Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2013 C helsea er stofnað 1905 en samt mætti eiginlega segja að saga félagsins væri aðeins tíu ára. Þá gekk ungur rússi, Roman Abramovich, inn á Stamford Bridge með fulla vasa af pen- ingum, keypti félagið og breytti þannig fótboltaumhverfinu. Nú eru fjölmörg lið í eigu forríkra auðmanna sem vita ekkert hvað þeir eiga að gera við peningana, en Abramovich var fyrstur. Chelsea fór allt í einu að berj- ast um alla titla sem í boði voru. Hann opnaði veskið, fór að dæla peningum í félagið og mun- aði ekki um það. Listann af leikmönnum sem hann hefur keypt til Chelsea má sjá hér til hliðar. Flestir héldu að Abramovich myndi ekki nenna að eiga fót- boltafélag í meira en fimm ár en hann hefur troðið upp í þær efa- semdaraddir. Í dag er hann gall- harður stuðningsmaður og skort- ir ekki seðla. Chelsea er ekki lengur bara leikfang í hans aug- um heldur vill hann félaginu vel. Þessi áratugur hefur ekki bara verið dans á rósum fyrir Abramovich. Níu stjórar hafa komið og farið og milljónir punda farið í vaskinn með slæm- um leikmannakaupum. En gleðin hefur líka verið við völd. Ellefu titlar eru komnir í hús – meðal annars meistaradeildarbikarinn, fjórir FA-bikarar, þrír deild- artitlar, tveir deildarbikarar og Evrópudeildin vannst í vor. Chelsea er ekki lengur félag sem spilar skemmtilegan fótbolta með Gullit, Di Matteo og Eið Smára. Þess þó heldur eru þeir peningamaskína þar sem krafan er þrjú stig og bikarar. Margir af efnilegustu leik- mönnum heims eru á launaskrá Chelsea og munu brátt fara að láta til sín taka. Ferskleikinn er fyrir hendi og það er á hreinu að ekki hefur bara verið hugsað til einnar nætur. Leikmenn eins og Ryan Bertrand, Josh McEac- hran og Nathaniel Chalobah lofa góðu. Þá eiga þeir alla efnilegustu Belgana, Hazard, Kevin De Bruyne, Thibaut Co- urtois og Romelu Lukaku, Juan Mata er ekki gamall og svona mætti lengi telja. Framtíðin er því björt í Róma(n)veldi og hver veit nema annar áratugur undir stjórn Rússans hafi hafist í byrjun júlí. AFP Áratugur með Abramovich TÍU ÁR ERU SÍÐAN RÚSSNESKUR AUÐJÖFUR, ROMAN ABRAMOVICH, FÓR AÐ LEIKA SÉR MEÐ CHELSEA. HANN VAR FYRSTI PENINGAGOSINN TIL AÐ HENDA PENINGUM Í FÓTBOLTAFÉLAG – BARA SVONA AF ÞVÍ AÐ HANN GAT ÞAÐ. Roman hafði lengi langað að lyfta þessum bikar. Meistaradeildarbikarnum. Það tókst 19. maí 2012 eftir sigur á FC Bayern. Ólafur Ragnar og Dorrit voru gestir Abramovich í leik gegn Leicester. AFP „Í byrjun sagði fólk að hann myndi stoppa stutt. En eldmóður hans í dag er eins og þegar ég hitti hann fyrst. Félagið er í góð- um höndum.“ Petr Cech, markvörður Chelsea Boltinn BENEDIKT BÓAS benedikt@mbl.is Bestu kaup Chelsea: Jose Mourinho Didier Drogba Claude Makelele Ashley Cole Juan Mata Verstu kaup Chelsea: Juan Sebastian Veron Andriy Shevchenko Shaun Wright-Phillips Adrian Mutu Andres Villas-Boas BESTU OG VERSTU Abramovich á kastala, The Chateau de la Croe, sem var byggður 1867 og er á frönsku rivíerunni milli Nice og Cannes. Hann borgaði 61 milljón dollara fyrir herlegheitin. Abramovich á einkaströnd á St. Barths í Karab- íska hafinu og hélt þar fimm milljón dollara ára- mótapartí árið 2009 þar sem Prince tróð upp. Abramovich á risahöll úti í sveit á Englandi. Þar eru pólóvöllur, útisundlaug, tennisvöllur, gókart- braut, skotæfingavöllur, riffilsvæði og laxveiðiá. Hann er einnig að breyta húsi í Chelsea-hverfinu í London, sem verður eitt dýrasta hús sem til er. Í Aspen á hann kofa þegar hann fer á skíði sem hann borgaði 35 milljónir dollara fyrir. Hann á einkakaf- bát og þrjár snekkjur, Predator, Pelorus og stærstu snekkju heims, Eclipse. Þegar Abramovich flýgur á milli notar hann sína eigin Boeing 767. Sagan segir að hann ætli að fá sér nýju Airbus-þotuna, hún er á tveimur hæðum. Fyrir utan allt þetta eru auðvitað bílarnir: Sérsmíðaður Porsche Carrera GT, Bugatti Veryron, Maserati MC12 Corsa, Ferrari 360 og sprengjuheldar Maybach 62-limósínur svo fáeinir séu nefndir. Þetta er bara það helsta. Hann safnar líka málverkum og keypti sér nýlistaverk á 86,3 milljónir dollara sem er dýrasta listaverk í þeim flokki selt á uppboði. Abramovich er með lífverði með sér allan sólarhringinn, hann er tvífráskilinn og var að auki að kaupa sér hús í Sankti Pétursborg sem hann borgaði 400 milljónir dollara fyrir. Breytti því svo í safn og opnaði almenningi. Fótboltinn er bara auka. LEIKTÆKIN HANS ROMANS ROMAN ABRAMOVICH Á GLÆSIHÚS ÚT UM ALLAN HEIM, MÁLVERKASAFN OG BOEING 767-EINKAÞOTU, SVO EITTHVAÐ SÉ NEFNT. Roman Abramovich lifir hátt Roman Abramovich efnaðist á olíu- og málmvinnslu. AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.