Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
Á framboðsfundum
vorið 2006 boðuðu
nokkrir frambjóð-
endur til borg-
arstjórnar að gera
ætti stórátak á öllum
leiksvæðum borg-
arinnar og ljúka verk-
efninu sumarið eftir
þ.e. gera þau ein barn-
vænustu í Evrópu, en
lítið varð um fram-
kvæmdir/efndir.
Ég þekki reyndar ekki til á öllum
leiksvæðum borgarinnar, en nokk-
uð vel varðandi leikvöll milli Foss-
vogsvegar og Álftalands. Það eina
sem gert var við nefndan og mikið
notaðan leikvöll var að unglingar
komu sumarið eftir og slettu máln-
ingu hér og þar á leiktækin.
Vorið 2009 kom svo hópur manna
á nokkrum bílum frá borginni og/
eða verktökum til að skoða vall-
arsvæðið. Nokkrum vikum síðar
voru leiktækin fjarlægð þ.e. nema
ein róla.
Eftir stóðu oddhvassar festingar
tækjanna sem veruleg slysahætta
stafaði af, en úr því var bætt eftir
ábendingar frá íbúum svæðisins.
Nokkru síðar var smíðaður lítill
sandkassi á vallarsvæðið, en hann
síðan fjarlægður nokkrum vikum
síðar. Sumarið 2011 kom svo stór-
virk vinnuvél og fjarlægði nefnda
rólu.
Eftir stendur þökulagt svæði og
fallegur gróðurreitur grenitrjáa
sem vernduðu leiksvæðið fyrir
norðanvindum. Þetta er nú saga
nefnds leikvallar og það sem gert
var fyrir leikvöllinn eftir kosning-
arnar 2006.
Mér skilst reyndar að tæki og
umhverfi leikvalla hafi verið lag-
fært undanfarið í Breiðholti og
Seljahverfi og er það vel ef svo er.
Þess skal getið að gott samstarf
var við umsjónarmann svæðisins
varðandi umhirðu og fleira fyrrum,
en öll umhirða hefur drabbast niður
undanfarin ár og illgresi sótt í
miklu mæli inn í garða vegna þessa.
Ég hef stundum íhugað í ferðum
mínum um borgina hvort borgin sé
ekki með eftirlitsaðila gagnvart
verktökum t.d. varðandi slátt og
aðrar framkvæmdir. Víða skilja
þeir eftir heyhauga, poka og fleira
og ganga misvel til verka á ýmsum
sviðum. Fyrir þessi verk er borgin
væntanlega að greiða háar upp-
hæðir.
Síðast þegar ég fór með barna-
barnið í Húsdýragarðinn virtust
sum leiktækin á svæð-
inu vera í frekar
döpru ástandi, en um-
gjörð kringum dýrin
til fyrirmyndar.
Inn á svæðið borga
foreldrar nokkuð hátt
gjald og frekar dýrt
er í leiktækin. Nauð-
synlegt er að borgin
komi þarna betur að
verki svo hægt sé að
leggja meiri metnað í
svæðið, því í garðinn
sækir fjöldi barna til
að njóta nærveru við dýrin og til
útiveru og leikja.
Önnur svæði til útiveru/leikja
fyrir börn eru nánast ekki til stað-
ar í borginni þ.e. nema þá sund-
laugarnar og opin grassvæði. Í
sundlaugarnar á að sjálfsögðu að
vera frítt fyrir börn.
Verið er að bæta skíðasvæðið við
Ártúnsbrekkuna og er það gott og
þarft verk. Ég nefndi í grein fyrir
nokkrum árum hvort ekki væri
æskilegt að setja upp á Öskjuhlíð-
arsvæðinu veglegt útivistarsvæði
búið fjölbreyttum afþreying-
artækjum og fleiru fyrir börn og
unglinga, þ.e. í tengslum við að-
stöðuna sem fyrir er í Nauthólsvík,
þar sem fjölskyldur gætu dvalið
daglangt á góðviðrisdögum í hinum
ýmsu leikjum og til útiveru.
Um svæðið liggja hinir frábæru
hjólreiða-og göngustígar tengdir
flestum hverfum borgarinnar. Það
er alltaf verið að tala um mikilvægi
þess að hafa góð athafnasvæði fyrir
börn og unglinga hér í borginni
sem víðar þar sem foreldrar geta
einnig verið með þeim í leik og
starfi. Þarna var/er upplagt svæði
til slíks sem og að svæðið geti einn-
ig boðið upp á öruggt gæslusvæði
fyrir börn hluta dags á sumrin.
Ég veit ekki betur en að þörfin
sé fyrir hendi, reyndar aldrei meiri
en nú, en svæðið er nú komið undir
hinn ágætasta háskóla sem hefði
jafnvel átt heima á öðrum stað með
betra umferðaraðgengi.
Öflug tómstunda- og leiksvæði
eiga fullan rétt á sér í borginni þar
sem borgarbúar geta notið útiveru
og þeir sem sækja borgina heim.
Reykvísk börn eiga það ekki skilið
að höfuðborgin okkar sé langt á
eftir öðrum menningarborgum
varðandi barnvæn útivistar-og leik-
svæði.
Á flugvallarsvæðinu við Naut-
hólsvík gæti einnig verið safn flug-
véla og þær hafðar til sýnis útivið á
góðviðrisdögum.
Höldum a.m.k. svæðinu opnu
sem eftir er í jaðri Öskjuhlíðar til
útiveru og leikja. Það er nauðsyn-
legt að borgin geti andað sínum
ferskleika með opnum og fallegum
útivistarsvæðum.
Slík svæði eru nauðsynleg í öll-
um borgum og teljast til mikils
mannauðs/verðmæta í stað enda-
lausra húsasamstæðna hvert sem
litið er.
Að hljóðlátar flugvélar lendi á
Reykjavíkurflugvelli og taki þar á
loft gerir svæðið bara líflegra og
vekur áhuga ungmenna til tækni-
framfara. Flugvöllurinn á að vera
þarna áfram a.m.k. þar til önnur
raunhæf lausn finnst á málinu í
stað rándýrra íbúðarblokka sem fá-
ir hefðu efni á að kaupa íbúðir í né
búa í, a.m.k.ekki námsmenn. Að
sjálfsögðu átti að byggja mynd-
arlega samgöngumiðstöð í Vatns-
mýrinni til að þjóna víðtæku sam-
göngukerfi á landsvísu.
Jafnframt innri Sundabraut
vegna öryggis og bættra sam-
gangna við Grafarvogssvæðið með
síðari tengingu á ytri Sundabraut
með tengingu upp á Kjalarnes.
Vonandi koma borgaryfirvöld
barnvænum svæðum í borginni til
betri vegar sem fyrst og aðstoða
Húsdýragarðinn að koma svæðinu í
betra horf sem og samgöngukerfi
borgarinnar.
Hugleiðingar um
barnvæn svæði í borginni,
Reykjavíkurflugvöll o.fl.
Eftir Ómar G.
Jónsson » Flugvöllurinn
á að vera þarna
áfram a.m.k. þar til
önnur raunhæf lausn
finnst á málinu í stað
rándýrra íbúða sem
fáir hefðu efni á að
kaupa né búa í.
Ómar G. Jónsson
Höfundur er fulltrúi og áhugamaður
um betri borg og talsmaður
sjálfstæða framfarahópsins sem
íhugar að koma jafnvel að framboði
til borgarstjórnar að vori.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er
auðvelt í notkun og tryggir ör-
yggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar
eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerf-
ið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferl-
inu. Eftir að viðkomandi hefur
skráð sig sem notanda í kerfið
nóg að slá inn kennitölu not-
anda og lykilorð til að opna
svæðið.
Hægt er að senda greinar all-
an sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.
idex.is - sími 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex
álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi
tegundum bygginga
ÁLGLUGGAR
- þegar gæðin skipta máli
www.schueco.is
Since 1921
Lífræn og nærandi morgunfrú (calendulajurtin) veitir húð barnsins þíns þá vörn
og umhyggju sem hún þarfnast. Fullkomin leið til að stuðla að heilbrigðri húð,
allt frá fyrsta degi - í samhljómi við mann og náttúru www.weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek, barnaverslanir og heilsuverslanir um allt land
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/WeledaBabyIceland
Mamma veit best!