Morgunblaðið - 20.09.2013, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 0. S E P T E M B E R 2 0 1 3
219. tölublað 101. árgangur
HEIMILI OG HÖNNUN MESTU MÁLISKIPTIR AÐ
MIÐLA VONINNI FJÖLBREYTT EFNI Í
40 SÍÐNA AUKABLAÐI
HARMSAGA FRUMSÝND 46
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Útköllum
þyrlu Landhelg-
isgæslunnar hef-
ur fjölgað um
28% á fyrstu átta
mánuðum ársins
miðað við sama
tímabil í fyrra.
Fjölgunin er rak-
in til aukinnar ferðamennsku og
fjölgunar ferðamanna til landsins.
Þegar litið er til meðaltals útkalla
flugdeildar Landhelgisgæslunnar
fyrstu átta mánuði þessa árs og síð-
astliðin 10 ár, frá ágúst 2003-2013,
og fjöldi þeirra borinn saman kem-
ur í ljós 40% aukning útkalla.
Heildarútgjöld Landhelgisgæsl-
unnar hafa aukist um tæpar þrjú
þúsund milljónir á fimm ára tíma-
bili, eða 2.752 milljónir, milli ár-
anna 2008 til 2012. Framlag rík-
isins hefur ekki haldist í hendur við
aukinn heildarkostnað. Í lok ársins
2012 var uppsöfnuð staða neikvæð
um 55 milljónir króna. »12
Útköllum þyrlu
fjölgaði um 28%
Skorið niður
» Útgjöld til sýslumanna og
löggæslu drógust saman um
fjórðung á landinu 2007-2011.
» Skorið var niður um tæpa 11
milljarða á Landspítalanum á
verðlagi ársins 2011.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ríkisstarfsmönnum hefur fjölgað
eftir hrunið. Alls fjölgaði ársverkum
hjá ríkinu um 198 frá 2007 til 2011
en á sama tíma átti sér stað um 27
milljarða kr. niðurskurður ríkisút-
gjalda, að því er fram kemur í
skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands um breytingar á fjölda rík-
isstarfsmanna í kjölfar efnahags-
hrunsins. Ríkisstarfsmönnum hefur
þó fækkað mikið í sumum stofn-
unum en fjölgað í öðrum. Mestur er
niðurskurður ársverka hjá stofnun-
um á vegum velferðarráðuneytis og
iðnaðarráðuneytis. Á sama tíma
fjölgaði hins vegar starfsmönnum
mest í stofnunum á vegum mennta-
málaráðuneytis og umhverfisráðu-
neytis.
Á engri stofnun fækkaði starfs-
mönnum meir en á Landspítalanum
en þar fækkaði ársverkum um
345,7, hjá Tryggingastofnun ríkisins
fækkaði ársverkum um 95,2 og hjá
Lögreglustjóranum á höfuðborgar-
svæðinu um 54. Ársverkum í stofn-
unum á vegum menntamálaráðu-
neytisins fjölgaði á hinn bóginn um
261,7 og hjá umhverfisráðuneytinu
fjölgaði þeim um 107,3 á þessu
tímabili.
MMest fækkun á ... » 6
Fleiri ríkisstörf eftir hrun
Ársverkum hjá ríkinu fjölgaði um 198 frá 2007-2011 en starfsfólki fækkaði á
sama tíma um 346 á Landspítalanum Fleiri starfsmenn hjá ráðuneytum
Morgunblaðið/Ómar
Við Grænland Ísjakar geta ógnað
skemmtiferðaskipum í norðrinu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vaxandi skipaumferð á norðurslóð-
um vegna loftslagsbreytinga og nýt-
ingar auðlinda kalla ásamt hættunni
á umhverfisslysum á samhæfðan við-
búnað ríkja á norðurslóðum.
Þetta er mat Knud Bartels, hers-
höfðingja og formanns hermála-
nefndar NATO, sem telur að Ísland
muni gegna mikilvægu hlutverki í
hinum samhæfðu aðgerðum.
Fjárskortur hamlar Landhelgis-
gæslunni mikið í þessu efni og lýsir
Halldór B. Nellett skipherra því yfir
í samtali við Morgunblaðið að hann
sé uggandi yfir þessari þróun.
„Til að geta tryggt góðan viðbúnað
þurfum við í fyrsta lagi að geta hald-
ið skipunum á sjó. Ástandið er þann-
ig núna að það er ekkert varðskip á
sjó,“ segir Halldór.
Framhaldið í Afganistan óráðið
Bartels fór yfir stöðuna í Afganist-
an í fyrirlestri í Reykjavík í gær.
Hann segir aðspurður að NATO
muni halda áfram að styðja afgönsku
stjórnina eftir að hernaðargerðum
bandalagsins í Afganistan lýkur í lok
næsta árs. NATO muni þannig þjálfa
afganska hermenn og veita þeim
ráðgjöf. Hann segir óráðið hvert um-
fang aðstoðar NATO við Afganistan
verði eftir 2014. »16
Aukin hætta á sjóslysum
Yfirmaður hjá NATO ræðir breytingar á norðurslóðum
Barnahlaup Melabúðarinnar og KR var haldið í
gær á íþróttasvæði KR við Frostaskjól. Börn 12
ára og yngri gátu tekið þátt í hlaupinu í þremur
aldursflokkum og voru vegalengdirnar þrjár:
600 m, 800 m og 1 km. Hlaupið var hugsað sem
hvatning um holla hreyfingu og útiveru.
Rokið af stað á ráslínunni
Morgunblaðið/Ómar
Börnin létu rigningarsudda ekki aftra sér frá því að taka þátt í barnahlaupi Melabúðarinnar og KR
Nokkuð al-
gengt er að fólk
keyri á brott frá
bensínstöðvum
án þess að losa
byssuna úr elds-
neytistanknum.
Slitni byssan frá
slöngunni getur
tjónið verið að
lágmarki 30-40 þúsund krónur og í
fyrra fékk Olíudreifing tilkynn-
ingar um 200 slík tilvik. Ekkert lát
hefur verið á tilkynningum í ár og
er meðaltalið 4-5 tilvik á viku. »6
Keyra með bensín-
byssuna í tanknum
Krabbameinslæknar á Landspít-
alanum íhuga uppsagnir komi til
skipulagsbreytinga sem þeir telja
að verði til mikillar blóðtöku fyrir
starfsemi deildarinnar. Er þetta
samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins. Þeir gagnrýna yf-
irstjórn spítalans fyrir tímasetn-
ingu breytinganna þegar staðan sé
jafnslæm og nú.
Mikið óöryggi er meðal sjúklinga
vegna þeirrar óvissu og manneklu
sem nú ríkir; hvort hægt sé að
treysta því að læknir þeirra verði
til staðar. Þessi alvarlega staða sem
nú er uppi var að sögn heimildar-
manna fyrirsjáanleg í mars síðast-
liðnum en úrlausnir hafa hins vegar
látið á sér standa. Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans, segir að engin
ákvörðun hafi verið tekin og að
verið sé að skoða ýmsar leiðir. »2
Krabbameinslæknar
íhuga uppsagnir
Morgunblaðið/ÞÖK
Landspítali Staðan er sögð vera slæm.