Morgunblaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 10
Malín Brand
malin@mbl.is
Algengasta form daggæsluer að dagforeldrar taki ámóti börnum á heimilisínu. Það hentar mörg-
um en öðrum þykir gott að skilja
að heimili og vinnustað. Það gerðu
þær Björg og Eva sem gripu gæs-
ina þegar hún gafst og leigðu
skúrinn við gæsluvöllinn í Hlað-
hömrum í Grafarvogi.
„Dagforeldrar hafa verið að
leigja svona gamla gæsluvelli og
við vorum heppnar og fengum
þetta hús,“ segir Björg sem fagnar
því að dagforeldrum standi slíkt til
boða í Reykjavík. Þær hófu störf í
húsinu í ágúst á síðasta ári og
kunna afar vel við aðstöðuna.
Gamlir gæsluvellir fá
ný hlutverk
Til þess að nýta gamla gæslu-
velli á þennan hátt þarf tilskilin
leyfi frá borginni og er það til-
tölulega auðsótt mál að fá leyfið,
að sögn Bjargar en þær frænkur
hafa áður starfað sem dagfor-
eldrar og mega því vera með fimm
börn hvor. Stúlkurnar eru búnar
að innrétta húsnæðið listilega og
fer afskaplega vel um börnin í
Glaðhömrum, eins og staðurinn
kallast. Með þessu móti nýtist allt
sem gamli gæsluvöllurinn hafði
upp á að bjóða, þar með talinn af-
girtur leikvöllur með leiktækjum.
Húsnæðið er rúmlega 130 fermetr-
ar og þar af er leikrými barnanna
um 60 fermetrar, sem er töluvert
stærra en almennt er hægt að
bjóða upp á í heimahúsi.
Nýtt hlutverk
gamals gæsluvallar
Frænkurnar Björg Sonde Þráinsdóttir og Eva Bragadóttir nýta gamlan gæsluvöll
undir starfsemi sína. Þær eru dagmæður og leigja húsnæðið af Reykjavíkurborg.
Það iðar allt af lífi og fjöri á Glaðhömrum við Hlaðhamra því allir eru velkomnir
í garðinn við gæsluvöllinn. Þangað koma krakkarnir í hverfinu líka og bera virð-
ingu fyrir litlu manneskjunum sem eru að stíga sín fyrstu skref í leiknum.
Pláss Það fer vel um ungviðið á 60 fermetra leiksvæðinu í Glaðhömrum.
Leikur Þessar litlu manneskjur finna upp á ýmsu sér til skemmtunar.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
Alveg er það kjörið smjörið til að
komast í gott skap að fara á hverjum
degi inn á Facebook-síðuna hans
Simba í Hafnarbúðinni á Ísafirði. Þar
setur Simbi, sem er starfsmaður í
búðinni, inn á hverjum degi skemmti-
legar myndir þar sem hann setur
málshætti, orðtök, orðatiltæki og
allskyns vitleysu í myndrænt form,
eins og hann orðar það sjálfur. Simbi
hefur ótrúlegt hugmyndaflug og er
frumlegur í útfærslum sínum, þar
sem húmorinn leikur stórt hlutverk.
Hann kallar sig Kallinn og fær gjarn-
an í lið með sér fólkið sem vinnur
með honum í búðinni, vini sína eða
fjölskyldumeðlimi til að útfæra hug-
myndir. Hann leggur heilmikið á sig
við gerð myndanna, t.d fer hann á kaf
í djúpan skít, lætur halda sér á hvolfi
upp við stál, fer allsber í berjamó,
klifrar upp í tré til að vera á grænni
grein o.s.frv. Njótið Simba!
Vefsíðan www.Facebook/Simbi í Hafnarbúðinni
Simbi Hann er aldrei uppiskroppa með útfærslur, hér með öndina í hálsinum.
Simbi sprellar á hverjum degi
Nú er lag að reima á sig hjólaskauta
eða línuskauta því í dag milli kl. 17 og
20 geta allir sem vilja komið í bíla-
stæðakjallara Ráðhúss Reykjavíkur
og rennt sér þar á skautum. Kjallar-
anum hefur verið breytt í hjóla-
skautadiskó, plötusnúður heldur uppi
stuðinu og Roller Derby-félag Íslands
mætir á svæðið. Nemendur Listahá-
skólans hafa sett upp diskókúlur ofl.
Hægt verður að fá lánaða skauta.
Þeir sem eiga hjólaskauta og eru
hættir að nota þá eru hvattir til að
gefa þá og koma með þá í móttökuna
í Ráðhúsið eða í þjónustuverið í Borg-
artúni 12-14. Nú verður gaman!
Endilega…
…farið á hjóla-
skautadiskó
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í fyrra Þá var líka hjólaskautafjör.
Alltaf er nóg að gera í hinu menning-
arlega Sláturhúsi á Egilsstöðum. Í
kvöld kl. 20 verður Litla ljóðahátíðin í
frystiklefanum, en það er upplestrar-
kvöld þar sem fram koma rithöfund-
arnir Einar Már Guðmundsson, Ing-
unn Snædal, Kristín Laufey Jóns-
dóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir og
Sjón. Kynnir kvöldsins er Hrafnkell
Lárusson. Þetta eru sannarlega
skemmtilegir höfundar og næsta víst
að gestir fá sitthvað fyrir sinn snúð.
Myndlistarsýningin „Þetta vilja
börnin sjá“ er opin í Sláturhúsinu
fram til 26. september, en á sýning-
unni eru myndskreytingar í íslensk-
um barna- og unglingabókum sem
gefnar voru út í fyrra.
Fimmtudaginn 26. sept kl. 20 verð-
ur farið yfir helstu atriði sem þarf að
hafa í huga við notkun á hljóðverinu
Græna herberginu í Sláturhúsinu.
Farið verður í grunnatriðin á upp-
tökum í Proo Tools, meðhöndlun á
tækjabúnaði og fleira. Leiðbeinandi
verður Halldór Warén. Frítt inn.
Nánari upplýsingar á vefsíðunni
www.slaturhusid.is.
Litla ljóðahátíðin í frystiklefanum í Sláturhúsinu
Ingunn Snædal, Sigurbjörg
Þrastardóttir og fleiri lesa ljóð
Morgunblaðið/Kristinn
Skáldkona Ingunn Snædal er afbragðs ljóðskáld og skemmtileg í alla staði.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Handverksbakarí
fyrir sælkera
MOSFELLSBAKARÍ
Daglega er bakað bakkelsi
sem fá bragðlaukana til að
kætast.
Hjá okkur er hægt að fá þetta
gamla og góða og einnig
eitthvað nýtt og spennandi.
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is