Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hrúturinn ber höfuðið hátt og er
vinalegur og það er meira virði í dag en þekk-
ing og kunnátta. Þótt þér finnist þér ekki
verða mikið úr verki standa aðrir á öndinni yf-
ir afköstum þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekkert freista þín svo að þú eigir
á hættu að missa mannorðið fyrir það. Gefðu
þér tíma til að rækta sálarlíf þitt en gættu
þess að forðast allar öfgar í þeim efnum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ekki er allt sem sýnist og það er þitt
verk að komast að hinu sanna. Leggðu allt
kapp á að finna farsæla lausn svo þú getir
sofið rólegur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ótti þinn við að rugga bátnum hefur
leitt til þess að sambandið hefur strandað á
skeri. Vinnufélagi kemst upp með að slá
slöku við því þú bætir það upp.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt auðvelt með að skilja aðra og því
er þetta góður tími til að jafna deilur við
gamlan vin. Einbeittu þér að því góða sem
aðrir bjóða upp á.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Innsæi segir þér hvernig þú skalt
hegða þér í dag. Einhver þau orð hafa fallið
sem valda misskilningi í þinn garð. Stattu
ákveðinn á þínu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú nýtir orkuna í botn. Og þá er bara að
taka á honum stóra sínum og hefjast handa
af fullum krafti. Þér er eiginlega sama hvað
fólki finnst um þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hlustaðu á þær raddir sem vilja
leiðbeina þér og gefa góð ráð, því þær tala af
reynslu. Aðra langar bara að vita hvað þér
finnst um hlutina. Reyndu að sjá hlutina með
augum annarra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Atburðir dagsins hafa kannski
ekki djúpa merkingu, en viðhorf þitt lætur
það í veðri vaka. Miðlaðu sköpunargáfu þinni
til annarra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki þarft þú að hlaupa til þótt
fólkið í kringum þig sé með látalæti. Vinir
sem eru þér ekki alltaf sammála reynast
best.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vatnsberinn er fullur gleði og vel-
líðunar í dag. Ekkert fær breytt því, sem gert
er og búið. Vertu óhræddur þótt einhverjum
kunni að finnast þetta óþarfa stælar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er sama með hverjum þú ert,
hann/hún laðar fram kröftugri hliðar fólks og
kímnigáfuna líka. Þú ættir að forðast átök.
Stefán Vilhjálmsson sendi mérgott bréf: „Gaman að Edens-
kveðskapnum (Vísnahorn 14.09.13).
Föðuramma mín, Stefanía Sigurð-
ardóttir, kunni margt af þulum og
kvæðum. Þar á meðal er þetta vers
um þau Adam og Evu eftir ókunnan
höfund:
Þau voru rekin út með staur
Eva mín og sá langi gaur.
Þau örkuðu síðan út með sjó,
af sér gengu sokka og skó.
Börnin áttu þau býsna mörg,
bæði voru þau löt og körg.
Þó var eitt verst og þess var von,
það var hann Kain Adamsson.
Minningar ömmu ásamt ýmsum
kveðskap sem hún hafði skrifað
niður komu út í bókinni „Blikandi
fjarlægð“, Rvk. 2005, útg. V.H.
Úr annarri átt er þessi snilldar-
texti við Vínarkrusslag, þú kannast
sjálfsagt við hann:
Adam sagði: „Eva,
í mér finnst mér slefa,
maginn er sem orgelspil.
Áttu ekki bitter til?“
Eva fór að æja,
Adam sagði: „Jæja,
gef mér bara brennivín,
blessuð elskan mín.““
Brandur Fróði Einarsson á Akra-
nesi rifjar upp eftirfarandi frásögn
í tilefni af því að hér birtust fyrir
nokkrum dögum vísur um Magneu
læknisfrú í Hveragerði eftir Þor-
vald Ólafsson:
Þorsteinn Þorsteinsson á Húsa-
felli var á Stóra-Kroppi um það
leyti sem Magnea Jóhannesdóttir
kom að Kleppjárnsreykjum til
Magnúsar Ágústssonar. Þá var hún
mjög umtöluð og talsvert hallmælt.
Þá var rætt um það á Kroppi að það
væri rétt að segja eitthvað gott um
hana. Þá sagði Þorsteinn:
Blessuð frúin ber af öllum,
bæði dyggða og elskurík.
Hennar lof rís hærra fjöllum.
(Afi hans, Kristleifur, lauk vís-
unni):
Hún er engri konu lík.
Gylfi Pálsson skrifar að kveð-
skapur Ólafs Einarssonar um Esj-
una á miðvikudag, „Mikið er Esjan
nú guggin og grá“, kalli fram vísu
Gests heitins Guðfinnssonar:
Mikil lifandis ósköp er Esjan ljót
að aftan jafnt sem að framan.
Að skakklappast þar um skriður og grjót
er skelfing leiðinlegt gaman.
Ármann Þorgrímsson yrkir um
veðraskil:
Nú hefur storminn af loforðum lægt,
lognið ég þekki.
Góðu hlutirnir gerast mjög hægt,
eða gerast ekki.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ein vísa kallar á aðra
Í klípu
„LÖGREGLUHUNDURINN ER KOMINN
AFTUR. HANN VILL SPYRJA ÞIG
NOKKURRA SPURNINGA Í VIÐBÓT.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VILTU TÍMA HJÁ ÁSMUNDI HÚÐLÆKNI EÐA
ÁSMUNDI KVENSJÚKDÓMALÆKNI?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þér hlýnar
af því einu að hugsa
um hann.
MÓTTAKA SJÚKLINGA
ALDURS-
MARTRÖÐ?
ÞÚ ERT 45
SNÚNINGA
HLJÓMPLATA.
ÉG MAN
EFTIR ÞÉR.
EINMITT!
HAHAHAHAHAHAHAHA
HAHAHAHAHAHAHAHA!
ÓJÁ!
VAKNAÐU,
HROLLUR!
HVAÐ ER
AÐ? ÞAÐ ER HELLI-RIGNING OG
ÞAKIÐ LEKUR!
ÚFF!
BEST AÐ ÞÚ
SÆKIR ÞÁ
REGNHLÍF
FYRIR MIG.
Víkverji hélt að ekkert kæmi hon-um orðið á óvart í sambandi við
stjórnendur Reykjavíkurborgar en
fólkinu á þeim bænum dettur ým-
islegt í hug sem vart hvarflar að öðr-
um. Það nýjasta er að leyfa lausa-
göngu hunda á túninu umhverfis
sundlaug Vesturbæjar, samkvæmt
frétt á mbl.is um liðna helgi.
x x x
Lausaganga hunda er bönnuð í höf-uðborginni nema á fáum skil-
greindum stöðum og þá alltaf undir
umsjá ábyrgs aðila. Í samþykkt um
hundahald í Reykjavík kemur fram
að „taumskylda er í öllu borgarland-
inu nema annað sé tekið fram og skal
umráðaaðili hunds virða hana“. Bent
er á að ekki megi hleypa hundum inn
í húsrými, s.s. skóla, leikvelli og
íþróttavelli. Þetta eigi meðal annars
við um gæsluvelli, íþróttahús, heilsu-
ræktarstöðvar og hvers konar sam-
komuhús og staði sem almenningur
hefur aðgang að vegna afgreiðslu og
þjónustu.
x x x
Stöðugt birtast fréttir af lausumhundum sem hafa ráðist á fólk
og slasað auk þess sem lausir hundar
hafa oft drepið aðra hunda. Víkverji
var til dæmis bitinn af óðum hundi
fyrir margt löngu og óskar engum
þess að lenda í slíkum bitvargi.
x x x
Umhverfis- og skipulagsráð borg-arinnar virðist hvorki vita af
reglum um hundahald í borginni né
þeirri hættu sem fylgir lausagöngu
hunda. Ráðsmönnum væri nær að
kynna sér ólöglega lausagöngu
hunda í Reykjavík og sporna við
henni frekar en að auka enn á hætt-
una vegna hennar. Þessar hug-
myndir virðast vera af sama meiði
og tal um ísbirni í Laugardal en er
ekki komið nóg af vitleysunni?
x x x
Heilbrigðisnefnd borgarinnar hef-ur gripið í taumana og segist
ekki geta gefið jákvæða umsögn um
lausagönguna. Þar á bæ sjá menn
hættuna sem henni fylgir og segja
hingað og ekki lengra. Er það til fyr-
irmyndar, en ekki er sopið kálið þó í
ausuna sé komið. víkverji@mbl.is
Víkverji
Þú, Drottinn, ert góður og fús til að
fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem
ákalla þig. (Sálmarnir 86:5)
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
DísellyftararMest seldi dísellyftarinn á Íslandi•
Hydrostatic drif•
Gott ökumannshús•
Dempun á mastri•
Örugg og góð þjónusta•