Morgunblaðið - 03.09.2013, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 03.09.2013, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 ✝ Svavar BragiBjarnason fæddist á Kolla- fossi í V- Húnavatnssýslu 25. nóvember 1931. Hann lést á heimili sínu 23. ágúst 2013. Foreldrar hans voru Margrét Ingibjörg Sigfús- dóttir kennari, f. 29.9. 1891, d. 12.2. 1974 og Bjarni Björnsson bóndi, f. 21.2. 1890, d. 30.1. 1970. Systkini Svavars eru: Sigfús forstjóri, f. 4.5. 1913, d. 19.9. 1967, Ragnheiður Ingibjörg húsmóðir, f. 26.6. 1917, d. 7.12. 1985, Ásgerður Guðfinna húsmóðir, f. 1.1. 1920, d. 3.10. 1985, Björn bóndi, f. 3.6. 1921, d. 13.5. 1997, Elínborg Jó- hanna húsmóðir, f. 27.12. 1925, Jón Leví Bjarnason f. 27.5. 1929, d. 1.6. 2007 og Ólöf húsmóðir, f. 30.6. 1934. Svavar kvæntist fyrri konu sinni, Guðmundu Lilju Sig- valdadóttur, árið 1955 f. í Reykjavík 10.1. 1933, dóttir Ólafíu Guðmundsdóttur og Sigvalda Jónassonar. Þau skildu. Dætur þeirra eru: 1) Lóa Guðný fatahönnuður, f. 24.11. 1954, gift Robert Man- Hafdís átti af fyrra sambandi með Ólafi Garðarssyni, Nadía Ýr Emilsdóttir, f. 1993 og Leó Snær Emilsson, f. 1997. Guð- laug Svava á einn son, Sævar Óla Guðlaugarson, f. 2007. 3) Sigfús Bergmann sölumaður, f. 23.7. 1968, tvíburadætur hans af fyrra hjónabandi með Ragnheiði Sigmarsdóttur eru: Guðlaug Bergmann, f. 1999, Helga Bergmann, f. 1999 og sonur hans af seinna sambandi við Ólöfu Jóhannsdóttur er Óttar Örn Bergmann, f. 2006. Svavar fluttist til Reykja- víkur ásamt foreldrum sínum 18 ára gamall og hóf nám við rafvirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík og svo síðar Meist- araskólanum. Um árabil starf- aði hann hjá bróður sínum Sigfúsi í Heklu og hafði einnig umsjón með nýbyggingu Heklu hf. við Laugaveg og síð- ar fór hann að vinna hjá Landsvirkjun í Búrfellsvirkjun frá 1965-1989. Einnig rak hann eggjabú með fjölskyldu sinni í Villingaholti II til árs- ins 2000. Svavar starfaði mik- ið að málefnum Villingaholts- kirkju, að viðhaldi hvers konar og sinnti þeim störfum af mikilli alúð. Nokkrum árum eftir að Svavar hætti búskap fluttist hann til Reykjavíkur og bjó þar allt til dánardæg- urs. Útför Svavars fer fram frá Selfosskirkju í dag, 3. sept- ember 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Jarðsett verður í Vill- ingaholtskirkjugarði. iscalco efnaverk- fræðingi. Synir þeirra eru: Brian Svavar, f. 1981, og Cristopher Sverr- ir, f. 1989. 2) Mar- grét Ingibjörg við- urkenndur bókari, f. 24.7. 1958, gift Magnúsi Narfasyni rafvirkja. Synir þeirra eru: Brynj- ar, f. 1986 og Guð- mundur Narfi, f. 1993. Svavar kvæntist seinni konu sinni, Guðlaugu Kristjáns- dóttur, árið 1968 f. í Vill- ingaholti 26.6. 1940, d. 4.9. 1990, dóttir hjónanna Ingvars Kristjáns Jónssonar og Grétu Svanlaugar Jónsdóttur. Guð- laug átti fyrir soninn Elvar Inga Ágústsson bónda, f. 17.7. 1959. Börn Svavars og Guð- laugar eru: 1) Greta Svanlaug, matreiðslumeistari, f. 19.9. 1963, d. 12.7. 2007, maki Guð- mundur Gunnlaugsson bækl- unar-og handarskurðlæknir. Börn þeirra eru: Óskar Bragi, f. 1990, Ingvar Geir, f. 1993 og Oliver Aron, f. 2001. 2) Hafdís, viðskiptafræðingur, f. 13.7. 1967, maki Emil Hilm- arsson tölvunarfræðingur, börn þeirra eru: Guðlaug Svava Ólafsdóttir, f. 1986, sem Í dag ertu borinn til grafar elsku pabbi minn. Mikið hlýtur að vera notalegt hjá ykkur mömmu og Gretu systur. Þú varst mjög góður faðir og mjög góður við elsku mömmu í bæði skiptin sem hún veiktist, ég segi alltaf að þú hafir breytt Vill- ingaholti II í sjúkrahús þegar elsku mamma veiktist af heila- krabbameini árið 1989 svo að hún gat verið heima nær allan tímann þar til hún svo lést. Þið mamma voruð frábærlega góðir vinir. Þegar ég byggði húsið mitt fyrir 14 árum varstu óþreytandi í að hjálpa mér, ég þakka þér mikið vel fyrir það. Kærar þakkir fyrir allt, megi Guð geyma þig. Þinn sonur, Sigfús. Í dag fylgi ég elsku pabba mínum í hinsta sinn. Mikið sem ég er nú sorgmædd en get þó yljað mér við góðar og fallegar minningar og það að vita að nú er hann kominn í faðm mömmu og Gretu systur. Elsku pabbi minn hefur alltaf reynst mér vel og má þar fyrst nefna hvað hann hjálpaði mér mikið með elstu dótturina Guð- laugu Svövu en hún átti alltaf vísan stað hjá afa sínum og dvaldi hún oft hjá afa sínum í Villingaholti þegar hún var lítil stelpa og hefur samband þeirra alltaf verið mjög gott. Pabbi var einstakur maður og finnst mér ég verða að koma því að þegar mamma veiktist alvar- lega af heilaæxli árið 1989, þá hætti pabbi að vinna í Búrfells- virkjun og helgaði sig algerlega að mömmu svo hún gæti búið heima meðan á veikindunum stóð og stóð hann sig alveg eins og hetja í þessari baráttu og er það þakkarvert. Einnig helgaði pabbi sig alveg að Villingaholts- kirkju og sá um að rekstur hennar og umhverfi yrði sem best yrði á kosið og stóð fyrir byggingu á skrúðhúsi við kirkj- una svo þarna er óhætt að segja að standi fallegur minnisvarði um ókomna tíð, ég lít að minnsta kosti þannig á það. Pabbi var stundum dálítið stjórnsamur, allavega svona við mig og elsta dóttir mín segir nú stundum í gamansömum tón, þú ert nú alveg eins og afi en þetta finnst mér bara notalegt. Pabbi réð til sín frábæra ráðskonu, Báru Halldórsdóttur og hefur hún alltaf haldið vin- áttu við pabba og aðstoðað hann mikið allar götur síðan og er það þakkarvert og ómetanlegt. Ég er svo þakklát fyrir margt og veit að ég get yljað mér við þessar góðu minningar sem ég ætla hiklaust að gera í framtíð- inni. Takk fyrir allt og Guð geymi þig elsku pabbi minn. Þín dóttir, Hafdís. Mig langar með þessum lín- um að minnast föðurbróður míns og nafna, Svavars Braga, sem lést í síðustu viku, rúmlega áttræður að aldri. Ég hitti hann af tilviljun í sumar í Fjallakaffi í Möðrudal, hann var þar á ferða- lagi ásamt Báru vinkonu sinni. Við áttum stutt spjall saman, greinilegt var að líkaminn var farinn að gefa sig en andinn ósigraður. Svavar Bragi var tveimur árum yngri en faðir minn sem hélt mikið upp á þennan yngri bróður, þeir bröll- uðu margt saman í sveitinni í Miðfirðinum þar sem þeir eyddu æsku sinni. Þeir hittust reglulega síðustu árin og maður sá að kært var á milli þeirra bræðra. Ég minnist frænda míns með hlýju, hann kallaði mig aldrei annað en nafna, ég man hve stoltur ég var yfir því. Blessuð sé minning góðs frænda. Svavar Bragi Jónsson. Svavar Bragi Bjarnason HINSTA KVEÐJA Elsku afi, mig langar að kveðja þig með þessu ljóði. Þeir segja mig látinn, ég lifi samt og í ljósinu fæ ég að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá hjarta mínu berst falleg rós, því lífið ég þurfti að kveðja. Í sorg og í gleði ég senda mun ljós, sem ykkur er ætlað að gleðja. (Höf. ók.) Ég mun alltaf sakna þín, þín Nadía Ýr. Til elsku afa míns. Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. Í öllum sálmum sínum hinn seki beygir kné. Ég villtist oft af vegi. Ég vakti oft og bað. Nú hallar helgum degi á Hausaskeljastað. Í gegnum móðu’ og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir drjúpa, og dýrð úr augum skín. Á klettinn vil ég krjúpa og kyssa sporin þín. (Davíð Stefánsson) Guð geymi þig elsku afi minn, þín Guðlaug Svava. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, UNA JÓNMUNDSDÓTTIR, Furugrund 22, Akranesi, lést fimmtudaginn 29. ágúst. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 9. september kl. 14.00. Guðjón Jóhannes Hafliðason, Guðrún Agnes Sveinsdóttir, Ingólfur Árnason, Valey Björk Guðjónsdóttir, Hafliði Páll Guðjónsson, Harpa Hrönn Finnbogadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Bróðir okkar, GUÐJÓN JÓNSSON frá Fagurhólsmýri, lést laugardaginn 31. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún Jónsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Sigurgeir Jónsson, Sigríður Jónsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, PÁLMEY HJÁLMARSDÓTTIR, Skálateigi 1, Akureyri, lést á heimili sínu sunnudaginn 1. september. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. september kl. 13.30. Hjálmar Hauksson, Gyða Björk Aradóttir, Lilja Björg Jones-Hauksdóttir, Mark Alan Jones, Birgir Hauksson, Hlín Garðarsdóttir, Hólmfríður María Hauksdóttir, Arnar Eyfjörð Helgason og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, ANNA MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR, Seljabraut 78, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 1. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Eiríkur Haraldsson, Pétur Eiríksson, Amy Schimmelman, Haraldur Eiríksson, Ingigerður Guðmundsdóttir, Guðrún Eiríksdóttir, Hreiðar S. Marinósson og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞORVARÐUR GUNNARSSON byggingameistari, Birkihæð 4, Garðabæ, lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi að kvöldi laugardagsins 31. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Erla Jónsdóttir, Örn Þorvarðarson, Sigrún Jóna Þorvarðardóttir, Gísli Eyþórsson, Ingibjörg Þorvarðardóttir, Thorbjörn Brink, Kristín Magnúsdóttir, Ingibjartur B. Þórjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. � Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR TORFADÓTTIR, lést á Landspítalanum sunnudaginn 1. september. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. september kl. 13.00. Sigurður Kr. Finnsson, Stefán Torfi Sigurðsson, Sigurey Valdís Eiríksdóttir, Finnur Sigurðsson, Hildigunnur Friðriksdóttir, Ármann Viðar Sigurðsson, Elín Sigríður Friðriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, ÞÓREY GUÐMUNDSDÓTTIR frá Ánastöðum, Ránarstíg 4, Sauðárkróki, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 6. september kl. 14.00. Helga Stefanía Magnúsdóttir, Björn Jóhannesson, Þórey Birna Björnsdóttir, Agnes Helga Björnsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, KNÚTUR VALGARÐ BERNDSEN, Blönduósi, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi laugardaginn 31. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju föstudaginn 6. september kl. 14.00. Jón Örn Berndsen, Elín Helga Sæmundsdóttir, Gunnbjörn Valur Berndsen, Lísa Berndsen, Stefán Þröstur Berndsen, Sólveig Róarsdóttir, Haukur Berndsen, Chona Millan, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, EDDA PÁLSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Þorlákskirkju fimmtu- daginn 5. september kl. 11.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Geirlaug Geirdal, Kjartan Friðrik Adólfsson, Ása Geirdal, Þóra Geirdal, Páll Geirdal, Kolbrún Rut Pálmadóttir, Ævar Geirdal, Súsanna Antonsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARSIBIL ÞÓRÐARDÓTTIR, Hólavegi 9, Sauðárkrók, lést á heimili sínu fimmtudaginn 29. ágúst. Kristín Guðmannsdóttir, Eiríkur Ingi Björnsson, Guðbjörg Guðmannsdóttir, Böðvar Hreinn Finnbogason, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.