Morgunblaðið - 03.09.2013, Qupperneq 11
Fegurð Náttúrufegurð er víða mikil á Spáni og hluti af námskeiðunum felst í því að fara í ferðir og skoða.
tilvalið fyrir þá sem einhvern tím-
ann lærðu spænsku og þurfa að ná í
hana á harða diskinn og geta þá
bæði þjálfað líkama sinn og heila en
síðan er þetta líka fyrir byrjendur.
Með svona ferð er hægt að ná mjög
miklum árangri á skömmum tíma,“
segir Margrét um haustbúðirnar.
Þær eru áætlaðar frá 11.-25. októ-
ber og eru enn nokkur laus pláss í
þá ferð. Margrét mælir sérstaklega
með þessari ferð fyrir þá sem
starfa í ferðaþjónustunni til að þeir
sjái hvernig Spánverjar markaðs-
setja jaðarsvæði og hversu vel þeir
hlúa að umgjörðinni um ferða-
mennskuna.
Hvar eru draumarnir?
„Ég ætla líka að fara af stað
með vetrarbúðir sem eru fyrir vel
þroskaða einstaklinga og þá þarf
maður helst að vera orðinn sextug-
ur. Í þessum búðum verður lögð
áhersla á spænskunám, gönguferðir
og persónulega stefnumótun. Það
er spennandi hópur fóks sem brátt
kemst á eftirlaunaaldur á Íslandi.
Þau eru heilsuhraust og forvitin og
í standi til að láta marga drauma
rætast. Í vetrarbúðunum spyrjum
við spurninga eins og: Hvað ætl-
arðu að vera marga klukkutíma á
dag með fjarstýringuna í hendi?
Hvar eru draumarnir sem þú ætl-
aðir alltaf að láta rætast?“ Margrét
sá annað gat á markaðnum og eru
það óhefðbundnar stúdentaferðir
þar sem áherslan er ekki á áfengis-
drykkju og að það sé samþykkt að
þiggja aðeins það ódýrasta og léleg-
asta fyrir unga fólkið. „Mig langar
að nýta mér reynslu mína af því að
kenna bæði í háskóla og mennta-
skóla í þessar ferðir og bjóða upp á
ævintýraferðir sem eru í takt við þá
menntun sem þau hafa hlotið.“
Innri fjársjóðsleit kvenna
Margrét nýtir í starfi sínu
doktorsnám sitt í spænsku, MBA-
nám, kennarareynslu úr HÍ og HR
og reynslu sína úr ferðamanna-
iðnaðinum frá barnæsku. „Þetta er
mín verkfærakista sem ég nota til
að byggja þetta fyrirtæki. Ég er
líka að fara af stað með skemmti-
legar gönguferðir um Pílagríms-
stíginn fyrir konur á breytinga-
skeiði. Sólarhring eftir að ég aug-
lýsti ferðina voru 25 konur búnar
að skrá sig og nú eru þær orðnar
yfir 30.“ Hugmyndina að þessari
ferð fékk Margrét vegna þess að
hún var sjálf að byrja á breytinga-
skeiðinu og hefur það að markmiði
að bjóða fólki upp á það sem henni
sjálfri þykir áhugavert og skemmti-
legt. „Ég stofnaði umræðulista á
Facebook um breytingaskeiðið og
gerði það bara fyrst fyrir vinkonur
mínar. Nú eru komnar næstum
1.100 konur inn á þennan umræðu-
hóp. Þar er allt um breyt-
ingaskeiðið rætt af alveg ótrúlegri
einlægni. Breytingaskeiðið er á
margan hátt innri fjársjóðsleit
kvenna og fjallar um svo margt
fleira en líkamlegar breytingar.“
Það verður spennandi að fylgj-
ast með þróuninni hjá Mundo.
Ég flétta saman
spænskukennslu,
gönguferðum um
sveitina, heilnæmum
mat úr héraði og jóga.
Þeir sem vilja fræðast nánar um
ferðaskrifstofuna og alþjóðlegu
ráðgjöfina geta farið inn á vefsíð-
una: mundo.is.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
Brúarhlaupið á Selfossi verðurhaldið 23. árið í röð umnæstu helgi. Það var fyrst
haldið árið 1991 í tilefni hundrað ára
afmælis brúar yfir Ölfusá við Selfoss.
Hlaupið hefur frá upphafi verið ræst
„hinum megin“ við brúna eins og Sel-
fyssingar segja og er hlaupið yfir
brúna og inn í bæinn. „Það sem gerir
okkar hlaup sérstakt er að hlaupa-
leiðin er svo flöt að menn hafa haft á
orði að þetta sé ein besta brautin í
þessum vegalengdum. Menn sækjast
eftir að hlaupa þetta hlaup til að
bæta árangur sinn,“ segir Helgi Sig-
urður Haraldsson, formaður
frjálsíþróttadeildar UMF Selfoss, en
hann heldur utan um hlaupið.
Nokkrar vegalengdir eru í boði
og þeir sem vilja hjóla geta hjólað 5
km hring. Í hlaupi er boðið upp á
fjórar vegalengdir; 2,5 km, 5 km, 10
km og 21,1 km. „Hlaupið fer alltaf
fram fyrsta laugardaginn í sept-
ember og þá er farið að hilla undir
lok hlaupavertíðarinnar. Hjá mörg-
um er þetta síðasta hlaupið eða enda-
takmark sumarsins þegar búið er að
æfa vel,“ segir Helgi.
Þátttakendur eru yfirleitt 5-600
þó að veðrið sé alltaf áhrifavaldur á
fjölda. Þegar Helgi er spurður hvort
hann sé ekki duglegur að taka þátt í
hlaupinu hlær hann og segir að það
sé hans hlutverk að halda utan um
hlutina og stýra og stjórna. „Ég segi
alltaf að ég hafi bara látið konuna
mína um þetta. Mér fer betur að vera
hinum megin og láta aðra keppa.“
Helgi er ánægður með þátttöku
Selfyssinga í hlaupinu og segir þá
duglega að mæta og vera með.
„Þetta er mikill hátíðisdagur hjá
okkur og það myndast mikil stemn-
ing í bænum. Það fyllist allt af fólki,
bæði heimafólki og aðkomufólki. Það
er flaggað í bænum og margir sem
fara út á götu og eru við hlaupaleið-
ina og hvetja.“ Hægt er að skrá sig á
hlaup.is og í Landsbankanum á Sel-
fossi.
Morgunblaðið/Eggert
Formaðurinn Helgi Sigurður Haraldsson segist frekar láta konuna sína um
að hreyfa sig, það fari honum betur að halda utan um íþróttaviðburði.
Fólk fer út á
götu til að hvetja
Brúarhlaupið á Selfossi
Hlaupaleiðin er flöt og bætir tíma
Í vetur ætlar Sjúkraþjálfun Reykjavík-
ur að bjóða upp á styrktar- og lið-
leikaþjálfun sem er sérhæfð fyrir
langhlaupara og hefur verið þróuð af
Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara.
Styrktar- og liðleikaþjálfunin eykur
líkamsstyrk hlaupara, bætir hlaupa-
lag og er ein leið til að koma í veg fyr-
ir álagsmeiðsli og er því ein leið til að
bæta hlaupatíma. Námskeiðið hefst á
morgun, miðvikudag. Innifalið í nám-
skeiðinu er mjólkursýrumæling,
kraftmæling, fyrirlestrar og leiðbein-
ingar um þjálfun langhlaupara.
Einnig mun SR bjóða upp á líkams-
greiningar fyrir langhlaupara, en með
líkamsgreiningunni sem gerð er með
háhraðamyndavél, má sjá veikleika í
hlaupatækni og stoðkerfi auk þess
sem finna má leiðir til að bæta
hlaupatækni.
Kine-mælingar eru gerðar með
vöðvanemum, en þar er hægt að sjá
hvort hlauparar séu að nota stærstu
og mikilvægustu vöðvahópa líkam-
ans í hlaupunum. Tækni þessi er víða
þekkt en hefur verið þróuð hér á
landi af sprotafyrirtækinu Kine.
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur
Styrktar- og liðleikanámskeið
fyrir langhlaupara í vetur
Hlauparar Þeir vilja margir bæta tíma sinn og koma í veg fyrir álagsmeiðsl.
Aðgengi fyrir alla!
PI
PA
R
\T
BW
A
•
SÍ
A
•
13
23
05
Stofnanir
Skólar
Heimili
Fyrirtæki
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Lausnir í lyftumálum