Morgunblaðið - 20.09.2013, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
ný barnafatalína frá Lín Design
Lín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri www.lindesign.is
25%
Stjörnubörn
kynningarafsláttur
Íslensk hönnun unnin úr
100% hágæða bómull
STUTTAR FRÉTTIR
● Heimilum sem eru í vanskilum við
Íbúðalánasjóð hefur fækkað um 10%
það sem af er ári eða um 420 heimili.
Í lok ágúst nam fjárhæð vanskila út-
lána til einstaklinga 4,7 milljörðum
króna og var undirliggjandi lánavirði
81,5 milljarðar króna eða um 12,43%
útlána sjóðsins til einstaklinga. Þetta
samsvarar 0,45% lækkun frá fyrri mán-
uði.
Heimili í vanskilum eru 4.291 og þar
af eru 638 heimili með frystingu á lán-
um sínum. Alls voru 8,59% þeirra heim-
ila sem eru með fasteignalán sín hjá
Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í
lok ágúst 2013. Nánar á mbl.is.
Færri í vanskilum
● Stjórnvöld á Kýpur stefna að því að
aflétta fjármagnshöftum á fyrri hluta
næsta árs að öllu leyti að undanskildum
fjármagnsflutningum til annarra landa.
Þetta er haft eftir Harris Georgiades,
fjármálaráðherra Kýpur, á fréttavef kýp-
verska dagblaðsins Cyprus Mail í gær.
Fjármagnshöftin á Kýpur voru sett á í
mars á þessu ári og voru mun umfangs-
meiri en hér á landi þar sem Kýpverjar
eru ekki með eigin gjaldmiðil heldur
deila evrunni með öðrum ríkjum á evru-
svæðinu. Nánar á mbl.is.
Áfram höft á fjármagns-
flutninga frá Kýpur
Eigi að takast að laða erlenda fjár-
festa til Íslands skiptir sköpum að
tryggja stöðugleika á Íslandi – bæði
pólitískan og efnahagslegan – þannig
að íslensk löggjöf og skattaumhverfi
sé fyrirsjáanlegt. Þetta kom fram í
máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar forsætisráðherra í opnunar-
ávarpi sem hann flutti á fjárfestinga-
ráðstefnu í London í gærmorgun, en
hann lauk máli sínu með þeim skila-
boðum til erlendra fjárfesta að hann
vonaðist til að „sjá ykkur, og pen-
ingana ykkar, á Íslandi“.
Ráðstefnan er haldin af Merger-
market, en samstarfsaðilar eru Ar-
ion banki, Fjárfestingastofa Íslands,
Carbon Recycling og lögfræðistofan
Logos. Um það bil 150 manns sækja
ráðstefnuna.
Sigmundur sagðist telja að Ísland
stæði nú á ákveðnum tímamótum.
Komin væri til valda ríkisstjórn, með
ríflegan meirihluta á Alþingi, sem
hefði skýra sýn um hvernig mætti
auka fjárfestingu á Íslandi. For-
sætisráðherra benti á að sögulega
séð hefðu samstarfsstjórnir Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins staðið sig vel í stjórnun
efnahagsmála; með góðum hagvexti,
lækkun ríkisskulda og stöðugleika í
ríkisfjármálum. Allt væru þetta at-
riði sem skiptu áhugasama erlenda
fjárfesta miklu máli.
Að sögn Sigmundar verður ís-
lenska krónan gjaldmiðill landsins til
fyrirsjáanlegrar framtíðar. Stjórn-
völd hafi trú á íslensku krónunni og
muni gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að skapa þá efnahagslegu
umgjörð sem treystir stoðir gjald-
miðilsins. Forsætisráðherra er sann-
færður um að krónan muni endur-
heimta styrk sinn þegar ýmsar
aðgerðir stjórnvalda sem séu í und-
irbúningi verði að veruleika.
Hluti af þeim aðgerðum er að losa
um fjármagnshöftin. Uppgjör föllnu
bankanna er nauðsynleg forsenda
áður en ráðist er í afnám hafta og
sagði forsætisráðherra að það „svig-
rúm“ sem myndi skapast í þeim að-
gerðum, með samningum við erlenda
kröfuhafa, yrði nýtt að hluta til að
koma til móts við skuldug íslensk
heimili. Sagði forsætisráðherra að
slík niðurstaða væri báðum aðilum í
hag þar sem í kjölfarið yrði hægt að
losa um fjármagnshöft, sem myndi
gagnast bæði lántakendum og kröfu-
höfum. hordur@mbl.is
Tryggja þarf
stöðugleika
Fjárfestar reiða sig á fyrirsjáanleika
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Bjarni Benediktsson, efnahags- og
fjármálaráðherra, segir ríkið verða
að nýta þá fjármuni sem losna við
sölu á eignarhlutum þess í íslensku
viðskiptabönkunum til þess að
draga úr skuldum og greiða upp
íþyngjandi lán. „Ég sé fyrir mér að
sala á eignarhlutum muni fyrst og
fremst gagnast til að bæta skulda-
stöðuna og um leið lækka vaxta-
byrði ríkissjóðs.“ Þá leggur hann
áherslu á að á næstu árum verði
fundnar leiðir til þess að afnema
ábyrgðaryfirlýsingu ríkisins vegna
innistæðna í íslenskum bönkum.
Bjarni var einn ræðumanna á
morgunfundi Landsbankans í
Hörpu í gærmorgun en yfirskrift
fundarins var: Eru íslensk fjár-
málafyrirtæki spennandi fjárfest-
ingarkostur?
Bjarni sagði styttast mjög í að
íslensku fjármálafyrirtækin verði
álitlegur fjárfestingarkostur. Enn
sé þó margt í vinnslu, bæði hjá
hinu opinbera og hjá markaðinum.
„Það er greinilegt að reglur um
eigið fé banka eru í mikilli endur-
skoðun og mætti segja að kröf-
urnar væru nokkuð háar. Það
verður erfiðleikum bundið að ná
góðri ávöxtun á það fé til lengri
tíma litið.“
Gísli Hauksson, framkvæmda-
stjóri GAMMA, tók undir þau orð
en hann benti á mikilvægi þess að
minnka bankana áður en hugað
væri að sölu þeirra. „Eigið fé
þeirra er of mikið.“ Sem dæmi
nefndi hann að hægt væri að
greiða út arð og lækka með þeim
hætti eiginfjárhlutfall bankanna.
Í erindi sínu benti Bjarni jafn-
framt á að kostnaðarhlutföll bank-
anna þyrftu hugsanlega að vera
lægri hér á landi til að vega upp
ókosti hins litla markaðar.
Draga úr þætti ríkisins
Hann sagði að mynda þyrfti
skýra framtíðarsýn varðandi eign-
arhald ríkisins á bönkunum og
taldi hann brýnt að draga nokkuð
úr þætti ríkisins. „Við eigum eftir
að klára þessa umræðu á vettvangi
stjórnmálanna en ég sé það fyrir
mér að ríkið stefni að því að eiga
drjúgan hlut, mögulega stærsta
hlutinn, í Landsbankanum, en að
öðru leyti losni um eignarhaldið
með skráningu á markað. Hvað
varðar aðra eignarhluti ríkisins í
fjármálafyrirtækjum finnst mér
einsýnt að ríkið eigi að losa um það
eignarhald við fyrsta tækifæri.“
„Brettum upp ermar“
Magnús Harðarson, aðstoðarfor-
stjóri Kauphallarinnar, sagði hluta-
bréfamarkaðinn ráða vel við skrán-
ingu Landsbankans á markað. Í
erindi sínu fjallaði hann meðal ann-
ars um hvernig eignarhaldi á nor-
rænum bönkum væri háttað. Benti
hann á að mikilvægustu bankarnir
á Norðurlöndunum væru skráðir í
kauphöll og að traust sé sett á
dreift eignarhald, þar sem ríkið er
ekki áberandi eigandi. Sagði hann
að skráning Landsbankans á mark-
að myndi vera virðisaukandi að-
gerð fyrir eigandann, í þessu tilfelli
ríkið, myndi styrkja verðbréfa-
markaðinn og greiða fyrir fjár-
mögnun atvinnulífsins. „Skilaboð
mín eru einföld: Brettum upp erm-
ar!“
Alvarleg skuldastaða ríkis-
ins kallar á sölu ríkiseigna
Fjármálaráðherra vill finna leiðir til að afnema ríkisábyrgð á bankainnistæðum
Djúpt hugsi Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAMMA, og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Á fundi Lands-
bankans í gær var reynt að leita svara við því hvort íslensk fjármálafyrirtæki væru góður fjárfestingarkostur.
Morgunblaðið/Eggert
Bankarnir of stórir
» Gísli Hauksson, fram-
kvæmdastjóri GAMMA, telur
bankana vera of stóra til að skrá
þá á hlutabréfamarkað í dag.
» Ef bankarnir myndu fara inn
á markaðinn í dag yrðu þeir um
60% af nýjum hlutabréfamark-
aði.
» Vert sé að skoða hvort ekki
sé mögulegt að sérhæfa bank-
ana í meira mæli í stað þess að
þeir sinni allir sömu verkefn-
unum.
» Sérhæfðir bankar gætu frek-
ar höfðað til fjárfesta.
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+,+-01
++2-1
3+-20
3.-23+
+4-42
+0.-45
+-3.01
+43-/2
+2+-05
++,-00
+,+-45
++1-.5
3+-2,0
3.-243
+4-,+/
+0+-3+
+-3.13
+40-+
+2+-1,
3+1-0/55
++,-2+
+,3-0+
++1-04
3+-1/2
3.-150
+4-,1
+0+-/4
+-3+.1
+40-25
+23-35
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á