Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Afmælisgestirnir verða um hundrað talsins og fimmtán eigabókað far með flugi austur í dag. Konan mín er frá Selfossiþaðan sem koma tveir galvaskir trúbadorar, Leifur Viðars- son og Magnús Kjartan Egilsson. Þeir munu halda upp góðri stemn- ingu ef ég þekki þá rétt. Á laugardagskvöldið er svo lokahóf knatt- spyrnudeildar Hattar,“ segir Davíð Þór Sigurðarson, formaður íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum, sem er þrítugur í dag. Davíð er Austfirðingur í húð og hár; fæddur á Héraði en alinn upp á Seyðisfirði. Um tvítugt fór hann til náms í viðskiptafræði á Bifröst og bjó svo syðra. „Svo opnaðist gluggi þegar starfsemi álvers Alcoa á Reyðarfirði fór af stað og þar hef ég verið alveg frá 2006. Er núna í þeim hópi sem stýrir útflutningi og gerir framleiðsluáætlanir. Fjarðaál er góður vinnustaður sem býður upp á margvíslega möguleika,“ segir Davíð Þór. Kona Davíðs er Edda Ósk Gísladóttir hársnyrtir, sem jafnframt rekur smekklegt.is, vefverslun með barnaföt. Þau Edda eiga tvö börn; Eriku Rún, tveggja ára, og Arnór Daða, sem er einmitt sex ára í dag. „Börnin eru það kærasta sem við eigum og það var sér- staklega gaman að eignast sitt fyrsta barn á afmælisdeginum sínum. Það er besta gjöf sem ég hef nokkurn tíma fengið,“ segir Davíð Þór. sbs@mbl.is Davíð Þór Sigurðarson er þrítugur í dag Pabbi „Börnin eru það kærasta sem við eigum,“ segir Davíð Þór Sig- urðarson á Egilsstöðum, hér með þeim Eriku Rún og Arnóri Daða. Besta gjöfin mín er sex ára gömul í dag Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Brúðhjón Björg Eyþórsdóttir og Ágúst Ingi Dav- íðsson voru gefin saman í París 21. júlí síðastliðinn. Brúðkaup Kópavogur Frosti Steinn fæddist 21. september. Hann vó 2.985 g og var 49 cm langur. Foreldrar hans eru Karen Gylfadóttir og Andri Viðar Sveinsson. Nýir borgarar Mosfellsbær Leonard fæddist 3. jan- úar kl. 21.27. Hann vó 3.655 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Lasma Benediktsson og Sigurður Benediktsson. G uðmundur fæddist á Eskifirði 20.9. 1963 og ólst þar upp í dæmi- gerðu íslensku sjáv- arplássi á bryggjunum, við knattspyrnuleiki með Austra og við almenn verkamanna- og fisk- vinnslustörf á unglingsárum. Guðmundur var í Barna- og gagn- fræðaskóla Eskifjarðar, var skipti- nemi á Ítalíu í eitt ár, lauk stúdents- prófi frá MH 1984, lauk bakkalár- prófi í stjórnmálafræði frá Stirling-- háskóla í Skotlandi 1989 og MA-- prófi í alþjóðastjórnmálum frá háskólanum í Sussex í Englandi 1990. Lokaritgerð hans fjallaði um Norðurlöndin og pólitískan samruna í Evrópu. Guðmundur var leiðsögumaður á Ítalíu á sumrin með háskólanáminu í Bretlandi og blaðamaður við Morg- unblaðið um skeið. Hann starfaði við sérverkefni fyrir forsætis- og fjár- málaráðuneyti 1991, var skipaður deildarstjóri í forsætisráðuneytinu í ársbyrjun 1992, skipaður skrifstofu- stjóri í sama ráðuneyti frá ársbyrjun 1996, var í leyfi þaðan 1998-2000 er hann var ráðgjafi (e. Senior Advisor) við Norræna þróunarsjóðinn í Hels- inki (NDF) þar sem hann sinnti einkum málefnum Afríku. Guðmundur hóf störf á ný sem skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti árið 2000, var settur ráðuneytistjóri í menntamálaráðuneyti haustið 2002 og skipaður ráðuneytisstjóri þar í mars 2003. Hann fór aftur til starfa í forsætisráðuneytinu í ársbyrjun 2009 og fram á vor en var settur ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt- inu sumarið 2009 og hefur verið þar síðan. Guðmundur hefur setið í aragrúa starfshópa og opinberra ráða og nefnda sem fulltrúi ráðuneyta. Gömul hús í Mjóafirði Áhugamálin, Guðmundur? „Ég er mjög lélegur félagsmála- maður – hrökklaðist úr Rotary vegna lélegrar mætingar og baðst lausnar í sóknarnefnd Háteigskirkju eftir einn fund. Ég hef reynt að halda tengslum við Ítalíu og við höfum síðustu sum- ur farið til Sikileyjar, sem er himn- eskur staður. Ég hef haft mikinn áhuga á mínu starfi en stjórnsýsla ríkisins er skemmtilegur starfsvettvangur – það var t.d. spennandi að koma að Guðmundur Árnason, ráðuneytisstj. í fjármálaráðun. – 60 ára Kaup á Gljúfrasteini Guðmundur Árnason, Auður Laxness og Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, er tvö síðast- nefndu undirrituðu kaup ríkisins á Gljúfrasteini, heimili og vinnustað Halldórs Laxness, árið 2002. Nýtur stjórnsýslunnar en sleði í félagsmálum Morgunblaðið/Sverrir Silkimjúkir fætur Loksins fáanlegt aftur! Þökkum frábærar viðtökur Fæst í apótekum um land allt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.