Morgunblaðið - 03.09.2013, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013
Smáauglýsingar
Geymslur
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 499 3070.
E-mail solbakki.311@gmail.com
Sumarhús
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru
moltugerðarkassar
Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir
- réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300
til 50.000 lítra. Lindarbrunnar.
Borgarplast.is
Mosfellsbæ. S. 561 2211.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
ÞETTA REDDAST !!
Þú barasta límir á þig fötin: 50 stk
í pakka á kr. 2.550.
Redding fyrir hlýrana - 4 stk í
pakka fyrir kr. 950.
Glæsilegur aðhaldskjóll upp að
brjósthaldara í S,M,L,XL á kr.
15.650.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18,
Lokað á laugardögum í sumar.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
✝ Gunnar Júl-íus Guð-
mundsson fæddist
22. september
1984. Hann lést á
heimili sínu 16.
ágúst 2013.
Foreldrar hans
eru Guðmundur J.
Júlíusson og
Þórný Elín Ás-
mundsdóttir sem
er látin. Systkini
Gunnars eru Arnþór Fannar
Guðmundsson og
Berglind Björg
Guðmundsdóttir.
Dóttir Gunnars
af fyrra hjóna-
bandi er Emilía
Ljós Gunn-
arsdóttir.
Útför Gunnars
fer fram í Fáks-
heimilinu í Víðidal
í dag, 3. sept-
ember 2013, og
hefst athöfnin kl. 14.
Við kynntumst Gunnari Júl-
íusi fyrst sem skólabróður og
vini sonar okkar, Gústafs
Smára. Þótt okkur þyki stutt
síðan að þessi myndarlegi
drengur stóð í eldhúsinu í
Klapparbergi með skólatösku á
bakinu var það samt fyrir hálfri
ævi þeirra félaga. Frá fyrsta
degi fannst okkur hann skera
sig úr þeim fjölda stráka sem
fylgdu syni okkar. Hann var
þroskaðri en aðrir drengir á
þessu reki. Gaf sér alltaf tíma
til að spjalla, hafði áhuga á líð-
an og lífi annarra. Hann hafði
reynt meira en drengir á þeim
aldri eiga að þurfa. Sextán ára
missti hann mömmu sína og
hafði ríka ástæðu til að óttast
um eigin framtíð. Þessu mikla
mótlæti mætti hann af æðru-
leysi sem við hin máttum læra
af.
Með tímanum varð hann ná-
inn vinur allrar fjölskyldunnar.
Við horfðum stolt á hann ná ár-
angri í námi, samglöddumst við
útskriftir úr menntaskóla og
háskóla og dáðumst að meitl-
uðum heimspekiprósa hans á
sviði sem okkur var hulin ráð-
gáta.
Það var Gunnari þungbært,
eðlilega, að vita að hárin á höfði
hans myndu varla grána. En
Gunnar var lífskúnstner af
bestu gerð og fór í staðinn í
gegnum lífið á tvöföldum hraða.
Það var yndislegt að verða vitni
að velgengni hans, kynnast fjöl-
skyldunni sem hann eignaðist
og hlusta á hann dást að ljós-
geisla lífs síns, henni Emilíu
Ljós.
Veikindin tóku sinn toll en
reistur gekk hann. Á seinustu
vikunum flutti hann í nýja íbúð
í Seljahverfi og hlakkaði til
þess að takast á við nýjar
áskoranir, keikur þrátt fyrir
allt og ákveðinn í að halda
áfram á sinni braut.
Við kveðjum Gunnar með
söknuði en gleðjumst um leið
yfir því lífi sem hann fékk að
lifa og þeim árangri sem hann
náði. Það eru forréttindi að
hafa þekkt þennan einstaka
dreng.
Innilegar samúðarkveðjur til
ættingja og vina.
Herborg og Björn.
Gunnar Júlíus Guðmunds-
son lagði stund á meistaranám
í heimspeki við Háskóla Ís-
lands þegar hann féll frá.
Hann var heimspekinemi af lífi
og sál og stundaði námið af
kappi meðan kraftar entust.
Þarna var augljóslega á ferð-
inni mikið efni í fræðimann og
kennara, en hann vonaðist til
að geta farið í doktorsnám til
Bandaríkjanna undir hand-
leiðslu prófessors sem hann
hafði miklar mætur á. Gunnar
Júlíus var áberandi í náms-
braut í heimspeki, hvort sem
það var í tímum, á göngunum
eða í Soffíubúð, kaffistofu
heimspekinema.
Í lokaritgerð sinni í BA-námi
fékkst hann við flóknar spurn-
ingar á sviði siðfræði. Hvað
pólitíska umræðu varðaði hafði
hann brennandi áhuga á kenn-
ingum jafnaðar anarkista og
var ekki laust við að honum
tækist að smita aðra af þeim
áhuga. Hann gaf mikið af sér,
hvatti og hjálpaði öðrum. Gunn-
ar Júlíus var rausnarlega sálin í
nemendahópnum og forsprakki
í félagslífi heimspekinema. Lífið
virtist brosa við þessum efni-
lega unga manni, sem birtist
einn daginn með fallega unga
konu sér við hlið. Fyrr en varði
birtust af þeim bráðskemmti-
legar brúðkaupsmyndir og ynd-
isleg lítil dóttir kom í heiminn.
Gunnari Júlíusi var ekki ætl-
að að feta þá breiðu braut sem
virtist blasa honum við því
hann bjó við skapadóm. Fyrsta
áfallið reið yfir 2009 og hann
vissi að niðurtalningin væri haf-
in. Sókrates sagði að heim-
spekileg íhugun æfði okkur
mennina í að takast á við dauð-
ann. Andstætt okkur hinum í
kringum hann þurfti Gunnar
Júlíus raunverulega að horfast í
augu við dauðann, lifa með hon-
um og sætta sig við þverrandi
getu. Verkefni hans var því
hvernig ætti að lifa lífinu hér og
nú og niðurstaða hans var sú að
gefa enn meira af sér og sýna
enn meiri hlýju. Er til meiri
viska?
Sigríður Þorgeirsdóttir.
Gunnar Júlíus Guðmunds-
son varð samferða okkur fé-
lögunum í meistaranámi í
heimspeki við Háskóla Íslands
undanfarin ár. Annar okkar
hafði einnig stundað grunn-
nám í heimspeki með honum.
Engum dylst að hann var mik-
ill heimspekingur að upplagi
og ástríðu og var afburðahugs-
uður. Það er reyndar leitun að
einhverjum sem notar gráu
sellurnar eins mikið og án af-
láts og Gunnar gerði. Hann
kunni þá megindygð sem felst
í heimspeki, að hugsa mikið,
skrifa og ræða við aðra um það
sem maður hefur pælt.
Einnig var hann mikill hug-
sjónamaður og ófeiminn við að
standa á eigin sannfæringu.
Haustið 2008, þegar stóð til að
leggja niður Soffíubúð, kaffi-
stofu heimspekinema í Háskól-
anum, gisti Gunnar Júlíus ófáar
nætur í Soffíubúð til að koma í
veg fyrir það og hugðist synja
iðnaðarmönnum um inngöngu í
rýmið, þar sem til stóð að
breyta því í skrifstofu. Afstaða
hans var skýr: Honum þótti
nauðsynlegt að heimspekinem-
ar hefðu afdrep til að sitja á
rökstólum. Samhliða skrifaði
hann mótmælabréf til stjórn-
enda Háskólans og lagði á ráðin
um að takmarka aðgengi iðn-
aðarmannanna að byggingunni
enn frekar. Allt þetta, til að
standa vörð um heimspekina,
þá fræðigrein sem hann hugðist
helga líf sitt og vinna braut-
argengi. Við minnumst Gunnars
Júlíusar með söknuði og þakk-
læti og sendum fjölskyldu hans
og nánum vinum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Kristian Guttesen
og Sævar Finnbogason.
Gunnar Júlíus
Guðmundsson
✝ Jakob Ágústs-son fæddist á
Blönduósi 14.
mars 1944. Hann
andaðist á dvalar-
og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 18. ágúst
2013.
Hann var sonur
Ágústs Jónssonar,
bifreiðastjóra á
Blönduósi, f. 27.9.
1901 í Skálavík, og Margrétar
Jónsdóttur, f. 23.1. 1915 á Ak-
ureyri. Systkini hans eru
Kristín, f. 28.6. 1940, búsett á
Blönduósi, í sambúð með Sig-
ursteini Guðmundssyni. Maður
hennar var Valur Snorrason,
f. 15.11. 1936, d. 7.3. 1994,
börn þeirra eru fjögur. Sig-
kvikmyndagerðarmaður í
London á Ragnar Dag, f.
12.11. 1991 og Evu Lenu
Brabin, f. 26.11. 1997.
Jakob útskrifaðist úr Loft-
skeytaskólanum 1966 og sím-
virkjaskólanum 1968. Jakob
var loftskeytamaður á tog-
urum áður en hann hóf störf
við Loftskeytastöðina í Gufu-
nesi en þar starfaði hann yfir
20 ár við rekstur og viðhald á
tækjabúnaði. Þá hóf hann
verslun með rafeindavörur og
stundaði upp frá því versl-
unarstörf og viðgerðir raf-
eindatækja meðan heilsan
leyfði. Árið 1999 veiktist hann
hastarlega af heilabólgu og
náði sér aldrei eftir það en
gat þó um tíma unnið við af-
greiðslustörf. Síðustu ár naut
hann aðhlynningar og heima-
hjúkrunar.
Jakob var jarðsunginn 26.
ágúst 2013.
urður, f. 1.3. 1949,
búsettur í Garða-
bæ. Kona hans er
Anna Rósa Skarp-
héðinsdóttir, f.
16.10. 1948, þau
eiga þrjú börn.
Jakob stundaði
hefðbundna skóla-
göngu sem þá var
í boði á Blönduósi
og fór síðan til
náms í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar. Á Ak-
ureyri kynntist hann konu
sinni Auði Franklín Jóhanns-
dóttur, f. 16.10. 1944. Börn
þeirra eru María, f. 2.5. 1962,
og Ágúst, f. 29.12. 1966.
María, tölvunarfræðingur í
Reykjavík á dæturnar Huldu
og Erlu, f. 5.4. 1991. Ágúst
Mig langar í fáum orðum að
minnast vinar míns og æsku-
félaga Jakobs Ágústssonar sem
lést 18. ágúst sl. Við vorum
fæddir norður á Blönduósi og ól-
umst þar upp og tilheyrðum svo-
kallaðri Koppagötu sem var
barnflesta gata bæjarins en þar
var mikið fjör og gaman í þá
daga. Sigurður, bróðir Jakobs,
lýsir þessari götu og mannlífinu
þar í eftirminnilegri grein í
Húnavökunni fyrir nokkrum ár-
um. Við Jakob urðum strax
miklir vinir og lékum okkur mik-
ið saman. Við dunduðum okkur
við ýmislegt eins og stráka er
siður, veiddum í Blöndu, á færi
auðvitað því engar áttum við
stangirnar, vorum í alls konar
leikjum sem þá voru stundaðir,
fórum í leiðangra inn að Litla-
dalslæk o.fl. o.fl. Mesta sportið
var þó þegar við fengum að fara
með í „Tíunni“ út á Skagaströnd
eða fram á flugvöll á Akri en
Ágúst faðir Jakobs hafði fastar
áætlunarferðir á þessa staði frá
Blönduósi. Þá sátum við Jakob
stilltir og prúðir í aftasta bekk í
rútunni. Fast embætti hafði Jak-
ob á sumrin en það var að reka
kýr fjölskyldunnar frá Einars-
nesi upp í Kúagirðingu. Ég var
oft með í þessum ferðum og tóku
þær oft langan tíma, sérstaklega
seinnipart sumars þegar ber
voru farin að spretta í Kúagirð-
ingunni. Já, það var skemmtilegt
lífið á Blönduósi í þá daga. Svo
liðu árin og við fluttum báðir
suður og alvara lífsins tók við.
Við héldum alltaf góðu sambandi
þótt það yrði stopult stundum
eins og gengur. Jakob var talinn
mjög fær í sínu fagi en hann
starfaði sem tæknimaður lengst
af í Gufunesi og svo víðar. Síð-
ustu árin voru erfið fyrir Jakob.
Hann missti heilsuna og átti við
mikla vanheilsu að stríða síðustu
árin. Þegar ég kom til hans
skömmu áður en hann dó fór ég
að rifja upp með honum æskuár-
in okkar heima á Blönduósi, þá
brosti Jakob og sagði: „Þú
manst þetta svo vel Sverrir
minn.“
Ég kveð nú kæran vin en
minningin lifir um góðan dreng
og ég veit að það verður tekið
vel á móti honum hinum megin.
Við Día sendum börnum hans,
systkinum og öðrum aðstand-
endum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Hvíl í friði.
Sverrir.
Jakob Ágústsson
Elsku pabbi
minn, nú ertu farinn
frá okkur sem er
frekar erfitt að
skilja og sætta sig við, hvern á ég
að tala við, kvabba í, nöldra í og
grínast núna?
Þú varst alltaf í svo góðu skapi,
sem barn var ég alltaf svo ógur-
lega hrædd við pabbana sem ég
sá heima hjá öðrum, fannst hálf-
asnalegt að þessir pabbar væru
ekki sífellt að grínast og segja
skemmtilegar sögur alveg eins og
þú. Þegar ég var sirka sjö ára var
ég svo fúl yfir því að ég ætti
pabba sem var alltaf til staðar og
heima því að jú mig dauðlangaði
að vera lyklabarn eins og hinir
krakkarnir í skólanum með lykla-
kippu hangandi um hálsinn, sem
betur fer rjátlaðist þetta af mér.
Allar sögurnar sem þú sagðir
mér frá því að þú varst lítill
strákur í Bolungarvík, sem ég
trúði að væru sannar langt fram
eftir fullorðinsaldri þér til mik-
illar skemmtunar.
Síðastliðið ár var aðeins öðru-
vísi hjá okkur öllum, þú varst
Egill Stefánsson
✝ Egill Stefáns-son fæddist í
Bolungarvík 25.
ágúst 1950. Hann
lést 9. ágúst 2013.
Útför Egils fór
fram 16. ágúst
2013.
fluttur á Grund allt-
of ungur og mamma
því miður veik, samt
varstu alltaf hress
og í góðu skapi við
horfðum yfirleitt á
„Murder she wrote“
á dönsku stöðinni
saman, eða aðra
álíka þvælu frá átt-
unda áratugnum og
skemmtum okkur
vel.
Ég vona að við systkinin mun-
um halda þessu góða skapi þínu á
lofti sama hvað á okkur hvílir.
Ég ætla að ljúka þessu með
svefnljóðinu sem þú söngst alltaf
fyrir mig, síðast þegar þú raul-
aðir það fyrir mig var bara núna í
vetur en þá var ég með mikið mí-
grenikast og þú hringdir í mig.
Erla, góða Erla!
eg á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð,
því kveldsett löngu er.
Úti þeysa álfar
um ísi lagða slóð.
Bjarma slær á bæinn
hið bleika tunglskinsflóð.
Erla, hjartans Erla,
nú ertu þæg og góð!
(Stefán frá Hvítadal.)
Þin dóttir,
María Dröfn (Maja).
Allar minningar á einum stað.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
O
R
48
70
7
01
/1
0
–– Meira fyrir lesendur
Minningar er fallega innbundin bók sem hefur að
geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst
hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar
Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem
birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag.