Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 Haustdagskrá Bridsfélags Reykjavíkur BR hefur sett saman dagskrá fyrir haustið en keppnin hefst 17. september nk. með þriggja kvölda tvímenningi sem tengdur er Hótel Hamri. 8. okróber hefst fjögurra kvölda hraðsveitakeppni sem stendur út október. Nóvember hefst með þriggja kvölda Butler-tvímenningi, nánar tiltekið 5., 12., og 19. nóvember. Enn er skipt um gír 26. nóv- ember og spiluð þriggja kvölda sveitakeppni með Monrad-fyrir- komulagi. Jólasveinatvímenningurinn verð- ur 17. desember og jólamótið 30. des. Auk þessa verður spilaður eins kvölds tvímenningur nokkra föstu- daga í haust. Fyrir alla spilara verður opið 11. október og 29. nóv- ember og einungis fyrir konur 20. sept, 1. október og 13. desember. Þess má og geta að Reykjavík- urmótið í tvímenningi verður spilað 27. og 28. september. Félag eldri borgara Reykjavík Fimmtudaginn 29. ágúst var spil- aður tvímenningur hjá Bridsdeild Félags eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykjavík. Keppt var á 13 borðum. Meðalskor var 312 stig Efstir í N/S: Tómas Sigurjss. - Björn Svavarss. 372 Höskuldur Jónss. - Björn E. Péturss. 352 Jón Þ. Karlsson - Björgvin Kjartanss. 351 Örn Isebarn - Örn Ingólfsson 349 AV Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 375 Óli Gíslas. - Hrólfur Guðmundss. 353 Helgi Samúelss. - Sigurjón Helgason 336 Stefán Finnbogas. - Hólmfríður Árnad. 334 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Aldeilis er það með ólíkindum hvílíkt bull getur komið út úr fólki sem telst jafnvel til frammámanna í þjóðfélaginu. Í Spegl- inum, fréttaþætti Ríkisútvarpsins, þriðjudaginn 20. ágúst sl., var rætt við tvo menn sem voru á öndverðum meiði vegna flugvallarins í Vatnsmýri. Annars vegar Örn Sigurðsson arki- tekt, einn forsvarsmanna þeirra sem vilja að flugvöllurinn víki, og hins vegar Njál Trausta Friðberts- son, flugumferðarstjóra á Ak- ureyri, en hann hefur, ásamt fleir- um, hrundið af stað undirskriftasöfnun til stuðnings áframhaldandi tilveru vallarins á sínum stað. Þegar talið barst að mikilvægi flugvallarins vegna sjúkraflugs af landsbyggðinni, lét Örn Sigurðsson þau orð falla að það væri siðferði- lega rangt gagnvart sjúklingum í óstöðugu ástandi að senda þá í það sem hann kallaði „vængjað flug“ heldur bæri að nota þyrlur til allra slíkra flutninga. Við þessi orð setti flugumferðarstjórann á Akureyri hljóðan en síðan tilkynnti hann að þarna væru á ferðinni nýjar upp- lýsingar sem hann hefði ekki heyrt af áður og vissi ekki hvaðan kæmu. Ekki upplýsti þó Örn nánar um þessa kenningu sem líklega hefur komið fleirum á óvart en Njáli Trausta sem þó er sæmilega kunn- ugur þessum málum úr sínu starfi. En ekki var allt búið. Talið barst að slysatíðni í umferðinni og Örn upplýsti að í Reykjavík hefðu á síð- asta ári orðið 54 alvarleg slys og tvö dauðaslys. Með því að þétta byggðina í Vatnsmýrinni væri hægt að minnka akstur í Reykjavík um 40% og þar með fækka slysum um 40%! Ætlast Örn Sigurðsson virkilega til að fólk taki þetta trúanlegt? Það væri alla vega fróðlegt að sjá hvaða reiknimeistarar hafa fundið það út að með því að byggja íbúðir á flug- vellinum í Vatnsmýri, muni umferð í Reykjavík minnka um nær helm- ing. Kannski eru það sömu aðilar og fundu það út að siðferðilega sé rangt að stunda sjúkraflug með venju- legum flugvélum. Það er tæplega mál- stað flugvallarand- stæðinga til fram- dráttar að halda fram öðrum eins rakalaus- um þvættingi og þarna var fram borinn. Reyndar ættum við, sem viljum áfram hafa flugvöllinn á sínum stað, að gleðjast yfir svona upphlaupum. Svo kom það fram í frétt um undir- skriftasöfnunina að þessi deila um flugvöllinn er ekki bara baráttumál okkar á landsbyggðinni. Af þeim rúmlega 40 þúsund manns, sem skrifað höfðu undir á fimmtudag í síðustu viku, voru 53% af höf- uðborgarsvæðinu og 47% af lands- byggðinni. Sem betur fer virðist líka búa í höfuðborginni fólk sem ekki horfir á þetta mál gegnum þröngt rör, heldur í víðara sam- hengi. Það er ánægjulegt enda á nokkuð stór hópur höfuðborgarbúa hagsmuni sína undir því að þessi mikilvæga samgönguæð verði áfram þarna til staðar. Þetta er nefnilega ekki bara hagsmunamál okkar á landsbyggðinni. Hugmyndir um að flytja flugvöll- inn annað; upp á Hólmsheiði til dæmis, hafa verið hraktar (fyrir nú utan það að sennilega eru ekki miklar líkur á því að ríkisstjórn fari að ausa fé í slíkt í þessu ár- ferði). Og hugmyndir manna um að flytja innanlandsflugið suður á Keflavíkurflugvöll eru álíka gáfu- legar og þau dæmi sem arkitektinn setti fram í Speglinum. Það er eðli- leg krafa að unnt sé að fara flug- leiðis til höfuðborgarinnar. Ef ein- hverjir vilja frekar beina fólki suður með sjó, þá væri kannski eðlilegt framhald að Reykjanesbær yrði gerður að höfuðborg Íslands. Af rugli um flug- völlinn í Vatnsmýri Eftir Sigurgeir Jónsson Sigurgeir Jónsson »Reyndar ættum við, sem viljum áfram hafa flugvöllinn á sínum stað, að gleðjast yfir svona upphlaupum. Höfundur er fyrrverandi kennari og núverandi skrifari. PAPPÍR • POKAR • RÚLLUR Sérprentanir í minni eða stærri upplögum! PAPPÍR HF • Kaplahrauni 13 • 220 Hafnarfirði • Sími 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is Íslensk framleiðsla 60 ára og eldri Frábær félagsskapur, aðhald og stuðningur Betri heilsa borgar sig! Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is Komdu og prófaðu! ”Það er svo gott að koma í Heilsuborg. Hér er manni heilsað og það er vel tekið á móti manni. Ég vissi ekki hverju ég ætti von á og hvort ég ætti eitthvað erindi í Heilsuborg en strax eftir fyrsta tímann var ég ákveðin í að halda áfram.” -Margrét Eiríksdóttir Fjölbreytir leikfimistímar: • Mán. og mið. kl. 11:00 • Mán. og mið. kl. 15:00 • Þri. og fim. kl. 10:00 Zumba Gold • Fyrir þá sem hafa gaman af að dansa. • Þri. og fim. kl. 11:00. Þjálfari: Eva. Hefst 9. og 10. sept. (4 vikur) Verð kr. 9.900,- Skráning á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010 Þjálfarar: Elfa og Sigurlín, íþróttafræðingar Til að varðveita traust almennings þurfa opinberar stofnanir að sýna í vilja og verki að staðið sé við gefin loforð og að orð þeirra standi þrátt fyrir andstreymi líðandi stundar. Þegar Úlfarsárdal- urinn var skipulagður og fyrstu lóðirnar seld- ar var gert ráð fyrir að minnsta kosti 20 þúsund íbúa hverfi. Fjöldi fólks keypti lóðir dýru verði í hverfinu á þessum forsendum. Á síð- astliðnu kjörtímabili var ákveðið, í samráði við íbúa, að draga úr stærð byggðarinnar og var markið sett á 15 til 18 þúsund manna byggð. Þetta samkomulag miðaðist við nægilega marga íbúa til að hverfið gæti staðið undir ákveðinni lágmarksþjónustu. Íbúar virtust sáttir við þetta sam- komulag og með því leit út fyrir að Úlfarsárdalur yrði vel heppnað hverfi og líklega vinsælt í framtíðinni. Því miður stóð núverandi borg- arstjórn ekki við gefin loforð og ofan- greint samkomulag. Hún ákvað, upp á sitt eindæmi og án samráðs við íbúa, að endurskipuleggja Úlfars- árdalinn. Þetta nýja skipulag gerir einungis ráð fyrir 3.000 manna byggð og kemur í veg fyrir að íbúar fái þá grunnþjónustu sem lagt var upp með þegar núverandi íbúar fjár- festu í lóðum í Úlfars- árdal. Það er mikilvægt fyrir íbúa Reykjavíkur að geta treyst orðum borgarstjórnar. Þegar borgarstjórn Reykja- víkur gerir samkomulag við íbúa, þá er þess krafist að hún sjái sóma sinn í því að allt verði gert til að standa við gefin loforð og gerða samninga. Úlfarsárdalurinn Eftir Sigurjón Arnórsson Sigurjón Arnórsson » Þetta nýja skipulag gerir einungis ráð fyrir 3.000 manna byggð og kemur í veg fyrir að íbúar fái þá grunnþjón- ustu sem lagt var upp með … Höfundur er alþjóðlegur viðskipta- fræðingur og situr í stjórn Sjálfstæð- isfélagsins í Skóga- og Seljahverfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.