Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Síða 9
29.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið Natuzzi gallerýið okkar
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Þ
etta kom þannig til að hringt var í mömmu
og hún beðin um að fá mig lánaðan í mynda-
töku. Ljósmyndarinn, Raxi, þekkti til hennar
og vissi að hún ætti lítinn strák. Það þurfti
að redda myndatökunni með hraði og var þetta því
ákveðið á staðnum. Pabbi sótti mig því strax á leik-
skólann og ég var víst bara í makindum mínum að
kubba þegar hann kom. Ég skildi ekkert hvað var í
gangi og var alveg ómögulegur í bílnum. Mamma er
hárgreiðslukona og pabbi skutlaði mér til hennar í
klippingu því hún vildi punta mig aðeins fyrir
myndatökuna.“ Sandurinn var þar skolaður úr hárinu
á Arnari eftir fjör á leikskólanum og hann klæddur í
sparifötin, sem amma hans hafði saumað á hann.
„Þetta var víst algjör martröð,“ segir Arnar og hlær.
„Ég var svo óþekkur. Það tókst jú að klippa á mér
hárið og klæða mig en þegar ég var kominn í Hall-
grímskirkjuna þar sem myndatakan fór fram var ég
ekkert sérstaklega sáttur. Ég var bara vælandi og
rauður í augunum og gat með engu móti setið kyrr.“
Arnar segist ekki muna mikið eftir myndatökunni
en sagan af henni er reglulega rifjuð upp á heim-
ilinu. „Það er svo oft þannig að þegar maður heyrir
af einhverju atviki frá barnæsku rifjast upp fyrir
manni ýmislegt,“ segir Arnar Stefánsson. Arnar er
22 ára og stundar nám við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti í fatahönnun og textíl. Hann segist muna
örlítið eftir prestinum og Raxa, sem tók myndina, en
annað muni hann ekki. Það var í raun ákveðin
heppni að hafa náð myndinni þar sem litli þriggja
ára pjakkurinn var ekki sérlega spenntur fyrir upp-
stilltri myndatöku, skiljanlega. Arnar segir að þegar
menn hafi verið við það að gefast upp hafi hann allt
í einu róast niður. „Það var næstum því búið að
slaufa þessu, því þetta var ekki hægt. Pabbi tók þá
utan um mig og ég róaðist eitthvað niður. Raxi greip
þá tækifærið og smellti nokkrum myndum af mér
þegar ég náði að slaka á og horfa á kertið. Hann
náði að taka þessa fínu mynd og var þetta algjör
heppni. Ég held að ég hafi reynt mikið á þolinmæði
pabba,“ segir Arnar glaður í bragði.
Arnar er fæddur 14. desember og því óhætt að
segja að hann sé mikið jólabarn, í orðsins fyllstu
merkingu. Hann segist vera það sjálfur en líki þó
ekki stressið sem fylgir jólaundirbúningnum. „Annars
hlakka ég alltaf mikið til jólanna.“
Gullið augnablik
þriggja ára snáða
Arnar Stefánsson prýddi forsíðu Morgunblaðsins á aðfangadag 1994, þá þriggja
ára gamall. Ný mynd var tekin af honum við sama glugga nú nítján árum síðar.
Morgunblaðið/Ómar
NOKKUR BÖRN HAFA SKREYTT FORSÍÐUR MORGUNBLAÐSINS Á AÐFANGADAG OG
MEÐAL ÞEIRRA ER ARNAR STEFÁNSSON. ÞEGAR TAKA ÁTTI MYNDINA AF HONUM ÁRIÐ
1994 VAR GUTTI EKKI SÁTTUR ENDA AÐEINS ÞRIGGJA ÁRA OG FYRIRSÆTUSTÖRF EKKI
BEINT OFARLEGA Á LISTA YFIR SKEMMTILEGA AFÞREYINGU.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is