Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013
Fjölþjóðlega leitar- og björgunar-
æfingin SAREX Greenland Sea
2013 hófst í gær en æfingin fer
fram dagana 2.-6. september,
norðaustarlega á Grænlandshafi,
milli Daneborg og Meistaravíkur.
Rúmlega 100 fulltrúar Íslands
taka með einum eða öðrum hætti
þátt í æfingunni, þátttakendur
koma frá Landhelgisgæslunni,
Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
almannavarnadeild Ríkislög-
reglustjóra, Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins, lögreglu, Umhverf-
isstofnun og Landspítalanum.
Einnig hafa innanríkisráðuneytið
og utanríkisráðuneytið komið að
skipulagsferlinu.
Tekinn verður upp þráðurinn
þar sem frá var horfið í æfingunni
SAREX Greenland Sea 2012 og
unnið áfram eftir almannavarna-
áætlun svæðisins að leit og björg-
un, aðstoð og rýmingu skemmti-
ferðaskips. Auk þess verða þjálfuð
viðbrögð við mengunarslysi. Þau
ríki norðurheimskautsráðsins sem
senda búnað og björgunareiningar
á svæðið eru auk Íslands: Græn-
land, Færeyjar, Danmörk, Kan-
ada, Noregur og Bandaríkin
Áföll á afskekktum svæðum
Æfingin er haldin á grunni sam-
komulags norðurskautsríkjanna
um öryggi á norðurslóðum en til-
gangur hennar er að þjálfa leitar-
og björgunaraðila þjóðanna átta
sem liggja að norðurheimskautinu
í að bregðast við áföllum sem
verða á afskekktum svæðum norð-
urheimskautsins. Í þessu tilfelli
viðbrögð þegar skemmtiferðaskip
lendir í áföllum við hina afskekktu
austurströnd Grænlands, fjarri
öllum björgunareiningum.
Fram kemur á heimasíðu Land-
helgisgæslunnar að stofnunin tek-
ur þátt í æfingunni með ýmsum
hætti. Skemmtiferðaskip hættir að
senda frá sér staðsetningar innan
leitar- og björgunarsvæðis Íslands
og hefur björgunarmiðstöðin í
Nuuk samband við stjórnstöð
Landhelgisgæslu Íslands og óskar
eftir aðstoð.
Varðskipið Týr er á svæðinu og
fer það samstundis til leitar, einn-
ig mun flugvélin TF-SIF taka þátt
í leitinni. Björgunaraðilar frá
þjóðum norðurheimskautsráðsins
senda búnað og björgunareiningar
á svæðið og er Keflavíkurflug-
völlur afar mikilvægur m.a. fyrir
móttöku slasaðra, samhæfingu og
aðstöðu fyrir erlendar flugvélar,
áhafnir og fleiri aðila.
Starfsfólk Landhelgisgæslunnar
og ISAVIA við Keflavíkurflugvöll
mun næstu daga sinna ýmsum
störfum sem tengjast þessum
málaflokki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TF-SIF Flugvél Landhelgisgæsl-
unnar tekur þátt í æfingunni.
Mikil björgunaræf-
ing á Grænlandshafi
Yfir 100 fulltrúar Íslands taka þátt
Síldveiðar ganga vel að sögn Ró-
berts Axels Axelssonar, skipstjóra á
Ingunni AK 150, en hún er við veiðar
austan við land í grennd við Vopna-
fjarðargrunn. „Síldin er bæði stór og
falleg en nokkuð dreifð hérna á
svæðinu. Ég geri ráð fyrir því að
koma í land með vinnsluhæfan
skammt á næstu dögum,“ segir Ró-
bert.
Allnokkur skip eru á makrílveið-
um enn og segir Róbert makrílinn
yfirleitt hafa verið fínan á vertíðinni.
„Við erum á eftir síldinni núna og
búnir með makrílinn, en í síðasta túr
sóttum við mjög fínan makríl. Hann
var, eins og við mátti búast, nokkuð
erfiður í upphafi og smár en óx á
tímabilinu og styrktist.“
Versta veðrið að ganga yfir
Veðrið hefur ekki leikið við lands-
menn að undanförnu og töluverð
bræla er á miðunum allt í kringum
landið. Róbert segist þó búast við að
veðrið lægi upp úr hádegi í dag og
haldist þokkalegt fram eftir degi.
Brælan stöðvar því ekki stærri skip
flotans.
„Hérna eru fjögur skip við veiðar
og þrjú eitthvað fyrir sunnan okk-
ur,“ segir Róbert en að sögn Land-
helgisgæslunnar eru þó töluvert
færri skip við veiðar en yfirleitt er á
þessum árstíma.
„Við vorum með um 200 skip á
skrá hjá okkur í dag og rúmlega 290
í gær, sem er töluvert minna en
gengur og gerist,“ sagði Ásgrímur
Ásgrímsson hjá stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Aðstæður eru
ekki ákjósanlegar fyrir smærri báta
og skip en þau eru mjög stórt hlut-
fall flotans og því sjáum við þessa
miklu fækkun núna meðan versta
veðrið er að ganga yfir landið og
miðin.“
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands gekk versta veðrið
yfir í nótt. Hugsanlega verður lægð-
ardrag á Grænlandssundi í dag en
veðrið ætti að vera orðið töluvert
betra víðast hvar í kvöld.
Miðin Veðrið stöðvar ekki stærstu
skip flotans í að sækja síld og makríl.
Síldin er
stór og
falleg
Færri skip á mið-
unum í brælunni