Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. S E P T E M B E R 2 0 1 3
204. tölublað 101. árgangur
VETRARBÚÐIR Á
SPÁNI FYRIR VEL
ÞROSKAÐ FÓLK
HRAÐHLEÐSLA
FJÖLGI
RAFBÍLUM
GÖLDRÓTTU
SMYRSLIN
FRÁ VILLIMEY
BÍLABLAÐ TÁLKNAFJÖRÐUR 16ÖÐRUVÍSI FERÐIR 10
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sumar Sláttur í Hvítárholti.
„Á þeim svæðum þar sem var
bæði kal og þurrkar hafa bændur
ekki náð miklum heyfeng og reikna
með að þurfa að fækka skepnum
eitthvað til að mæta því,“ segir
Guðfinna Harpa Árnadóttir, ráðu-
nautur hjá Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins á Egilsstöðum. Það
viðraði vel til heyskapar á Austur-
landi í sumar en kal í vor og þurrk-
ar höfðu áhrif á uppskerumagnið,
sem þykir ekki með því mesta. Guð-
finna vonar að gjafatíminn verði
ekki langur í vetur svo heybirgð-
irnar dugi.
Heyfengur á landinu þykir í með-
allagi eftir sumarið en víða bíða
bændur eftir þurrki til að ljúka
seinni slætti. Þá er korn mjög seint
á ferðinni. »4
Vona að heyfengur
dugi veturinn
Á þriðja hundrað ferðir
» Samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkratryggingum Íslands voru
farnar 264 sjúkraflugsferðir
2012 sem þær greiddu fyrir.
» 119 voru bráðatilvik.
Baldur Arnarson
Þórunn Kristjánsdóttir
„Ég held að Reykjavíkurborg hljóti
að horfa til þessara undirskrifta,“
segir Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra, aðspurður
hvort hann telji að borgin eigi að
endurmeta afstöðuna til flugvallar-
málsins í ljósi þess að 64.000 manns
vilja flugvöll áfram í Vatnsmýri.
„Ég held að borgin hljóti líka að
horfa til þess að ríkisvaldið vill að
flugvöllurinn verði þarna áfram og
til þess að megnið af landinu sem
flugvöllurinn er á er í eigu ríkisins.
Það væri því mjög óráðlegt fyrir
borgina að ætla að þvinga flugvöllinn
í burtu án samráðs við önnur stjórn-
völd og íbúa landsins.“
Þá bendir Sigmundur Davíð á að í
stjórnarsáttmálanum standi að flug-
völlur skuli vera í nálægð við stjórn-
sýslu og þjónustu í miðborginni.
Stefán Þórarinsson, læknir og
framkvæmdastjóri lækninga á Heil-
brigðisstofnun Austurlands, segir að
öryggi sjúklinga verði stefnt í mikla
hættu ef sjúkraflug þurfi að fara í
gegnum Keflavíkurflugvöll í stað
Reykjavíkurflugvallar.
Borgin endurmeti stöðuna
Forsætisráðherra telur borgina verða að horfa til undirskrifta í flugvallarmálinu
Óráðlegt sé að þvinga flugvöll í burtu án samráðs Ríkið eigi land í Vatnsmýri
MTæplega helmingur »6
Ljósmynd/Margrét Gísladóttir
Í Visby Gunnar Bragi ásamt öðrum
ráðherrum NB8-ríkjanna.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra ræddi stöðuna í Sýrlandi
ásamt sjö öðrum utanríkisráðherr-
um Norðurlanda og Eystrasaltsríkj-
anna á fundi í Svíþjóð í gær.
Sagði Gunnar Bragi að Sýrlands-
málið yrði aftur á dagskrá í dag og
þá gæti dregið til tíðinda í málinu.
Gunnar Bragi segir ríkisstjórnina
ekki hafa tekið afstöðu til þess hvort
hún styðji hugsanlegar hernaðar-
aðgerðir gegn Sýrlandsstjórn.
„Ef það reynist rétt að sýrlensk
stjórnvöld standi að baki efna-
vopnaárásinni ber að sjálfsögðu að
fordæma það. Við viljum að málið
fari í gegnum öryggisráðið og viljum
bíða eftir að það komi niðurstöður úr
rannsókninni hjá sérfræðingum
Sameinuðu þjóðanna,“ sagði hann.
Tveir ráðherrar í Svíþjóð
Utanríkisráðherrar svonefndra
NB8-ríkja funda nú í bænum Visby á
Gotlandi og lýkur fundinum í dag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra heldur til Stokk-
hólms í dag en þar mun hann taka
þátt í vinnukvöldverði ásamt leiðtog-
um Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs
og Finnlands á morgun. Mun Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti að
auki sitja fundinn, en Fredrik Rein-
feldt, forsætisráðherra Svíþjóðar,
býður til fundarins í tilefni af heim-
sókn forsetans til Svíþjóðar.
Hver leiðtogi flytur erindi og mun
Sigmundur Davíð m.a. fjalla um
samstarf á norðurslóðum. Er gert
ráð fyrir umræðum um hvert erindi.
Búist er við umræðum um Sýrland í
ljósi atburða síðustu vikna. »20-21
Ráðherrar ræddu stöðuna í Sýrlandi
Gunnar Bragi fundaði með sjö utanríkisráðherrum í bænum Visby í Svíþjóð
Þessir kátu menntskælingar voru í essinu sínu
þegar þeir biðu eftir strætisvagni í skýli við
Menntaskólann í Reykjavík í gær, enda er full
ástæða til að gleðjast nú þegar spennandi skóla-
ár er nýhafið. Í skólanum eru nú skráðir 898
nemendur í 37 bekkjardeildum.
Ganga glöð og bjartsýn til móts við námið
Morgunblaðið/Ómar
Menntaþyrst ungmenni hefja nýtt skólaár með bros á vör
Tveir fyrr-
verandi lands-
liðsmenn í
skíðaíþróttum
stefna að því
að bjóða upp á
þyrluskíða-
ferðir frá
Siglufirði. Á
fundi með bæj-
arráði Fjallabyggðar óskuðu þeir
eftir samningi um afnotarétt á jörð-
um og landsvæði í eigu sveitar-
félagsins 1. mars til 20. júní ár
hvert.
Á Tröllaskaga starfar fyrirtækið
Bergmenn sem hefur gert samn-
inga um einkaleyfi á tilteknum
fjöllum. »13
Fleiri hafa hug á
þyrluskíðaferðum
Bæjarráð
Norðurþings
samþykkti ný-
verið að fara í
viðræður við fé-
lagið Sjóböð ehf.
um að útvega lóð
undir fyrirhug-
aðan rekstur sjó-
baðsstaðar á
Höfðanum, en
verkefnið hefur verið í þróun í
nokkur ár. Stærð baðsvæðis er
áætluð nærri 1.000 fermetrar en
stærð húsnæðis um 500 fermetrar.
Félagið hefur einnig áform um að
byggja 70 til 100 herbergja heilsu-
hótel í tengslum við sjóböðin. »6
Sjóböð og heilsu-
hótel á Húsavík
Frá Húsavík