Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 B jarni fæddist í Reykjavík 3.9. 1928 og ólst upp við Stýrimannastíginn í Vesturbænum. Hann var auk þess í sveit flest sumur, var í vegavinnu á Vatnsskarði og á Langadalsströnd við Ísafjarð- ardjúp og eitt sumar á síld á Skóga- fossi frá Vestmannaeyjum. Bjarni lauk stúdentsprófi frá MR 1948, prófi í forspjallsvísindum 1949, MA-prófi í íslenskum fræðum frá HÍ 1956 og varði doktorsritgerð í ís- lenskum fræðum við HÍ 1963, en rit- gerðin fjallaði um Skjöldungasögu. Þá stundaði hann enskunám við Uni- versity College í London 1949-50. Bjarni var stundakennari við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og Iðnskólann í Reykjavík, lektor í ís- lenskri tungu og bókmenntum við Uppsalaháskóla 1956-62, kennari við MR 1962-63, stundakennari 1964-66, og prófessor í íslenskum bók- menntum fyrri alda við HÍ 1963-98. Bjarni æfði og keppti í handknatt- leik og knattspyrnu með knatt- spyrnufélaginu Víkingi, keppti með Bjarni Guðnason, prófessor emeritus – 85 ára Lágmynd af föður Bjarni og systkini hans saman komin við lágmynd af föður þeirra, Guðna Jónssyni prófessor, við Leirubakka í Landsveit. Talið frá vinstri: Bjarni, Gerður, Þóra, Jónína Margrét og Bergur. Hafnaði atvinnutilboði frá Chelsea árið 1950 Afmæli Anna Guðrún og Bjarni halda upp á áttræðisafmæli Önnu. Emma Eyþórsdóttir, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands, er60 ára í dag. „Ég ætla ekki að gera neitt nema láta eig-inmanninn bjóða mér út að borða,“ segir afmælisbarn dags- ins. Brynjólfur G. Brynjólfsson er maður hennar og eiga þau dótt- urina Sólveigu Hlín háskólanema. Emma bætir við að í tilefni áfangans ætli þau í tveggja vikna frí með Bændaferðum til Vínaborg- ar, Prag og Ungverjalands um miðjan mánuðinn. „Ég hef aldrei farið í frí á þessum árstíma enda yfirleitt föst í kennslu. En ég gat komið því þannig fyrir að við gátum farið til útlanda og tengt ferðina afmælinu.“ Starfinu fylgja ferðir á ráðstefnur og fundi í útlöndum en að öðru leyti segist Emma ekki vera mikið á ferðinni erlendis. Hún er náms- brautarstjóri í búvísindum og kennir háskólanemum m.a. kynbóta- fræði, sauðfjárrækt og nautgriparækt. Kennslan er einkum á Hvann- eyri en frítímanum er að mestu eytt í sumarbústað rétt hjá Flúðum. Þar gengur trjáræktin svo vel að þau hafa þurft að fella tré sem þau gróðursettu fyrir mörgum árum. „Það er gott að geta skipt um um- hverfi,“ segir hún. Aðalfundur kórs Hjallakirkju í Kópavogi var í gærkvöldi, en Emma hefur sungið í kórnum um árabil og er formaður hans. Hún hefur líka verið í Rótaríklúbbnum Borgum í Kópavogi í um 12 ár. „Þetta er skemmtilegur félagsskapur og við höfum meðal annars farið í margar skemmtilegar ferðir.“ steinthor@mbl.is Emma Eyþórsdóttir dósent 60 ára Ljósmynd/Sigrún Þórðardóttir Í faðmi fjölskyldunnar Emma Eyþórsdóttir, Sólveig Hlín og Brynj- ólfur G. Brynjólfsson á stúdentsútskrift dótturinnar. Í ferðalag með Bændaferðum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Akranes Viktoría Ósk fæddist 12. desember. Hún vó 3.960 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Lena Gunnlaugsdóttir og Steinar Helga- son. Nýr borgari www.falkinn.is ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... Raftæknivörur Mótorvarrofar og spólurofar Það borgar sig að nota það besta! E i n n t v e i r o g þ r í r 3 1 .3 0 1 Skynjarar Töfluskápar Hraðabreytar Öryggisliðar Aflrofar Iðntölvur th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 Benedikta Björk, Jóhannes Jökull, Katla Bríet, Embla Sigfríð, Hekla Margrét og Sveinfríður Sigrún færðu Barnaspítala Hringsins, 5.329 krónur, sem þau höfðu safnað með hlutaveltu fyrir utan Miðbæ við Háaleitisbraut. Hlutavelta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.