Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 35

Morgunblaðið - 20.09.2013, Side 35
áður en langt um leið voru þau farin að kalla Pál afa og Svövu ömmu. Samverustundirnar voru margar og allar ánægjulegar. Þær voru ófáar máltíðirnar sem við snæddum hjá Páli og Svövu. Þaðan fóru allir saddir og sælir enda þau hjón miklir höfðingjar heim að sækja. Páll bjó yfir mikilli þekkingu og visku. Reynslan hafði líka kennt honum margt og öllu þessu var hann tilbúinn að miðla. Hann var víðsýnn með góða kímnigáfu og alveg var ljóst hvar hjarta hans sló í stjórnmálunum. Þar eins og í mörgu öðru vorum við sammála. Páll var smekkmaður og hafði mikinn áhuga á bílum. Hann ók alltaf um á flottum Wagoneer eða alveg þangað til mér tókst að selja honum fyrsta Pajeroinn. Eftir það ók hann á bílum frá Heklu. Í gegn- um tíðina hef ég oft leitað til Páls. Hann hefur alla tíð reynst mér sem besti vinur og fyrir það ber að þakka. Þegar forseti Tékkneska lýðveldisins ákvað að koma til Ís- lands sér til heilsubótar lánuðum við Páll okkar bústaði fyrir Havel og starfslið hans. Páll var fljótur að svara játandi þegar ég bað hann um að lána bústaðinn. Greið- vikni og hjálpsemi einkenndu hann. Páll var sagnamaður og kunni að segja skemmtilega frá. Sög- urnar verða ekki fleiri en minn- ingin um góðan dreng lifir. Það var mikil gæfa fyrir mig, börnin mín og konu mína að fá að kynnast Páli og hans góðu fjölskyldu. Síð- ustu samverustund okkar hjónanna með Páli og Svövu geymi ég innra með mér. Við sát- um við hafið og gerðum að gamni okkar. Blámi himinsins og hafsins runnu saman og stundin var okk- ar. Það er komið að kveðjustund. Fyrir hönd fjölskyldunnar votta ég Svövu, börnunum þeirra og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Ég kveð kæran vin með djúpri virðingu og þakklæti. Guð blessi minningu Páls Jónssonar. Sigfús R. Sigfússon og María Solveig Héðinsdóttir. Ég kynntist Púlla fyrst á tann- læknastofunni aðeins sex ára gamall, fyrir dyrum stóð tanntaka sem mér leist nú mátulega á en málið leystum við Púlli með stæl og uppskar ungi maðurinn 50 krónur að launum fyrir hetjulega frammistöðu. Heiðursmaðurinn Páll Jónsson, Austfirðingur að ætt, hefur búið á Selfossi nánast alla sína tíð, kom hér tveggja ára og reiknaðist okkur til í samtali að aðeins einn annar heiðursmaður hér á Selfossi ætti lengri sam- fellda búsetu en sá er Gunnar á Fossi. Minningar mínar frá þess- ari fjölskyldu, þeim Hlaðabræðr- um, spanna langan tíma og þekkti ég þá Garðar, Ólaf og Púlla best. Púlli sat lengi í bæjarstjórn hér á Selfossi fyrir okkur sjálfstæðis- menn og efa ég að harðari flokks- menn hafi verið að finna en þá bræður. Okkar kynni hófust í al- vöru fyrir áratugum þegar ég var að sniglast á kosningaskrifstof- unni og vildi leggja mitt af mörk- um og oftar en ekki voru þeir bræður Púlli og Óli þar staddir og vakti það snemma athygli mína hvað þeir sýndu unga manninum mikinn áhuga og vildu virkja mig. Ég sneiddi þá framhjá kosninga- stjóranum, góðvini mínum Þór heitnum Hagalín, sem lést nýlega, með hugmynd um að setja X-D- límmiða á biðskyldumerki bæjar- ins til að vekja athygli kjósenda og lögðu þeir bræður blessun sína yf- ir ráðahaginn og sögðu mér að drífa mig. En daginn eftir hringdi Þór í mig og sagði þetta ekki hafa verið sniðuga hugmynd því lög- reglan hefði fundið að þessu en ekki var gert frekara mál úr þessu. Púlli var einn af mörgum hörð- um stuðningsmönnum Selfoss í knattspyrnunni og í mínu ung- dæmi stóðu þeir í minningunni við girðinguna næst vellinum Púlli, Þórmundur Guðsteinsson og Marel Jónsson og fékk girðingin oft að finna fyrir því ef stressið og spennan var mikil. Kona Púlla, Svava, ávarpaði mig alla tíð frænda og því taldi ég mig hafa góða stöðu hjá fjölskyld- unni. Við Púlli höfum aldrei verið ósammála nema ef vera skyldi um tíma þegar átök voru í flokknum um Gunnar og Geir en það jafnaði sig allt. Ég gæti sagt margar sög- ur úr kosningum af þeim bræðr- um en þar voru þeir alltaf í essinu sínu og stóðum við þar saman sem klettur. Púlli var gæfumaður í lífinu og einn af mörgum hornsteinum þessa samfélags hér við bakka Ölfusár. Síðustu árin barðist Púlli við veikindi en aldrei brást hann og hélt línunni, eins og við gjarn- an sögðum, framundir það síð- asta. Daginn sem Púlli kvaddi ætlaði ég að snyrta hár hans en því miður varð ekki af því, kallið var að koma eftir rúmlega 89 far- sæl ár. Ég vil þakka Púlla persónulega fyrir vináttustreng á milli okkar sem stóð til hinstu stundar. Ég sit í bæjarstjórn sveitarfélagsins og fyrir hönd okkar fulltrúa sjálf- stæðismanna færum við Púlla mikið þakklæti fyrir framlagið til samfélagsins og stuðninginn við flokkinn í gegnum árin. Fjöl- skyldunni færum við innilegar samúðarkveðjur og kveðjum heiðursmanninn Pál Jónsson með ljóði Pálma Eyjólfssonar um Sel- foss: Hér við straumþunga á vil ég starfa og sjá áfram stórhug í vaxandi bæ. Hér er framtíðin björt, margt til framfara gjört, hér er fegurð með kyrrlátum blæ. Kjartan Björnsson rakari og bæjarfulltrúi. Það er gott að minnast Páls Jónssonar, Púlla tannlæknis, eins og hann var kallaður af flestum. Leiðir okkar Páls lágu saman á svo mörgum sviðum hér í bæjar- lífinu á Selfossi á liðnum árum að minningarnar hlaðast upp þegar hugsað er til þessa góða manns. Páll var hreinn og beinn í öllum samskiptum, ákveðinn og sann- gjarn. Þegar ég fluttist til bæj- arins 1971 þurfti ég fljótlega að leita til Púlla sem með kunnáttu sinni og tækjum leysti allan minn vanda þegar ég opnaði munninn. Leiðir okkar lágu oft saman eftir þetta, hann var þá að ljúka sínum ferli í bæjarpólitíkinni en minn að hefjast. Ég las margar bæjarfundagerðir á þessum tíma og sá strax að framganga Páls var mér að skapi. Hann barðist fyrir framfaramálum þvert á flokks- pólitík en var þó alltaf hollur sjálf- stæðismaður. Páll var að mörgu leyti mín fyr- irmynd í bæjarmálunum en ég komst þó ekki upp að honum á þeim sviðum. Aldrei kom það upp í hugann á þessum árum að við Páll og fjöl- skylda hans ættum eftir að tengj- ast eins náið og við gerðum, við urðum afar og ömmur þriggja barna sem börnin okkar Páls og Svövu hafa lagt til samfélagsins. Góðra einstaklinga sem við erum stolt af og gleðjumst að eiga sam- an. Í kringum þetta ævintýri urðu samverustundirnar enn fleiri og alltaf skemmtilegar. Púlli hafði frá mörgu að segja. Maður margra tímaskeiða, ungur dreng- ur var hann t.d. sendur á hesti frá Selfossi niður að Litlu-Sandvík með miða sem var hvatning til hreppstjórans að koma í símann upp á Selfoss. Nú á síðustu árum var hægt að hringja í Púlla í farsímann hans. Páll tók þátt í að skila til fram- tíðarinnar góðu samfélagi hér á Selfossi og víðar, það var gaman og gott að ganga til hliðar við hann götuna fram eftir veg. Góð minning lifir um Pál Jóns- son. Kristján Einarsson. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 ✝ Þóra KristínHelgadóttir fæddist í Ólafsvík 8. apríl 1947. Hún lést 2. september 2013. Þóra Kristín var dóttir hjónanna Helga Björnssonar frá Grund í Ólafs- vík og Kristínar Petrínu Gunn- arsdóttur frá Kast- hvammi í Laxárdal. Systkini hennar: Bjarni Helga- son, f. 12. nóvember 1948, d. 4. október 1965. Alda Kolbrún Helgadóttir, f. 30. maí 1951, maki Sigurður Ottósson. Börn Þóru Kristínar eru: Bjarni Höskuldsson, f. 18. júní 1966, maki Anna Gerður Guðmunds- dóttir, börn þeirra: Halldóra Kristín, Guðmundur Helgi, Jana Valborg og Þráinn Maríus. María Höskulds- dóttir, f. 6. janúar 1971, maki Jón Gísli Þorkelsson, börn þeirra: Þor- kell, Höskuldur Þór og Freyr Jökull. Kristín Dögg Höskuldsdóttir, f. 5. desember 1979, maki Steinn Jónsson, börn þeirra: Jón Leví og Þór Leví. Útför Þóru Kristínar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 20. september 2013, klukkan 15. Eftir fregnina af andláti Þóru frænku sat ég hugsi í nokkra stund og áður en ég vissi af var hugurinn farinn að reika, minn- ingar um Þóru, létta og káta frænku sem ávallt var gaman að sjá. Hugurinn fór með mig aftur í tímann, m.a. í Kasthvamm þar sem við pabbi vorum í heimsókn sem oft áður, og þarna er líka Þóra og fjölskylda, mikið stuð á okkur krökkunum og umræða yfir drekkhlöðnu borði fjörlegar. Ekki fór minnst fyrir Þóru þarna sem oft áður og glaðværð með Kasthvammskátinu var þarna til staðar í sambland við djúpa væntunþykju fólksins hvers til annars. Við krakkarnir í góðum og skemmtilegum leikj- um (ótrúlegt gæti sumum fund- ist hvað við gátum leikið okkur saman þrátt fyrir engar tölvur). Góðar stundir þarna og alltaf svo margir og mikil gleði í loftinu. Ásgarður 5 var svo annað félags- heimili okkar stórfjölskyldunnar. Ófáar voru stundirnar sem ég dvaldi þar og það er gaman að rifja þessar stundir upp. Þóra var oft á sama tíma, ávallt var gaman að spjalla við hana í kvöldkaffinu og á tímabili hafði ég tíma til að létta undir með henni, negla nagla og eitthvað slíkt. Þóra var ávallt mjög glaðleg, hress og skemmtileg að hitta. Í þessum félagsheimilum ættar- innar, sem oft voru þétt setin, varð til vinátta og væntunþykja milli okkar í fjölskyldunni en það ber þó að hafa í huga að tengsl á milli okkar tvímenninga hefðu ekki komið til nema vegna óhemjusterkra banda þeirra Kasthvammssystkina eldri. Ég er þakklátur fyrir þær stundir sem ég átti með frænku, sem voru góðar og bar ekki skugga á. Nú eru þau öll „gömlu“ systkinin látin og við tvímenningarnir er- um líka farnir að týna tölunni. Einhver sagði að svona væri víst lífið en æi hvað það virkar stund- um snúið að sætta sig við það. Þóra mín, þakka þér fyrir allar góðar stundir, lífshlaup þitt hef- ur gefið af sér þrjú vel gerð börn og fjölda góðra barnabarna, vin- áttu og ánægjuleg samskipti við ættingja og vini. Við sem enn stígum lífsdansinn getum glaðst í gegnum tárin fyrir þær góðu minningar sem þú skilur eftir í huga okkar. Blessuð sé minning góðrar konu, Þóru frænku. Gunnar Jón Yngvason. Nú er komið að því að kveðja þig, kæra frænka mín og nafna. Við vorum þrjár sem vorum skírðar í höfuðið á ömmu Þóru í Kasthvammi og mér hefur alla tíð fundist mikið til þess koma að vera í hópi með svona merkum konum eins og þér og Goggu. Ein af mínum fyrstu minning- um um þig er þegar ég var lítil og leit upp til þín, hvað þú varst glæsileg, flott klædd, falleg og barst þig vel. Ég man hvað mér fannst mikið til þess koma þegar ég fékk að koma í heimsókn til þín í Laxárvirkjun, hvað matur- inn var góður og vel tekið á móti okkur. Síðan þegar þú fluttir í Ás- garð, þá urðum við meira eins og vinkonur. Við sátum oft á kvöld- in inni hjá þér og ræddum um hjartans mál; stráka, föt og önn- ur álíka mikilvæg málefni. Einn- ig var oft setið frammi í eldhúsi í Ásgarði þar sem var stöðugt fjör, endalaus straumur fólks og allt rætt á milli himins og jarðar. Núna þegar ég hugsa til þín, þá minnist ég hláturs þíns, ég heyri þig hlæja að einhverri vit- leysunni sem við erum búnar að sjóða upp og svo segir þú alltaf í lokin á hláturgusunni, „já, já“. Við höfum nú varla hist í gegn- um tíðina öðruvísi en að rifjuð sé upp sagan góða af pilsinu og orð- óheppni minni við það tækifæri. Það var nú þér til hróss hvað þú tókst þessu vel en sagan sú er engan veginn prenthæf, en við þekkjum hana vel öll sem erum í fjölskyldunni. Ég hugsa líka til hlýleika þíns og góðmennsku. Þegar ég fór að Fossvogskapellu að kveðja þig þá mundi ég svo glöggt daginn þegar ég var að kveðja pabba og þú sást um að hugga mig þar sem ég stóð einsömul. Eins var það þegar mamma dó í vetur, þá varst þú komin með fallega gjöf, samúð þína og hlýju. Síðasta stund okkar saman var núna í ágúst yfir kaffibolla og við áttum svo ánægjulega stund þar. Fórum síðan næsta dag saman að heimsækja pabba þinn og ég dáðist að lagni þinni við hann. Ég er óendanlega þakklát fyrir þessar síðustu stundir okkar saman. Nú þegar þú ert farin og við sem eitt sinn vorum unga fólkið breytumst hægt og rólega yfir í gamla fólkið, þá veltir maður óneitanlega fyrir sér þessu ferðalagi sem lífð er. Ég held að lífið sé kannski svolítið eins og lífið í Ásgarði forðum; stöðugt fólk að koma og stöðugt fólk að fara. Við stöldrum við í forstof- unni og tökum góðan tíma í að kveðja góða vini. Svo heldur lífið áfram og við sem eftir erum höldum áfram að spjalla, hlæja og umfram allt vera góð hvort við annað. Hvíl í friði, kæra frænka, og þakka þér fyrir að hlæja með mér og vera góð við mig. Elsku Stína Dögg, Maja, Bjarni og fjölskyldur. Ég vona að fallegar minningar verði ykk- ur huggun í sorginni og Guð gefi ykkur styrk til að takast á við áfallið. Þóra Valný. Þóra Kristín Helgadóttir vin- kona okkar varð bráðkvödd að heimili sínu þann 3. september síðastliðinn. Það er nú svo að við erum aldrei viðbúin því að nú sé stundin komin. Enda ótímabært, en þetta er nú það eina sem við eigum víst, en kemur okkur allt- af jafn mikið í opna skjöldu. Við höfum verið saman í saumaklúbb vinkonurnar í all- nokkur ár, eða síðan við vorum 18 ára. Við höfum átt margar góðar stundir saman, alltaf sami kærleikurinn og virðingin hver fyrir annarri. Við höfum sam- glaðst hver annarri, t.d. þegar við vorum að eignast börnin ung- ar mæður. Og einnig þegar ömmubörnin komu þá var sam- kenndin og gleðin ljúf í klúbb. Það er gott að eiga góðar vin- konur gegnum lífið þar sem aldr- ei hefur borið skugga á. Við viljum með þessum fáu orðum þakka Þóru allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman. Blessum Guðs fylgi Þóru Kristínu Helgadóttur og minn- ingu hennar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Innilegar samúðarkveðjur til aðstandenda sem eiga nú um sárt að binda. Guð veri með ykk- ur. F.h. saumaklúbbsins, Jónína Steiney. Þóra Kristín Helgadóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf grein- in að hafa borist á hádegi tveim- ur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skila- frests. Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær út- förin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um for- eldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar Þessi kona er nú svolítið skemmtileg, hugsaði ég, þegar ég sá Guðrúnu Georgsdóttur fyrst. Það var á einu af mörgum námskeiðum sem við sóttum samtímis, hið fyrsta í Miðgarði, hjá félagi sem var til húsa á Bárugötu; andleg námskeið um endurfæðingar, hugleiðslu. Fyrirlestrar um eitt og annað. Kona þessi, kjarna- kona, var sífellt að biðja um skýringar á hinu og þessu, vildi hafa allt á hreinu. Það var Guð- rún Georgs. Hún vildi fá svör, og það á skýru máli. Og við urðum samferða næstu árin. Ég geri mér grein fyrir því í dag hvers vegna mér fannst ágætt að vera innan um ófeimið fólk. Þegar ég sjálf greindist með ADHD (athygl- isbrest) og fór að lesa mér til um efnið var ég fljót að sjá út, Erna Guðrún Georgsdóttir ✝ Erna GuðrúnGeorgsdóttir fæddist í Reykjavík 8. júní 1939. Hún lést á Landspít- alanum í Reykjavík 5. september 2013. Útför Guðrúnar verður gerð frá Dómkirkjunni 17. september 2013. að margir vinir mínir voru með samskonar ein- kenni, m.a. Guðrún, og hún kom á einn fræðslufund um efnið fyrir mín orð og taldi að líklega væri það rétt, en þá væri það bara svo. Ekkert alvarlegt í gangi svosem. Báð- ar nokkuð hvatvís- ar, gleymnar. Þurftum að fara eigin leiðir á eigin hraða. Eini munurinn var, að hún var of- virk, ég vanvirk, sennilega ástæða þess hve mér þótti oft hressandi að hitta hana. Guðrún sá og skynjaði meir en almennt gerist. Við urðum samferða í fyrsta Heilunarskóla á Íslandi, sem Jytta Eiríksson stofnaði hér fyrir u.þ.b. 25 árum í Reykjavík. Vorum í mörg ár síðan í bænahópi, með félögum, andlega sinnuðu fólki. Við ásamt Kristínu og Magnúsi og öðrum góðum í minningunni nokkur sumur á Arnarstapa á Snæfells- nesi á hugræktarmótum. Hug- leiddum líka við Flosagjá á Þingvöllum, og voru Jytta, okk- ar ástfólgni leiðbeinandi, og Rakel með okkur. Þegar við Guðrún fórum að ræða saman, eftir að við kynnt- umst fyrir tugum ára, kom í ljós að við höfðum báðar eignast syni á sama degi á sama ári! Nokkru seinna kom í ljós, að eiginmaður minn á þeim tíma og fyrri eiginmaður hennar, hann Skúli Marteins heitinn, voru systrasynir! Ótrúlegt fannst mér hvað Guðrún vissi og margt um ættfræði samtímafólks okk- ar. Ég mun sakna Guðrúnar. Það var fallegt að sjá hve natinn seinni maður hennar, Skúli Magnússon, fyrrverandi jóga- kennari, var við að létta henni lífið í rúmgóðri stofu Hjúkrun- arheimilisins Sóltúns, eftir að hún fór að vera þar, hún í hjóla- stól og hann spilaði Beethoven, Mozart og Bach úr gamla plötu- safninu. Og kembdi silfurlitt hár hennar. Fóru þegar vel viðraði út á stóra flötina fyrir framan húsið, hann ók hjólastólnum og hundurinn Prins rölti með. Börnin hennar og Skúla Mar- teins og barnabörn komu svo seinnipart dags til skiptis. Ég skynjaði að hún var sátt, það var vel hugsað um hana. Það geislaði frá henni birtu. Börnum hennar, eiginmanni, barnabörnum, bróður og systur votta ég samúð mína. Margir muna Guðrúnu Georgs sem hafa kynnst henni, konunni með bjarta brosið, há- væran hláturinn, sem smitaði frá sér. Sú sem leitaði svara. Blessuð sé minning hennar. Norma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.