Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
„Brögð hafa verið að því að fólk hafi
ekki skilið upp á hár hvernig samn-
ingi um gjaldfrjálsar tannlækningar
barna er háttað,“ segir Kristín Heim-
isdóttir, formaður Tannlæknafélags-
ins, um samning Sjúkratrygginga Ís-
lands og Tannlæknafélags Íslands.
Nú fá öll 3ja ára börn, og 12 til 17
ára börn gjaldfrjálsar tannlækning-
ar. Fyrir utan 2.500 króna árlegt
komugjald.
Þetta tekur til almennrar tann-
læknaþjónustu, ekki tannréttinga.
Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga
er háð því að börnin séu skráð hjá
heimilistannlækni. Skráning fer fram
í gegnum Réttindagátt Sjúkratrygg-
inga Íslands en tannlæknar geta
einnig séð um skráninguna.
Innleiðing kerfisins fer fram í
skrefum eins og sjá má í eftirfarandi
töflu.
Börn sem eru fædd árið 2010, sem
sagt þriggja ára gömul, fá fría tann-
læknaþjónustu í eitt ár. Þau fá aftur
fría tannlæknaþjónustu þegar þau
eru orðin sex ára gömul, 1. janúar
2016 detta þau aftur inn í kerfið. Þeg-
ar þau eru fjögurra og fimm ára göm-
ul þarf að greiða fyrir þjónustuna.
Hins vegar geta þau fengið end-
urgreitt samkvæmt gamla kerfinu
þegar þau eru ekki inni í því nýja.
„Ákveðið var að byrja á elsta ald-
urshópnum. Mikilvægt er að tann-
heilsa þeirra barna sé góð. Unglingar
drekka mikið gos og neyta mikilla
sætinda. Vart þarf að fjölyrða um
skaðsemi þess,“ segir Kristín.
Foreldrar barna í grunn- og fram-
haldsskólum hafa fengið senda til-
kynningu um tannlæknaþjónustuna í
gegnum Mentor, samskiptakerfi
skólanna. thorunn@mbl.is
Innleiðing tannlæknaþjónustu
15. maí 2013
1. sept. 2013
1. janúar 2014
1. janúar 2015
1. janúar 2016
1. janúar 2017
1. janúar 2018
Frá og með Yngri en
3 ára 3 ára
4 og 5
ára
6 og 7
ára
8 og 9
ára
10 og 11
ára
12-14
ára
15-17
ára
3 3 3 3 3 3 3 3
3 3 3 3 3 3 3
3 3 3 3 3 3
3 3 3 3 3
3 3 3 3
3 3 3
3
Elsti hópurinn
gengur fyrir
Gjaldfrjálsar tannlækningar kynntar
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Harðari refsingar við vímuakstri
virðast ekki endilega skila sér í færri
brotum. Frekar ætti að leggja
áherslu á forvarnir og hugarfars-
breytingu en að víkka refsiramma
fyrir slík brot, að sögn Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur innanríkisráðherra.
Hátt í tvö þúsund brot af þessu tagi
voru skráð á landinu öllu í fyrra skv.
tölfræði rannsóknarnefndar sam-
gönguslysa. Þar af voru hátt í fjögur
hundruð einstaklingar teknir oftar en
einu sinni.
Unnið er að því hjá innanríkisráðu-
neytinu hvernig eigi að efla löggæslu
í landinu og segir ráðherrann að
vímuakstur sé eitt af því sem hljóti að
verða skoðað í því samhengi. Í nýju
frumvarpi að umferðarlögum er jafn-
framt gert ráð fyrir að leyfilegt há-
mark áfengis í blóði lækki úr 0,5‰ í
0,2‰ líkt og er í Noregi og Svíþjóð.
Ekki er þó nóg að ræða þessi mál
eingöngu út frá því hvort víkka eigi
refsirammann, að mati Hönnu Birnu.
Aldrei verði hægt að ná utan um
vandann nema tryggt verði að litið sé
á það að setjast undir stýri undir
áhrifum alvarlegri augum en tölurnar
nú gefa til kynna.
Lagaramminn um vímuakstur sé
mismunandi eftir löndum en Hanna
Birna segir að ekki virðist fylgni á
milli hans og brotanna.
„Það virðist ekki vera að þó þú
þyngir lagarammann hafi það mikil
áhrif. Mikið af þessu fólki á við stórt
heilbrigðisvandamál að stríða,“ segir
hún.
Bent hefur verið á að líta þurfi til
annarra úrræða fyrir þá sem gerast
ítrekað sekir um vímuakstur en
sviptingar ökuréttinda eða fangelsis-
vistar. Hanna Birna segir rannsóknir
benda til þess að þjóðir sem hafa
lagaákvæði sem heimila að fólk sé
skikkað í meðferð skili árangri með
þá sem brjóta endurtekið af sér.
Stöðvi neysluna og brotin
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Vogi, tekur undir að ekki þurfi endi-
lega auknar refsingar fyrir þá sem
stunda vímuakstur heldur þurfi það
fólk viðeigandi meðferð. Heimildir í
lögum til að dæma fólk í meðferð hafi
hins vegar ekki verið mikið notaðar.
„Allt okkar meðferðarstarf miðar
að því að draga úr neyslunni og
stoppa helst alveg og þar með skaða
og vandamál af henni eins og það að
keyra undir áhrifum.“
Ekki nóg að
herða refsingar
Ráðherra vill forvarnir og hugarfars-
breytingu gegn vímuakstri á Íslandi
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Þórarinn
Tyrfingsson