Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 LIPUR GRIPUR TILBOÐ Á SAMSTÆÐUNNI Avant 420 fjölnotavél ásamt sláttuvél með safnkassa TILBOÐSVERÐ á samstæðunni Verð aðeins kr. 2.980.000 +vsk. F L Í S A V E R Z L U N Bæjarlind 4, 201 Kópavogur | S: 554 6800 - Fax: 554 6801 | Njarðarnesi 9, 603 Akureyri | S: 466 3600 - Fax 466 3601 | www.vidd.is Veldu rétt fyrir fjölskyldur á ýmsum sviðum, allt frá leikskólum til eftirlauna. Hann hvatti einnig til þess að gerð yrði „önnur Marshall-áætlun“ þar sem Þjóðverjar gætu endurgoldið samstöðuna, sem þeim var sýnd eftir seinni heimsstyrjöld. Samkvæmt könnun sjónvarps- stöðvarinnar ARD töldu 49% áhorf- enda að Steinbrück hefði haft betur í kappræðunum, en 44% að Merkel hefði verið meira sannfærandi. Í könnun sjónvarpsstöðvarinnar ZDF sögðu 40% að Merkel hefði haft vinn- inginn, en 33% að Steinbrück hefði komið betur út. Þjóðverjar ganga að kjörborðinu 22. september. AFP Tókust á Angela Merkel og Peer Steinbrück mættust í kappræðum á sunnu- dag. Hálsfesti Merkel í þýsku fánalitunum vakti mest umtal á félagsvefjum. Forskot Merkel » Þjóðverjar ganga að kjör- borðinu 22. september. » Samkvæmt könnun frá sunnudegi, hafa stjórnarflokk- arnir kristilegir demókratar 39% fylgi og frjálsir demókrat- ar 6%, en sósíaldemókratar 23% og græningjar 11%. » Sósíaldemókratar vildu helst mynda samsteypustjórn með græningjum. Forsætisráðherra Breta, David Cameron, hefur verið undir nokkr- um þrýstingi um að taka málið aftur upp á vettvangi löggjafans en varn- armálaráðherrann Philip Hammond sagði þingmenn hafa tekið afgerandi afstöðu og gagnrýndi Verkamanna- flokkinn fyrir að ýta á aðra atkvæða- greiðslu eftir að hafa fellt tillögu for- sætisráðherrans í síðustu viku. Talsmaður utanríkisráðuneytis Ítalíu sagði í gær að ekkert væri til í sögusögnum þess efnis að háttsettir embættismenn ríkja sem hafa stutt sýrlensku stjórnarandstöðuna hygð- ust funda í Róm næstkomandi sunnudag. „Það verður enginn fund- ur Vina Sýrlands í Róm, hvorki á sunnudag né nokkurn annan dag,“ sagði hann. Þá sagði fyrrverandi leiðtogi Sov- étríkjanna, Mikhail Gorbachev, að Obama Bandaríkjaforseti hefði gert rétt með því að leita samþykkis þingsins fyrir hernaðaríhlutun. „Ef hann er ekki nógu ákveðinn í að skjóta og sprengja, þá er það góð tegund óákveðni,“ sagði hann. ræðustigi AFP Spænska lögreglan tilkynnti í gær að hópur tíu bankaræningja hefði verið handtekinn í Madríd. Banka- ræningjarnir notuðu holræsi borg- arinnar til að komast inn í banka- útibú og flýja með ránsfeng sinn. Í yfirlýsingu lögreglunnar sagði að ræningjarnir tíu væru grunaðir um að hafa rænt sjö banka í höf- uðborg Spánar með valdi. Fjórir félagar í ræningjagenginu voru handteknir þegar þeir komu úr holræsi upp á yfirborð jarðar með þrjú skotvopn, kúbein og logsuðu- tæki eftir að hafa framið rán, þar sem þeir komust yfir rúmlega 60 þúsund evrur (tæplega tíu milljónir króna), að sögn lögreglu. Fram kom að fjórir meintir bankaræningjar til viðbótar hefðu verið hanteknir þar sem þeir biðu eftir félögum sínum. Tveir meintir vitorðsmenn til viðbótar voru hand- teknir síðar. Í fótspor föðurins „Við rannsókn málsins komst lög- reglan að því að leiðtogi gengisins væri sonur þekkts bankaræningja, sem notaði sömu aðferð til að ræna banka,“ sagði í yfirlýsingunni. Bankaránum hefur fjölgað á Spáni eftir að kreppan skall á auk þess sem hlutfall handtekinna bankaræningja, sem voru að fremja sitt fyrsta brot, hefur hækkað. Hinn dæmigerði bankaræningi á Spáni er innfæddur og eldri en 35 ára, að sögn Perez Abellans, pró- fessors í afbrotafræði við Camillo Jose Cela-háskóla í Madríd. Hann segir þó að einnig hafi komið fram ný bylgja afbrotamanna úr röðum verkamanna, sem komu til Spánar frá Austur-Evrópu og Suður- Ameríku í verktakabólunni og misstu vinnuna þegar hún sprakk 2008. Holræsaræningjar handteknir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.