Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Jafnræði fyrir lögunum er efst áblaði á fyrstu síðu bókarinnar sem fjalla mundi um hvort lesand- inn byggi í réttarríki.    En Viðskipta-blaðið upp- lýsir: „Fjármála- og efnahagsráðuneytið neitar að veita upp- lýsingar um það hvernig útidyra- hurðir Seðlabank- ans og í Fossvogs- kirkju voru flokkaðar og hvaða tollur var lagður á þær.“    Í frétt blaðsins segir að LeifurBreiðfjörð hafi stefnt ráðuneyt- inu og vilji vita hvort bronshurðir sem hann gerði fyrir Hallgríms- kirkju árið 2010 séu listaverk eða smíðavörur í skilningi tollalaga. Lögmaður Leifs telur niðurstöðu málsins geta haft áhrif á túlkun tollalaga og hvar vörur eru flokk- aðar samkvæmt þeim. Smíðavörur bera samkvæmt skilgreiningu tolla- laga 25,5% virðisaukaskatt. Enginn skattur er hins vegar lagður á lista- verk.    Söfnuðurinn safnaði í 14 ár fyrirkirkjuhurðunum, þar af vænt- anlega í þrjú og hálft ár fyrir virð- isaukaskattinum. Hurðirnar voru smíðaðar í Þýskalandi og eru þær engin smásmíði; hvor þeirra vó um átta hundruð kíló og þurfti krana til að koma þeim á sinn stað. Hurðirnar í Seðlabankanum og Fossvogskirkju eru mikil listasmíði eins og hurðirnar í Hallgrímskirkju. Lögmaður Leifs telur að hurðirnar hafi verið tollafgreiddar sem lista- verk og því án virðisaukaskatts.    Fjármálaráðuneytið neitar aðsvara. Leifur kemur þar að lokuðum dyrum, með eða án virð- isaukaskatts. Dyr Hallgríms- kirkju. Leyndarhyggja lokar dyrum STAKSTEINAR Veður víða um heim 19.9., kl. 18.00 Reykjavík 6 rigning Bolungarvík 6 rigning Akureyri 6 rigning Nuuk 10 skýjað Þórshöfn 8 alskýjað Ósló 12 léttskýjað Kaupmannahöfn 16 léttskýjað Stokkhólmur 12 léttskýjað Helsinki 16 skýjað Lúxemborg 12 skýjað Brussel 13 léttskýjað Dublin 16 skýjað Glasgow 12 alskýjað London 16 skýjað París 16 skýjað Amsterdam 13 skýjað Hamborg 15 léttskýjað Berlín 12 léttskýjað Vín 15 skýjað Moskva 13 heiðskírt Algarve 22 léttskýjað Madríd 30 heiðskírt Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 26 heiðskírt Winnipeg 16 alskýjað Montreal 17 léttskýjað New York 22 heiðskírt Chicago 22 alskýjað Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:06 19:37 ÍSAFJÖRÐUR 7:10 19:43 SIGLUFJÖRÐUR 6:53 19:26 DJÚPIVOGUR 6:36 19:07 Kl. 12–13 föstudaginn 20. september í stofu 101 í Lögbergi í Háskóla Íslands. Matthew Elliott segir frá baráttu breskra skattgreiðenda gegn ágengum og ágjörnum stjórnvöldum. Elliott stofnaði skattgreiðendasamtökin 2004. Þau berjast fyrir lægri sköttum og betri nýtingu almannafjár. Elliott hefur gefið út nokkrar bækur, þar sem komið er upp um sóun í opin- berum rekstri, jafnt hjá breska ríkinu og Evrópusambandinu. Elliott stofnaði líka grasrótarsamtökin Gætum Stóra bróður (Big Brother Watch) árið 2011, en þau standa vörð um rétt- indi og frelsi einstaklinga gagnvart ríkisvaldinu. Elliott er talinn einn áhrifamesti stjórnmálaráðgjafi og skipu- leggjandi grasrótarsamtaka í Bretlandi. Varnarbarátta skattgreiðenda Samtök skattgreiðenda á Íslandi, RNH, Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt, og AECR, Evrópusamtök íhaldsmanna og umbótasinna. Bændur á Jökuldal og Fljótsdal hafa verið að finna kindur sem fennt hefur í kaf og drepist í óveðrinu sem gekk yfir í byrjun vikunnar. Ekki er búið að finna margar dauðar og bændur segja erfitt að átta sig á hversu margt hafi drepist. Eyjólfur Ingvason, bóndi á Melum í Fljótsdal, segir að fjórar ær hafi fund- ist dauðar á þriðjudaginn í svoköll- uðum Rana milli Jökulsár á Dal og Ey- vindarár. „Þær voru í bleytu og hafa kannski orðið undir í troðningi. Lömb- in stóðu ofan á þeim, en þau voru lif- andi. Við fundum síðan 14 kindur lif- andi sem við grófum úr fönn.“ Eyjólfur sagði í samtali við mbl.is í gær að klár- að yrði að smala svæðið í dag. Bóndinn á Skjöldólfsstöðum á Jök- uldal hafði í gærdag fundið eina dauða kind og grafið tvær lifandi upp. Hann segir snjóinn mikinn og fjöldi kinda gæti leynst í grafningum og lækjum. egol@mbl.is Bændur finna kindur sem fennt hafa í kaf Sauðfé Óttast er að fleiri kindur eigi eftir að finnast dauðar undir snjó. Eignir sem Íbúðalánasjóður hefur tekið yfir eru nú 2.575 tals- ins, samkvæmt skýrslu sjóðsins fyrir ágúst. Tæp- ur helmingur þeirra eigna er þegar í útleigu eða um 1.195. Þær 1.300 íbúðir sem ekki eru í útleigu eru í mjög mis- jöfnu ástandi, frá því að vera vart fokheldar til þess að þarfnast nokk- urra lagfæringa, segir í skýrslunni. Íbúðalánasjóður setur að hámarki 1,5 milljónir króna í viðgerðir og frágang á íbúð til þess að gera hana leiguhæfa. Um 130 eignir í eigu sjóðsins falla í þann flokk, segir í frétt um málið á mbl.is. Viðgerðum og standsetningu er hraðað eftir megni og mun taka um átta vikur að gera íbúðirnar allar til- búnar fyrir leigumarkað. Í nóv- ember er því áætlað að allar leigu- hæfar íbúðir Íbúðalánasjóðs verði komnar í leigu eða boðnar á leigu- markaði. „Kosti standsetning fyrir leigu meira en 1,5 milljónir kr. fer viðkomandi eign í söluferli. Slíkar eignir eru yfir þúsund talsins og er stefnt að því að þær verði tilbúnar í sölu fyrir áramót. Markaðsaðstæður á mismunandi stöðum geta þó að sjálfsögðu haft áhrif á það hversu hratt eignir eru settar í sölu,“ segir enn fremur í skýrslunni. Íbúðalánasjóður hefur tekið yfir 2.575 eignir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.