Morgunblaðið - 20.09.2013, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
FRÉTTASKÝRING
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Framlag ríkisins til Landhelgisgæslu
Íslands hefur ekki haldist í hendur
við aukin heildarútgjöld hennar síð-
ustu ár. Heildarútgjöld Landhelg-
isgæslunnar hafa aukist um tæpar
þrjú þúsund milljónir á fimm ára
tímabili, eða 2.752 milljónir, milli ár-
anna 2008 til 2012. Þetta kemur fram
í ársskýrslu Landhelgisgæslunnar.
Mestu breytingarnar eru að hlut-
fall reksturs flugdeildarinnar hefur
farið vaxandi undanfarin ár. Þessi
aukning hefur bein áhrif á siglingar
varðskipanna sem dregið hefur verið
úr í kjölfarið. Þetta kemur fram í fyr-
irspurn Morgunblaðsins til Land-
helgisgæslunnar.
Árið 2012 námu heildarútgjöld
Landhelgisæslunnar 5.622 milljónum
króna en framlag ríkissjóðs var þá
3.685 milljónir króna, eða 65% af
heildarútgjöldum. Í lok ársins var
uppsöfnuð staða neikvæð um 55
milljónir króna. Þrátt fyrir tekjur af
verkefnum erlendis.
Hins vegar árið 2009 héldust heild-
arútgjöld og framlag ríkisins í hend-
ur. Greiðsla úr ríkissjóði nam 90% af
heildarkostnaði Landhelgisgæsl-
unnar. Það ár var uppsöfnuð staða í
lok ársins jákvæð um 125 milljónir
króna.
Miklar breytingar 2011
Árið 2011 var tími mikilla breyt-
inga hjá Landhelgisgæslunni. Þá
kom varðskipið Þór nýtt inn í skipa-
flotann. Þá sameinaðist einnig Varn-
armálastofnun Landhelgisgæslunni
sem þýddi að tilheyrandi verkefni
voru komin á borð Landhelgisgæsl-
unnar. Til að mynda bættist við nýr
liður; loftrýmiseftirlit sem var það ár
21% af rekstrartekjunum, eða 741
milljón króna. Sá liður var mun hærri
en rekstur varðskipanna sem nam
300 milljónum, eða 9%. Það ár var
framlag ríkissjóðs aukið um 600
milljónir króna milli áranna 2010-
2011. Árið 2011 var uppsöfnuð staða í
lok árs jákvæð um 419 milljónir.
Flugrekstur kostnaðarsamur
Flugrekstrarkostnaðurinn hefur
aukist milli ára. Árið 2009 var hann
1.659 milljónir króna, eða 63% af
heildarkostnaði þegar litið er til
skiptingar kostnaðar milli deilda inn-
an Landhelgisgæslunnar. Til sam-
anburðar nam kostnaðurinn árið
2012 2.347 milljónum króna sem þá
var 56% af kostnaði. Breytingin sést
einnig ef litið er til allra flugtíma
loftfara frá árunum 2008 til 2011 þá
hefur þeim fjölgað um 639 tíma. Árið
2008 voru þeir 1.163 en voru komnir
upp í 1.802 tíma árið 2011.
Tekjur Landhelgisgæslunnar
Stofnunin hefur frá árinu 2010
sinnt verkefnum erlendis m.a. fyrir
landamærastofnun Evrópu og Evr-
ópusambandið. Hefur það verið gert
í því skyni að afla tekna til reksturs-
ins. Heildartekjur árið 2011 voru
1.528 milljónir króna, þar af 1.236
vegna erlendra verkefna. Heildar-
tekjur árið 2012 voru öllu minni eða
námu 1.459 milljónum króna, þar af
1024 vegna erlendra verkefna. Upp-
safnaður tekjuafgangur var að fullu
notaður á árinu 2012. Ekki náðist í
Georg Lárusson forstjóra Landhelg-
isgæslunnar við vinnslu fréttarinn-
ar.
Kostnaður umfram framlag
Hlutfall reksturs flugdeildar Landhelgisgæslunnar hefur aukist mikið síðustu ár Hefur komið
niður á siglingu varðskipa Heildarútgjöld aukist um tæpar þrjú þúsund milljónir frá 2008 til 2012
Landhelgisgæsla Íslands
Rekstrartölur
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
-1.000
Heildarútgjöld Framlag ríkissjóðs Uppsöfnuð staða í lok árs
Tölurnar eru í m.kr.
2008 2009 2010 2011 2012
2.
87
0
2.
86
8 3.
59
2
4.
98
6 5.
62
2
2.
60
4
2.
90
4
2.
83
5
3.
40
2
3.
68
5
-1
55
12
5 36
9
41
9
-5
5
Skipting kostnaðar eftir deildum
*2011 fluttist loftrýmiseftirlit til Landhelgisgæslunnar vegna sameiningar við Varnamálastofnun.
Varðskiparekstur
Flugrekstur
Stjórnstöð,
sprengisveit
Sjómælingar
Annar rekstur
*Loftrýmiseftirlit
2009 2010 2011 2012
21% 18%
9% 16%
63% 66%
56%
56%
6% 7%
6%
6%
2% 2%
2%
2%
8% 8%
6%
2%
Ýmsar tölur úr rekstrinum
*Árið 2011 fjölgaði þeim vegna verkefna fyrrumVarnarmálastofnunnar. Einnig var fjölgun í áhöfnum varðskipa
vegna erlendra verkefna, alls 11 ársverk, úr 45 í 56.
2008 2009 2010 2011
Ársverk* 159 146 149 205
Úthaldsdagar varðskipa 533 393 587 576
Útköll flugdeildar 150 136 188 155
Flugtímar þyrlu 933 900 847 995
Flugtímar flugvél 230 310 818 807
Samtals flugtímar loftfara 1.163 1.210 1.665 1.802
Þegar skoðað er meðaltal útkalla
flugdeildar Landhelgisgæslunnar
fyrstu átta mánuði þessa árs og
síðastliðin tíu ár; frá ágúst 2003-
2013, og fjöldi þeirra borinn saman
kemur í ljós 40% aukning útkalla.
Þetta kemur fram á vef Landhelg-
isgæslunnar.
Þá hefur útköllum hjá þyrlum
einnig fjölgað ört síðastliðin ár, og
sýna niðurstöður fyrir fyrstu átta
mánuði ársins fjölgun um 28% frá
sama tímabili í fyrra. Fjölgunin er
rakin til aukinnar ferðamennsku
og fjölgunar ferðamanna til lands-
ins.
Erlendum einstaklingum sem
fluttir eru með þyrlu fjölgar
110 einstaklingum var bjargað/
fluttir með þyrlu árið 2012, þar af
voru 38 einstaklingar erlendir eða
35%. Árið áður voru útköllin 102,
þar af 26% erlend. Verkefnin í út-
köllum árið 2012 skiptast eftirfar-
andi: 53% sjúkraflug, 33% leit og
björgun, 8% önnur verkefni. Á
sama tíma hefur úthaldsdögum
varðskipanna fækkað til muna. Ár-
ið 2012 voru öll varðskip flotans
samtals 465 daga á sjó. Árið 2008
voru dagarnir 533.
Í ársskýrslu Landhelgisgæsl-
unnar fyrir árið 2011 kom fram að
þá þegar stefndi í að úthald varð-
skipanna yrði minna vegna niður-
skurðar. „Vegna síendurtekins nið-
urskurðar fjárveitinga stefnir í enn
meiri samdrátt í rekstri LHG með
minna úthaldi varðskipa og erf-
iðari rekstrarstöðu þyrlubjörgunar
og alls annars reksturs.“
Sú varð raunin en það sem af er
ári 2013 hefur varðskipið Þór verið
í 80 daga á sjó, til samanburðar við
125 daga allt árið 2012. Samtals
hafa úthaldsdagar varðskipa það
sem af er ári verið 190. Allt síðasta
ár voru dagarnir 304.
Varðskipin eru nú á tveimur
stöðum; Reykjavík og á norðaust-
urhorni landsins, til að geta fyrr
brugðist við áföllum á þeim hluta
hafsvæðisins.
Ljósmynd/Eyjafréttir
Varðskipið Þór Í ársskýrslu LHG fyrir árið 2011 kom þá þegar fram að það
stefndi í að úthald varðskipanna yrði minna vegna niðurskurðar. Sú varð
raunin, Þór hefur verið 80 daga á sjó það sem af er ári.
Útköll flugdeildar aukist
um 40% á tíu ára tímabili
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á flugi Útköllum þyrlu hefur fjölg-
að sem og útköllum flugdeildar.
Hæstiréttur stað-
fest í gær fimm
mánaða fangelsi
yfir karlmanni á
þrítugsaldri sem
sakfelldur var
fyrir að kasta
bjórglasi í annan
mann á öldurhúsi
í miðborg
Reykjavíkur árið 2010. Maðurinn
var með óflekkað sakavottorð og
rannsókn málsins dróst og þótti því
rétt að skilorðsbinda refsinguna.
Glasið brotnaði með þeim afleið-
ingum að maðurinn sem fékk það í
andlitið hlaut skurð á vinstri auga-
brún, vinstra megin á nefi og efri
vör, sár á vinstri kinn og á hvirfli.
Var árásarmanninum gert að
greiða fórnarlambinu 300 þúsund
krónur í miskabætur.
Maðurinn játaði að hafa kastað
bjórglasinu en sagði að um ósjálf-
ráð varnarviðbrögð vegna yfirvof-
andi árásar hefði verið að ræða.
Dæmdur fyrir að
kasta bjórglasi í
annan mann
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Garðsláttur
Láttu okkur sjá um
sláttinn í sumar