Morgunblaðið - 03.09.2013, Side 15

Morgunblaðið - 03.09.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 Morgunblaðið/Ómar Háskóli Íslands Jóni Baldvini Hannibalssyni var boðið að vera gestakenn- ari á námskeiði um smáþjóðir í alþjóðakerfinu en boðið var dregið til baka. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég biðst afsökunar fyrir hönd há- skólans á að verklagsreglur hafi ekki verið nægilega skýrar sem leiddi til sárinda,“ segir Kristín Ing- ólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Stjórnmálafræðideild háskólans dró til baka beiðni um að Jón Bald- vin Hannibalsson flytti fimm gesta- fyrirlestra á námskeiði um smáþjóð- ir og í alþjóðakerfinu við HÍ nú í haust. Kristín segir að ekki hafi verið brotið á mannréttindum Jóns Bald- vins, eins og hann hafi haldið fram m.a. í grein í Fréttablaðinu. Skólinn geri 2.000 samninga um stunda- kennslu á ári og það hendi að beiðni um framlag stundakennara sé aftur- kölluð. Kristín mun leita eftir fundi með Jóni Baldvini á næstunni. „Þetta er leiðinleg og slæm um- ræða fyrir háskólann,“ segir Kristín. Hlustað var m.a. á sjónarmið kynjafræðinnar „Farið verður yfir verklagsreglur um gestakennara í kjölfarið. Málinu er lokið af okkar hálfu,“ segir Ómar Kristmundsson, prófessor við stjórnmálafræðideild. Hann segir mikilvægt að sátt ríki um þá sem stunda kennslu við stofnunina. „Tekið var tillit til ólíkra sjónarmiða og m.a. hlustað á sjónarmið kynja- fræðinnar um að skapa þolendavænt umhverfi,“ segir Ómar. Nýjar verklagsreglur eru nú boð- aðar; sömu reglur munu gilda um gestakennara og stundakennara, þ.e.a.s. að sameiginleg ákvörðun verður tekin á deildarfundi innan hverrar deildar í háskólanum um að fá tiltekna einstaklinga til kennslu. Kristín Ingólfsdóttir tekur fram að deildir innan skólans hafi faglegt sjálfstæði, þar með talið ákvarðanir um skipulagningu kennslu. Í síðustu viku sendi félagsvísinda- svið Háskóla Íslands frá sér tilkynn- ingu þar sem sagði m.a.: „Sú ákvörð- un að Jón Baldvin Hannibalsson muni ekki halda gestafyrirlestra við háskólann næsta vetur er fyrst og fremst tekin til að gera skólanum kleift að sinna hlutverki sínu og tryggja nauðsynlegan frið um starf- semina.“ Lýstu yfir óánægju sinni „Við ætlum ekki að taka henni þegjandi,“ skrifuðu femínistarnir Helga Þórey Jónsdóttir og Hildur Lilliendahl um ráðningu Jóns Bald- vins í grein sem birtist á vefritinu Knúz.is í ágúst. Þær lýstu yfir óánægju sinni vegna fyrirhugaðra starfa Jóns Baldvins við Háskóla Íslands og sögðu það niðurlægjandi fyrir þol- endur Jóns og þolendur kynferðis- ofbeldis um allan heim. Baldur Þórhallsson prófessor ákvað í kjölfarið, að sögn Ómars, að draga til baka þá ákvörðun að fá Jón Baldvin sem gestakennara. Jóni Baldvini var tilkynnt þessi ákvörðun 29. ágúst sl. „Ég fór fram á að skýrt yrði opinberlega frá ástæðunni. Þetta er ekki þeirra einkamál heldur varðar háskóla þjóðarinnar,“ sagði Jón Baldvin við Morgunblaðið. Árið 2005 kærði ung kona Jón Baldvin til lögreglu fyrir ætluð kyn- ferðisbrot á árunum 1994-2001, sem fólust m.a. í bréfum sem Jón sendi konunni þegar hún var á aldrinum 14-17 ára. Málið var rakið í tímaritinu Nýju lífi á síðasta ári. Þar kom fram að lögregla taldi upphaflega ekki tilefni til rannsóknar en sú niðurstaða var kærð til ríkissaksóknara, sem fyr- irskipaði lögreglurannsókn. Árið 2007 felldi ríkissaksóknari málið nið- ur og vísaði m.a. til þess að ætluð brot vegna bréfa sem skrifuð voru árið 1998 væru talin fyrnd. Tvö bréf voru skrifuð árið 2001 en konan var í Venesúela þegar hún fékk þau og opnaði. Ríkissaksóknari sagði að ætlað brot væri ekki refsivert í því landi þar sem ekki var um að ræða háttsemi viðhafða á almannafæri en það væri skilyrði samkvæmt lögum í Venesúela. Rektor biðst afsökun- ar á verklagsreglum  Jón Baldvin verður ekki gestakennari á námskeiði við HÍ Nýnemar við Fjölbrautaskóla Garðabæjar voru beittir grófu of- beldi af eldri nemendum skólans eft- ir að formlegri busavígslu var lokið. Skólastjórnendum í FG hefur lengi verið í nöp við busanir og hafa þeir nú tekið þá ákvörðun að fleiri busa- vígslur verði ekki haldnar. Þetta kemur fram í grein sem Kristinn Þorsteinsson, skólameistari FG, ritaði í gær í fréttablað skólans þar sem kemur fram að undanfarin ár hafi svokallaðar einkabusanir færst í vöxt eftir að hefðbundinni busavígslu innan skólans sé lokið. „Þar taka eldri piltar, sumir hverjir ekki einu sinni nemendur í skólanum, nýnema FG og beita þá ótrúlega grófu ofbeldi,“ segir Krist- inn. Þegar skólastjórnendur áttuðu sig á þessari þróun töldu þau að auðvelt yrði að koma í veg fyrir það með því að skipuleggja ferðir að busavígslu lokinni til að koma nýnemum í „öruggt skjól“. „Okkur til mikillar undrunar og vonbrigða hefur tals- verður hópur nýnema sleppt því að fara í þessar ferðir til þess eins að láta beita sig grófu ofbeldi og eru þannig orðnir viljugir þátttak- endur,“ segir Kristinn. Busavígslum hætt vegna ofbeldis Morgunblaðið/Styrmir Kári  Einkabusanir höfðu færst í vöxt Svarið við spurningu dagsins Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is tilbúnar í pottinn heima Fiskisúpur í Fylgifiskum Verð 1.790 kr/ltr Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér. Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram. Hvað þarftu mikið? Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann Vertu velkomin! Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum • Gerð - fleiri en 900 mismunandi útfærslur • Stærð - engin takmörk • Áklæði - yfir 3000 tegundir VIÐ ERUM FLUTT Á BÍLDSHÖFÐA 18 Torino Milano Mósel Landsins mesta úrval af sófum og sófasettum Endalausir möguleikar í stærðum og áklæðum Rín Lux Valencia RomaRín 20-4 0% AFSL ÁTTU R AF VÖL DUM SÝN INGA REIN TÖK UM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.