Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013
Frá fyrsta ársfjórðungi 2005 til
fyrsta ársfjórðungs 2013 hafa
regluleg laun á íslenskum vinnu-
markaði hækkað um 74,6%, þar af
76,8% á almennum vinnumarkaði,
69,4% hjá ríkisstarfsmönnum og
68,3% hjá starfsmönnum sveitarfé-
laga. Þetta kom fram í gær í frétt
á heimasíðu Hagstofu Íslands.
Fram kemur í frétt Hagstofunn-
ar að verulega dró úr launahækk-
unum á vinnumarkaði eftir árið
2007 en það ár var árshækkun
launa 11%. Árshækkun launa var
minnst árið 2010 þegar laun hækk-
uðu að meðaltali um 3,5% á milli
fyrsta ársfjórðungs 2009 og 2010.
Árið 2011 jukust launahækkanir
aftur og á fyrsta ársfjórðungi 2012
mældist ársbreyting 10,8%.
Lægstu taxtar upp um 106,3%
Í frétt Hagstofunnar kemur
jafnframt fram að launaþróun á
tímabilinu hafi verið misjöfn eftir
launþegahópum sem megi að hluta
til skýra með kjarasamningum. Til
að mynda hafi starfsmenn sveitar-
félaga hækkað um 12,7%, starfs-
menn ríkis um 10,3% og starfs-
menn á almennum vinnumarkaði
um 4,1% á fyrsta ársfjórðungi
2009. Hækkun launa starfsmanna
sveitarfélaga megi að hluta rekja
til nokkurra ákvæða úr kjara-
samningum grunnskólakennara
sem hafi komið til framkvæmda á
árinu 2008 og á fyrsta ársfjórðungi
2009. Hjá flestum starfsmönnum
sveitarfélaga og ríkis hafi einnig
verið
ákvæði í kjarasamningum um
krónutöluhækkun á launatöflum á
árinu 2008 og gæti áhrifa þeirra
einnig í árshækkun árið 2009. Á
sama tímabili hafi engir stórir
hópar á almennum vinnumarkaði
fengið samningsbundnar hækkanir
en hækkunum sem kveðið var á
um í mars 2009 hafi verið frestað
þangað til seinna á árinu.
Fram kemur í fréttinni að kjara-
samningar undanfarin ár hafi
kveðið á um meiri almennar hækk-
anir á lægstu launatöxtum.
Lægstu launataxtar, samkvæmt
kjarasamningum Samtaka atvinnu-
lífsins og aðildarsamtaka Alþýðu-
sambands Íslands, hafi hækkað
um 106,3% frá fyrsta ársfjórðungi
2005 til fyrsta ársfjórðungs 2013.
agnes@mbl.is
Laun hafa hækkað um 74,6%
Hækkun undanfarin 8 ár mest á almennum vinnumarkaði, eða 76,8%
og minnst hjá starfsmönnum sveitarfélaga, eða sem nemur 68,3 af hundraði
Launavísitala
Þróun launavísitölu síðustu ár
Heimild: Hagstofa Íslands
%
14
12
10
8
6
4
2
0
Alm. vinnumarkaður
Ríkisstarfsmenn
Starfsm. sveitafélaga
Allir
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
Indra Nooyi, forstjóri PepsiCo og
ein valdamesta kona heims mun
heimsækja Ísland á næstunni, en
hún ætlar að koma á 100 ára afmæl-
isráðstefnu Ölgerðarinnar sem hald-
in verður 1. nóvember. Samkvæmt
heimildum mbl.is var koma hennar
nýlega staðfest, en Nooyi hefur sjö
sinnum á síðustu átta árum verið
meðal tíu valdamestu kvenna heims
að mati tímaritsins Forbes. Aðeins
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, státar af viðlíka árangri síð-
ustu ár. Nánar á mbl.is
Forstjóri Pepsi
kemur hingað
Valdamikil Indra Nooyi, forstjóri
Pepsi er valdamikil kona.
Forsvarsmenn Vodafone greindu frá
því í gær að viðræður um sölu á 45%
eignarhlut fyrirtækisins í banda-
ríska fjarskiptafyrirtækinu Verizon
Wireless til Verizon Communica-
tions væru vel á veg komnar. Frétta-
vefur Breska ríkisútvarpsins, BBC,
greindi frá þessu í gærmorgun.
Í frétt BBC kemur fram að verð-
miðinn sem Vodafone hafi sett á
þennan 45% eignarhlut sinn hljóði
upp á 130 milljarða Bandaríkjadala,
eða sem nemur tæplega 15.600 millj-
örðum íslenskra króna. Vodafone
greindi frá því í liðinni viku að við-
ræður um sölu á hlutnum stæðu yfir
og búist væri við niðurstöðu fljót-
lega. Hlutabréf Vodafone ruku upp
um 5% í kjölfar fréttanna í gær.
Samkvæmt því sem viðskipta-
fréttastjóri BBC, Robert Peston,
sagði í samtali við BBC í gær er eng-
in von til þess að nokkur hluti þess-
arar risasölu verði að skatttekjum
fyrir breska ríkissjóðinn. Ástæður
þess væru þær að sá hluti í banda-
ríska fyrirtækinu, sem um ræddi að
Vodafone myndi selja heyrði undir
móðurfélag sem hefði höfuðstöðvar
sínar í Hollandi.
AFP
Risasala Verði af sölu Vodafone á 45% hlut í Verizon Wireless til Verizon
Communications er um stærstu sölu að ræða í sögu Vodafone frá upphafi.
Risasala Vodafone
sögð vel á veg komin
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklega mjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega
hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífa í næstu verslun.
WWW.PAPCO.IS
FIÐURMJÚK FÍFA
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Borðplötur
í öllum stærðum og gerðum
• Swanstone
• Avonite
• Harðplast
• Límtré
Smíðað eftir máli
og þínum óskum