Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 16
 Um árabil var verslun Rangláts starfrækt á Tálknafirði. Þar voru m.a. seldar bækur og minjagripir, en versluninni var lokað um síð- ustu áramót. Inga Jóhannesdóttir, fyrrverandi eigandi Rangláts, segir það ekki hafa verið auðvelda ákvörðun, en rekstrarumhverfið hafi ekki boðið upp á annað. Nafn verslunarinnar vekur athygli, en aðspurð segir Inga hana ekki tengjast ranglátum viðskipta- háttum, heldur sé það úr Sauð- lauksdal. „Þar voru bændur látnir byggja varnargarð til að verja kartöfluræktun prestsins. Þeim þótti það óréttlátt og kölluðu vegginn því Ranglát.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson Frá Tálknafirði Verslun Rangláts er ekki starfrækt þar lengur. Ranglátur var ekki ranglátur Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Þær eru fimm, bornar og barn- fæddar á Tálknafirði og vilja hvergi annars staðar vera. Þegar eina gistiheimili bæjarins var lokað fyrir sjö árum þótti systrunum ófært að í bænum væri enga gist- ingu að fá fyrir ferðafólk og brugðu því á það ráð að opna gistiheimili sem hlaut nafnið Bjarmaland, eftir húsinu sem það er í. „Þetta hefur gengið ljómandi vel og aðsóknin er alltaf að aukast,“ segir Kristín, eða Stína, ein systr- anna fimm. Hinar heita Særún, Sæ- dís, Freyja og Margrét Magn- úsdætur. „Líklega væri enn meira að gera hjá okkur ef við hefðum verið duglegri að markaðssetja okkur, en flestir okkar við- skiptavinir koma til okkar vegna þess að þeir hafa heyrt góðar sögur frá öðrum. Ætli það sé ekki besta auglýsingin þegar allt kemur til alls.“ Húsið Bjarmaland var byggt sem tvíbýlishús árið 1958 og gegndi síðan hlutverki verbúðar um skeið. Þegar systurnar festu kaup á hús- inu árið 2006 var það í töluverðri niðurníðslu og þær þurftu heldur betur að taka til hendinni við að breyta veðurbarinni verbúð í glæst gistihús. „En við opnuðum á fyr- irhuguðum tíma sem var 06.06.06, sem var fimmtugsafmælisdagur Bubba Morthens. Við áttuðum okk- ur reyndar ekki á því fyrr en seinna.“ Bjarmaland er opið allan árs- ins hring og þar eru 11 herbergi með 21 rúmi. Íslendingar eru í meirihluta gesta þegar á árs- grundvelli, en á sumrin eru þar fyrst og fremst útlendingar og þá aðallega frá Þýskalandi og Frakk- landi. Öflugar athafnakonur Þetta er ekki eina fyrirtækið sem systurnar starfrækja og óhætt er að fullyrða að þar séu miklar at- hafna konur á ferð. Allar eru þær meira eða minna í ýmiss konar rekstri, til dæmis eiga tvær þeirra hlut í fiskvinnslu á staðnum og hluti systranna er í fiskeldi með föður Samkomulagið hef- ur alltaf verið gott  Fimm systur reka gistiheimili og fleiri fyrirtæki Ljósmynd/Bjarmaland Bjarmaland Áður verbúð en nú er þar gistiheimili í eigu samhentra systra. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Tálknafjörður er kannski ekki fyrsti staðurinn sem kemur upp í huga fólks þegar snyrtivöruframleiðsla er til umræðu. Engu að síður eru þar framleiddar lífrænt vottaðar snyrti- vörur, heilsudrykkir og smyrsl úr villtum vestfirskum jurtum og fram- leiðslan er seld bæði hér á landi og erlendis. Fyrirtækið heitir Villimey, framleiðslan er kennd við galdra og konan á bak við þetta allt saman blandar smyrsl og bruggar seyði byggð á aldagömlum hefðum og nýj- ustu rannsóknum. „Jurtirnar sem við notum eru fjölmargar og allar hafa þær sína verkun. Þær eru handtíndar á 12.000 hektara lífrænt vottuðu land- svæði hér í Tálknafirði og Arn- arfirði, á þeim tíma þegar virkni þeirra er sem mest,“ segir Aðal- björg Þorsteinsdóttir, stofnandi og eigandi Villimeyjar. Smyrslin eru lífræn og án allra aukaefna, en framleiðsla Villimeyjar er með lífræna vottun. Til þess að standast þau skilyrði sem henni eru sett þarf t.d. að hvíla landsvæðið reglulega. Þá er rekjanleiki ein for- senda vottunarinnar.“ Ætlaði ekki út í framleiðslu „Ég hef alltaf haft áhuga á virkni jurta,“ segir Aðalbjörg spurð um upphafið. „Ég hafði leitað lengi að einhverju sem ynni gegn vöðva- Morgunblaðið/Kristinn Grasakona Aðalbjörg segist alltaf hafa haft áhuga á virkni jurta, rétt eins og forfeður hennar og -mæður. Göldróttu smyrslin frá Tálknafirði Lífrænt Jurtirnar sem notaðar eru við framleiðsluna eru handtíndar á líf- rænt vottuðum svæðum Villimeyjar við Tálknafjörð og Arnarfjörð.  Villimey byggir á fornum fræðum og nýjustu þekkingu  Stóra-Laugardalskirkja er bær og kirkjustaður við norðanverðan Tálknafjörð. Kirkjan er af sumum talin meðal fegurstu kirkna hér á landi, en hún er bjálka- kirkja, tilsniðin í Noregi og var vígð árið 1907. Ýmsir fagrir gripir prýða kirkjuna. Sagt er að predikunarstóllinn hafi áður staðið í dómkirkjunni í Óðinsvéum og orgelið er frá 1920. Þá hefur altaris- taflan vakið athygli margra, en hún er eftirlíking af síðustu kvöldmáltíðinni eftir Leonardo da Vinci. Einar Benediktsson, skáld og athafnamaður, eignaðist kirkjuna á sínum tíma, en mun aldrei hafa greitt fyrir. annalilja@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Eitt sinn í eigu skálds Stóra-Laugardalskirkja í Tálknafirði. Kirkjan sem Einar Ben átti VESTURLANDDAGAHRINGFERÐ TÁLKNAFJÖRÐUR Grunnkort/Loftmyndir ehf. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.