Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 21

Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 21
Hofsós er þorp við austanverðan Skagafjörð og er hluti sveitar- félagsins Skagafjarðar. Á Hofsósi er gott skipalægi frá náttúr- unnar hendi og voru fiskveiðar og vinnsla aflans lengst af aðalatvinnuvegir. Síðustu árin hefur þjónusta við ferðamenn færst í aukana. Á Hofsósi eru nú tæplega 200 íbúar. Einn elsti versl- unarstaður landsinsLjósmynd/MatsWibe Lund MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Hofsós Meginstarfsemi Vesturfarasetursins er í Gamla kaupfélagshúsinu sem er lengst til vinstri. Fjær eru nýjar byggingar, Frændgarður og Nýja konungsverslunarhúsið. Starfsemin eflist og bætt er við húsakostinn. Frændgarð sem tekið var í notkun árið 2000 og Nýja konungs- verslunarhúsið árið 2002. Áherslu- verkefnið núna snýst um að skoða sögu Íslendinganna sem fóru til Brasilíu um 1873 og fyrirhugað er að saga þessi verði sögð á nýrri sýningu setursins á næsta ári. Verkefnið er unnið í samstarfi við Sigurstein Másson en hann vinnur um þessar mundir að gerð heimild- armyndar um málefnið sem verður frumsýnd innan tíðar í Brasilíu,“ segir Valgeir. Ræðismaður og bækur Í tímans rás hefur tengslum milli Íslendinga og frændfólks okkar vestra verið misvel sinnt. Starfið efldist um aldamót, t.d. með opnun Vesturfarasetursins og þegar afmælis landafunda var minnst. Þá var einnig sett á lagg- irnar skrifstofa íslensks aðalræð- ismanns í Winnipeg sem virkaði sem vítamínsprauta á samskiptin. Bækur Guðjóns Arngrímssonar og Böðvars Guðmundssonar um vest- urferðirnar höfðu einnig áhrif og sköpuðu áhuga. „Margir gesta okkar að vestan gera boð á undan sér og segja til sín. Þegar þeir koma hingað erum við þá gjarnan búin að finna út ættartengslin og hvar slóðir fólks- ins eru. Við stöndum fyrir þessari starfsemi svo lengi sem áhuginn endist og frændsemin lifir,“ segir Valgeir. voru Möðruvellir veraldlegur höfuðstaður Norður- lands og Hólar höfuðból kirkjunnar. Voru löngum gagnvegir milli þessara staða. „Ég finn vel fyrir því að Skagfirðingar horfa heim til Hóla með virðingu, bæði með tilliti til sögunnar og þess starfs sem hér er unnið,“ segir Solveig Lára og bætir við að milli biskupsstólsins, Háskólans á Hólum og Há- skóla Íslands sé margvíslegt samstarf. Megi þar nefna Guðbrandsstofnun sem nefnd er eftir Guðbrandi Þor- lákssyni biskupi, en markmið hennar er að efla og styðja t.d. guðfræði, sögu, bókmenntir, listir og ýmsar raungreinar á sviði Hólaskóla þar sem megináherslan er lögð á landbúnaðargreinar eins og fiskeldi, hesta- mennsku og ferðaþjónustu. Fólk í fórnfúsu starfi Hólastifti, eins og starfssvæði vígslubiskups er kall- að, nær frá Hrútafirði suður fyrir Djúpavog. Á þessu svæði eru rúmlega 100 kirkjur og sóknir og þunginn í starfi Hólabiskups er að styðja við það kirkjustarf sem unnið er á þessu svæði, það er í samstarfi við fólkið úti á akrinum. „Síðasta árið hef ég farið um nánast allt stiftið, heimsótt margar kirkjur og rætt við fólk. Það hefur verið mjög lærdómsríkt að kynnast viðhorfum þessa fólks og því fórnfúsa og góða starfi sem unnið er á vettvangi kirkjunnar,“ segir Solveig Lára. sbs@mbl.is Sigríður Björnsdóttir dýralækn- ir fylgist grannt með sjúkdómum í íslenska hestinum. Hún starfar fyrir Matvælastofnun en er með aðsetur á Hólum. „Hólar eru góður staður til að sinna þessu starfi, enda hefur hér verið byggt upp mikið þekkingarsetur um hestinn,“ segir Sigríður. Löng hefð er fyrir hrossarækt í Skagafirði og áhugi fyrir því faglega starfi sem unnið er á Hólum. „Hrossaræktendur, og raunar fleiri hér í nærsamfélag- inu, hafa lagt mér ómetanlegt lið í rannsóknarverkefnum sem þar með hafa orðið öflugri en ella.“ Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn smitsjúkdómum eru sífellt í gangi. Íslenski hrossastofninn er landfræðilega einangraður sem gerir hrossin afar móttækileg fyrir smitsjúkdómum sem kunna að berast til landsins. Því er mik- ilvægt að viðbragðsáætlanir, þekking og reynsla sé til staðar ef smitsjúkdómar láta á sér kræla og Sigríður stendur vakt- ina fyrir íslenska hestinn á Hól- um. vilhjalmur@mbl.is Heilbrigði og velferð hrossastofnsins í forgrunni Ljósmynd/Kristín Sigurrós Einarsdóttir Dýralæknir Sigríður segir íslenska hestinn viðkvæman fyrir smiti. Stendur vörð um íslenska hestinn Vesturfarasetrið og starfsemi þess hefur vakið áhuga margra á burtflutn- ingi Íslendinga til annarra landa. Eitthvað nálægt 300 Íslendingar flutt- ust til dæmis til Ástralíu frá 1967 til 1970 og settust þar að, en stjórnvöld þar vestra voru á þeim tíma áfram um að fá innflytjendur til landsins – rétt eins og Kanadamenn einni öld fyrr. Um 1970 fluttu margir til Málm- eyjar í Svíþjóð, einkum iðnaðarmenn og fjölskyldur þeirra og allmargir úr þeim hópi sneru ekki til baka. Þá má nefna að fyrst eftir hrunið árið 2008 fluttust þúsundir Íslendinga til Noregs – og hafa ekki heimferð í hyggju að því er fréttir fjölmiðla herma. „Þetta eru mál sem væri sannarlega verðugt að gera skil. Hins vegar eru þessi mál kannski of nærri okkur í tíma til að þau séu saga eða efni í sýningu. En sá tími kemur áður en langt um líður og mikilvægt að fara að búa í haginn með söfnun heimilda og öðru slíku,“ segir Valgeir Þorvalds- son. sbs@mbl.is Sagan sem vert er að segja MARGIR ÍSLENDINGAR HAFA FLUTT UTAN Staðarprýði Vesturfarasetrið setur sterkan svip á þorpið.  Næst verður komið við á Sauðárkróki á 100 daga hringferð Morgunblaðsins. Á morgun Alls 78 manns eiga lögheimili á Hólum í Hjaltadal. „Ríðum heim til Hóla,“ segir í kvæði Guðmundar skólaskálds sem hvert barn lærði forðum daga og ræður miklu um að velflestir þekkja til staðarins. Að fara heim til Hóla er málvenja fyrir norðan sem end- urspeglar að þetta er stór staður. Af mörgum þekktum biskupum á Hólum eru stærstu nöfnin líklega Guðbrandur Þorláksson sem sat staðinn um 1600 og lét þýða og prenta biblíuna frægu, á undan honum var Jón Arason, síðasti kaþ- ólski biskupinn á Hólum. Starfsemi bændaskóla á Hólum hófst árið 1881. Öld síðar hafði hún nánast lagst af, en þá var blásið til sóknar og án þess að á aðra sé hallað var Jón Bjarnason, þá skólastjóri og seinna ráðherra, pott- urinn og pannan í málinu. Árið 2003 var starfsemi skólans færð á háskólastig. Biblíu-Guðbrandur og Jónarnir eru tveir HÓLAR ERU STÓR STAÐUR Hofsós er einkar fallegt og vinalegt þorp við austanverðan Skagafjörð. Hofsós er einn elsti verslunarstaður landsins og mörg gömul og falleg hús sem setja svip sinn á staðinn. Íbúar Hofsóss hafa lengst af byggt afkomu sína á sjávarútvegi en á síðustu árum hefur ferðaþjónusta skipað sífellt stærri sess í atvinnulífinu enda margt athyglisvert að sjá og upplifa á staðnum. Má þar nefna Vestur- farasetrið, Staðarbjargarvík og glæsilega sundlaug sem var gjöf frá athafnakonunum Lilju Pálmadóttur og Steinunni Jónsdóttur. Á Hofsósi er eina fyrirtækið á landinu sem framleiðir saumaða íslenska fána og auk þess eina fyrirtækið á landinu sem framleiðir pústkerfi í bíla. Á Hofsósi og nágrenni er gott mannlíf, mikil náttúrufegurð, fjölbreytt þjónusta og lausar byggingalóðir fyrir fyrirtæki og einstaklinga. www.skagafjordur.is Velkomin í Skagafjörð!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.