Morgunblaðið - 20.09.2013, Page 18

Morgunblaðið - 20.09.2013, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Borgarráð Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í gær að úthluta Há- skóla Íslands lóð við Sæmundargötu 15-19 vegna Vísindagarða. Alþjóð- lega lyfjafyrirtækið Alvogen fyrir- hugar að reisa um ellefu þúsund fer- metra byggingu á lóðinni, sem er um 7.000 fermetrar. Þar verður starfrækt Hátæknisetur í samvinnu við Vísindagarða Háskóla Íslands. Alvogen hyggst hefja fram- kvæmdir við Hátæknisetrið fyrir lok þessa árs, en um 6 milljarðar króna verða lagðir í byggingu húss- ins og stefnt er að því að henni ljúki innan tveggja ára. Fjármögnun hússins er unnin í samstarfi við inn- lenda og erlenda aðila. Um 19 millj- arðar króna verða svo lagðir í rann- sóknarstarf og þróun á samheitalyfjum. Heildarfjárfesting Alvogen vegna verkefnisins verður því samtals um 25 milljarðar króna. Hátæknisetrið mun hýsa alþjóð- legar skrifstofur Alvogen, auk þess sem þar mun fara fram þróun og framleiðsla samheitaútgáfu líftækni- lyfja sem eru nú þegar á markaði og verða markaðssett þegar einkaleyfi þeirra renna út. Þá munu um 200 ný störf verða til á næstu tveimur ár- um vegna setursins og er gert ráð fyrir því að þau muni að meginhluta fara til langskólagenginna Íslend- inga. Ísland ákjósanlegur staður Dr. Fjalar Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri tækni- og gæðasviðs Alvogen, mun stýra hönnun og upp- byggingu setursins. Hann segir Ís- land vera ákjósanlegan stað fyrir lyfjaþróun þar sem einkaleyfaum- hverfið hérlendis geri fyrirtækjum kleift að hefja þróun og framleiðslu lyfja áður en einkaleyfi þeirra renn- ur út. „Þetta skapar ákveðið sam- keppnisforskot fyrir Alvogen á heimsvísu. Við sjáum því mikil tæki- færi á þessu sviði,“ segir Fjalar. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, fagnaði ákvörðun ráðs- ins og sagði þetta vera tímamóta- mál. „Í fyrsta lagi hefur Reykjavík orðið ofan á í alþjóðlegri samkeppni um að ná þessari mikilvægu starf- semi og fjárfestingu til sín,“ segir Dagur og bætti við að það sýndi hvað hægt væri að gera með nánu samstarfi borgarinnar við há- skólana. „Í öðru lagi er þetta stærsta beina fjárfesting á Íslandi frá hruni,“ segir Dagur. Þá sé þetta upphafið að uppbyggingu Vísinda- garða Háskóla Íslands í Vatnsmýri. „Öll þessi atriði eru í fullkomnu samræmi við nýja atvinnustefnu borgarinnar,“ segir Dagur að lok- um. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há- skóla Íslands, segir verkefnið vera mikla lyftistöng fyrir Háskólann, sem geti hagnýtt gríðarlega þekk- ingu sem hafi byggst upp í áratuga kennslu- og rannsóknarstarfi. 25 milljarða fjárfesting  Lyfjafyrirtækið Alvogen hyggst reisa Hátæknisetur í sam- ráði við Háskóla Íslands  200 ný störf munu skapast Ljósmynd/Alvogen Milljarða fjárfesting Svona er ráðgert að anddyri Hátæknisetursins líti út þegar húsið er fullbyggt. Setrið mun rísa við Sæmundargötu 15-19 og hýsa rannsóknastarf og þróun á samheitaútgáfu svonefndra líftæknilyfja. Hátæknisetur » Uppbygging á aðstöðu mun kosta um 6 milljarða króna. » Að auki verða 19 milljarðar lagðir í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjum. » Heildarfjárfesting Alvogen verður því 25 milljarðar króna. » Áætlað er að um 200 ný störf verði til vegna verkefn- isins á næstu tveimur árum. Frásagnir minninganna með Þór- arni Eldjárn. „Það komu um 80 manns og það var mjög gaman að koma saman, fá sér kaffi og kleinur og sjá sýninguna,“ segir Halldóra Arnardóttir, verkefnisstjóri smiðj- unnar. „Það voru allir ánægðir og ef maður nær fram brosi þá er markmiðinu náð.“ Opnuð var sýning sem gefur yfirlit yfir afrakstur fyrstu smiðjunnar á Íslandi innan verkefnisins Listir og menning sem meðferð við Alzheim- ers-sjúkdómnum. Á sýningunni má sjá afrakstur samstarfs myndlistar- nema og sjúklinga með Alzheimers- sjúkdóminn. Við sama tækifæri var einnig fagnað útgáfu bókarinnar Morgunblaðið/Rósa Braga Samkoma Hér afhendir Halldóra Arnardóttir Þórarni Eldjárn blóm, bók og kaffibolla að gjöf. Kaffibollinn táknar það að tala saman og vera vinir. Listir og menning sem meðferð við Alzheimer María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur séð tilefni til þess að benda ISAVIA á það að þeir endurskoði verklagsreglu varðandi slátt á gras- flugbrautum. Þessi ábending kemur í kjölfar flugslyss sem varð á Hellu- flugvelli þann 3. september 2011 en lokaskýrsla um flugslysið er nýkomin út. Þá hugðist flugmaður snertilenda á flugvél með einn farþega. Eftir snertilendinguna náði flugvélin ekki upp nægilegum hraða fyrir flugtakið. Flugvélin rann fram af brautarenda, nefhjól grófst í mjúkan jarðveg og flugvélin steyptist fram yfir sig. Verklag tekið til athugunar Friðþór Eydal, talsmaður ISAVIA, segir það eðlilegt verklag að lagfæra það sem nefndin telur að betur megi fara. „ISAVIA starfar alfarið eftir reglum Samgöngustofu. Ef einhvers staðar er pottur brotinn þá er það tekið til alvarlegrar athugunar og það að sjálfsögðu lagfært,“ segir Friðþór. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar kemur meðal annars fram að hún telji að flugmanni hafi mistekist að fram- kvæma mjúkbrautarsnertilendingu með þeim afleiðingum að flugvélin missti niður meiri hraða en æskilegt var. Meðverkandi þættir voru að grasið á flugbrautinni á Hellu var blautt, grasið yfir hæðarmörkum, flugvélin þung og snertilendingin framkvæmd í meðvindi. Við rannsókn kom í ljós að gras mældist 12-14 sm hátt en almennt er miðað við að það sé ekki hærra en 7 sm. Gras yfir hæðarmörkum  Verklag tekið til athugunar í kjölfar flugslyss www.myndasafn.is Hella Flugslys varð á Helluflugvelli í september 2011. Snertilending mis- tókst auk þess sem grasið var talið yfir hæðarmörkum eða um 12-14 sm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.