Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali ÁRSALIR FASTEIGNAMIÐLUN 533 4200 FASTEIGNASALA FYRIRTÆKJASALA - LEIGUMIÐLUN Áratuga örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum Sveitarstjórnarmál eru ekkert grín, þau eru grafalvarlegt mál. Síðan ríkisvaldið færði æ fleiri verkefni til sveitarfélaganna snerta ákvarðanir þess meira eða minna hvern einstakling. Kosning skemmti- kraftaframboðsins í Reykjavík fyrir þrem- ur árum fór ekki fram hjá neinum. Þau hækkuðu húsaleigu hjá ör- yrkjum og alla þjónustu um 30%. Jafnframt var þjónustan skert veru- lega, sjaldnar tekið sorp og gatna- hirðing ýmist í lágmarki eða engin. Öðru hvoru eru uppátæki borg- arinnar svo furðuleg að ekki er möguleiki að skilja markmiðin nema fyrir þá sem vita allt um hags- munagæslu og vinapólitík. Fyrir tæpum tveimur árum var t.d. allt í einu búið að gera á Hverfisgötunni upp að Snorrabraut hjólabrautir. Þó að borgin segi í kynningarefni um aðalskipulag 2010-2030 að þeir byggi á samráðsferli kannaðist enginn við það. Hjólreiðafólk benti á slysahætt- una þar sem brautin endaði snögg- lega við Snorrabraut en borgin sagð- ist hafa einmitt gert þetta fyrir þau. Þessi framkvæmd, sem við greið- um auðvitað, var síðar gerð að engu og okkur sagt að kostnaður við að fjarlægja merkingar hefði aðeins verið rúmar tvær milljónir – trúi því hver sem vill. Aldrei gefið upp hvað framkvæmdin kostnaði enda borg- um við þegjandi og hljóðalaust. Nú er það Hofsvallagatan, þ.e.a.s. hluti hennar. Allt í einu á þetta að vera flagg- gata! Búið er að setja upp flögg, blómaker og fuglahús – í hvaða veruleika býr þetta fólk? Hvar er íbúa- lýðræðið sem skemmti- lega fólkið gumaði svo mikið af? Enginn spurður – bara borga. Á Sólvallagötu frá Hofsvallagötu að Bræðraborgarstíg hef- ur aldrei verið sópað né hreinsaðar gangstéttarennur sunn- an megin þessi þrjú stjórnarár meirihluta Besta flokksins. Ég hef hringt ótal sinnum og ekkert svar berst við fyrirspurnum í tölvupósti. Árangurinn er sýnilegur hverjum sem vill sjá vanrækslu og subbu- skap. Rennurnar eru fullar af gróðri og nokkur tré hafa tekið sér bólfestu og eitt er orðið nokkuð stæðilegt. Ég sá í sjónvarpinu viðtal við borgarstarfsmann sem sagði að teikningar af flagggötunni hefðu verið þrjú ár á teikniborðinu, sama tíma og ég hef árangurslaust reynt að fá sveitarfélagið til að standa við lágmarkshreinsun götunnar. Hann sagði líka sigri hrósandi að íbúi á svæðinu hefði komið með uppá- stunguna um flögg, blóm og fugla- búr. Af hverju var hlustað á þann íbúa en ekki mig þegar ég bið um lögbundna þjónustu? Síðast í júlí þegar ég hringdi var mér sagt að hætta þessu, engir peningar væru til í þessar götur. Svo eru til milljónir til þess að ausa í bút af Hofsvalla- götu og þar unnin næturvinna. Allir hagsmunaaðilar; íbúar jafnt sem sérfræðingar um umferð og hjólreiðafólk, hafa lýst sig andsnúna þessum framkvæmdum. Hvar er heildarsýn skipulagsins? Þessar kostnaðarsömu framkvæmdir, þar sem hjólandi umferð er gefið svig- rúm, leysa ekki vanda hjólreiðafólks. Örlitlir bútar hér og þar beint út í hraða umferð skapa enn meiri slysa- hættu. Er mögulegt að þessi skipulags- vinna, sem við borgum hvort sem okkur líkar betur eða verr, sé ein- ungis unnin af borgarfulltrúum en ekki skipulagsfræðingum? Þær miklu hækkanir sem borg- arstjórnin lagði á í upphafi ferils síns eru afar íþyngjandi fyrir láglauna- fólk. Þeir sem vilja ekki sjá það hljóta að vera með svo mikla rörsjón á samfélagið að stappar nærri blindu. Þess vegna er holur hljómur í fréttum um að borgarstjórinn sé út og suður í útlöndum að ræða um mannréttindi þegar stjórn hans veldur svo miklum álögum að hópur manna á í erfiðleikum með mat og lyf en hvort tveggja hefur hækkað mikið. Hvað um mannréttindi þeirra til að lifa mannsæmandi lífi? Hækkun borgarinnar á allri þjón- ustu skilar sér auðvitað í skertri neyslu alls almennings. Það er sláandi að borgin neiti eðli- legri gatnahreinsun og 50 m frá sé götubútur dubbaður upp eins og hani á hól. Borgin má ekki komast upp með hroka og eftirgjöf á þrifum. Það er líka dýrt spaug ef vanhugsaðar framkvæmdir ýta undir slys. Það er grátt gaman að hækka gjöld á þeim sem ekki geta varið sig; öryrkjum vegna sjúkdóma og öldruðum vegna elli. Þessir hópar hafa enga mögu- leika á að auka tekjur sínar á vinnu- markaði. Allar álögur skila verri heilsu þar sem streita er mikill sjúk- dómavaldur. Það vantar menntaða, víðsýna ein- staklinga sem hugsa hærra en að tryggja stöðu sína. Skipulag og sam- félagsmál skulu unnin í samráði við íbúa. Dýrt spaug – grátt gaman Eftir Ernu Arngrímsdóttur » Borgin má ekki kom- ast upp með hroka og eftirgjöf á þrifum. Erna Arngrímsdóttir Höfundur er sagnfræðingur. Ísland virðist fast í óleysandi kviksyndi fjármálakreppu. Engin leið er sjáan- leg til að leysa gjald- eyrisvandann án hafta. Er þetta ekki allt til- komið án þess að al- menningur í landinu hafi komið okkur í þessa stöðu? Er þetta þá ekki tilkomið án þess að þjóðin sem slík beri ábyrgð á því hvernig komið er? Er þetta ekki tilkomið vegna þess að íslensk fjármálafyrirtæki fóru hamförum í útlöndum og sviku fé út úr almenningi og lánastofnunum auk þess að skuldsetja sig glóru- laust og lána án trygginga til gang- stera? Er það ekki orsökin fyrir því að þjóðin býr við gjaldeyrishöft og mun að óbreyttu gera það í mörg ár ennþá? Jafnvel alla þessa öld? Er ekki í raun og veru ólíft efna- hagslega í landinu vegna þessa ástands? Er hér einhver framtíð fyrir ungt fólk? Allt vegna umsvifa örfárra íslenskra fjármálafyr- irtækja? Vandi okkar er sagður þríþættur. Í fyrsta lagi eru hér svokallaðar kvikar krónueignir. Þær sam- anstanda af íslenskum rík- isskuldabréfum, skuldabréfum á Íbúðalánasjóð auk hreinna inni- stæðna. Alls er þetta talið vera um 400 milljarðar. Búast má við að þetta fé vilji endilega yfirgefa Ís- land og erfitt sé að stöðva það nema með beinum gjaldeyrishöftum. Í öðru lagi eru hér íslenskir að- ilar, útrásarvíkingar sem aðrir og einnig lífeyrissjóðirnir sem vilja komast burt með eigur sínar. Þetta er talið geta numið á bilinu 600- 3.000 milljarða króna að mati AGS. Hugsanlega má tefja för þessa fjár með einhverjum ráðum. Í þriðja lagi eru kröfuhafar föllnu bankana. AGS áætlar þetta vera 700-850 milljarða króna. Í mörgum tilvikum eru þetta kröfur sem þeg- ar hafa verið bættar af trygginga- félögum en síðan verið seldar á hrakvirði. Nú á að innheimta þær með hörku af Íslandsbanka og Arion banka, sem helsti fjármálasnillingur þjóðarinnar, Steingrímur J. Sigfús- son, er sagður búinn að gefa er- lendu kröfuhöfunum. Gamli Landsbankinn segist eiga 400 milljarða hjá nýja Landsbank- anum sem getur ekki borgað fyrr en eftir 12 ár í það minnsta. Báðir eru því tæknilega gjaldþrota. Á sama tíma vill annar fara að byggja stórhýsi fyrir rafkrónur til að bjarga byggingariðnaðnum segir hann. Auk þess sem hann gefur starfsmönnum hlutabréf í sjálfum sér fyrir milljarða í nafni þjóð- arinnar. En henni er sagt að hún eigi bankann þó að hún fái ekki neitt. Landsframleiðsla Íslands hef ég heyrt að sé á góðum degi hugsanlega 1.700 milljarðar. Það sést því fljótt að þessi gjaldeyr- isvandi er eitthvað sem við ráðum alls ekki við á þessari öld. Ef við eigum að borga þetta þá er það einfalt: Ísland er gjald- þrota. Hvað má þá til varn- ar verða vorum sóma? Má ekki spyrja við þessar aðstæður hverjir það voru sem komu okkur í þetta ástand? Voru það ekki Kaupþing banki, Landsbanki Íslands og Glitnir banki, auk smærri aðila? Þessum bönkum stjórnuðu menn sem kallaðir hafa verið einu nafni banksterar. Menn sem gáfu sig út fyrir að vera alþjóðlegir fjár- málasnillingar en voru fremur reynslulausir krakkakjánar í banka- fræðum. Þeir eru flestir löngu búnir að yfirgefa skipið eins og rotturnar eru sagðar gera þegar skipið er feigt. Nær engir þeirra hafa svarað til saka. Enda skiptir það ef til vill litlu máli héðan af. Vandinn þjóð- arinnar er óbreyttur hvað sem um þá verður. Það voru hinsvegar fyrirtækin sem þeir stjórnuðu sem eru ábyrg gagnvart þjóðinni. Má þá ekki spyrja hvort íslenska þjóðin eigi ekki skaðabótarétt á hendur þess- um þrotabúum? Getum við ekki sett lög um að þau séu skaðabótaskyld sem nemur þeirri upphæð sem gerir þjóðina skaðlausa? Ákveðum að þetta séu forgangskröfur í búin sem falla þá óskipt til ríkisins í stað þess að fara úr landi. Stundum er sagt að lögmenn geti fært rök fyrir öllu. Má ekki láta á það reyna núna hvort þetta eigi við rök að styðjast? Alþingi setur okkur lögin og stjórnar flestum okkar málum. Býð- ur ekki þjóðarsómi núna að allir þingmenn standi saman og leysi þessi mál? Getum við áfram setið ráðalaus í vandræðum okkar? Verið þjóð í hafti eins og áður var? Er ekki um framtíð unga fólksins okkar að tefla? Er ekki til lítils að kosta menntun þess til munns og handa ef aðeins verður atvinnu að fá í út- löndum? Mun þeim þá ekki fjölga hér innanlands sem vilja segja Ís- land til sveitar í Brussel? Nóg var nú samt. Hvað er til ráða? Hvað er til ráða? Eftir Halldór Jónsson Halldór Jónsson »Er hér einhver fram- tíð fyrir ungt fólk? Allt vegna umsvifa ör- fárra íslenskra fjár- málafyrirtækja? Höfundur er bloggari www.halldorjonsson.blog.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni for- síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.