Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Borgina skort-ir ekki fjár-muni þegar breyta þarf gatna- kerfinu í vestur- hluta borgarinnar í þá átt sem sérviska meirihluta borgarstjórnar krefst. Borgina munaði til að mynda ekki um að setja tæpar tuttugu milljónir króna í að spilla Hofsvallagötunni og dreifa fuglahúsum og öðru, sem ekkert erindi á út í umferðina, á miðja götuna. Fyrir þetta hafa borgaryfirvöld ekki svarað enda upptekin við að sinna hags- munum borgara annarra landa. Litlu austar standa nú yfir framkvæmdir sem ekki eru síð- ur sérkennilegar en þær sem ráðist var í á Hofsvallagötunni, þó að áferðin sé önnur og fugla- húsin færri. Til að setja þær fram- kvæmdir í samhengi er rétt að nefna fyrst að um árabil höfðu verið gönguljós yfir Hring- brautina hjá Háskóla Íslands og höfðu ekki valdið teljandi vand- ræðum. Borgaryfirvöld sáu því sitt óvænna og fluttu ljósin vestar, nær hringtorginu. Frá þeirri stundu hefur verið síend- urtekin umferðarteppa í hring- torginu enda bilið frá ljósunum að hringtorginu svo stutt að þegar gangandi vegfarendur nota ljósin fyllist gatan að hringtorginu fljótt með fyrr- nefndum vanda og þeirri hættu fyrir vegfarendur sem honum fylgir óhjákvæmilega. Eins og þessi tilfærsla á gönguljósunum væri ekki nógu slæm ákváðu borgaryfirvöld ný- lega að enn væri takmarkinu ekki náð. Fólk á bílum lenti að vísu reglulega í verulegum vanda við hringtorgið, en nú skyldi það líka bíða á göngu- ljósum á næstu gatnamótum, við Sæmundargötu, eins og greint er frá framar í blaðinu í dag. Á milli þessara tveggja gönguljósa eru aðeins fáeinir tugir metra og ávinningurinn af þeim fyrir gangandi vegfar- endur því sáralítill. Ávinning- urinn fyrir þá sem engan einka- bíl mega sjá án þess að vilja koma honum úr umferð er hins vegar talsverður, enda verða umferðartafirnar tvöfaldar frá því sem var. Samhliða þessum nýju ljósum er svo verið að ráðast í miklar breytingar á Sæmundargötu vegna hjólastíga og er áætlað að þessar framkvæmdir muni kosta um níutíu milljónir króna. Borgaryfirvöld spara við sig á ýmsum sviðum, svo sem í al- mennu viðhaldi, hreinsun og umhirðu, skólakerfi og velferð- arþjónustu, en þegar kemur að því að þjóna sérviskulegum fjandskap við einkabílinn er ekkert til sparað og ráðist í miklar og kostnaðarsamar breytingar á gatna- kerfinu, jafnvel þó að þær eigi aðeins að vera tímabundn- ar. Allt kapp er lagt á að hindra för þeirra borgarbúa sem kjósa að ferðast um á eigin bíl og tefja þá þannig að bíllinn virðist ekki allt of góður kostur í sam- anburði við aðra ferðamáta. Fjandskapurinn við einkabíl- inn kemur þó ekki aðeins fram í þeirri áherslu að breyta gatna- kerfi borgarinnar þannig að bílar lendi í auknum töfum. Þetta viðhorf borgaryfirvalda birtist einnig í ýmsum skipu- lagsmálum sem upp hafa komið að undanförnu, nú síðast í fyr- irhugaðri nýrri byggð við gömlu höfnina og annarri við Braut- arholt. Í byggðinni við gömlu höfnina hafa borgaryfirvöld lagt upp með að einungis 0,8 bílastæði eigi að fylgja hverri íbúð, sem verður óhjákvæmilega til þess að tugir bíla og jafnvel á annað hundrað munu flæða inn í nær- liggjandi hverfi. Í breytingu sem umhverfis- og skipulagsráð, að undan- skildum Júlíusi Vífli Ingv- arssyni, samþykkti á fundi í vik- unni á deiliskipulagi Rauðarárholts vegna lóðar við Brautarholt felst að íbúðum muni fjölga úr 54 í 96. Áður hafði verið gert ráð fyrir 86 bílastæðum en eftir breyt- inguna er aðeins gert ráð fyrir 20 bílastæðum, eða 0,2 á hverja íbúð. Þegar gerðar voru at- hugasemdir við þessi fáu bíla- stæði sýndu fulltrúar Samfylk- ingar, Besta flokks og Vinstri grænna hvað ræður afstöðu þeirra og sögðu það „sannkallað fagnaðarefni að eigendur lóð- arinnar telji sig aðeins þurfa 20 bílastæði, þannig er hægt að nýta borgarlandið og fjármuni í annað og þarfara en einkabílinn sem líður engan skort í dag.“ Fjandskapnum í garð þeirra borgarbúa sem kjósa að ferðast um á eigin bíl verður að fara að linna. Komist borgaryfirvöld upp með það áfram að breyta borginni eftir þessum duttl- ungum sínum verður þess ekki langt að bíða að fólk hrekist í auknum mæli úr borginni, bæði með heimili sín og fyrirtæki. Fólk þarf að geta hugsað sér að ferðast um borgina, búa þar og starfa. Til þess þarf fólk að geta ferðast um á þann hátt sem það kýs og lagt bílnum sínum án teljandi vanda, velji það þann ferðamáta. Skilji borgaryfirvöld ekki þessar einföldu staðreyndir er ekki ofsagt að þau ráði ekki við verkefnið. Fjandskapur borg- aryfirvalda í garð einkabílsins birtist með ýmsum hætti} Peningum borgarbúa sóað í gæluverkefni Í slenskir nemendur eru langt á eftir jafnöldrum sínum í öðrum löndum í námi. Ofbeldi meðal nemenda hefur aukist, bæði andlegt og líkamlegt og skólarnir geta ekki/vilja ekki/nenna ekki að taka á því. Nemendur eru vondir við kennarana sína, taka asnalegar myndir af þeim og dreifa á netinu, þeim til háðungar. Bæði grunnskóla- og framhaldsskólanám er allt of langt, fáir vilja í kennaranám vegna þess að það er líka of langt og til að bæta gráu ofan á svart eru kennarar alltaf í fríi. Einhvern veginn svona er þorri fréttaflutn- ings af skóla- og menntamálum hér á landi. Mikið um gífuryrði og almennar fullyrðingar og umfjallanir um einstaka nemendur sem skólakerfið virðist ekki hafa sinnt sem skyldi. Lítið fer fyrir uppbyggilegri umræðu. Þeir sem mestu þekkinguna hafa á þessum málaflokki segja fátt. Fólkið sem þekkir best til, sem gæti leitt okkur fyrir sjónir hvað er að gerast upp við töfluna, inni í kennslustofunni, úti á skólalóðinni. Kennararnir sjálfir og annað starfsfólk skólanna. Hvers vegna taka kennarar og forystumenn samtaka þeirra ekki meiri þátt í skólamálaumræðu en raun ber vitni? Hvers vegna heyrist helst í þeim í tengslum við kaup og kjör, einkum þegar vinnudeilur standa yfir, sem reynd- ar eru allt of tíðar vegna skammarlega lágra launa. Hér er ekki átt við að kennarar tjái sig um mál einstakra nem- enda sem stundum komast í hámæli í fjölmiðlum, heldur almennt um nám, kennslu og aðstæður í skól- um. Kannski er fylgni á milli þessarar þagnar og þeirrar áherslu sem fjölmiðlar leggja á mála- flokkinn, en sé tekið mið af vægi umfjöllunar um þessi mál mætti helst ráða að áhugi á menntamálum sé almennt lítill. Á erlendum netmiðlum er algengt að sérstakur flokkur frétta sé merktur menntun eða skólum, rétt eins og á íslenskum netmiðlum eru fréttaflokk- ar merktir viðskiptum, fólki eða íþróttum. Þá er algengt að erlend dagblöð séu með fasta umfjöllun um skóla- og menntamál og að á rit- stjórnum séu sérfræðingar sem sérhæfa sig í henni. Reglulega er fjallað um þennan mála- flokk í helstu fjölmiðlum Norðurlanda, ríkis- reknum jafnt sem einkareknum. Til álits eru kallaðir starfsmenn skólanna, foreldrar og nemendur. Ekki bara menntamálaráðherra eða aðrir ráðamenn. Svona er þetta í útlöndum. Hér á landi er umfjöllun fjölmiðla um skóla- og mennta- mál allt of oft eins og lýst er í upphafi greinarinnar. Ef þessi málaflokkur fengi t.d. þó ekki væri nema helminginn af því plássi sem tíðindi af því hver var hvar eða hvernig eigi að léttast um fimm kíló á þremur dögum fá í fjöl- miðlum, þá væri umræðan hugsanlega á allt öðru plani. Menntamál eru meðal stærstu útgjaldaliða ríkisins. Er það eitt og sér ekki nægilega góð ástæða til að fjalla um og ræða þessi mál af alvöru? annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Hvar er umræðan? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon næstkomandi um makrílveiðar næsta árs. Fram hefur komið að hrygning makríls á Norðaustur- Atlantshafi hafi í ár verið um 31% meiri en var í eggjaleiðangri fyrir þremur árum. Aukning varð á hrygningu í íslenskri lögsögu í ár og á vef norsku hafrann- sóknastofnunarinnar kemur fram að í leiðangri nýverið hafi makríl- ungviði fundist austar í Barents- hafi en áður og magnið verið meira en lengi. Fundur um stjórnun Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra hefur sagt að nýjar stofnmælingar, sem gefi til kynna að meira sé af makríl en áður var talið, lofi góðu. Fundur strandríkjanna um stjórn makríl- veiða verður haldinn 23. október. Síðustu tonnin á makrílvertíðinni 160.000 140.000 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 20062005 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 Heimild: Fiskistofa 32 7 4. 22 2 36 .2 57 11 2. 35 2 11 6. 16 4 12 0. 85 3 15 3. 35 9 14 5. 89 4 13 0. 83 8 Makrílafli í tonnum Hátt í 100 smábátar hafa landað makríl í sumar og er um mikla fjölgun að ræða frá síðustu árum. Heildarafli þeirra var orðinn yfir 4.500 tonn í gær, en í dag er síðasti dagur vertíðar smábátanna. Upphaflega var þeim heimilt að veiða 3.200 tonn, en síðan var reglugerð breytt og bátunum leyft að stunda ólympískar veiðar til 20. september. Afli bátanna hefur verið frá nokkrum kílóum upp í um 175 tonn í sumar, en bæði Brynja SH 237 og Særif SH 25 hafa komið með þann afla að landi. Þrettán bátar eru búnir að veiða meira en 100 tonn af makríl. Algengt hefur verið að 100-120 krónur fengist fyrir kíló af krókamakríl og gæti aflaverðmæti aflahæstu bátanna slagað í 20 millj- ónir króna. Dæmi munu um að allt að 300 krónum hafi verið borgað fyrir kíló af stærsta og feitasta makrílnum, en slíkt heyrir þó til und- antekninga. Smábátarnir hafa aflað þokkalega fram undir þetta þegar gefið hef- ur. Einkum hefur makríll fengist síðustu daga í Steingrímsfirði, út af Snæfellsnesi, við Helguvík, suður af Sandgerði og í Berufirði. Aflakóngar með 175 tonn SMÁBÁTARNIR KOMNIR MEÐ YFIR 4.500 TONN FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Skipverjar á Hugin VE eru ísíðasta makríltúr sumars-ins og sagði Gylfi Guð-mundsson skipstjóri upp úr hádegi í gær að enn væri mak- ríll í lögsögunni og virtist hann vera seinna á leið út fyrir en í fyrra og hittifyrra. Gylfi sagði að makríllinn veiddist nú helst á nótt- unni og í fyrrinótt hefðu þeir feng- ið um 100 tonn af góðum makríl, stórum og feitum, topphráefni eins og hann orðaði það. Þrjú frystiskip voru þá að makrílveiðum út af sunnanverðum Austfjörðum, Huginn VE, Að- alsteinn Jónsson SU og Kristina EA. „Við reynum að fá einhver tonn í viðbót, svo erum við hættir þessu og förum á síldina,“ segir Gylfi. Hann segir að vertíðin hafi farið hægt af stað og verið heldur leiðinleg framan af. Makríllinn hafi verið smár og lítill kraftur í veiðum í júní og framyfir miðjan júlí, en ágúst og september hefðu verið góðir. Eflaust hefði skipt máli að sjór var kaldari í vor og sumarið sólarlítið fyrir Suður- og Vest- urlandi. Þótt meira hafi þurft að hafa fyrir aflanum en síðustu tvö ár verður tæpast annað sagt en að í heildina hafi árangur á makríl- vertíðinni verið góður. Í gær voru komin yfir 130 þúsund tonn á land samkvæmt vef Fiskistofu. Upp- sjávarskipin, sem byggja á afla- reynslu í makríl, eru með stærsta hluta kvótans. Þeim er heimilt að geyma 15% milli ára eða að veiða 10% fram yfir úthlutaðan kvóta. Færeyingar að klára kvótann Færeyingar eru nánast búnir með makrílkvóta sinn og á aktu- elt.fo kemur fram að eftir sé að veiða um sex þúsund af 128.500 tonna kvóta. Nóg sé enn af makríl í færeyskri lögsögu og 17 norsk makrílskip hafi í vikunni verið að veiðum skammt frá færeysku lög- sögunni. Enn sé eftir að veiða rúm- lega 40 þúsund tonn af síldarkvóta ársins. Búist er við ráðgjöf Alþjóða- hafrannsóknaráðsins 3. október

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.