Morgunblaðið - 20.09.2013, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er auðvitað gaman að fá tæki-
færi til að vinna í Þjóðleikhúsinu auk
þess sem í því felst skemmtileg
áskorun. Hins
vegar verður að
viðurkennast að
hjá mér er list-
ræna ferlið og list-
sköpunin alltaf sú
sama, hvar svo
sem sýningin er
sett upp,“ segir
Una Þorleifs-
dóttir sem leik-
stýrir nýju ís-
lensku leikriti, Harmsögu eftir
Mikael Torfason, sem frumsýnt verð-
ur í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í
kvöld kl. 19.30. Samkvæmt upplýs-
ingum frá leikhúsinu er Harmsaga
nútímaleg ástarsaga um allt sem
heppnaðist og líka allt sem fór úr-
skeiðis í sambandinu. Eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum vinnur höf-
undur með þekkt þemu og morðmál
úr íslenskum samtíma. „Verkið er þó
ekki um eitthvert eitt ákveðið morð-
mál. Það er meira um þessar að-
stæður þar sem samband tveggja ein-
staklinga er komið í öngstræti og fólk
missir algjörlega stjórn á sam-
skiptum sínum og tilfinningum og
tekur ekki ábyrgð á sjálfu sér.“
Viðfangsefni sem tekur á
Fram hefur komið að sögunni lýk-
ur á morði og því liggur beint við að
spyrja Unu hvernig hún nálgist verk-
ið þegar öllum áhorfendum megi vera
ljóst fyrirfram hvert stefni. „Fyrir
mér skiptir mestu máli að miðla von-
inni, því það hlýtur einhver ást að
liggja að baki öllum samböndum.
Fyrir mér skiptir mestu máli að segja
sögu þessara samskipta og velta fyrir
sér hvort aðrar lausnir hefðu verið í
boði. Við spyrjum hvort þetta hefði
þurft að gerast, hvenær þau voru
komin of langt, hvenær ekki var leng-
ur hægt að snúa við. Það er uppleggið
hjá mér. Burtséð frá því hvernig
verkið endar þá er meginspurningin í
mínum huga hvað sé ofbeldi, þ.e.
bæði líkamlegt og andlegt, og hvenær
maður gerir eitthvað ófyrirgefanlegt.
Mér finnst mikilvægt að áhorfendur
upplifi að það sé möguleiki fyrir eitt-
hvað annað en það sem í reynd gerist
og möguleiki fyrir ástina. Því eitthvað
er það sem heldur manni í svona helj-
argreipum,“ segir Una og viður-
kennir að það reyni á að takast á við
svona erfitt efni.
„Umfjöllunarefni verksins er þann-
ig að allt listafólkið sem kemur að
sýningunni horfir líka á sjálft sig og
eigin samskipti. Sýningin er ekki
bara um eitthvert fólk úti í bæ heldur
alveg jafn mikið um okkur og um
samskipti almennt,“ segir Una og
tekur fram að áhorfendur muni þann-
ig geta speglað sig í persónum verks-
ins þó þeir hafi ekki persónulega
reynslu af ofbeldissamböndum. „Því í
öllum ástarsamböndum er einhvers
konar valdatafl og samskiptamunstur
sem myndast. Maður er berskjald-
aðri í nánum samskiptum, enda leyfir
maður sér að segja hluti við maka
sinn sem enginn annar fær að heyra.
Stundum eru ástarsambönd óheil-
brigð og öllum fyrir bestu að ljúka
þeim, en stundum er það bara ekki
hægt og fólk er fast í óheilbrigðu
munstri.“
Aðeins tvö hlutverk eru í Harm-
sögu og eru þau í höndum Elmu Stef-
aníu Ágústsdóttur og Snorra Eng-
ilbertssonar. Elma útskrifaðist frá
LHÍ í vor og Snorri í fyrra. „Ég hef
bæði kennt þeim og unnið uppsetn-
ingar með þeim og þekki þau því
mjög vel. Mér fannst þau því bæði
geta staðið undir þeirri áskorun sem
þetta verk er.“
Vill samtal við leikskáldið
Una starfar sem lektor í sviðs-
listum við leiklistar- og dansdeild
Listaháskóla Íslands auk þess að
vera fagstjóri násmbrautarinnar
fræði og framkvæmd við sömu deild.
Hún réð sig til starfa við LHÍ að
námi loknu, en Una lauk mast-
ersnámi í leikstjórn frá Royal Hol-
loway, University of London, árið
2004 en áður hafði hún stundað nám í
leikhúsfræðum og -list við Gold-
smiths College, University of Lond-
on. Helstu leikstjórnarverkefni Unu
fram til þessa eru Nú er himneska
sumarið komið eftir Sigtrygg
Magnason sem sýnt var á Árbæj-
arsafninu sl. vor, samsköpunarverkið
Óraland sem unnið var í samvinnu
við Jón Atla Jónasson og útskrift-
arnemendur LHÍ í Nemendaleikhús-
inu árið 2012, Bráðum hata ég þig
eftir Sigtrygg Magnason í Nemenda-
leikhúsinu 2010 og Gengið á vit sög-
unnar í samvinnu við START ART
og Listahátíð í Reykjavík 2009.
Allar ofangreindar uppfærslur
eiga það sameiginlegt að vera ný ís-
lensk verk og því liggur beint við að
spyrja hvort Una sækist sérstaklega
eftir slíkum verkefnum. „Já, því mér
finnst mest spennandi að fást við ný
leikrit sem velta upp spurningum um
hver við séum og hvernig sé að vera
manneskja á 21. öldinni. Mér finnst
samvinnan og samtalið við leik-
skáldið líka svo áhugavert,“ segir
Una og bætir við: „Við Mikael náðum
einstaklega vel saman í samtölum
okkar um listina og lífið almennt og
það er ómetanlegt í sköpunarferl-
inu.“
Ljósmynd/Eddi
Sársaukafullt Snorri Engilbertsson og Elma Stefanía Ágústsdóttir í hlutverkum sínum í Harmsögu.
„Í öllum ástarsamböndum
er einhvers konar valdatafl“
Leikritið Harmsaga frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld
Una Þorleifsdóttir
Úthlutað hefur verið í fyrsta skipti úr
nýstofnuðum myndlistarsjóði sem
heyrir undir myndlistarráð. Tuttugu
milljónum króna var úthlutað til
myndlistarmanna og fagaðila á sviði
myndlistar.
Alls bárust sjóðnum 83 umsóknir;
66 sóttu um verkefnastyrki og 17 und-
irbúningsstyrki. Heildarupphæð um-
sókna hljóðaði upp á 121 milljón
króna. Úthlutað var 2,5 milljónum
króna í undirbúningsstyrki til átta
verkefna og hins vegar 17,5 milljónum
króna í verkefnastyrki til 20 verkefna.
Undirbúningsstyrkir
Bryndís Björnsdóttir 500.000 kr.
vegna „Occupational Hazard“.
Hulda Rós Guðnadóttir 200.000 kr.:
„útgáfa um rannsókn…“
Kristinn E. Hrafnsson 200.000 kr.
vegna sýningar í Bogasal.
Nýlistasafnið 400.000 kr. vegna
„Arkíf um listamannarekin rými“.
Ólafur Sveinn Gíslason 250.000 kr.
vegna „Fangavarða“.
Sequences 450.000 kr.
Þóra Sigurðardóttir 300.000 kr.
vegna Dalir og hólar 2014.
Þórdís Jóhannesdóttir 200.000 kr.
vegna „Áráttu“.
Verkefnastyrkir
Áhugamannafélagið Fríðfríð ein
milljón kr. vegna Lusus Naturae.
Birna Bjarnadóttir 500.000 kr.:
„Könnunarleiðangur á Töfrafjall-
ið“.
Crymogea 500.000 kr.: „Hrafnkell
Sigurðsson – Ljósmyndaverk“.
Einar Garibaldi 500.000 kr. vegna
„Chercer un forme“.
Elín Hansdóttir 1.500.000 kr. vegna
„One Room One Year“.
Ferskir vindar ein milljón kr.
vegna Ferskra vinda í Garði.
Finnur Arnar Arnarsson 500.000
kr.: Menningarhúsið Skúrinn
Gjörningaklúbburinn ein milljón
kr.: „Hugsa minn – Skynja meira“.
Hannes Lárusson 1.300.000 kr.
vegna Íslenska bæjarins.
Íslenski skálinn KÍM 2.500.000 kr.:
Íslenski skálinn á Feneyjatvíær-
ingnum.
Jón Proppe 1.000.000 kr. vegna Ís-
lenskrar samtímalistfræði.
Katrín Elvarsdóttir 500.000 kr.:
„Dimmumót“.
Kristín Gunnlaugsdóttir 500.000
kr. vegna „Sköpunarverks“.
Kristinn E. Hrafnsson 500.000 kr.
vegna Hverfisgallerís.
Listasafn Reykajvíkur tvær millj-
ónir kr.: „Grunnur“.
Menningarfélagið Endemi 500.000
kr.: „Endemi – aukið samtal“.
Pétur Thomsen 700.000 kr. vegna
útgáfu „Aðflutts landslags“.
Steinunn Gunnlaugsdóttir og
Snorri Páll 500.000 kr. vegna
„Slegið-sleikt-bleikt“.
Vasulka 500.000 kr.: „Vasulka
stofa“.
Æsa Sigurjónsdóttir 500.000 kr.
vegna „En Thule froiduleuse…“.
20 milljónum
úthlutað í myndlist
FeneyjaskálinnElín Hansdóttir
Tónleikar í röðinni Á ljúfum nótum
verða haldnir í Háteigskirkju í dag,
helgaðir Disney- og söngleikjalög-
um. Því verður um sannkallaða fjöl-
skyldutónleika að ræða. Flytjendur
eru Valgerður Guðnadóttir og Þór
Breiðfjörð sem bæði slógu í gegn í
uppsetningu Þjóðleikhússins á
Vesalingunum vorið 2012. Á tón-
leikunum í dag syngja þau við und-
irleik Vignis Þórs Stefánssonar.
Tónleikarnir hefjast kl. 12. Al-
mennt miðaverð er 1.000 kr.
Fjölskyldutónleikar í hádeginu í Háteigskirkju
Fjölskyldutónleikar Þór og Valgerður verða á ljúfum nótum í hádeginu í dag.
Helgar
Alvöru
Nú er kominn tími á alvöru helgar-brunch
brunch
Steikt beikon
Spælt egg
Steiktar pylsur
Pönnukaka með sírópi
Grillaður tómatur
Kartöfluteningar
Ristað brauð
Ostur
Marmelaði
Ávextir
kr. 1740,- pr. mann
Barnabrunch á kr. 870
Ávaxtasafi og kaffi eð
a te fylgir.
H
ug
sa
sé
r!
H
ug
sa
sé
r!
Grillhúsið Sprengisandi og Tryggvagötu
Phone + 354 527 5000 www.grillhusid.is
Ótrúlega gómsæt byrjun
á góðum degi!
Alla laugardaga og su
nnudaga
frá kl. 11.30 til kl. 14
.30