Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 ✝ Magnús fæddistí Reykjavík 9. mars 1936. Hann lést á líknardeild Landspítalans 7. september 2013. Foreldrar hans voru Helga Har- aldsdóttir, f. 1902 á Hrafnkelsstöðum í Hrunamanna- hreppi, d. 1955, og Einar Kristjánsson, f. 1903 í Langholtsparti í Flóa, d. 1984. Bræður Magnúsar eru Haraldur, f. 1934, d. 2013, kvæntur Margréti Magn- úsdóttur, f. 1940, og Kristinn, f. 1944, kvæntur Hönnu Sigurð- ardóttur, f. 1946. Magnús kvæntist 2. maí 1964 Guðrúnu Þ. Jóhannsdóttur frá Hafnarf., f. 2. maí 1943. For- eldrar: Halldóra Guðjónsdóttir frá Réttarholti í Garði, f. 1909, d. 1996, og Jóhann Vilhjálmsson frá Hafnarf., f. 1907, d. 1980. Synir þeirra eru: 1) Einar Þór, f. 1964, kvæntur Hönnu Sím- onardóttur, f. 1966. Börn: Magn- ús Már, f. 1989, Agnes Eir, f. 1992, Anton Ari, f. 1994, og Pat- rik Elí, f. 1996. 2) Elvar Örn, f. 1968, kvæntur Önnu Maríu skóla lauk Magnús námi við Gagnfræðaskóla verknáms og að því loknu lá leið hans í Sam- vinnuskólann þar sem hann lauk námi 1954. Einkaflugmannspróf tók hann nokkrum árum síðar. Sem unglingur vann hann m.a. hjá bandríska hernum í Keflavík og í búsáhaldaversluninni Bier- ing við Laugaveg. Magnús hóf tvítugur störf á Eignasölunni Reykjavík og starfaði við fast- eignasölu næstu 50 árin. Síðar keypti hann fyrirtækið af stofn- anda þess, tók við rekstrinum og rak allt til ársins 1998 þegar hann seldi það Húsakaupum. Fyrirtækin voru sameinuð og gerður starfssamningur við Magnús til þriggja ára. Árið 1981 útskrifaðist Magnús sem löggilt- ur fasteignasali og tók þátt í stofnun Félags fasteignasala árið 1983. Magnús sat í stjórn félags- ins 1985-1986. Hann var framkvæmdastjóri Félags fast- eignasala 2001-2004. Um árabil var hann í eftirlitsnefnd félags- ins. Magnús var útnefndur heið- ursfélagi félagsins 2012. Magnús lagði stund á útivist og hreyfingu alla tíð. Þegar árin færðust yfir gerðist hann heimsóknarvinur hjá Rauða krossinum. Útför Magnúsar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 20. sept- ember 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Snorradóttur, f. 1971. Börn: Alex- andra, f. 1995, Rúna Maren, f. 2001, og Snorri Hrafn, f. 2007. 3) Agnar Már, f. 1974, kvæntur Berglindi Helgu Sigurþórsdóttur, f. 1974. Börn: Gauti Leon, f. 2002, Egill Dofri, f. 2008, og Lára Kristín, f. 2011. Magnús ólst upp í Reykjavík, fyrst í Sogamýri og síðar á Laug- arnesvegi þar sem hann bjó til fullorðinsára. Eftir fyrstu bú- skaparár Magnúsar og Guðrúnar í Hafnarfirði byggðu þau við Efstaland þar sem fjölskyldan bjó í átta ár. Árið 1976 byggðu þau raðhús við Breiðvang í Hafn- arf. og bjó fjölskyldan þar meðan synirnir luku grunn- og fram- haldsskólagöngu. Hjónin fluttu á Skúlagötu í Reykjavík árið 1997 og hafa búið þar síðan. Magnús og Guðrún byggðu sumarbústað í landi Miðhúsa í Biskupstungum árið 1973 og þar hafa þau varið frítíma sínum við uppbyggingu og skógrækt. Eftir skyldunám í Laugarnes- Gull af manni. Það er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um þig, afi. Þær eru endalausar skemmtilegu minningarnar um þig en þær neikvæðu eru einfaldlega ekki til. Frá því að ég man eftir mér þá vildirðu allt fyrir alla gera og ég man eftir mörgum skemmti- legum helgum sem ég dvaldi hjá þér og ömmu þegar ég var yngri. Hvort sem það var í Hafnarfirði, á Skúlagötu eða í Hreiðri þá var alltaf gaman að koma í heimsókn til ykkar og ég var alltaf spennt- ur fyrir því að fá að koma yfir helgi til ykkar. Hjálpsemi þín og góðmennska hefur ekki minnkað neitt með árunum og það var ómetanlegt að fá hjálp frá þér síðastliðinn vetur þar sem reynsla þín í fasteignabransan- um kom að góðum notum. Þú vildir alltaf gera allt til að hjálpa til, sama hver átti í hlut. Allir minnast þín með bros á vör enda var alltaf gleði í kringum þig. Ég mun alltaf vera þakklátur fyrir stundirnar sem ég átti með þér. Þakka þér fyrir allt, afi. Ég er stoltur af því að fá að bera sama nafn og þú. Magnús Már Einarsson. Minn kæri bróðir, Magnús Einarsson, er fallinn frá eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Í hugann koma myndir frá fjölmörgum samverustund- um okkar Magga á liðnum árum og áratugum, þar sem hann var jafnan fremstur í flokki, fljót- huga og drífandi í öllu. Við vorum þrír bræðurnir, Haraldur elstur (en hann lést í apríl sl.), þá Maggi tveimur ár- um yngri og loks ég örverpið, tíu árum yngri en Haraldur. Ég minnist æsku- og unglingsára okkar á Laugarnesveginum, þar sem við bjuggum lengi þrír ásamt pabba, eftir að móðir okk- ar féll frá. Við bræður nutum mikils frjálsræðis í Laugarnes- inu, með fjöruna og stór óbyggð svæði í nánd við heimilið. Var þar margt brallað með krökk- unum í hverfinu. Frá þessum tíma er mér einkar minnisstætt hve Maggi var alltaf þolinmóður og góður við okkur pollana, mig og leikfélaga mína, alltaf tilbúinn að spjalla eða taka eina skák. Ég naut þess líka að eiga vísan stuðning eldri bræðranna ef eitt- hvað bjátaði á, en við höfum allt- af verið samrýndir. Minnisstæðar eru ferðir sem við bræðurnir fórum þrír saman, ásamt eiginkonum okkar, á hverju sumri í samfellt yfir 20 ár. Þessar ferðir kölluðum við „bræðraferðir“. Þær voru skipu- lagðar tímanlega og jafnan val- inn nýr áfangastaður eða svæði hér innanlands, þar sem við dvöldum í nokkra daga og skoð- uðum það markverðasta. Við hjónin höfum gegnum árin notið fjölmargra góðra stunda með Magga og hans góðu eiginkonu Rúnu, bæði á ferðalögum hér heima og erlendis. Einnig höf- um við átt margar samveru- stundirnar í frábærum bústað þeirra hjóna, „Hreiðri“ í Bisk- upstungum, þar sem þau hafa byggt upp og ræktað af miklum myndarskap. Í starfi sínu sem fasteignasali um áratuga skeið kynntist Maggi fjölda fólks og ávann sér þar traust og tiltrú með störfum sínum og viðmóti. Þannig var al- gengt að menn leituðu til hans aftur og aftur og síðar með börnum sínum og jafnvel barna- börnum, þegar þau uxu úr grasi og hugðu á húsnæðiskaup. Magnús var vinmargur, enda hress og skemmtilegur félagi. Hann var einstaklega hjálpsam- ur og alltaf boðinn og búinn að liðsinna vinum sínum og vanda- mönnum. Hann var alltaf fljótur til og ekki mikið að velta fyrir sér einhverjum vandamálum, heldur gekk strax í þau verkefni sem vinna þurfti. Einstaka sinn- um gat þó hugurinn og kappið hlaupið aðeins með hann, en þá var jafnan stutt í brosið og grín- ið hjá honum. Við hjónin viljum þakka Magga bróður mínum sam- fylgdina og ævilanga vináttu sem aldrei bar skugga á. Minningin um góðan dreng mun lifa. Kristinn Einarsson. Eftir margra áratuga göngu um litríka mannlífsflóru flokk- ast samferðamennirnir með ýmsum hætti. Sumir koma og fara áhrifalítið og tilfinninga- laust, aðrir verða málkunnugir og kunningjar. Örfáir verða vin- ir og skipta miklu máli. Magnús Einarsson hitti ég fyrst fyrir um 60 árum. Hann var traustasti og ærlegasti maður sem ég hef kynnst. Hann var einn af mín- um bestu vinum. Magnús menntaðist í Sam- vinnuskólanum, þar sem Jónas frá Hriflu var í uppáhaldi sem kennari. Eftir ýmis almenn störf tók hann til við fasteigna- sölu, síðar löggiltur og gegndi mörgum ábyrgðarstörfum fyrir stétt sína. Hann var fasteigna- sali á sjötta áratug; kunnur og virtur fyrir heiðarleika og þekk- ingu í sinni starfsgrein. Hvorki blettur né hrukka féll á starf hans og æru. Vinum sín- um var hann einstök hjálpar- hella; ávallt reiðubúinn að að- stoða og veita góð ráð. Hann var vinur vina sinna og brást aldrei. Mannkostir hans voru dæmafáir. Magnús var lánsamur í einka- lífinu. Hann kvæntist Guðrúnu Jóhannsdóttur og eignuðust þau þrjá syni sem allir hafa spjarað sig vel. Hjónaband þeirra, sem stóð í tæpa hálfa öld, einkenndist af ást og trausti. Þau voru sam- stiga í verkum sínum og í fjöl- skyldunni allri ríkti kærleiksrík- ur einhugur og samstaða. Hér er ekkert ofsagt. Fjölskyldur okkar bjuggu hlið við hlið í nokkur ár, og í marga áratugi hittist hópur vina og fé- laga hvern föstudag í hádegis- mat. Þar áttum við dýrmætar stundir sem urðu stöðugt mik- ilvægari. Nú eru tveir úr hópn- um látnir. Magnús greindist með krabbamein, sem hann tókst á við af miklu æðruleysi, en vissi sem var, að enginn vinnur sitt dauðastríð. Í erfiðum veikindum veitti Guðrún manni sínum aðdáunar- verðan stuðning og styrk, sem létti langa og erfiða baráttu. Þar var ekki hvikað frá loforði, sem gefið var í upphafi hjónabands. Lífi þessa góða drengs er nú lokið. Minning um atorkumann, ljúfan félaga og vin mun lengi lifa skýr og vel varðveitt í huga samferðamanna. Ég og fjöl- skylda mín þökkum honum allar samverustundirnar og vináttuna sem var svo dýrmæt. Guðrúnu og fjölskyldunni flytjum við okk- ar dýpstu og innilegustu sam- úðarkveðjur. Árni Gunnarsson. Föstudagar. Okkur föstudagsfélögum Magga verður föstudagurinn 19. júlí 2013 minnisstæður. Þann dag snæddi Maggi síðasta há- degisverðinn með okkur. Við vissum hvert stefndi því tveimur árum áður greindist hann með erfitt krabbamein. Maggi lét sjúkdóminn ekki buga sig og eins og ávallt var hann æðru- leysið uppmálað. Við félagarnir munum líka vel eftir fyrsta föstudeginum sem við snæddum saman. Við vorum allir skriðnir yfir fyrstu 40 árin og Gunnar Thoroddsen var for- sætisráðherra. Peningaseðlarnir voru glænýir og að nafninu til var króna hundrað sinnum verð- mætari en fyrir áramótin á und- an. Hjörleifur upplýsti „um hækkun í hafi“ og Davíð bar sig- urorð af Markúsi Erni og Alberti í prófkjöri og var kosinn borg- arstjóri árið eftir. Nafnið Gerva- soni var á allra vörum. Maggi var lífsglaður ungur maður með ævintýraþrá og „til í allt nema sjálfsmorð“ eins og hann sagði oft. Og ævintýrin leyndust á hverju götuhorni og bak við hvern hól. Miðað við sög- urnar sem Maggi sagði af sínum yngri árum og skólagöngu þá var ekki sjálfgefið að hann þroskaðist í þennan mannkosta- mann sem hann var. Hann var alltaf jákvæður, stálminnugur og sagði skemmti- lega frá. Ekki síst vegna þess að hann var næmur á fas manna, raddblæ og málfar og laginn við að herma eftir þeim. Hann átti til að gantast með pólitíkusa og aðra framámenn. Einn af þeim var t.d. Jónas frá Hriflu sem var kennari hans í Samvinnuskólan- um. Miðað við sögurnar var það uppátækjasamur hópur sem sat með honum í Samvinnuskólan- um. Einu sinni átti Maggi bíl sem hann var stundum kenndur við í vinahópi og kallaður Maggi plast. En Maggi var ekki úr plasti gerður. Hann var af skíra- gulli. Heiðarlegur, hreinskilinn, áreiðanlegur, hjálpfús og góð- gjarn. Hann var ráðagóður og gott til hans að leita. Í mörg ár heimsótti hann aldraða einstak- linga á vegum vina Rauða kross- ins. Fyrir utan föstudagana tengj- ast einnig margar okkar bestu stundir þeim Magga og Rúnu. Þau eiga saman og sitt í hvoru lagi sérstakan sess í hjörtum okkar enda einstaklega elskuleg og samheldin hjón. Þegar við byrjuðum að hittast á föstudög- um höfðu þau þegar eignast strákana sína þrjá. Síðan hafa tengdadætur og barnabörn bæst við. Maggi lætur eftir sig fallega fjölskyldu sem var þungamiðjan í lífi hans. Fyrsti föstudagshittingurinn var 16. október 1981 á Lækj- arbrekku. Við höfðum afrekað ýmislegt en áttum flest eftir. Síðan eru liðnir 1.665 föstudagar og nærri 32 ár. Það eru góðir vinir sem maður hlakkar til að hitta í hverri viku í 32 ár. Hugur okkar og samúð er með Rúnu og fjölskyldu hennar þegar Maggi kveður. Takk fyrir samveruna, Maggi minn, takk fyrir vináttuna. Guðl. Gauti Jónsson og Karl Grönvold, föstudagsfélagar. Fallinn er frá sómamaðurinn Magnús Einarsson fasteignasali en hann var einn af stofnendum Félags fasteignasala og stjórn- armaður þess á fyrstu árum fé- lagsins. Magnús var einn af þeim mönnum sem allir vildu eiga að vini. Hann var virðulegur í allri framgöngu, vammlaus í starfi sínu sem fasteignasali og menn treystu honum í öllu því er hon- um var falið að taka að sér. Magnús var ávallt boðinn og búinn að veita Félagi fasteigna- sala liðsinni sitt og gegndi marg- víslegum trúnaðarstörfum fyrir félagið í áratugi. Öll störf hans í þágu félagsins báru þess glöggt vitni hve honum var umhugað um að fasteignaviðskipti færu fram með traustum og tryggum hætti. Á árunum 2000 til 2004 gegndi Magnús stöðu fram- kvæmdastjóra Félags fasteigna- sala, yfirgripsmikil þekking hans á öllu er laut að fasteignamark- aðinum naut sín þar vel við margháttuð og vandasöm störf er sneru að innra starfi félagsins ásamt því að veita starfandi fast- eignasölum ráðgjöf og ekki síður þeim er leituðu til félagsins með úrlausnarefni í fasteignavið- skiptum en þar var ekki í kot vísað. Magnús sat í eftirlitsnefnd Félags fasteignasala á árunum 2004 til 2007 og var öflugur nefndarmaður, sem var afar um- hugað um að störf fasteignasala væru unnin af vandvirkni og í anda laga og siðferðisreglna er um þau gilda. Árið 2012 var Magnús gerður að heiðursfélaga Félags fast- eignasala, sá fyrsti og eini í 30 ára sögu félagsins, er hlotnast hefur sú sæmd sem viðurkenn- ing fyrir einstaklega gifturík störf við fasteignasölu og fyrir félagið. Magnús var einstaklega þægi- legur maður í allri umgengni, var viðræðugóður, hafði létta lund og sá oft spaugilegu hlið- arnar á málunum. Hann var nærgætinn og meiddi aldrei neinn með orðum eða gjörðum, var orðlagður fyrir afburða fag- mennsku og heiðarleika við milli- göngu í stærstu viðskiptum er menn eiga í á lífsleiðinni. Fast- eignasalar hafa misst mætan fé- laga og vin sem var óumdeildur innan stéttarinnar og langt utan hennar. Félag fasteignasala þakkar Magnúsi Einarssyni samfylgdina og vottar eiginkonu hans og fjöl- skyldu innilegrar samúð. Geng- inn er góður og vammlaus maður sem fasteignasalar munu minn- ast um ókomna tíð. F.h. Félags fasteignasala, Ingibjörg Þórðardóttir, formaður FF, og Grétar Jónasson, framkvæmda- stjóri FF. Fallinn er frá kær vinur og fé- lagi, Magnús Einarsson fast- eignasali, lengst af á Eignasöl- unni í Ingólfsstræti, þar sem hann byrjaði kornungur maður, nýútskrifaður úr Samvinnuskól- anum. Á þessum árum þótti Magnúsi ekki tiltökumál að taka strætó til að skoða eða sýna fast- eign. Bílaeign var ekki jafn- almenn þá. Fasteignasala var honum í blóð borin, fasteignasali af lífi og sál. Kynni okkar hófust 1980, þegar auglýst var próf til löggildingar fasteignasala. Við, fimm fasteignasölumenn; Heimir L. Fjeldsted, Magnús og und- irritaðir, undir forystu Daníels heitins Árnasonar, mynduðum leshóp til undirbúnings fyrir prófið. Ekkert formlegt nám var í boði. Prófið var auglýst og þeir sem hugðust þreyta það undir- bjuggu sig sjálfir. Á fyrsta fundinum sem var haldinn á Eignaumboðinu á Laugavegi 87 var Magnús seinn fyrir. Við hinir biðum hans, litum út um gluggann og sáum Range Rover koma á siglingu niður Laugaveginn og lagt með mikilli sveiflu, snyrtilega við gangstétt- arbrún. Út rýkur vörpulegur maður með hratt, sérstakt göngulag, hendur beinar niður með síðum, en handarbökin upp á við. Þar var kominn Magnús Einarsson, hafði verið að skoða „greni“ og orðið seinn fyrir. Hann ávarpaði hópinn hrað- mæltur: „Sælir piltar, er nokkuð að gera í bransanum? Ég seldi holu á Grettisgötu í dag og það er töluvert að ske.“ Magnús seldi „holur“ og „greni“, þegar aðrir gortuðu af stórsölum. Þannig var hann hógvær og kíminn. Þetta varð upphaf að mikilli og góðri vináttu sem aldrei bar skugga á. Magnús var í forystusveit við stofnun Félags fasteignasala. Hann var gjaldkeri þess um ára- bil. Síðar varð hann fram- kvæmdastjóri félagsins og fulltrúi þess í Eftirlitsnefnd fast- eignasala. Fórst honum hvort tveggja mjög vel úr hendi, mild- ur og strangur í senn, vel liðinn af öllum. Glaðværð hans kom í veg fyrir að hann yrði óvinsæll, þótt starfið fælist öðrum þræði í að setja út á félaga sína. Rétt- sýni og staðfesta í rökstuddum aðfinnslum skópu honum virð- ingu. Hann var fljótur til verka, hlustaði af athygli, ígrundaði lausnir, hugsaði hratt og lá á að útskýra úrræðin. Oft talaði hann mjög hratt. Þótt honum lægi á að tala var hugurinn á undan talfærunum. Það gat komið út eins og hann ræki í vörðurnar, en það voru talfærin, sem höfðu ekki við hugsuninni. Hann var skemmtilegur og fyndinn í góðra vina hópi, kunni skemmtilegar sögur og var vinmargur. Eftir að við urðum löggiltir fasteigna- salar hittumst við reglulega og ræddum málin. Einnig áttum við, sem þetta ritum, þess kost ásamt mökum að njóta gestrisni Magnúsar og Rúnu bæði á heim- ili þeirra og í bústaðnum. Þá var heldur betur glatt á hjalla og margt skrafað. Magnús Einars- son var myndarlegur á velli, teinréttur, kvikur í hreyfingum og glaðbeittur. Hann stundaði göngur, sund og golf fram undir það síðasta. Hann var heiðarleg- ur, sjálfum sér samkvæmur og honum lá gott orð til allra. Hnökralaus áratuga ferill hans ber þess vitni að genginn er mikill mannkostamaður. Við og eiginkonur okkar vottum Rúnu og fjölskyldu Magnúsar okkar dýpstu samúð. Ingileifur Einarsson, Magnús Axelsson. Vinur minn og félagi, Magnús Einarsson, er fallinn í valinn eft- ir baráttu við erfiðan sjúkdóm. Magnús varði meginhluta af sinni starfsævi við störf á fast- eignamarkaði. Hann var fast- eignasali af gamla skólanum, gegnheill og grandvar, skarp- greindur og fljótur að greina hismið frá kjarnanum í hverju máli. Það var engin tilviljun að hann var ráðinn framkvæmda- stjóri Félags fasteignasala, þeg- ar hann dró sig í hlé frá rekstri fasteignasölu þegar leið á sjö- tugsaldurinn. Betri mann var vart hægt að hugsa sér til þess starfa. Hann var hafsjór af reynslu og fróðleik og nutu fé- lagsmenn góðs af störfum hans allt þar til hann var sjötugur. „Nú er ég orðinn ellismellur og verð að hætta,“ sagði hann í gamansömum tón. Örlögin höguðu því þannig að við áttum samstarf um nokkurra ára skeið þegar ég sat í stjórn Félags fasteignasala. Mörg urðu símtölin milli okkar á þeim tíma til að fara yfir málefni líðandi stundar. Magnús var fljótur að hugsa og lá ekki á liði sínu þegar taka þurfti afstöðu til hinna ýmsu erinda sem félaginu bár- ust. Oft rifjaði hann upp gamla tíma frá því að hann byrjaði í fasteignasölu upp úr miðri síð- ustu öld, en hann hefur líklega lifað mesta breytingaskeið á fasteignamarkaði á Íslandi. Þá var fólk almennt ekki með síma og farið var með tilboðin heim til fólks á kvöldin í strætó. Síðan kom tölvuöldin og internetið og allt var gjörbreytt á stuttum tíma. Magnús hafði einstaka frá- sagnargáfu og færði sögur af mönnum og málefnum í búning sem iðulega kom viðmælandan- um til að hlæja. Gamansögur hans munu eflaust lifa áfram með samferðamönnum hans. Ég kveð að leiðarlokum góðan dreng og umfram allt skemmti- legan mann. Blessuð sé minning hans. Runólfur Gunnlaugsson. Magnús Einarsson HINSTA KVEÐJA Glaðlyndur, grallari, ljúfmenni, töffari. Rausnarlegur, röskur og framkvæmdaglaður. Alls ekki smámunasamur. Heiðarlegur, hrifnæmur, hlýr og hjálpsamur. Stemmningsmaður. Matelskur, tónelskur, skarpur og bókhneigður. Virkur, skemmtilegur, sjarmerandi, eftirsóttur, yndislegur og umfram allt, æðrulaus. Takk fyrir samfylgdina. Berglind Helga Sigurþórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.