uppá-
haldi. Olivia er með fágaðan klassískan stíl
og notar áberandi fylgihluti. Kate er
hins vegar djarfari og meira töff í
klæðaburði og óhrædd við að skera
sig úr.
Hvað er mikilvægt að eiga í
fataskápnum fyrir gott sum-
arveður?
Þar sem það er sumar allt árið
hjá mér þá gæti ég ekki verið án
gallastuttbuxna, samfestinga, þægilegra
sandala og flottra sólgleraugna til skiptanna.
Töff sólgleraugu eru aðalmálið.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða
mottó, þegar kemur að fatakaupum?
Að ganga í fötum eftir vexti og
veðri. Merkjavara og verðmiðinn er
ekki aðalmálið.
Hvert er þitt eftirlætis tískutímabil og
hvers vegna?
Ég get eiginlega ekki gert upp á milli þar
sem öll tímabilin hafa sinn sjarma, reyndar
mismikinn. Er samt voða hrifin af fallegum
kjólum, pallíettum og perlum.
Matthildur er hrifin af
hönnuðinum Marc Ja-
cobs og einnig Alex-
ander Wang.
Matthildur segist ekki geta
verið án flottra sólgleraugna.
HEIMSBORGARI MEÐ STÖÐUGA ÚTÞRÁ
Samfestingar,
sandalar og
sólgleraugu
MATTHILDUR WENDEL ER MIKILL HEIMSBORGARI EN HÚN
BÝR Í DUBAI Í SÁDI-ARABÍU OG STARFAR ÞAR SEM FLUG-
FREYJA HJÁ FLUGFÉLAGINU EMIRATES. ÞAR HEFUR HÚN
HAFT AÐSETUR SÍÐUSTU ÞRJÚ ÁR, KYNNST FÓLKI FRÁ ÓLÍK-
UM MENNINGARHEIMUM OG FERÐAST UM ALLAN HEIM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Tískuskvísurnar Olivia Palermo og
Kate Bosworth eru í uppáhaldi hjá
Matthildi enda mjög smart týpur.
Matthildur Wendel nýtur þeirra forréttinda að geta
ferðast um allan heiminn en hún er flugfreyja hjá
arabíska flugfélaginu Emirates í Dubai.
AFP
*Föt og fylgihlutir Tískan fer í hringi og í sumar er í fínu lagi að draga fram „sixties“-flíkurnar »40